Morgunblaðið - 24.07.1971, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.07.1971, Qupperneq 22
22 MOBGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚLl 1971 Rafstöðvarhjónin fyrrverandi í Vestmannaeyjum Vilhjálmur Jónsson, Fæddur 23. janúar 1893. Dáinn 15. júlí 1971. Nikólína Jónsdóttir Fædd 15. júli 1900. Dáin 4. ágrúst 1958. 1 dag, 24. júlí, verður gerð frá Landakirkju i Vestmanna- eyjum, útför Vilhjálms Jónsson ar, fyrrverandi rafstöðvarstjóra í Vestmannaeyjum, en hann lézt í Borgarsjúkrahúsinu í Reykja- vik 15. þ.m. eftir langvarandi veikindi og oft miklar þjáining- ar. Vilhjálmur var fæddur að Bólstað í Hvammshreppi i Vest ur-Skaftafellssýslu 23. janúar 1893. Hann var sonur hjónanna Jóns Gunnsteinssonar og Þor- gerðar Hjálmarsdóttur, sem þar bjuggu. Ólst Vilhjálmur þar upp í stórum systkinahópi til ársins 1904, að foreldrar hans fluttust búferlum til Vestmanna- eyja og fengu byggingu fyrir Dalajörðunum, sem voru tvær af hinum 48 jörðum, sem þá töld ust vera i Vestmannaeyjum. Þar átti Vilhjálmur svo heima til fullorðinsára. Hann ólst upp við alla algenga vinnu, bæði til lands og sjávar og þar að auki var hann ágætur bjargveiðimað- ur og mjög vel hagur, bæði á tré og jám. Stundaði ViihjáLm- ur þessi stðrf til 1. september 1918, að hann réðst starfsmað- ur hjá Rafstöð Vestmannaeyja. Þar vann svo Vilhjálmur sitt mikla og oft erfiða ævistarf. Hann byrjaði að vinna með bróð ur sínum Sveinbirni, en Svein- bjöm Jónsson var fyrsti vél- gæzlumaðurinn á Rafstöðinni og svo rafstöðvarstjóri eftir að A.L. Petersen verkfræðingur og sim- stöðvarstjóri lét af því starfi. Fyrstu 10 árin, sem Rafstöðin starfaði, hafði hún einkarétt á allri sölu, bæði á efni og orku til raflýsinga. Starfsmenn Raf- stöðvarinnar urðu þvi að geta leyst af hendi rafvirkjastörf. Sveinbjörn hafði byrjað raf- virkjun hjá Halldóri Guðmunds syni rafm.verkfræðingi þegar Halldór annaðist raflýsingu og setti upp Rafstöð Vestmanna- eyja, sem tók til starfa 1915. Áð- ur, hafði Sveinbjöm m.a. verið vélstjóri á vélbátum. Hann var ágætis starfsmaður, ósérhlifinn og útsjónarsamur og hafði aflað sér mikiliar sjálfsmenntunar, enda víða farið og margt séð. Sveinbjöm rafstöðvarstjóri and aðist mjög fyrir aldur fram, 1930 og tók þá Vilhjálmur að sér raf stöðvarstjórastarfið og annaðist það til ársins 1948, að hann sök um veikinda varð að hætta t Konan mín og móðir okkar, Rósa Þorsteinsdóttir, Sólvallagötu 48, Reykjavík, andaðist 21. þ.m. Kristján Jónasson og dætur. þeim erilsömu störfum. Þurftl hann að dvelja á sjúkrahúsum og ganga undir erfiða aðgerð. Fékk hann að vísu nokkra heilsubót og var í um 10 ára bil, rafmagnseftirlitsmaður í Vestmannaeyjum, eða þar til á árinu 1958, að hann varð að hætta störfum heilsunnar vegna. Þetta er örstutt ágrip af starfssögu ViLhjálms Jónssonar rafstöðvarstjóra. Ég, sem skrifa þessi fáu minn- ingarorð átti því láni að fagna, að eiga hann að félaga og vini í áratugi. Man ég ekki eftir mér yngri en svo, að ég minnist Dala fjölskyldunnar því mikill kunn- ingsskapur var þar á milli og heimilis foreldra minna, en ná- in kynni okkar hófust þegar ég réðst 15 ára unglingur 19. okt. 1919 sem nemandi til Rafstöðvar Vestmannaeyja. Kom það að