Morgunblaðið - 24.07.1971, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 24.07.1971, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚLl 1971 17 < Ríkisstjórnin mun fara með gát og fyrirhyggju í varnarmálum - segir Hannibal Valdimarsson, félags- og samgöngu- málaráðherra í viðtali við Morgunblaðið Hér fer á eftir sarrutal, sem Morgunblaðið hefur átt við Hannibal Valdimarsson, félags- og samgönguráðherra, um stjórn málaviðhorfið að kosningum loknum, stjórnarmyndun, sam- einingarmál jafnaðarmanna og fyrstu verkefni hinnar nýju rík- isstjórnar. — 1 fyrstu yfirlýsingum þín- um að kosningum loknum talað- ir þú um nauðsyn þess, að lýð- ræðisöflin tækju höndum saman, og lýstir jafnframt þeirri skoðun þinni, að Alþýðubandalagið væri ólýðræðislegur stjómmálaflokk- ur. Síðan þessar fyrstu yfirlýs- ingar voru gefnar hefur þú geng ið til samstarfs í rikisstjórn við þennan ólýðræðislega flokk, Al- þýðubandalagið. Hvað veldur þeirri stefnuhreytingu, sem þarna hefur orðið? — Ég tel ekki, að um stefnu- breytingu sé að ræða, segir Hannibal Valdimarsson. Ég lýsti því yfir eftir kosningar, að ég vildi halda öllum möguleikum opnum um stjórnarmyndun. — Einn af þeim möguleikum var myndun ríkisstjórnar stjcrnar- andstæðinga og það var að mörgu leyti rökrétt niðurstaða feosninganna. Vissulega er það rétt, að ég tel, að sérhver ríkis- stjórn á Islandi verði að vinna á lýðræðisl-egum og þingræðis- legum grundvelli, og ég er sann- færður um, að þessi rikisstjóm mun gera það. Hins vegar er eins og mig minni, að Sj'áifstæð- isflokkurinn, sem vafalaust er lýðræðislegur flokkur, hafi ein- hvern tíma átt sæti í rikisstjóm með kommúnistum og hafi ekki gengið af trúnni við þá þátttöku. — Ég var ekki að spyrja um stjórnarþátttöku SjáifstæðiS' fflokksins fyrr á árum. Ég var að spyrja, hvers vegna ráð- herrann hefði gengið til sam- starfs um stjórn landsins við ólýðræðislegan flokk. — Að fortíð skal hyggja, er framtíð Skal byggja, og ég leyfði mér að líta um öxl og minna á það, að hinn lýðræðislegi Sjálf- stæðisflokkur hefði vissulega tekið þátt í ríkisstjórn á fslandi með kommúnistum. — Nú er það svo, að þú og þinn flokkur voru sigurvegarar þessara kosninga, en Framsðkn- arflokfeurinn tapaði miklu. — Hvers vegna fétl það í hlut þess, sem tapaði að mynda þessa stjórn, en ekki sigurvegarans, Hannibals Valdimarssonar? — Hvort tveggja er rétt, að ég og minn flokfeur feamum sigri hrósandi út úr þessum kosning- um og eins hitt, að Framsóknar- fflofekurinn tapaði bæði kjósenda fylgi og þingmannatölu. En samt sem áður hygg ég, að það verði efefei gagnrýnt, að forseti Islands sneri sér tiil formanns stærsta, stjómarandistöðufflofeksins og gaf honum feost á að freista þess að mynda nýja ríkisstjórn. Ég tel því ekki, að neinn réttur hafi verið brotinn á mér eða minum flöfeki með þessari tilhögun við stjórnarmyndun. Við tókum að sjálfsögðu þátt í viðræðunum og niðurstaða þeirra var myndun nýrrar ríkisstjómar með sama þingstyrk og fráfarandi rikis- stjóm studdist við sl. 12 ár. — Hefðir þú tekið við forsæt- isráðherraembætti, ef þú hefðir átt kost á þvi? — Það hefði aðeins getað bor- ið að á þann hátt, að forseci Is- lands hefði falið mér það hlut- verk að reyna stjórnarmyndun. Þá hefði ég að sjálfsögðu geit þá tilraun, en til þesis kom ekki. — Nú virðist mörgum, að þú og þinn fflökkur hafi borið býsna skarðan hlut frá borði i verkefna skiptingu innan rikisstjórnarinn- ar. Hvernig stóð á þvi, að þið sættuð yfekur við