Morgunblaðið - 31.08.1971, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 31.08.1971, Blaðsíða 3
MOítGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1971 3 H IA—UBK 3-3: Matthías bjargaði öðru stiginu á elleftu stund Breiðablik öruggt með að halda sæti sínu í 1. deild ÞÆB voru æsispennandi síðustu mínúturnar í leik Skagamanna og Breiðabliks á Akranesi á sunnudag. Breiðablik hafði eitt mark yfir — 3:2 — og Skaga- menn sóttu án afláts, en knött- urinn vUdi ekki inn. Matthías skæðasti sóknarmaðiu- Skaga- manna var orðinn draghaltur og hafði beðið um að fá að fara út af. En áður en af því varð, fékk hann knöttinn fyrir framan vita- teig Breiðabliks og lék á hvern varnarmanninn á fætur öðrum og skoraði glæsUega. Hafði hann þar með bjargað öðru stiginu fyrir lið sitt á eUeftu stimdu, en áður í leiknum hafði hann skor- að giæsUegt mark og er þvi markhæstur í 1. deUd ásamt Steinari Jóhannssyni, ÍBK, með 11 mörk. Það gekk á ýmsu í leiknum, sem ekki var vel leikinn, en mik- ill baráttuleikur. Komu Breiða- bliksmenn á óvart, þvi fáir höf ðu reiknað með að þeir mundu gera stóra hluti á blautum gras- vellinum á Akranesi, enda höfðu þeir stórtapað — 5—0 — i fyrri leik liðanna á Melavellinum í Rvik. En margt fer öðru vísi en ætlað er i knattspyrnu og undir lokin var svo komið að Skaga- menn máttu þakka fyrir að ná öðru stiginu. FYBBI HÁLFLEIKUB Fyrsta mark leiksins kom strax á 3. mín. Jóhannes Guð- jónsson hafði leikið með knött- inn fram og mistókst sending. Steinþór náði knettinum og gaf hann til Guðmundar Þórðarson- ar, sem var frír og skoraði hann örugglega af stuttu færi. Þarna voru varnarmenn Skagamanna illa á verði, þar sem enginn hafði tekið stöðu Jóhannesar þegar hann lék fram. Leikurinn var jafn fyrst fram- an af, en smám saman taka Skagamenn að sækja og eiga nokkrar sóknarlotur, án þess að þeim takist að skora, þar til á 19. mín. að Eyleifur sendir knött- inn til Bjöms Lárussonar, sem skoraði framhjá Ólafi Hákonar- syni. Á 25. mín bæta svo Skaga- menn öðru marki við og gerði Matthías það á sérlega skemmti- legan hátt. Hafði hann leikið upp vinstra megin og var kom- inn í gott skotfæri og skaut, en Ólafur varði. Hélt hann ekki knettinum og reyndi að ná honum aftur með því að fleygja sér fram. Matthías varð á und- an, lék rólega utar og vippaði síðan knettinum yfir varnar- menn og sigldi knötturinn ró- lega yfir höfuð þeirra og í netið, án þess að þeir gætu neitt að gert. Siðustu 15 mín. sóttu Breiða- bliksmenn meira og áttu hættu- leg tækifæri og á 39. mín. átti Guðmundur Þórðarson í baráttu við varnarmenn lA, sem lauk með þvi að Jóhannesi Guðjóns- syni tókst að bjarga á línu og i horn. Eftir hornspyrnuna á Guð- mundur hörkuskot, sem Davíð varði, með þvi að slá knöttinn út fyrir stöng. Ólafur Friðriks- son tók hornspyrnuna og fékk Hinrik Þórhallsson knöttinn á marklínu og átti auðvelt með að skora. SÍÐABI HÁLFLEIKUB Skagamenn áttu fyrsta tæki- færið í siðari hálfleik, er Andrés Ólafsson skaut hátt yfir mark- ið eftir að hafa fengið sendingu frá Matthiasi. Á 5. mín. er dæmd auka- spyrna á Skagamenn úti við miðlínu vallar vinstra megin. Steinþór