nokkru í hlut Vilhjálms að segja mér til í þeim fræðum, sem ég átti að nema. Ég skildi það ekki þá, hvað til þarf, til að vera góð ur kennari, en mér varð það síð ar ljóst, að Vilhjálmur hafði marga þá góðu kosti, að hann hafði numið vel hjá Svein birni bróður sínum og að ég átti honum mikið að þakka. Eins og áður er að vikið, ólst Vilhjálm- ur upp á mannmörgu og glað- væru heimili. Faðir hans var tví kvæntur. Fyrri kona Jóns hét Halla Jónsdóttir, systir Hall- dórs Jónssonar, Vík í Mýrdal. Þau eignuðust 3 syni: Guðjón, Jó hannes og Jón, en Halla lézt eft ir fárra ára hjónaband. Jón kvæntist svo aftur, seinni konu sinni, Þorgerði Hjálmarsdóttur frá Rotum í Vestur-Eyjafjalla- hreppi. Eignuðust þau 7 bðm: Höllu, Kristján, Sveinbjörn, Matthías, Vilhjálm, Guðrúnu og Hjálmar. Vilhjáimur átti því 3 hálfbræður og 6 alsystkini, sem ölL eru nú dáin nema Matthías, sem enn er á lífi, hartnær átt- ræður. VilhjáLmur var félags- lyndur maður, glaðvær og greið vikinn og vildi hvers manns vandræði leysa. Hann starfaði í Iþróttaféiaginu Þór á yngri ár- um sinum og í Vestmannakór var hann í fjölda mörg ár. Vil- hjálmur hafði mikið yndi af söng og hljómlist, enda góður söngmaður. Hann lék laglega á fiðlu og greip oft til hennar, sér til ánægju, i tómstundum sínum. Hinn 11. april 1925 kvæntist Vil hjálmur unnustu sinni, Nikó- línu Jónsdóttur. Nikólína var fædd á Mjóaflrði, dóttir hjón- anna Jóns Árnasonar og Sigríð- ar Ólafsdóttur, er síðast bjuggu að Melum þar eystra. Hún átti 2 systkini, bróður, sem látinn er og systur, Jónu að nafni, sem er ekkja og býr hér í Eyjum. Nikó- Lína missti föður sinn mjög ung og fluttist hingað til Vestmanna eyja með móður sinni 11 ára göm ul. Móðir hennar átti hér bú- settan bróður, Vilhjálm Ólafs- son á Múla og þar eignuðust þær mæðgur sitt heimili, Skömmu eftir fermingu fór Nikó lína að starfa i Lyfjabúðinni hér, hjá lyfsalahjónunum Sigurði Sig urðssyni og Önnu Pálsdóttur og þar starfaði hún svo alla tíð, þar til að hún trúlofaðist Vilhjálmi og fór í Húsmæðraskóla Islands | í Reykjavík. Nikólína var vel t Kveðjuathöfn um GUÐBJÖRGU JÓNSDÓTTUR, fyrrum húsfreyju að Snartatungu, fer fram frá Neskirkju, laugardaginn 24. jólí kl. 10.30 árdegis. Jarðað verður að Óspakseyri við Bitrufjörð mánudaginn 26. júlí klukkan 2. Böm hinnar látnu og aðrir aðstandendur. gefin og glæsileg kona. Bjó hún manni sinum fljótlega myndar- legt heimili. Þau byggðu sér íbúðarhús að Hásteinsvegi 4, sem þau fluttust í 1928. Þar áttu þau svo heima allan sinn bú- skap. Þangað var gott að koma og oft glatt í hópi sameiginlegra vina. Nikólína tók mikinn þátt í félagslifi hér um mörg ár. Var hún vel virkur félagi bæði i kvenfélaginu Líkn og í Leikfé- lagi Vestmannaeyja, en í því fé- lagi var hún einn bezti starfs- krafturinn og formaður þess í mörg ár. Þau Vilhjálmur og Nikólína eignuðust 3 börn og eru þau: Sigríður, gif t Pétri Sörlasyni járnsm.meistara i Rvík, Ólafur sem lengi var hér starfsmaður og verkstjóri hjá Rafveitu Vestmannaeyja, kvænt ur Millí HaraLdsdóttur, nú bú- settur í Reykjavík og Guðrún, sem rekur snyrtistofu í Reykja- vik. Þau hjónin, Vilhjáimur og Nikólína voru svo Lánsöm að geta búið mæðrum sínum báðum, samastað á heimili sinu