Morgunblaðið - 12.06.1971, Page 30

Morgunblaðið - 12.06.1971, Page 30
I 30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNl 1971 - Valssigurinn var sanngjarn — en „glötu5u tækifærin“ , voru mýmörg í leiknum VALUR krækti Bér í fyrsta sig- uriiin í Islandsmótinu í fyrra- kvöid, þegar liðið sigraði KR með með tveimur mörkum gegn engu. Og það er sannarlega víst að Valsmenn verða með í barátt- unni á toppnum í sumar, þótt sumir hafi viljað halda annað eftir tap liðsins gegn Breiðablik á dögunum. Leikurinn í fyrrakvöld var ekld góður knattspyrnulega séð, en þó brá fyrir góðum köflum inn á miili hjá báðum aðilum. KR-ingar unnu hlutkestið og kusu að leika undan golunni. Samt voru það Valsmenn sem voru meira í sókn til að byrja með og tækifærin til að skora létu ekki á sér standa. Strax á þriðju mín komst Hermann Gunnarsson í gott færi, eftir að hann og Ingi Björn höfðu leik- ið skemmtilega saman upp vall- armiðjuna. En skot Hermanns var ekki gott, þótt hann væri kominn einn inn fyrir vörn KR, og fór langt fyrir utan stöng. Þarna átti Valur kost á óska- byrjun. Fátt markvert skeði næstu 20 min, en þá voru KR-ingar smám saman að ná betri tökum á miðj- unni og upp úr því fór sókn þeirra að verða hættulegri. Á 27. mín átti Sigþór Jakobs- son gott skot utan frá vítateigs- línu sem sleikti stöngina utan- verða. Hefði þetta skot verið fyrir innan stöng, hefði knött- urinn örugglega hafnað í net- inu, því Sigurður Dagsson í marki Vals var alveg frosinn. — Á 31. mín var mikil þvaga inni í vítateig KR og upp úr henni átti Alexander Jóhannesson fast skot úr fremur góðu færi við markteigshorn, en knötturinn fór víðs fjarri markinu. Og svo var komið að hinu mikla tækifæri hálfleiksins. Það var Baldvin Baldvinsson, mið- herji KR, sem komst einn iangt inn fyrir alla varnarmenn Vals með knöttinn. Sigurður kom út á móti og hefði verið hægðar- leikur fyrir Baldvin að skora framhjá honum. En Baldvin ætl- aði sér greinilega að labba sér með knöttinn alla leið inn í neta- möskvana. Hann sendi knöttinn ónákvæmt framhjá Sigurði hægra megin, en skauzt sjálfur framhjá honum vinstra megin. En hann hefur aldrei þótt ná- kvæmur í spyrnum sínum og svo var einnig nú. Hann spyrnti svo fast framhjá Sigurði, að knötturinn skoppaði út fyrir endamörk og fór þar eitt það bezta marktækifæri, sem ég hef séð í langan tíma, forgörðum. Staðan í hálfleik varð þvi 0:0, en hefði allt eins getað verið 2:2 eða 2:1 fyrir KR eftir tækiíær- unum að dæma. Valsmenn gerðu eina breyt- ingu á liði sínu i hálfleik, Þórir Jónsson kom inn fyrir Alexander og átti þessi skipting eftir að verða Valsmönnum happadrjúg. Strax á 6. mín hálfleiksins lagði Þórir knöttinn mjög vel fyrir Jóhannes Eðvaldsson út í teig hjá KR og Jóhannes þakk- aði fyrir sig með mjög góðu skoti sem hafnaði í marki KR, 1:0. Vaismönnum virtist vaxa tals- vert kjarkur við þetta mark og var sókn þeirra nú talsvert þung. Næsta hættulega tækifæri áttu þeir einnig, en það var á 14. mín þegar Hermann og Ingi Björn (báðir rangstæðir) kom- ust einir langt innfyrir vörn KR og aila leið inn i teig, en þar létu þeir Magnús Guðmundsson markvörð verja hjá sér. Á 21. mín komst Baldvin I mjög gott tækifæri eftir góða stungusendingu frá Herði Mark- an, en Sigurði Dagssyni tókst á óskiljanlegan hátt að verja gott skot Baldvins. Sigurður hélt þó ekki þessu fasta skoti og knött- urinn hrökk fram í teiginn til Sigþórs, sem skaut þegar, en varnarmenn Vals voru vel á verði og björguðu á línu. Þar voru Valsmenn heppnir (og margir spurðu eftir allt, sem á undan var gengið: „Hvar er gamla, góða KR-heppnin?“) Og aðeins þremur mín síðar átti Jóhannes Eðvaldsson skorar fyrra mark Vals í leiknum í fyrrakvöld. Svo sem sjá má var.Magnús ekki langt frá því að koma höndum á boltann. Þriðja mótið sem veit- ir stig til landsliðs Pierre Robert keppnin hjá Nesklúbbnum í dag 1 DAG og á morgun feir fram 4. „opna" golfmótið á sumr- inu. Það er jafnframt eitt af þeim opnu mótum, sem gefa stig til landsliðs. Þetta er Pi- erre-Robert keppnán hjá Nes- khibbnum. Er þetta 18 holu keppni, en keppt í flokkum, meástaraflokki, 1. og 2. flokki og ung'lingaflokki. 