Morgunblaðið - 24.07.1971, Page 1
32 SÍÐUR
162. tbl. 58. árg. FÖSTUDAGUR 23. JÚLl 1971 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Tito til
USA
Brioni, Júgóslavia, 23. júlí
ÍNTB.
TITO Júgóslavíuforseti sagði í
dag, að hann myndi fara í heim-
sókn til Bandaríkjanna í októ-
ber í haust, að því er bandarísk-
ur lögfræðingur, Charles S.
Bhyne, skýrði frá í dag. Sá síðar-
nefndi sem er forseti alþjóðlegr-
ar friðarráðstefnu, sem stendur
y'fir í Brioni í Júgóslavíu, kvaðst
hafa afhent Tito bréf frá Nixon.
Tito kvaðst hugsa gott til Banda
ríkjaferðar, en greindi ekki frá
efni bréfsins að öðru leyti.
Rhyne sagði, að hann hefði átt
fund með Nixon áður en hann
hélt til Júgóslavíu. Tito og
Rhyne ræddust við í klukkustund
og sagði Tito, að för Nixons til
Kína væri mjög mikilvæg og
hann bætti þvi við að hann liti
& það sem hlutverk Júgóslaviu
að vera tengiliður austurs og
vesturs.
Trudeaubarn
í vændum
Ottawa, 23. júlí AP.
MARGRET og Pierre Tru-
Kanada eiga von á fyrsta
deau, forsætisráðherrahjón
bami sínu í desember n.k.
sagði I ti'lkynningu sem var
gefin út frá skrifstofu forsæt
isráðherra í dag.
Kóleran stöðvuð
Madrid 23. júli. NTB.
SPÆNSKA u'pplýsingamálaráðu
ineytið tilkynnti í dag að út-
breiðsla kóleru i landimu hefði nú
verið stöðvuð og eikki hefði
frétzt uim niein ný sjúkdómistil-
fellii. Sagt var oig að þedr sjö
menn sem höfðu veikzt í þorp-
iim i grennd við Saragossa,
væru á góðuim batavegi og ekki
væri nein hætta á faraiLdri.
Engu að siðutr er öllum ferða-
mönnum sem koma til Spánar
erlendis frá ráðlagt að láta bólu
setja sig gegn kólieru, áður en
þeir halda þangað.
Tvær miiiijófnir manna á Spánd
haia nú verið bólusettir og
Spánverjar haía beðið Banda-
rikjamenn um bóluefnisskammta
handa t'nu mikjónium tlii viðbót-
ar.
Apollo 15 leggur af stað til tunglsins næstkomandi mánudag. Á myndinni eru geimfararnir þrír,
James Irwin, Alfred VVorden og David Scott, fyrir framan tunglferjulíkan (Sjá grein á blaðsíðu 14).
Sadat í ræðu:
Sigur hvað sem kostar
Kallar Hussein slátrara Palestínuskæruliða
Kairó, 23. júlí — NTB-AP
ANWAR Sadat, forseti
Egyptalands, flutti þjóð sinni
ræðu í dag og sagði þar, að
hann væri staðráðinn í að
Egyptar færu með sigur af
hólmi í baráttunni við ísra-
el, hvað svo sem sá sigur
kostaði — þó svo að fórna
yrði milljónum egypzkra
lífa. Sadat sagði, að núver-
andi ástand myndi ekki vara
öllu lengur og ákvörðun yrði
tekin á þessu ári um það,
hvernig yrði tekið á málun-
um.
1 ræðunni beindi Sadat orðum
sínum harkalega að Hussein
Jórdaníukonungi og sagði, að
hann væri „slátrari andspyrnu-
hreyfingar Palestínuskæruliða
og myndi Hussein þurfa að
gjalda dýru verði misgjörð-
ir sínar og glæpi“. Sadat sagði
og að innan Palestínuskæruliða-
hreyfingarinnar væru nokkrir
svikarar; sérstaklega væri þá að
finna í röðum „Þjóðfylkingarinn-
ar“, sem m.a. er ábyrg fyrir að
hafa hertekið sendiráð Egypta-
lands og Saudi-Arabíu í Stokk-
hólmi á miðvikudaginn var.
Sadat flutti þessa ræðu m.a.
í tilefni þess, að í dag 23. júlí
var þess minnzt i Egyptalandi
að 19 ár eru liðin síðan Farouk
Egyptalandskonungi var steypt
af stóli.
1 ræðunni gagnrýndi forsetinn
einnig Bandaríkin og sagði þau
kynda undir úlfúðina í Miðaust-
urlöndum með stuðningi við
ísraela og leynilegum vopna-
sendingum til þeirra, og væru
þessi vopn síðan notuð gegn
Arabaþjóðunum.
Aftökur í Súdan?
Fréttum ber ekki saman um hvort
E1 Atta hafi verið líflátinn
Kairó 23. júlí. AP-NTB.