þennan hlut? — Mér og mínum flofeki stóð til boða að fara með, hvort sem við vilduim, utanríkismál eða f jár mál og við höfnuðum þeim ráðu neytuim báðum eftir nákvæma yfirvegun. Ég taldi utanríkismál' in þann málaflokk, sem ég hafði á stjórnmálaferli minum haft einna minnst afskipti af, og færi ég með þau, hlyti aðstaða okkar til áhrifa á innanrífeismál að verða mun lakari. En ég taldi eðli flokksins samkvæmt æski- legt, að Samtök frjálslyndra og vinstri manna hefðu meiri af- skipti af innanlandsmálum, og var okkar fyrsta ósk sú, að við færum með félagsmál, og heil- brigðis- og tryggingamál, en síð- an varð það ofan á, að við legð- um meira upp úr því að fara með menntamálin og urðum þá að sleppa heilbrigðis- og trygg- ingamiálum. Við lögðum hins vegar mikla áherzlu á að fara með samgöngumálin, en undir þau heyra vegamál, hafnarmál, samgöngur á sjó og í lofti og auk þeas póstur og sirni, sem allt eru mjög þýðingarmikil mál og mjög ánægjulegt að eiga kost á að vinna að. Ég tel, að minn flokkur megi vel við una að' fara með ráðuneyti félagsmála, samgöngumála og menntamála og Hagstofu fslands. — Þú minntist áðan á eðli flokks þíns eða samtafea og þess vegna spyr ég: hvaða þýðingu hefur það fyrir slíkan flokk sem SFV að hafa með höndum sam- göngumál ? — f viðbót við félagsmál, sem ég tel þýðingarmikið fyrir verka- Hannibal Valdimarsson lýðsflokk eins og Samtök frjális- lyndra og vinstri manna að fara með, eru samgöngumálin grund- vallaratriði fyrir atvinnulifið í landinu og þarf ekki að minna á annað en hafnarmálin í því sam- bandi. — Nú eru áhrif kommúnista í þessari ríkisstjórn mjög mikil og mun meiri en ykkar samtaka. Hvermig stendur á þvi, að þið af- hendið þeim svo þýðingarmikla málaflokka sem raun ber vitni um, þ. e. yfirstjóm allra atvinnu vega landsins utan landbúnaðar og tryggingamál og heilbrigðis- mál að auki? — Óneitanlega eru sjávarút- vegismál og iðnaðarmál mjög þýðingarmiklir málaflofefcar, en hjá því varð auðvitað efcki kom- izt, að þessir þrír flokkar, sem stjórnina myrida, Skiptu með sér á samkomulagsgrundvelli þeim 13 ráðuneytum, sem um er að ræða. Koma þá fjögur ráðuneyti í hlut hvers himna þriggja flofcka auk forsætisráðuneytisins. — Er efcki sanni nær, að þið hafið fengið 3 raunveruleg ráðuneyti. Hagstofa fslands er fyrst og fremst. tölfræðileg upp- lýsingastofnun og telst ekki til mikilvægustu ráðuneyta, þótt hún nefnist sérstakt ráðuneyti að forminu til. — Það er rétt, að Hagstofa ís- lands krefst sjálfsagt ekki mik- illar vinnu í ríkisstjórn, en hún er og hefur lengi verið viður- fcennd í lögum sem sjálfstætt ráðuneyti. — Á undanförmum árum hafa samSkipti ykkar Magnúsar Kjart- anssonar ékki verið ýkja hlýleg. Nú hefur þú orðið til þess að leiða Magnús Kjartamsson ti] mikilla valda í rífcisstjórn á fs- landi. Hverndg hugnast þér sá verknaður? — Það er rétt, að við Magnús Kjartansson höfum aldrei svar- izt í neitt fóstbræðralag og oft hefur Magnús Kjairtansson sent mér kaldar kveðjur i Austra- dálkum sínum. En hins vegar minnist ég þess ekki, að hafa sinnt þeim skrifum mdkið og ef- ast um, að ég hafi beðið nofekurt tjón af þeim skiptum okfear. En það er á miklum misSkilningi byggt, ef menn halda það, að pereónuleg afstaða m£n til ein- stákra manina hafi úrslitaáhrif um aðgerðir mínar í þýðingar- mestu þjóðmálum. Er þá líkt á komið og með mér og Morgun- blaðinu, þar hafa kveðjumar efcki alltaf verið sem hlýlegastar, en það hefur samt aldrei staðið í vegi fyrir því, að