Morgunblaðið - 24.07.1971, Side 4
4
MORGUWBL.AÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚLl 1971
® 22 0-22-
[rauoararstíg 31j
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sím/14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TP 21190 21188
BÍLALEIGA
Keflavík, sími 92-2210
Reykjavík — Lúkasþjónustan
Suðurlandsbraut 10, s. 83330.
LEIGUFLUG
FLUGKENNSLA
FLUGSTÖÐIN HF
Simar 11422. 26422.
Bilaleigan
SKULATUNI 4 SÍMI15808 (10937)
Maleigan
AKBBAVT
car rental service
8-23-47
sendum
0 Sumarhátíðin 1971:
Áfengisvandamálið —
áfengisbannið
Frá forráðamönnum Sumarhá
tíðarinnar í Húsafellsskógi
hafa eftirfarandi hugleiðingar
borizt; (Velvakandi hefur
breytt orðalagi á stöku stað).
Fyrirsagnirnar eru frá forráða-
mönnunum.
„Talsverður hugtakarugling-
ur hefur oft verið viðkomandi
orðunum bindindismóti og sam
koniu með áfengisbanni. Á
hinu fyrrnefnda er bindindi og
bindindisheit algert aðalatriði
félagsskaparins. 1 síðara tilvik-
inu er algert áfengisbann sett
á tilteknar samkomur, vegna
þess að án þess hefur löggæzl-
an ekki nægilegt vald til að
halda samkomunum í skefjum
og koma í veg fyrir slysfarir
margra samkomugesta. Dæmin
sanna þetta, svo að óþarft er
upp að telja, og erfiðleikarnir
eru sannarlega nægilegir samt,
þátt um áfengisbann sé að
ræða. Það virðist svo sem til-
tekinn fjöldi ungra og gamalla
sé staðráðinn í því að
Seljum í dog
^^ð^bilaaalq
G U-Ð MUNDAR
Berfþóructttu 3. Simar 19932, 2097«
„skemmta" sér með ofurölvun,
hvað sem það kostar. Það er
aðaltakmark þeirra, sem að
Sumarhátíðinni standa, að
reyna að koma í veg fyrir
vandræði og voða fyrirfram, áð
ur en hættuástand verður. Sé
litið á dagskrá hátíðarinnar,
má ljóst vera, að áfengið er
ekki eingöngu skaðlegur held-
ur alveg óþarfur fydginautur,
tii þess að menn geti skemmt
sér:
Eitt fegursta samkomusvæði
landsins verður að þessu sinni
skreytt af þekktum lístamönn-
um: Gunnar Bjarnason, leik-
tjaldamálari hjá Þjóðleikhús
inu, sér um sviðsskreytingar og
fl., en Magnús Axelsson, ljósa-
meistari hjá Leikfélagi Reykja
víkur, sér um ljósaskreytingar.
Hinir fjölmörgu skemmtikraft-
ar, sem fram koma, verða því í
fallegri umgjörð, en nokkru
sinni fyrr. Vonandi kunna sam-
komugestir vel að meta þessa
viðleitni og úmgangast skraut-
ljós og önnur mannvirki á
menningarlegan hátt, hafandi
það i huga, að ölviman er óþörf
með öilu.
Og meðal annarra orða:
bandarískir unglingar hafa ný-
verið uppgötvað þau sannindi,
að sú dýrkeypta vima, sem þeir
hafa keypt sér í ýmsum skyn-
villuefnum og eiturlytfjum, er
léleg lífsnautn, miðað við hitt
að stunda heiltbrigt og hreint
líferni. Þeir snúa nú tug-
Ungur moður ósknst
Framtíðarstarf fyrir handlaginn mann, við þriflegan iðnað.
Umsókn er greinir aldur og fyrri störf leggist inn á afgreiðslu
blaðsins, merkt: „Nr. 7142 — Góð laun".
Hraðbátur til sölu
Til sölu er um 14—16 feta plasthraðbátur með 25 hestafla
Johnson-utanborðsvéil og kerru, sem nýr og vel með farinn.
Verð: 75 þúsund krónur.
Upplýsingar gefur Guðmann Halldórsson í síma 95-1370
á verzlunartíma.
Bílasala
Bílakaup
Bílaskipti
Bílar fyrir alla
Opið tii kl. 6 í dag og á morgun.
BlLASALAN, Höfðatúni 10.
sími 15175.