Steinþórsson frani- kvæmdi spyrnuna og sendi háan bolta að marki Skaga- manna. Jón Gimnlaugsson ætlaði að skalla frá, en náði ekki til knattarins, sem strauk hár hans og kom nið- ur á marklínuna og þaðan i netið. Mjög óvænt mark og vægast sagt klaufalegt hjá varnarmönnum Skagamanna. Eitthvað er ekki góð sam- Benedikt Valtýsson, ÍA er mikill baráttumaður, enda leynir það sér ekki á svipnum á honimi á þessari mynd. vinna milli markmanns og varnarmanna, þegar svona lagað getur komið fyrir? Nokkrum mín. siðar mun- aði minnstu að Steinþóri tækist að leika sama leikinn aftur, að skora úr aukaspyrnú. Var nú dæmd aukaspyrna eina 30 m frá marki Skagarrianna og náði Jón Gunnlaugsson nú knettin- um, en illa og skallaði hann aft- ur fyriir sig, að markinu, en Jóhannesi Guðjónssyni tókst að bjarga í horn á síðustu stundu. Á 21. mín. eiga Breiðabliks- menn gott færi til að auka for- skot sitt. Var þá Þór Hreiðars- son í „dauðafæri“ en hann sendi knöttinn með lausri innanfótar- spyrnu i hendur Daviðs mark- varðar. Áhorfendur fara nú að ókyrr- ast á pöllunum og hvetja Skaga- menn ákaft. Liðsmenn hrifust af ópunum og fara nú að sækja og voru i sókn að mestu til leiksloka. Við skulum aðeins lita í minn- isbókina: 26. min. Jón Alfreðsson, And- rés og Teitur léku laglega upp vinstra megin en lint skot Teits átti Ólafur auðvelt með að verja. 28. mín. Sókn Skagamanna, en skot Matthiasar af vítateig fór yfir. 30. mín. Matthías brunar inn, en markvörður varði í horn. Eft- ir homspyrnuna mikil hætta fyrir framan markið, en enginn hittir knöttinn. 31. mín. Óbein aukaspyrna á Breiðablik innan vítateigs þeirra. Spyrnan mistókst. 33. mín. Skagamenn í sókn og hörkuskot frá Teiti fór í stöng. 35. mín. Skagamenn í sókn, en skot frá Andrési er varið í horn. 39. min. Breiðabliksmenn sækja, en Davíð ver frábærlega vel skot frá Þór. 40. mín. Skagamenn sækja og fær Matthías knöttinn við vítateig. Lék hann á hvern varnarmanninn á fætur öðr- um og skoraði við gífiu-leg ■ fagnaðarlæti áhorfenda og þustu ungir aðdáendur inn á völlinn og föðmuðu Matthías. Fleira gerðist ekki markvert til leiksloka og lauk því leikn- um með jafntefli og má segja, að þau úrslit hafi verið sann- gjörn eftir gangi leiksins, en allavega mega Skagamenn telj- ast heppnir að ná öðru stiginu úr þvi sem komið var. LIÐIN Skagamenn voru langt frá sínu bezta í þessum leik. Sókn- arleikurinn var of einhæfur og hætti oft tii að enda með því að menn fóru að einleika og Matthías Hallgrímsson íA reyn og skoraði tvö mörk. Hér sést mundur Jónsson UBK misstu þannig knöttinn. Þá var vörnin óörugg og nægir í þvi sambandi að nefna, að öll mörk- in, sem liðið fékk á sig komu af því að vörnin var ekki vel á verði. Davíð varði vel á milli stanganna, en háu boltarnir og úthlaupin eru hans veika hlið. Benedikt og Jóhannes stóðu sig yfirleitt ágætlega, en baráttu- gleði Benedikts er til fyrirmynd- ar. Jón Gunnlaugsson átti slak- an leik að þessu sinni og sömu- leiðis Þröstur. Honum hættir til að fara of framarlega. Eyleifur varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla um miðjan fyrri hálf- leik, en hann var með daufara