í elli þeirra, en þær luku báðar ævi sinni við ágæta umönnun á heim i'li þeirra. Vilhjálmur missti konu sina 1958. Nikólina andað- ist á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 4. ágúst það ár. Var það mikið áfall íyrir Vilhjálm, þar sem hann var þá líka farinn að heilsu. Upp úr því fór að losna um hann hér í Eyjum og fluttist hann alfarið héðan til Sigríðar dóttur sinnar og Péturs tengda- sonar sins 1961 og átti hann hetana í skjóli þeirra ágætu hjóna úr því, nema þegar hann þurfti að dvelja á sjúkrahúsi sið ustu mánuðina. Vilhjálmur and- aðist, eins og áður segir, á Borg arsjúkrahúsinu 15. júlí s.l. ein- mitt á afmælisdegi konu sinnar. Ég gat komið því við að heim- sækja hann á sjúkrahúsið í maí s.. Okkur var þá víst báðum Ijóst, að hverju stefndi, þeg- ar ég svo kvaddi hann, bað hann mig fyrir innilegar kveðj- ur til vinahópsins í Eyjum, hóps ins, sem átti svo margar sameig- inlegar og ánægjulegar minning ar. Ég vil svo Ijúka þessum fáu minningarorðum með innilegu þakklæti fju-ir langt samstarf og órofa vináttu og mæli ég þar einnig fyrir munn vinahópsins I Eyjum. Börnum hans, öldruðum bróður svo og öllum öðrum ást- vinum hans, færi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur og bið þeim og honum blessunar Guðs. Páll Scheving. Minning: Katrín Sigurðardóttir 1 dag er til moldar borin Katrín Sigurðardóttir, húsfrú, Eskihlíð 23. Hún andaðist í Borgarsjúkrahúsinu 16. þ.m. eft- ir langa og stranga baráttu við erfiðan sjúkdóm. Katrín var fædd £ Reykjavík 3. ágúst 1904. Foreldrar hennar voru Guðrún Sigurðardóttir og Sigurður Guð- mundsson pípulagningameistari, sem bjuggu alla tíð hér í borg. Hjá þeim ólst hún upp í stór- um systkinahópi, fíngerð og grannvaxin, en eigi að síður fylgin sér. Hún sagði sjálf, að hún hefði verið ódugleg sem bam og þegar hin systkinin voru send í sveit, sagðist hún skyldi fara ef mamma kæmi líka, en styrkur hennar óx með árunum og ef dæma ætti hana eftir baráttu hennar siðustu vik- urnar, má með sanni segja að hún hafi verið sönn hetja. Katrín giftist 8. október 1927 Lofti Ólafssyni vélstjóra, sem látinn er fyrir rúmum 5 árum. Þau eignuðust þrjú böm, Gunn- ar ílugvirkja, giftan MaggyJóns dóttur, Inga Loft, flugvirkja, giftan Önnu Láru Þorsteinsdótt- ur og Málfríði gifta Kristjáni Sigurðssyni vélstjóra. Heimili Katrínar og Lofts bar vott um mikla smekkvisi og myndarskap, enda voru þau hjónin með afbrigðum samhent um allt er laut að því að fegra og prýða í kringum sig. Loftur var lika góður maður og traust- ur, sem-bar hana á höndum sér og sá vel um sína. Þegar ég kynntist Katrínu var hún í blóma lífsins, húsmóðir á fal- legu heimili, sem alltaf var jafn indælt að koma á, enda á ég og fjölskylda mín margar góðar minningar um gleðistundir á heimili hennar fyrr og síðar. Hún hugsaði vel um gesti og ekki spiliti hin góðlátlega kimni eiginmannsins. Einhvern veg- inn er það svo, að ómögulegt er að minnast Katrinar öðru vísi en að minnast Lofts um leið, svo samtvinnuð er minningin um þau í hugum okkar, sem vor um svo lánsöm að eiga þau að vinum. Þau voru vinföst og áttu trausta og góða vini áratugum saman m.a. stóran hóp stéttar- bræðra Lofts og konur þeirra, sem reyndust henni sömu