Morgunblaðið - 17.08.1971, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1971
'J
A-þjóðverjar sigruðu á EM
Settu 2 heimsmet á
lokadegi keppninnar
Aiislur-Þjóðvci'jívr hirtu ílest
verðlaun á Evrópumeistaramót-
inu í Helsinki, sem lauk á sunjm-
dagskvöldið. Tvö ný hcim‘#nct,
sem austur-þýzkar stúlkur settu
þá, voru hápimktur á glæsiiegri
frammistöðu Þjóðverja í þessari
keppni, sem segja má að hafi
komið nokkuð á óvart. Evrópu-
meistaramót þetta þótti takast
með afbrigðum vel, og um mjög
harða og tvísýna keppni var að
ræða í nær öllum greinum.
í hinni óopinberu stigakeppni
mótsins sigruðu Austur-Þjóð-
verjar, hlutu 204,5 stig, en Rúss-
ar urðu í öðru sæti með 146 stig
og Vestur-Þjóðverjar í þriðja
sæti með 123 stig. Röð annarra
þátttökuþjóða, er stig hlutu, var
þessi: Bretland 75,5 stig, I'inn-
land 32,5 stig, Tékkóslóvakía 28
stig, Ítalía 26 stig, Frakkland 24
stig, Ungverjaland 23 stig, Riim-
enía 18,5 stig, Svíþjóð 15 stig,
Júgóslavía 13 stig, Austurríki 12
stig, Belgía 10 stig, Sviss 9 stig,
Spánn 4 stig, Grikkland 4 stig og
Búlgaría 2 stig. Gíbraltar, Hol-
land, ísland, Lichtenstein, Luxem
borg, Portúgal, Danmörk og
Tyrkland hlutu ekki stig í keppn-
inni.
Því miður eru fréttaskeyti NTB
og AP frá keppninni á sunnudag-
inn mjög trufluð, og því ekki
hægt að rekja úrslit í einstökum
greinum nákvæmlega. Verður
það gert strax og nánari fréttir
berast.
í 1500 metra hlaupi kvenna
setti Karin Burneleit, Austur-
Þýzkalandi nýtt heimsmet er hún
hljóp á 4:09,6 mín. Gamla heims-
metið átti Jaroslava Jehlickova,
Tékkóslóvakíu, og var það 4:10,7
mín., sett fyrir tveimur árum.
Austur-þýzka boðhlaupssveitin
setti svo heimsmet í 4x400 metra
boðhlaupi kvenna er hún hljóp á
3:29,3 mín. Gamla heimsmetið
átti brezk sveit og var það 3:30,8
mínútur.
í maraþonhlaupinu sigraði 22ja
ára Belgíumaður, Karl Lismont,
á 2:13,09,0 kist., og er það bezti
timi, sem náðst hefur í þessari
grein á Evrópumeistaramóti.
Beigi þessi, sem er blaðamaður
að atvinnu, hélt sig í hópi þeirra
fremstu 33 kílómetra, en þá tók
hann mikinn sprett og sigraði
með töluverðum yfirburðum.
5000 METRA HLAUP
Fæstiir höfðu búizt við því
fyrirfram að Finnanum Váatáin-
en mymdi takast að sigra einnig
í 5000 metra hlaupinu, en eins og
fram hefur komið, sigraði hanm
glæsilega í 10 km hlaupinu fyrsta
(piótsdaginn. Bn einhverjar vonir
hafa þó landar hans gert sér, því
að þegar hlaupið var að hefjast
yfirfylltist Ólympíuleikvangur-
inn af áhorfendum og mun færri
bomust að en vildu. Og allt frá
því að hlaupið hófst hrópuðu
áhorfendur nafn Váátáinens í
takt. Hann hélt sig jafnam fram-
arlega í hópnum, en lét aðra um
að ráða hraðanum, sem var nokk
uð góður. Millitímiinn á 3 km var
þannig t. d. 8:15,0 mín. Þegar
1000 metrar voru eftir aí hlaup-
inu fór svo Finninn að láta til sím
taka og hljóp þá á 2:28,0 mín., en
það er tími sem svarar til 3:42,0
mín. í 1500 metra hlaupi! Hanm
varð hinin öruggi sigurvegari og
á áhorfendapöllumum féUust
ofsaglaðir áhorfandur í faðma og
margir táruðust. Váátáinen er 30
ára að aldri, og hafði ekki verið
búizt við að hann myndi blanda
sór í baráttuna um verðlauna-
sætin á EM. Það var t. d. efcki
fyrr en í ár, sem hann fór að
hlaupa lengri vegalengdir en 1500
metra að nokkru marki.
