Morgunblaðið - 17.08.1971, Side 6

Morgunblaðið - 17.08.1971, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1971 „Dramatísk" barátta í golfi Björgvin Hólm glataði f jögurra högga forystu — Björgvin Dorsteinsson, 19 ára Akureyringur sigraði í aukakeppni um titilinn LOKAÁTÖKIN á landsmótinu í golfi urðu, flestum nokkuð á óvart, einhver þau sögulegustu og eftirminnilegustu, sem um getur í golfi og þótt til fleiri íþróttagreina væri leitað. Þegar ólokið var fjórum brautum hafði Björgvin Hólm, GK, 4ra högga forystu, en fyrir slysni, sem á sér fáar hlið- stæður, missti hann þetta forskot niður, þar af 3 högg á 4. síðustu brautinni. Samfara þessari slysni Björg- vins Hólm lék hinn ungi og sér- staklega efnilegi Akureyringur, Björgvin Þorsteinsson mjög vel. Eftir 72. holu keppni voru þeir nafnarnir jafnir með 326 högg. Kom nú til aukakeppni milli þeirra og samkvæmt reglum var hún ákveðin 3 brautir. Voru leiknar 1., 4. og 5. braut vallar- Halldór Rafnsson — sigraði í 1. flokki. ins, en þær mynda eins konar lítinn hring á vellinum og er hola 5. brautar rétt við skálann. Þeir urðu jafnir að högga- fjölda á fyrstu tveimur braut- unum og hófu þá þriðju. Björgvin Hólm náði feikna- löngu upphafshöggi og um 20—30 m lengra en nafni hans. Báðir skutu þeir upp á holuflöt í öðru höggi, en kúl- urnar skoppuðu yfir hana. 1 þriðja höggi nálguðust báðir holuna og var Björgvin Þor- steinsson þó ívið nær, svo það kom í hlut Björgvins Hólm að slá á tindan. Hefði mátt heyra saumnál detta þarna á vellin- um. Björgvin slær og kúla hans nemur staðar á holu- barmintim, vantaði 1—2 cm til að falla ofan í. Nti stóð Björgvin Þorsteins- son frammi fyrir því að geta unnið titilinn — með því að hitta i holuna i einu höggi. Spennan náði hámarki. En of- an í sló þessi tmgi maður og fslandsmeistaratitillinn var hans. Hann var unglingameist ari íslands í fyrra og bætti nú mjög um betur. Var sigri hans innilega fagnað, en loka- keppnin var eins og fyrr seg- ir einhver sú dramatískasta sem orðið hefur. Björgvin Hólm hafði forystu þrjá fyrstu daga mótsins og að þeim loknum var forysta hans orðin 5 högg — en það dugði sem sagt ekki. Og nú spyrja menn, hvað olli? Allt var með felldu þar til kom að 6. braut síðasta hrings. Sú braut er löng, hallar í fyrstu mjög niður á við frá skálanum og er mjög mjó þar sem upp- hafshöggin venjulega lenda, en torfærur eru til beggja hliða og það mjög slæmar á vinstri hönd. Þar er ógróinn hóll. Björgvin Hólm sló upp í þennan hól, en nafni hans átti gott högg niður á miðja braut. Kúla Björgvins Hólm lá illa i hólnum. Þar má hann ekkert færa nema gegn vítishöggi. Björgvin er snillingur i að „bjarga sér“ úr slikum torfær- um. Hann valdi þann kostinn að reyna það, en eftir á kom í ljós, að þarna varð upphaf mis- taka hans. Gætinn leikmaður með 4ra högga forskot hefði átt að taka á sig vítið og fá að „droppa" kúlunni á sláanlegan stað á hólnum. En Björgvin ætl- aði sér að sleppa við vítið. Högg hans mistókst og kúlan fór beint í loft upp og lenti mjög stutt frá þeim stað þar sem hún upphaf- lega var. Og nú var hún ósláandi og Björgvin varð að taka á sig vítishögg — og færa hana til. Þarna hafði hann tapað