vinir eftir lát eiginmanns hennar. Þá má og minnast á að þau byggðu tvö hús með sama fólkinu og varaði það sambýli um 40 ára skeið og var í öllu til fyrir- myndar. Sysfkinum sínum hefur Katrín aUtaf verið góð og bor- ið hag þeirra og fjölskyldna þeirra fyrir brjósti. Það hefði verið skrítið, ef Kata frænka hefði gleymt einhverju systkina barnanna, ef það átti afmæli. Nú átti hún yndisleg bamaböm, sem auðvitað áttu stærstan hug hennar, en eigi að síður hafði hún alltaf rúm fyrir allar litlar frænkur og frændur, því að hún var sérlega barngóð og frændrækin með afbrígðum. MiUi Katrinar og foreldra henn ar var alltaf mjög náið sam- band og þegar móðir hennar dó, opnaði hún heimili sitt föður sínum og var hann í skjóli henn ar síðustu æviár sín og naut þar ástúðar og umhyggju. Katrín var hreinskilin kona og gat stundum verið hvass- yrt, en undir niðri var við- kvæm lund, enda mátti hún ekkert aumt sjá, tók alltaf mál- stað lítilmagnans og var ávallt reiðubúin að rétta fram hjálpar hönd þeim, sem þess þurftu. Katrín hefur sennilega sjaldn ast gengið heil til skógar, en styrkur hennar var viljafesta og þótt líkamsþrekið væri oft ekki mikið, bar hún höfuðið hátt og var viss reisn í öllu hennar fasi. Eftir að eiginmað ur hennar dó var eins og lífs- þróttur hennar lamaðist og hún varð aldrei söm manneskja. Sjúkdómurinn náði nú eins og tökum á henni og viljastyrkur hennar réhaði. Við sem þekktum Katrínu bezt og nutum vináttu og um- t Móðir okkar, GUÐBJÖRG HANSDÓTTIR, verður jarðsett frá Isafjarðarkirkju mánudaginn 26. júlí kl. 2 e. h. Konráð Jakobsson, Asta Þ. Jakobsdóttir, Steinþór Jakobsson, Jakobína V. Jakobsdóttir. hyggju hennar, erum henni þakklát fyrir það, sem hún var okkur. Þegar ég giftist inn í fjöl- skyldu hennar tók hún mér með sérstakri ástúð og var mér alla tíð, sem bezta systir og mun ég ætíð minnast hennar sem slikr- ar. Guð blessi minningu hennar. SigTÍður Þórðardóttir. I dag, laugardaginn 24.7. 1971 verður Katrin Sigurðardóttir jarðsungin, gömul, góð og traust vinkona mín. Mér var það ekki harmafregn þegar ég heyrði um lát þessar- ar vinkonu minnar, heldur miklu fremur gleði yfir þeirri vissu, að nú væri hún komin til framtíðarheimkynna okkar allra, og að hér væri aðeins um stundlegan aðsldlnað að ræða. Ennfremur gladdi það mig aö ekki þyrfti hún að liggja langa og kvalafuUa banalegu. Þessar línur mínar eiga ekki að verða nein langrolla um kosti og galla Katrinar, heldur aðeins stutt kveðjuorð, með þakklæti fyrir alla þá bita, sem úr hendi hennar runnu í svang an munn minn sem lítils drengs, og þakklæti fyrir heimsóknir hennar til min, þar sem ég lá veikur á sjúkrahúsi. Voru þær heimsóknir gerðar frekar af vilja en mætiti, og gæti þar margur af lært. Þessar linur mínar verða ekki lengri, þó svo að ég gæti setið við dögum sam an og rifjað upp gamlar endur- minningar. Ég bið algóðan Guð að taka á móti þér af gæzku sinni, Kata mín og að þú megir verða að- njótandi hinnar æðstu sælu. Ég bið að börnum þinum, gömlum vinum mínum megi verða að haldi vissan um það hvar þú ert óhult niðurkomin. Að svo komnu máli kveð ég þig Kata min, að sinni. Ásgeir Einarsson, Sldpholti 43.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.