ég hafi getað átt hin beztu persónuleg og al- menn viðskipti í þjóðmálum við einstaka Morgunblaðsmenn og Sjálfstæðismenn yfirleitt. — Ertu að leggja Magnús Kjartanisson og Morgunblaðið að jöfnu?! — Svona nokkurn veginm. Bæði eru nú skæðin góð! — í kosningabaráttunni á Vestfjörðum lagðir þú mikla áherzlu á sameiningarmálin, þ. e. sameiningu jafnaðartmanma og samvinnumanna í einum flokki, og að kosningum lofenum lýstir þú því yfir, að þú teldir þig hafa umboð vestfirzkra kjósenda til að vinna að þessum sameiningar- mállium. Nú hefur þú gengið til stjórnarsamstarfs, en Alþýðu- flokkurin.n er utan ríkisstjórnar, og formaður Alþýðuflokksins, Gylfi Þ. Gíslason, hefur lýst þvi yfir, að sú staðreynd, að Alþýðu flokkurinn er utan stjómar, en þið inmanborðs, hljóti að valda erfiðleikum í sambandi við sam- einingu þessara flokka. Hefurðu ekki brugðizt loforðum þínum við vestfirzka kjósendur með því að ganga efcki rösklegar fram í sameiningarmálunum, þegar í upphafi og láta þau sitja í fyrir- rúmi fyrir stjórnarþátttöku? — Nei, það tel ég ekki. Ég er vel miimnugur þessara orða mimma og tel, að þau séu rétt og sönn. Það var eimmitt með þau í huga, sem minn flokkur bar fram þá kröfu í stjórnarmynd- unarviðræðunum, að Alþýðu- flokkurimn yrði kvaddur til þátt- töku í þeim. Það hafðist fram. Alþýðuflokkurinn átti þess þann ig kost að verða þátttakandi í ríkisstjóm með Samtökum frjáls lyndra og vinstri mamna og Fram sókmarflofeknum, þannig að eng- in gaddavírsgirðing yrði milli þessara þriggja þjóðmálaflokka, sem ég tel eðlilegt, að verði uppi staða í sameiginlegum alþýðu- eða verkalýðsflofeki á íslandi. Það ber hins vegar að harma, að Aliþýðuflökkurinin hafnaði þátt- töku í viðræðunum og tök sér þamnig emn á ný stöðu við hlið Sjálfstæðisflofeksins, þrátt fyrir þá ámimningu sem kjósendur höfðu veitt honum í kosningun- um. Vafalaust að verulegu ieyti vegna of lamgrar og náinnar sam búðar við flokk samkeppnis- og auðhyggjumanna á íslandi. En þrátt fyrir þetta mun ég og flokk ur minn eingkis láta ófreistað til að sameina þau vimstri sininuðu lýðræðisöfl, sem saman eiga, í einum stjórnmálaflokfci. Það er erfiðara vegna þeirrar aiflstöðu, sem Alþýðuflöfekurinn tók, en þó má á margan hátt vinma að mál- inu. Þegar er ráðið, að blað verð ur gefið út um sameiningarmáiið af Samtökum frjálslyndra, Sam- bandi ungra Framsóknanmianma og Sambandi ungra jafnaðar- manna með stuðningi eldri flokksmamna úr öllum flofefcuim, og bæði Alþýðuflokknum og Framsóknarflokknum hefur þeg- ar verið ritað bréf og þess óskað, að þeir tækju þátt í myndun sameiningarráðs, er vinni að undirbúmingi og framkvæmdaað- gerðum sameiningarmálinu til framdráttar. Ennþá hefur hvorki borizt svar frá Alþýðuflokknum nié Framsóknarflokknum, en ólíklegt má teljast, að þau svör verði neitandi. — Alþýðuflokkurinn hefur lagt til, að viðræður verði tefcn- ar upp milli SFV, Alþýðufloktes- ins og Alþýðubandalagsins um Framhald á bls. 19. TVISVAR á ári ræðir borgarstjórn ítar- lega um fjármál borgarsjóðs og borgar- fyrirtækja. I desembermánuði er fjár- hagsáætlun komandi árs rædd og sam- þykkt. Þá reyna borgarfuiltrúar með aðstoð embættismanna borgarinnar að vega og meta, hversu há útgjöld þurfi að fara til einstakra rekstursþátta og hversu stór hluti geti gengið til fram- kvæmda. Hitt skiptið, sem fjármál eru mjög til umræðu, er við afgreiðslu reikninga borgarsjóðs. Reikningar borgarinnar fyrir næstliðið ár eru venjulega til um- ræðu á miðju ári. Þá liggur endanlegt uppgjör ársins fyrir og borgarfulltrúar og borgarbúar geta kynnt sér, hvernig hinu sameiginlega fé borgarbúa hefur verið varið. Umræður um reikninga ársins 1970 hafa staðið yfir í borgarstjórn að undan- förnu.