tveimur höggum á augabragði. Þriðja högginu á þessari sömu braut tapaði hann þegar komið var á holuflötina. Þrjú af fjórum högg- um voru því glötuð og nú gat allt gerzt. Og á siðustu flöt síð- asta hrings tókst Björgvin Þor- steinssyni að vinna þetta eina högg af nafna sinum Hólm og jafna leikinn, svo aukakeppni var óumflýjanleg eins og áður segir. Björgvin Þorsteinsson sýndi mjög góð tilþrif í þessum loka- hring. Hann lék hann á 38 högg- um (tveimur yfir pari). En hann var þó ekki í sérflokki yfir dag- inn, þvi Einar Guðnason, GR, náði sama höggafjölda í báðum hringjunum samanlagt. Lék Ein- ar á 40 og 40 höggum, en það nægði aðeins til þriðja sætis, tveimur höggum á eftir þeim nöfnunum. Þessir þrir voru í nokkrum sérflokki um það er lauk, því öðrum vegnaði illa þennan dag, eins og sjá má af töflunni. Lokastaðan varð: 1. Björgvin Þorsteinss., GA, 42 38 326 2. Björgvin Hólm, GK, 43 42 326 Björgvin Hólm (t.v.) og Björgvin Þorsteinsson eftir hina „drama tísku“ keþpni , mótslok. 4. Þorvarður Árnason, GR, 47 48 375 5. Sverrir Einarsson, GV, 47 50 376 6. Haukur Margeirsson, NK, 49 47 380 Alls lauk 21 maður keppninni og þeir síðustu voru með hart- nær 440 högg. 2. FI.OKKUR Þarna skar Árni R. Árnason sig nokkur úr snemma í keppn- inni. En á þriðja degi lék Jón Verðlaunaafhending í kvennaflokki. F.v.: Sigurbjörg Guðnadótt- ir (3), Ólöf Geirsdóttir (2) og Guðfinna Sigurþórsdóttir (1). Páll Ásgeir afhendir. Drengjaflokkur f.v. Sigiirður Sigurðsson (1), Ragnar (2) og Geir Svansson (4). Ólafsson 3. Einar Guðnason, GR, 40 40 328 4.—5. Óttar Yngvason, GR, 44 41 336 4.—5. Þorbjörn Kjærbo, GS, 42 46 336 6. Gunnar Þórðarson, GA, 43 43 337 7. Þórarinn B. Jónsson, GA, 45 41 341 8. Viðar Þorsteinsson, GA, 41 44 343 9. Hans Ó. Isebam, GR, 49 42 345 10. Ól. Bj. Ragnarsson, GR, 46 43 349 Næstir komu Sævar Gunnars- son, GA, Loftur Ólafsson, NK, Gunnlaugur Ragnarsson, GR, Haukur V. Guðmundsson, GR, Hannes Þorsteinsson, GL, Ás- mundur Sveinsson, GS, Brynjar Vilmundarson og Ársæll Sveins- son. 1 meistaraflokki lék 41 kepp- andi. 39 luku keppni og þeir síð- ustu léku á 400 og 402 höggum, svo að vel teygðist úr hópnum. 1. FLOKKUR Þar varð ekki um mikla keppni að ræða um efsta sætið. Halldór Rafnsson náði forystu á öðrum degi og jók hana mjög þriðja daginn og tryggði sér þá sigurinn. Um síðir vann hann með 14 högga mun, enda lék hann eins og góður meistara- flokksmaður er á leið. Sviptingar urðu um næstu sæti og sífelldar breytingar frá degi til dags, en lokastaðan varð: 1. Halldór Rafnsson, GA, 46 45 355 2. Hermann Magnússon, GV, 43 44 369 3. Sigurður Ringsted, GA, 42 46 371 Hannes Hall sigraði í 3. flokki. Jóhann ÓIi Guðmundsson — sigraði í unglingaflokki. Guðmundsson mjög vel og náði íorystu. En „stuðið" sveik Jón og Árni náði aftur sinni öruggu forystu. Lokastaðan varð: 1. Árni R. Árnason, GS, 47 43 351 2.—3. Gunnar Pétursson, GR, 43 46 358 2. —3. Bergur Guðnason, GR, 46 45 358 4. Hreinn M. Jóhannss., NK, 47 43 361 5.—7. Kjartan L. Pálsson, NK, 47 45 365 5.—7. Magnús R. Jónsson, GK, 48 46 365 5.—7. Jón Guðmundsson, GA, 56 50 365 3. FLOKKUR Þama hélt Hannes Hall frá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.