þúsundum saman baki við hass
irtu og jafnvel frjálsu ástunum
líka. Það er jafnvel farið að
tala um Jesú-byltinguna, vegna
þess að þetta fólk iðkar mjög
trúarlegar athafnir, sem í
ýmsu þykja benda til frum-
kristninnar. Mætti íslenzkt
æskufólk læra af reynslu þessa
fólks og spara sér alveg
'krókaleiðir þær, sem það hefur
þurft að fara til að komast að
gömlum og góðum, sigildum
samninduim: Sé líkaminri heil-
brigður og einstaklingurinn í
góðum félagsskap og fögru um-
hverfi, nýtur hann sín þvi að-
eins til fulils, að öll skynfæri
séu ólömuð. Ungir sem gamlir
eiga þvi að taka höndum sam-
an við þá, sem vilja bæta sam-
komuhald Íslendinga, og sanna
það bæði fyrir sjálfum sér og
öðrum um verzlunarmanna-
helgina, að áfengið er óþarfur
fylginautur."
0 Leiðréttingar
1 gær stóð hér í millifyrir-
sögn: „Gafst upp snurðulaust“.
Þar var seinasta orðinu vitan-
lega ofaukið. Fyrir nokkrum
dögum stóð. hér í millifyrir-
sögn: „Ekki alltaf nýraspað."
Þar hafði spumingamerki fall
ið niður aftan við.
0 Vinnuaðbúnaður í gisti-
húsum ríkisvaldsins
„Velvakandi góður!
Ég er nýkominn úr ferðalagi
um Norðurland, og kynntist þá
rekstri hina svonefndu Eddu-
hótela, sem rekin eru af ríkinu
á nafni Ferðaskrifstofu ríkis-
ins með svo ónógu starfsfólki,
að nálgast hið versta þræla-
hald. Skólaæskufólk hefur
helzt fengið þarna vinnu við
risnu og við fyrirspurnir í
skrifstofunni fengið þau svör,
að vinnan væri í skorpum, en
góðar hvíldir á milli og einn
frídagur I viku. Vegna góðviðr
isins hefur verið mikill ferða-
mannastraumur og svo mikil
vinna víðast hvar, að vinnu-
dagurinn hef.Uir orðið £rá 7 að
morgni til 1 að nóttu með tveim
ur 10 mínútna matarhléum. Frí
dagarnir eru ekki greiddir, þó
að meira en nóg sé fyrir allla
að gera, heldur eru börnin rek
in í frí, þótt hin, sem eftir eru,
komist naumast yfir það, sem
afkasta þarf.
Þetta á við framreiðsluna, en
nærri má geta, hvemig ástand-
ið er í eldhúsuim og búri.
Sömu sögu er mér sagt, að
sé að segja af Eddu-hótelunum
á Suðurlandi og jafnvel verri,
ónógt starfsfólk og þrælabúða-
vinna og samvinnan og sam-
lyndið í hlutfalli við það. Allir
geðvondir og örmagna. Hvar
eru fagfélögin og eftirlitið?
Svona er ástandið á þessum
vigstöðvum á sama tíma og rik
isstjómin þykist ætla að fara
að innleiða 40 stunda vinnu-
viku. Það væri sizt vanþörf á
að kippa þessu í lag. Það virð-
ist furðulegt, að reynt sé að
reka þessa þjónustu með hagn
aði með svona aðfðrum, til
þess að geta kastað milljónum í
auglýsingar hér og erlendis til
að hæna fólk að. Ég get ekki
orða bundizt, þvi að mér
blöskra svo aðfarimar við ung-
viði, sem ekki hefur lært að
bera hönd fyrir höfuð sér og
lætur bjóða sér það, sem eng-
inn fullorðinn maður léti við-
gangast. Réttast væri fyrir for
eldrana að sækja börnin í þess
ar þrælabúðir, áður en þeim
er ofgert. Þau eiga að nota
sumarið við hóflega og heil-
brigða vinnu til þess að vera
betur undirbúin þrældóm vetr-
arnámsins, sem lítið betur er
skipulagt. Námsefnið og yfir-
ferðin fram úr hóíi undir hand
leiðslu of margra áhugaiausra
og ónýtra kennara.
Sigurður Jónsson,
reiður faðir.“
Já, reiður er bréfritari og
allstórorður. En geta ríkisrek-
in fyrirtæki annars borið sig
öðru vísi en með svona löguð-
um djöfulskap, jafnvel þótt
allt sé lagt upp í hendurnar á
þeim?
Fram tíðarstarf
Okkur vantar deildarstjóra í vefnaðarvörudeild K. Þ.
Umsækjendur hafi samband við kaupfélagsstjóra fyrir
20. ágúst næstkomandi.
Kaupfélag Þingeyinga,
Húsavík.
TIL ALLRA ATTA
NEW YORK
Alla daga
reykjavík
OSLÓ
Mánudaga
Miðvikudaga
Laugardaga
KAUPMANNAHÖFN
Mánudaga
Miðvikudaga
Laugardaga
LOFTLEIDIfí