móti meðan hann var inni á. Jón Alfreðsson var bezti maður liðs- ins, sívinnandi, enda á hann sjaldan lélegan leik. Matthías var beztur i framlínunni, en ein- leikur um of, en fyrirgefst það, þegar hann skorar eins og hann gerði í þessum leik. Hörður Jóhannesson er ungur og efnilegur leikmaður. Stóð hann sig vel meðan hann lék á kantinum í fyrri hálfleik, en eft- ir að Eyleifur fór út af lék hann sem tengiíiður. Björn Lárusson er harðsæk- inn leikmaður, en hefur ekki alltaf árangur sem erfiði. Andrés var slappur. Ólafur Hákonarson markvörð- ur Breiðabliks varði vel I þessum leik, en Guðmundur Jónsson og Steinþór voru beztu menn varn- arinnar. Þór Hreiðarsson og Guðmund- ur Þórðarson voru góðir í fram- línunni. Þá eru útherjamir báð- ir athyglisverðir leikmenn. 1 heild lék liðið vel og barðist fram á siðustu stundu og hef- ur það sennilega verið af reynslu dist Breiðabliksmönniun erfiður hann spyrna knettinum, en Guð- er við öllu búinn. leysi, að þeim tókst ekki að halda báðum stigunum, því auð- vitað áttu þeir að leika hreinan varnarleik síðustu 10 mín. að minnsta kosti. En annað stigið dugði þeim tii að komast úr fallhættu og gerðu leikmenn sig ánægða með að ná þeirn árangri. ÍA — Breiðablik 3—3 (2—2) á Akranesi 29. ágúst. Mörkin: 3. mín. Guðmundur Þórðar- son UBK, 19. mín. Björn Lárus- son lA, 25. mín. Matthías Hall- grímsson ÍA, 40. mín. Hinrik Þórhallsson, UBK, 50. mín. Stein- þór Steinþórsson UBK, 85. mín. Matthías Hallgrímsson IA. Lið ÍA: Davíð Kristjánsson, Benedikt Valtýsson, Jóhannes Guðjónsson, Hörður Jóhannesson, Þröstur Stefánsson, Jón Gunnlaugsson, Matthías Hallgrímsson, Eyleifur Hafsteinsson, Björn Lárusson, Jón Alfreðsson, Teitur Þórðar- son. Andrés Ólafsson kom inn á í fyrri hálfleik í stað Eyleifs Hafsteinssonar. Lið Breiðabliks: Ólafur Hákonarson, Magnús Steinþórsson, Steinþór Stein- þórsson, Bjarni Bjarnason, Guð- mundur Jónsson, Hreiðar Breið- fjörð, Ólafur Friðriksson, Þór Hreiðarsson, Guðmundur Þórð arson, Einar Þórhallsson, Hinrik Þórhallsson. Helgi Helgason kom inn á und- ir lok síðari hálfleiks i stað Hreiðars Breiðfjörð. Beztu menn ÍA: 1. Jón Alfreðsson, 2. Matthias Hallgrímsson, 3. Hörður Jóhann- esson. Beztu menn Breiðabliks: 1. Guðmundur Jónsson, 2. Steinþór Steinþórsson, 3. Þór Hreiðarsson. Dómari: Guðmundur Haraldsson og dæmdi hann ágætlega. — Hdan. Teitur Þórðarsen lA sést hér í baráttu Ólaf Hákonarson, markvörð UBK. Reykjavíkur- meistaramót AÐALHLUTI meistaramóti Reýkjavíkur í frjálsum íþróttun fer fram um næstu heigi. — J laugardag verður keppt í eftir töldum greinum: Karlar: 200, 80< og 5000 m hlaupi, 400 m grinda hlaupi, hástökki, langstökki kúluvarpi, spjótkasti og 4x100 n boðhlaupi. Konur: 100 m hlaupi hástökki, kúluvarpi, kringlu kasti, 100 m grindahlaupi. Síðar dagur: Karlar: 100, 400 og 1501 m hlaupi, 110 m grindahlaupi stanganstötoki, þrístökki,. kringlu kasti, sleggjukasti. Konur: 200 n hlaupi, langstökki, spj ótkasti o, 4x100 m boðhlaupi. Þátttökutilkynningar skuli berast skriflega á Melavöllinn ti frjálsíþróttadeildar KR eigi síð aa- en nik. miiðvikudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.