Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNl 1971 íslandsmótið 2. deild Víkingur — ÍBÍ 4:0 VÍKINGAR áttu ekki í erfiðleikum með Isfirðinffa er þeir mættu þeim á heimavelli í II. deildar keppninni sl. laugardag:. Veður var þá fremur óhagstætt tii knattspyrnukeppni á ísafirði, hvasst og stóð á annað markið. Víkingar unnu hlutkestið og kusu að Ieika undan vindinum í fyrri hálfleik. Sóttu þeir þá án afláts og skoruðu fjögur mörk fyrir lok hálfleiksins. Það fyrsta gerði Jóhannes Bárð- arson, en síðan skoraði Hafliði Pétursson úr vítaspyrnu. Hafliði gerði einnig þriðja markið, en fjórða markið gerði Páll Björgvins- son beint úr aukaspyrnu. 1 síðari hálfleik sóttu ísfirðingar nuin meira undan rokinu, en tókst ekki að skora. Virðist Iið þeirra þó efnilegt, en ta-plega komið í nógu mikla þjálfun enda fengið mjög fáa leiki í vor. Haukar — Selfoss 4:0 MUNURINN á 1. deildar- og 2. deildarliðunum er sennilega að verða ekki svo ýkja mikill Að minnsta kosti var ekki mikill mun- ur á leik Hauka og Selfoss í Hafnarfirði á laugardaginn og þeim leik, sem verið var að leika á sama tíma i 1. deildinni á Melavellin- um. í þessum leik voru Haukar áberandi betri aðilinn og sigur þeirra aldrei í hættu. Reyndar var staðan 0—0 í hálfleik, en í síð- ari hálfleiknum tóku Haukar af skarið og skoruðu fjögur mörk gegn engu. Steingrimur Hálfdánarson, bezti maður Haukaliðsins, skoraði tvö fyrstu mörkin. Pálmi Sveinbjörnsson skoraði þriðja markið með glæsilegu skoti af löngu færi og fór knötturinn í þver- slá og inn. Lokamark leiksins skoraði svo Gísli Jónsson, einnig með skoti af löngu færi, sem ógerlegt var fyrir markvörð Selfoss- liðsins að ráða við. Þrátt fyrir þennan ósigur lofar Selfossliðið góðu og með meiri æfingu verður það örugglega erfiður hjalli hjá and- stæðingum þess í 2. deildinni. íslandsmótið 1 utanhúss- handknattleik STJÓRN HSÍ hefur ákveðið að fslandsmeistaramót 1971 í hand knattleik utanhúss í meistarafl. karla og kvenna og 2. fl. kvenna fari fram fyrri hluta ágúst n.k. Þeir sambandsaðilar, sem áhuga hafa á að annast fram- kvæmd mðtsins, annaðhvoi't í heild eða einstaka hluta þess, eru beðnir að tilkynna það sam- bandsstjórn í pósthólf 215, Rvík eigi síðar en 1. júní n.k. Fram - ÍBK í kvöld LEIK Fram og ÍBK, sem vera átti í gærkvöldi var frest- að fram til kvöldsins í kvöld og hefst hann á Melavellinum kl. 20,30. Sökum þess að ekki var hægt að taka Laugardalsvöllmn í notkun nú um helgina varð að breyta þreimur leikjum í mið- sumarmóti 1. flokks. Léku Fram og Ármann á FramveUinum í gærkvöldi og Valur og Víkingur á Melavellinum. í dag kl. 18.45 leika svo KR og Þróttur á Mela- vellinum. Nýliðarnir unnu Valsmenn 2-0 — í einum slappasta leik vorsins Nýliðarnir í 1. deild, Breiða- blik úr Kópavogi, komu sannar- lega á óvart í fyrrakvöld er liðið sigraði Val með tveimur mörkum gegn engu í leik þeirra á Melavellinum. Er þessi sigtir Breiðabliks hinn þýðingarmesti fyrir iiðið, — ekki einnngis vegna þess að fyrir hann fær það tvö stig, heldur einnig að hann hlýtur að gefa því ákveð- Inn „móralskan" styrk. Liðið hefur nú sannað sjálfu sér, að það getur unnið hvaða lið í 1. deiid sem er, og fyrirfram er baráttan um sætið í 1. deildinni engan veginn töpuð. Og víst er, að þegar Breiðabliksliðið er búið að fága helztu vankantana af hjá sér, þá stendur það hin- um Hðiinnm í deildinni ekki að baki, nema síður sé. Hitt er svo ainnað má< að tæp- ast er hægt að segja að Breiða- blikssigur hafi verið sanngjam eftir gangi leiksins. Valsmenn sóttu til muna meira, en gekk erfiðlega að skapa sér góð tæki- færi upp við markið. Til þess var knattspyman hjá Vai alltof stói'karlaleg og tilviljunarkennd. Það var fyrst eftir að Hermann Gunnarsson kom inn á í síðari hálfleik