1 dag verður keppt í meist- ara- og 1. flökki, en á morg- un i 2. flokki og flokki ungl- inga innan 18 ára. Verðlaun þessarar keppni, þrenn I hvorum flokki, eru gefin af Islenzk-ameríska verzlunarfélagimu, en það hef ur umboð fyrir Pierre-Robert snyrtivörurnar, en nafn keppninnar ber heiti þess firma Eins og áður segir er þetta eitt af þeim mótum sem veita stig til landsliðs samkvæmt ákvörðun Golfsambandsins. Mótin sem slák stig veita eru þessi: ' Maí 30.—31. G.V. Faxakeppnin Júní 5.-6. G.K. Þotukeppni F.í. Júní 12.—13. N.K. Pierre Robert Júní 19,—20. GE. Bridgestone/Camed Júlí 6.—10. G.R. Coca-Cola Júlí 3L G.L. Haraldsmót Ágúst 7.—8. G.A. Jaðarsmót Ágúst 10.—14. G.A. Landsmót í golfi Stighæstu menn eftir tvö opin mót sem stig gefa til landsliðis þ.e. Faxakeppni og Þotukeppni F.l. eru: Björgvin Hókn, GK 13,5 Einar Guðnason, GR 10,5 Atli Aðalsteinsson, GV 10 Óttar Yn.gvason, GR 10 Marteinn Guðjónsson, GV 9 Þorbjörn Kjærbo, GV 9 Hannes Þorsteinsson, GL 8 Haraldur Júliusson, GV 7,5 Gunnlaugur Ragnarsson, GR Á þriðjudags- kvöldið lauk keppni um krystalsvasa rússneska sendi ráðiisritarans Vladimirs Bub- n nov hjá Nes- W klúbbnum. Til úrslita Sverrir léku Guð- ■ moindsson og V'flB-ðlaam Pierre-Robert keppninruvr. Stærsta Btyttöm ter fyr- Ir meístaraflokk, síðan 1. og 2. flokk og sú tangst t.v. er keppt um 1 11nglir.gvif lokki. Maignús Guð- mundsson. Eftir jafna keppni á fyrri hring vann Sverrir örugglega á þeim síðari. Átti þrjár holur unnar er 2 voru eftir. Hörður Markan mjög fast skot, sem rétt sleikti þverslána — að utanverðu. Og svo á 28. mín kom annaö mark Vals. Bergsveinn tók inn- kast á miðjum vallarhelmingi KR og kastaði langt inn í teig. Þaðan barst knötturinn til Þór- is Jónssonar, sem var ekki lengi að notfæra sér gott boð sofandi KR-varnar og skora með fremur máttlausu skoti þó. Og ekki var knötturinn fyrr kominn í leik á ný er Hermann var kominn á fulla ferð með hann inn fyrir vörn KR, sem greinilega var ekki búin að ná sér eftir markið, en Magnús Framhald á bls. 31 Silvester 70,04 m HEIMSMETHAFINN í kringlu- kasti, Jay Silvester, náði glæsi- legum árangri í frjálsáþrótta- móti, sem fram fór í Ystad í Svíþjóð í fyrrakvöld. Kastaði hann 70.04 metra og sannaði þar með að heimsmet það sem hann setti fyrir skömmu, 70.38 metr- ar, er engin tilviljun. Það af- rek hefur reyndar ekki ennþá hlotið staðfestingu sem heims- met, en eigi að síður er heims- metið í eigu Silvesters, og er það 68.40 metrar sett í Reno í Nevada 18. september 1968. Sænski kringlukastarinn Ricky Bruch tók einnig þátt í keppninni í Ystad og varð ann- ar með 67.92 metra kast. Hefur hann tapað í þau skipti sem þeif Silvester hafði keppt, en Bruch hafði talið sig eiga alls kostar við Bandaríkjamanninn og hafði æft sérstakiega vel í vet- ur. Staðaní 1. deild STAÐAN i I. deild íslandsmóts- Ins í knattspymu fyrir leikina í dag er þessi: Stig Fram 2 2 0 0 4:1 4 Valur 3 1 1 1 3:3 3 Breiðblik 2 1 0 1 2:2 2 ÍA 2 1 0 1 2:2 2 ÍBA 2 1 0 1 3:3 2 ÍBK 2 1 0 1 3:3 2 KR 3 1 0 2 3:5 2 ÍBV 2 0 1 1 1:3 1 Þeir hafa skorað mörkin: Eyjólfur Ágústsson, ÍBA, 3 Jón Sigurðsson, KR, 2 Alexander Jóhannesson, Val, 1 Amair Guðlaugsson, Fram, 1 Björn LáruSBom, ÍA, 1 Erlendur Magnússon, Fram, 1 Friðrik Ragnarsson, ÍBK, 1 Guðm. Þórðarson, Breiðabl. 1 Haraldur Sturlaugsson, ÍA, 1 Jóhanne3 Edvaldsson, Val, 1 Jón Ólafur Jónisson, ÍBK, 1 Kristinn Jörundsson, Fram, 1 Magnús Steinþórss. Breiðabl. 1 Óskar Valtýsson, ÍBV, 1 Sigurþór Jakobsson, KR, 1 Steinar Jóhannesson, ÍBK, 1 Þórir Jónsson, Val, 1 (Eitt matrkið er svo sjálfsmark). FH - Þróttur Á MORGUN leika á knatt- spymuvellinum í Hafnarfirði Þróttur frá Neskaupstað og FH í II. deiid íslandsmótsins i knattspyrnu. Hefst leikurinn kL 14, og mun vera eini knatt- spymuleikurinn sem fram fer á sunnudaginn. Má búast við jöfnum og fjörugum leik, og verður fróðlegt að fylgjast með Austfirðingunum, en sem kunn- ugt er, þá er Þóttur fyrsla Austfjarðaliðið sem náð hefur sæti í U. deild.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.