OPINBEBAR heimildiir í Khar-
toum í Súdan skýrðu frá því síð
Rannsókn á, vegum NATO;
ísland talið
- meira vandamál en Malta
Talað um samkomulag
um 50 mílna landhelgi
degis í dag, að Husheati Atta,
sem stóð fyrir byltingumii gegn
Numeiry forseta fyrir fáeinum
dögum, og þrír samstarfsmenn
hans hefðu verið teknir af lífi
fyrr um daginn. Nokkru síðar
bar ráðgjafi Numeirys þessar
fréttir til baka, en staðfesti, að
dauðadómar hefðu verið kveðn-
ir upp yfir mönnunum fjórum.
Fyrri tilkynningin um aftökuna
var sögð komin frá Numeiry,
sem hefði lagt persóniile.ga bless
un sína yfir aftökima.
Aðrar fréttir af framgangi
miáia og ástandinu í Súdan hafa
og verið mjög mótsagnakennd-
ar. Þó er ljóst að bardöguim hef
ur ekki linnt með öllu og skot-
hrið kvað við víða í Khartouim i
morgun og bliossaði síðan af.tur
upp síðdlegis. Meðal amnars var
skotið að brezka sendiráðinu í
borginni. Hermdu fréttir að
brynvagnar væru á ölfum helztu
götuihornum og öðru hverju
Framhald á bls. 8
Líberíu-
forseti
lézt
London, 23. júlí. AP.
WILFIAM V.S. Tubman, for-
seti Afríkulýðveldisins Líberíu,
lézt á sjúkrahúsi í London í dag,
eftir uppskurð í blöðruhálskirtii.
Tubman varð 75 ára gamall og
hafði verið forseti Líberíu í 27
ár.
Á stjórnartíma Tubmans hafa
miklar framfarir orðið í efna-
hagsmálum í Líberíu og kyrrara
hefur verið þar i pólitísku lífi en
í flestum öðrum Afríkulö'ndum.
Framhald á bls. 25.
Þakkir
færðar
Hollandi
London, 23. júlí. NTB.
BRETAR þökkuðu Hollend-
ingum í dag fyrir vinsam-
lega samvinnu og skjót
viðbrögð við mótmælum
Breta gegn því að þeirj
dældu efnaúrgangi í Atlants-
haf.
Anthony Royle, ráðuneyt-
isst j óri utanríkisráðuney tis-
ins, kvaddi á sirwi fund sendi
fulltrúa Hollands, J. L.
Huydecoper júnkherra, og
lét í ljós þakklæti brezku
stjórnarinnar.
Fyrirtækið Akzo ákvað i
gærkvöldi að stefna flutn-
ingaskipinu „Stella Maris“
heim til Hollands og hætta
við að dæla efnaúrgangin-
um í sjóinn. Forstjóri fyrir-
tækisins, J. H. Dijkman,
sagði að þessi ákvörðun hefði
verið tekin að beiðni holl-
enzku stjórnarinnar.
Gennadi Voronov.
Voronov hreinsaður
Haag, 23. júlí — AP
ÍSLAND er Atlantshafs-
handalaginu meira vanda-
mál en Malta segir í dag í
fréttaskýringargrein í hol-
lenzka dagblaðinu „Het Par-
ool“, sem er óháð stjórnmála-
flokkum. „Het Parool“ kemst
að þeirri niðurstöðu, að lega
Möltu á Miðjarðarhafi hafi
minni hernaðarþýðingu en
einstök lega íslands á Norð-
ur-Atlantshafi.
Rækileg rannsókn fer nú fram
á vegum NATO á þessu vanda-
Framliald á bls. 8
Moskvu, 23. júií, AP, NTB.
GENNADI I. Voronov, forsætis-
ráðherra sovétlýðveldisins Rúss-
lands, hins stærsta innan Ráð-
stjórnarríkjanna, og félagi í
stjórnmálaráði Kommúnista-
fiokksins, hefur verið leystur frá
störfum, að því er fréttastofan
Tass greindi frá í dag. Fylgdi
það fréttinni að Voronov myndi
taka við starfi sem formaður
nefndar þeirrar sem fylgist með
og liefur eftirlit með efnahagslífi
í Sovétríkjunum. AP-fréttastof-
an segir ekki vera ljóst, hvort
Voronov sé þar með faliinn í
ónáð stjórnvalda, en aliar líkur
bendi til þess, þar sem hið nýja
embætti þyki ekki tiltakanlega
mikilvægt.
Voronov hefur verið forsætis-
ráðherra Sovétlýðveldisirus Rúsa-
lands síðan árið 1962 og hefur
lengi verið í hópi mestu áhrifa-
manna Sovétríkjanina. Eteki hef-
ur verið sagt frá því, hvoirt Vor-
onov verði einnig sviptur þeirri
vegtyllu að vetra í stjónnmálaráð-
inu. — Voronov er 61 árs gamall.