— Ég var óskaplegá tauga-
óstyrkur fyrir þetta hlaup, sagði
Váátáinen, eftir hlaupið, — og
hvað eftir annað varð ég var við
það meðan á hlaupinu stóð, að
taugar mínar voru efcki í sem
beztu lagi. En þetta heppnaðist og
Faina Melnik, Rússlandi, sígiirvegari í kringlukasti kvenna,
kastaði 64,22 metra, sem er nýtt heimsmet.
Váátáinen kórónaði glæsilega frammistöðu sína í Evrópumeistaraniótinu með sigri í 5 kíiómetra
lilaupinu. Þessi mynd er hins vegar lir 10 kílómetra hlaupinu, er komið var að lokasprettinum, og
Finninn er að taka forystuna.
nú eru það Ólympíuleikarnir í
Munchen, sem eru næsta tak-
mark. Sl. vetur fór ég til æfinga í
Bandaríkjunuim, og hugsa mér að
fara þangað aftur á næstunni.
Rússneski spretthlauparinn, Bor-
zov, sigraði bæði í 100 og 200 m
lilaupi á Evrópumeistara/nótinu,
og var þar raunar í sérflokki.
Hann og finnski Ianghlauparinn
Váátáinen, voru þeir einu, sem
hlutu tvenn gullverðlaun á þessu
móti, og báðir stefna þeir að góð-
um árangri í OlympíulcikXium
að ári.
Úrslit Mín.
J. Váátáinen, Finnlandi 13:32,6
J. Wasoux, Frakklandi, 13:33,6
H. Norpoth, V-Þýzkalandi, 13:33,8
D. Korica, Júgóslavíu, 13:35,0
J. Alvarez-Salgado, Spáni, 13:35,8
E. Puttemanms, Belgíu, 13:36,6
SLEGGJUKAST
Svo sem búizt hafði verið við
var keppnin í sleggjuhasti geysi-
lega hörð. Á æfingum fyrir mót-
ið hafði Beyer t. d. þeytt sleggj-
unni vel yfiir 80 metra. Þegar á
hólminn kom, einkenndist keppn
in mest af taugastríði þeirra
beztu, og árangurinn varð sam-
kvæmt því. Snemmia í keppninni
náði Austur-Þjóðverjinn Rein-
hard Theimer 71,80 metra kasti,
og hafði forystuma fram í síð-
ustu umferð að Beyer kastaði
72,36 metra, sem nægði til gull-
verðlauna. Heimsmet hans er
hins vegar 74,90 metrar.
Úrslit M
U. Beyer, V-Þýzikalandi, 72,36
R. Theiimer, A-Þýzkalandi, 71,80
A. Bondarchuk, Rússlandi, 71,40
R. Klim, Rússlandi, 70,64
W. Schmidt, V-Þýzkalandi, 70,54
S. Ekschimdt, Ungverjal., 69,74
50 KÍLÓMETRA GANGA
Úrslit Kist.
V. Soldatenko, Rússl., 4:02,22,0
C. Höhne, A-Þýzlkalandi, 4:04,45,2
P. Selzer, A-Þýzkalandi, 4:06,11,0
O. Barch, Rússlandi, 4:08,14,0
W. Skotnicki, A-Þýzkal., 4:10,22,0
B. Nermerich, V-Þýzíkal., 4:11,44,0
LANGSTÖKK KVENNA
Ingrid Becker, Vestur-Þýzka-
landi, sigraði örugglega í þessari
grein og setti nýtt meistaramó-ts-
met, er hún stökk 6,76 metra.