að einhver skemmtileg tilþrif sáust hjá framlínumönn- um Vals, en Hermann getur gert ýmislegt sem aðrir islenzkir knattspymunaenn geta ekki, jafn vel þótt hann virðist ekki vera í sem beztri æfingu núna. Það var á 35. minútu sem fireiðablik skoraði sitt fyrra mark. Þá átti Guðmiindur Þórðarson i höggi við einn af varnarleikmönnum Vais, sem tók til þess ráðs að bregða honum. Dæmdi Sveinn Krist- jánsson réttilega vítaspyrnu á brotið, sem Magnús Steinþórs son skoraði örugglega úr. Síðara mark Breiðabliks kom á 55. mínútu. Þó sóttu Breiðabliksmenn upp hægri kantinn og þaðan fékk Guð- mundur Þórðarson sendingu inu í vitateig Valsmanna, þar sem einn varnarmaður og Sig urður Dagsson markvörður voru til varnar., Tókst Guð- mundi að snúa á þá og skjóta ágætu skoti að marid sem hafnaði í netinu. Eftir að Breiðablik hafði náð tveggja marka forskoti dró lið- ið sig í vöm, sem Valsmönnum tókst aldrei að rjúfa neitt að ráði þrátt fyrir ákafa í sókn sinni. Af og til átti Breiðablik svo upphlaup, og var eitt sinn mjög nærri þvl að skora í þriðja sinn. Þegar á heildina er litið verð- ur það að segjast, að þetta var einn aumasti leikurinn sem mað- ur hefur séð í vor og raunar ekki samboðið 1. deildar liðum að sýna aðra eins knattspymu og Valur og Breiðablik gerðu að þessu sinni. Þau skemmtfegu cil- þrif sem sáust í leiknum eru ör- ugglega teljandi á fingrum sér, þar sem leikaðferð liðanna virt- ist nær allan timann byggjast á kjörorðinu að sparka hátt og sparka langt. Helzt var það þó í byrjun fyrri hálfleiks sem Vals menn reyndu eitthvað að spila, en eftir að þeir fengu markið á sig virtist liðið brotna niður, og allt fór í tóma enda- leysu. Tæpast er ástæða til þess að hrósa einstakl ingmum fyrir frammistöðu í þessum ledk. Það voru helzt þeir Jóhannes Eðvaldsson og Hermann Gunn- arsson í Valsliðinu sem gerðu eitthvað til þess að leika knatt- spyrnu, svo og Róbert Eyjólfs- son, sem örugglega er einn af okkar beztu bakvörðum og sannar með hverjum leik, að landsliðseinvaldurinn, Haf- steinn Guðmundsson, hefur rétt fyrir sér, þegar hann heldur honum í landsliðshópnum. Hjá Breiðabliki var Guðmundur Þórðarson beztur, en hann er jafnan hættulegur sóknarleik- maður og hefur gott auga fyrir þeim tækifærum sem bjóðast. Hins vegar hefur maður það á tilfinningunni að hann sé ekki i sem beztri æfingu núna. Þá áttu Magnús Steinþórsson og bróðir hans, Steinþór Steinþórs son, báðir nokkuð góðan leik. Dómari i leiknum var Sveinn Kristjánsson og dæmdi hann ágætlega. I STUTTU MÁLI: Melavöllur 6. júní. ÚRSLIT: Breiðablik — Valur 2:0 (1:0 Mörkin: Magnús Stein þórsson úr vítaspymu á 35. mín útu og Guðmundur Þórðarson á 55. mínútu. Lið Breiðabliks: Ólafur Há- konarson, Steinþór Steinþórs- son, Magnús Steinþórsson, Bjarni Bjarnason, Guðmundur H. Jónsson, Þór Hreiðarsson, Hreiðar Breiðfjörð, Einar Þór- hallsson, Guðrnundur Þórðar- son, Haraldur Erlendsson og Trausti Hailsteinsson. Vara- menn: Gissur Guðmundsson, Ríkarður Jónsson, Gunnar Þórð arson og Sigurjón Valdimars- son. Kom Ríkarður inn á i síð- ari hálfleik fyrir Trausta Hall- steinsson. Lið Vals: Sigurður Dagsson, Pá'lli Ragnarisison, Róbert Eyjó'lfs- son, Jóhannes Eðvalldsson, Hall- dór Einarss., Sigurður Jónsson, Alexander Jóhannesson, Ingvar Elísson, Ingi Bjöm Albertsson, Bergsveinn Alfonsson og Þórir Jónsson. Varamenn: Magnús Egg ertsson, Hörður Hilmarsson, Hermann Gunnarsson, Helgi Björgvinsson og Lárus Ögmunds son. Kom Hermann inn á í upp- hafi síðari hálifleiks í stað Ingv- ars Elíssonar. Beztu menn: Breiðablik: 1. Guðmundur Þórðarson, 2. Magnús Steinþórsson, 3. Guð- mundur H. Jónsson. Valur: 1. Jöhannes Eðvaldsson, 2. Róbert Eyjólfsson, 3. Hermann Gunn- arsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.