Á fundi borgarstjórnar þann 1. júlí sl. gerði borgarstjóri ítarlega grein fyrir reikningunum, en almennar umræður um þá fóru fram fimmtudaginn 15. júli. Milli umræðna hafði borgarráð kynnt sér at- hugasemdir endurskoðenda og farið yf- ir svör forstöðumanna fyrirtækja við þeim athugasemdum og á þann hátt reynt að gera sér grein fyrir réttmæti þeirra. Sumar athugasemdirnar gefa til- efni til endurbóta í rekstri, t.d. með breyttu skipulagi innan einstakra stofn- ana. Á stóru heimili eins og hjá borgar- sjóði og öðrum fyrirtækjum borgarinn- ar þarf að hafa vakandi auga á hverjum fingri. Stjórnkerfið þarf að vera í stöð- ugri endurnýjun og aðhald er nauðsyn- legt á öllum sviðum. Það hefur verið styrkur sjálfstæðismanna í stjórn Reykjavíkurborgar að stjórnkerfið og stjórnhættir eru í stöðugri endurnýjun í því skyni að fjármagn það, sem borgin hefur yfir að ráða, nýtist sem bezt á hverjum tíma. Sennilega er það sjaldgæft að hinn al- menni borgari í Reykjavík kynni sér af eigin raun reikninga borgarinnar. Það er miður, þegar haft er í huga að hér er um sameiginlega fjármuni borg- arbúa að ræða og því miklir hagsmunir við það bundnir hvernig fjármagninu er ráðstafað. Vakandi auga borgarbúa er og það aðhald, sem sérhverjum stjórnendum er nauðsynlegt. Það er mjög fróðlegt að blaða í reikn- ingum Reykjavíkurborgar og draga ályktanir af þeim tölum, sem þar er að finna. Það er t.d. mjög athyglisvert, hve stjórnunarkostnaður borgarinnar er lítill hluti af heildarútgjöldunum og hefur hlutfallslega minnkað á milli ára. Árið 1969 var kostnaður við stjórn borg- arinnar 4,9% af heildarútgjöldum borg- arsjóðs, en reyndist árið 1970 4,6%. Inni i þessum kostnaði er reiknaður allur skrifstofukostnaður á borgarskrifstof- um, kostnaður við borgarstjórn, skrif- stofur borgarverkfræðings og ýmsar fleiri skrifstofur, sem tilheyra aðal- stjórn borgarinnar. Þetta lága hlutfall sýnir, að ítrasta sparnaðar er gætt í skrifstofu- og stjórnunarkostnaði. Borgin rekur ýmsar þjónustustofnan- ir, sem borgararnir sækja til daglega. f ýmsum þessum stofnunum greiða menn gjald fyrir veitta þjónustu, en átta sig oft ekki á því, að gjaldið hrekkur aðeins til að greiða hluta rekst- urskostnaðar, en afganginn greiðir borg- arsjóður af tekjum sínum. Tökum sem dæmi eina slíka stofnun: Sundstaðir borgarinnar eru vinsælar stofnanir. Þannig komu i sundlaugarn- ar í Laugardal á sl. ári 373.484 gestir. Heildarreksturskostnaður var 7,7 millj, kr., en aðgangseyrir sundgesta auk tekna af skólasundi nam 6,1 millj. kr. eða nálægt 80% af reksturskostnaði, Afgangurinn var greiddur úr borgar- sjóði. Hallinn var hlutfallslega svipaður í Sundlaug Vesturbæjar, en þangað komu 204.876 gestir á árinu, en mestur varð hann i Sundhöllinni, en þangað komu 173.018 gestir árið 1970. Borgar- sjóður greiddi 58% af útgjöldum Sund- hallarinnar, sem samtals námu 7,5 miilj. kr. Samtals greiddi borgarsjóður því í halla með sundstöðum borgarinnar um 6,9 millj. kr. á árinu 1970. Enginn stofn- kostnaður er innifalinn í þessum tölum. Á þennan hátt er fróðlegt að kanna ýmsa þætti í starfsemi borgarinnar og gera sér grein fyrir raunverulegum kostnaði. Það verður e.t.v. gert síðar í þessum þáttum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.