Heimsmethafinn í greininni,
Heide Rosendahl, sem stokkið
hefur 6,84 metra, varð hins vegar
að sætta sig við þriðja sætið.
Úrslit M
I. Mickler-Bedker, V-Þýzkal., 6,76
M. Antenen, Sviss, 6,73
H. Rosendahl, V-Þýzkalandi, 6,66
S. Sherwood, Bretlandi, 6,62
I. Szewinska, Póllandi, 6,62
V. Viscopoleanu, Rúmeníu, 6,39
HÁSTÖKK
Baráttan var geysihörð í há-
stöhkinu og fóru alls fjórir kepp-
endur yfir 2,17 metra. Þá var
hækað í 2,20 metra og þá hæð
fóru þrír keppendanna, en felldu
svo allir næstu hæð, 2,23 metra,
þannig að atrennufjöldi varð að
ráða úrslitum.
Úrslit M
K. Shapka, Rússlandi, 2,20
C. Dosa, Rúmeníu, 2,20
R. Akhmetov, Rússlandi, 2,20
I. Major, Ungverjalandi, 2,17
S. Junge, A-Þýzkalandi, 2,14
A. Pesonen, Finnlandi, 2,14
W. Golebiowski, Póllandi, 2,14
KRINGLUKAST
í kringlukasti gátu Norður-
landabúar gert sér góðar vonir
um gullverðlaun, eftir að loks
var ákveðið að sænski jötuninn
Ridky Bruch yrði meðal kepp-
enda, en segja mátti að hann
færi beinl.af sjúlkrahúsi til keppn
innar, og á leiðinni út á flugvöll
í Svíþjóð féll hann reyndar í
yfirhð skamma stund. Til þess að
komiast í aðalkeppnina þurfti að
fcasita 58 metra. í fyrsta kasti
náði Bruch aðeins um 50 metra
kasti, og mátti þá heyra mikinn
hæðnishlátur frá áhorfendapöll-
unum, en sem kunnugt er, hefur
um fáa íþróttamenn verið rætt
anroað eins og ritað og um Ricfcy
Bruch. En í næsta kasti hljóðn-
aði svo hláturinn, þar sem hann
fcastaði 60,50 metra, og átti þar
með annan bezta árangurinn í
undankeppninni. Bezta kasti
náði þá Ludvik Danek frá Tékkó
slóvakíu, sem um tíma átti heimu
mefið í greininni, en hann hefur
verið því marki hre-nndur að
sigra aldrei á stórmiótum.
í aðalkeppninni rættist þó
draumur þessa ágæta íþrótba-
manns. Hann sigraði örugglega
með því að kasta 63,90 metira. En
hvað um Ricky Bruch? Harun
varð að láta s4r lynda það að
bornast eklki í sex manna úrslit
og kastaði aðeins 59,20 metra, og
varð þar með níundi.
Úrslit M
L. Danefc, Tékkóslóvakíu, 63,90
L. Milde, A-Þýzkalandi, 61,62
G. Fejer, Ungverjalandi, 61,54
D. Wippermann, V-Þýzkal., 61,35
H. Losoh, A-Þýzkalandi, 60,86
P. Kahirna, Finnlandi, 60,64
3000 METRA HINDRUNAR-
HLAUP
í hindrunarhlaupinu komu úr-
shtin nókfcuð á óvart, en þar
sigraði Villain frá Frakklandi ör-
ugglega. Mikil barátta var hina
vegar um silfurverðlaunin milli
Rússans og Tékkans, og mátti
ekki á milli sjá fyrr en á síðustu
metrunum.
Framha.ld á bls. 4
Janis Lusis, sem sigraði i ispjótkastinu, er þarna að athuga að-
stæður á Óiympíuleikvanginum, ásamt einum helzta keppi-
naut sínum og landa, Janis Donins.