Alþýðublaðið - 20.08.1930, Page 3
n AL’ÞÝÐDBLAÐIÐ
3
Bezta Gigarettan í 20 stk. pökknm,
sem kosta 1 krönu, er:
Commander,
^ Wesíminster,
Cigaretfur.
Viroinia,
Fást í öllum verzlunum
I hverjam pakka er gnllfalleg islenssk
mynd, og fær hver sá, er safnað hefir 50
myndam, eina stækkaða mynd.
Er þar mikil víðsýni og fegurð;
fraö er skamt frá Jarlhettum.
Kerlingarfjöll sáu þeir norðan
við Bláfell. Þeir komu heim um
miðjan dag á giánudag.
Efnkasala á útvarpstækjum.
Eftirfarandi hefir FB. verið beðin
að koma á framfæri við blöðin,
almenningl til leiðbeiningar:
Einkasala gekk í gildi 17. þ. m.
Eftir það er öllum nema rikisstjörn-
inni og þeim, sem hún hefir fa'ið
það, óheimilt að flytja inn eða
selja útvarpsviðtæki eða tilheyrandi
hluta þeirra, að viðlagðri þungrí
refsingu. Skipulag einkasölunnar
verður þannig, að ríkið hefir heild-
sölu i Reykjavík og semur siðan
við hæfilega marga menn eða félög
víðsvegar um land um að hafa
á hendi sölu til einstaklinga og
uppsetningu tækjanna. Sölulaun
eru ákveðin hundraðsgjald af út-
söluverði tækjanna, Einkasalan
setur hámarksverð á tækin. Tækin
hækka ekki í verði frá því, sem
verið hefir. Kostað verður kapps
um innflutning að eins góðratækja.
Ágóði, sem verða kann á einka-
sölunni, rennur til útvarpsins og
verður varið til þess að auka og
bæta dagskrá þess.
Sveinn Ingvarsson, Pálmasonar
alþingismanns.erráðinframkvæmda
stjóri einkasölunnar. Eru þeir,
hann og Jónas Þorbergsson út-
varpsstjöri, i ferðalagi um þessar
mundir til þess að semja við út-
sölumenn einkasölunnar.
Með haustinu er fyrirhugað nám-
skeið fyrir þá menn víðsvegar af
Jandinu, sem hafa áhuga á að
kynna sér uppsetningu tækja, gerð
þeirra og viðgerðir. Eru slikar ráð-
stafanir nauðsynlegar til þess að
tækin komin að notum og úrvarpið
verði mönnum ánægjulegt. Um
leið og einkasalan tekur til starfa
verður gefin út ieiðarvisir um tækin,
gerð þeirra, verð og notkun. Verður
hann látinn fylgja hverju tæki.
Útsólustaður í Reykjavik verður
hjá Raftækjaverzlun íslands, Lauga-
vegi b, simi 1126. (FB.)
Þjöðverjar geta ekki
notað Ruhrnámurnar.
Lundúnum (UP). 20. ágúst FB.
Berlín: Þrjú námueigendafélög í
Ruhr hafa sótt um það til verka-
málaráðuneytisins að fá leyfi til
þess, að loka einni námu hvert
1. september vegna þess, hve
dauft er yfix koiaiðnaðínum. —
1500 verkamenn missa atvinnuna,
ef lokunarleyfin fást.
Veðrið.
Kl. 8 í morgun var 10 stiga
hiti i Reykjavík, mestur á Horna-
firði, 14 stig. Útlit hér á Suð-
vesturlandi: Norðan- og norð-
austan-kaldi. Regn öðru hverju.
— Vætusamt um land alt.
Flugferðir yfir Atlantshaf.
Lundúnum (UP). 18. ágúst. FB.
Flugmálaráðtmeytið brezka hefir
látið birta skýrsiu um tilrauna-
flug „R—100“. Segir svo í skýrsl-
unni, að reynslan, sem fékst á
tilraunaflugferðunum, hafi leitt í
Ijós, að tími sé til kominn að
koma á skipulagsbundnum loft-
skipaferðum milli Cardington,
Montreal og New York árið um
kring. Ráðgert er að fara þrjár
'leiðir, eftir árstiðum og veður-
horfum:
1) Norðurleiðina, um Græn-
landsodda (Cape Farewell).
2) Beint um Nýfundnaland til
Kanada.
3) Suðurleiðina, yfir Azoreyj-
ar.
Ráðgert er, til þess að tryggja
það, að þessar fyrirætlanir
heppnist vel, að útbúnar verði
flotstöðvar til lendingar, með
300 sjómílna millibili, á ieiðinni
frá Azoreyjum til New York, og
frá Azoreyjum til Plymouth.
Bifrelðastæð!
og takmöpknm umfepðar
f Reykjavik.
Öllum Reykvíkingum og þeim,
sem koma til Reykjavíkur, er
nauðsynlegt að vera vel heima
í samþyktum um takmörkun bif-
reiðaumferðar í borginni. Það
dregur úr slysahættu. Sérstaklega
er þó bifreiðastjórum nauðsyn-
legt að vita greinilega þar um
og sömuleiðis mn samþykt þá,
er bæjarstjórnin hefir gert um
bifreiðastæði, og hegða sér þar
eftir. Er nú þegar tekið að beita
sektum fyrir brot á regluger^
unum, og bitnar það auðvitað á
þeim, sem ekki kynna sér þær
til hlítar. — Báðar reglugerðíirnar
voru samþyktar á bæjarstjórnar-
fundi 5. júní í sumar, og eru
þær birtar hér til leiö'beiningar:
Sampykt nm takmorknn
nmferðap í Reykjavík.
Samkvæmt 15. gr. lögreglusam-
þyktar fyrir Reykjavík ákveður
bæjarstjóm, að fyrst um sinn
megi bifreiðar standa á þessum
stöðum í borginni:
A. Bifreiðar, skrásettar i
Reykjavik.
I. Leigubifreiðar til mannflutn-
inga.
1. Á Lækjartorgi vestan- og
norðan-vert við miðstéttina.
2. Á Vitatorgi.
3. Á Óðinstorgi.
4. Á Hólatorgi.
Borgarstjóri og lögreglustjóri
ákveða, hve margar bifreiðar
megi vera á hverjum stað, og
skal borgarstjóri veita skriflegt
leyfi fyrir hverju bifreiðastæði
gegn mánaðargjaldi, er greiðist
fyrirfram til bæjargjaldkerans, og
sé goldið 25 krónur á Lækjar-
torgi, en 5 krónur á hinum stöð-
unum. Engri bifreið er heimilt
að hafast við á stæðunum, nema
gjaldið sé áður greitt, og getur
lögreglan ávalt krafist, að kvitt-
un sé sýnd,
II. Einkabifreiðar til mannfiutn-
inga.
a. Föst stœS5.
1. Á Vitatorgi.
2. Á Kirkjutorgi.
3. í Vallarstræti.
4. í Thorvaldsensstræti.
Um þessi stæði gilda sömu
reglur og um stæðin fyrir leigu-,
bifreiðar til mannflutninga, en
mánaðargjaldið skal vera 2 krón-
ur fyrir hvert stæði.
b. Stœdi um stimdarsakir.
1. Á miðstéttinni milli Geirsgötu
og Kalkofnsvegar.
2. Á Káratorgi.
3. Vestanvert við Skólavörðustíg,
milli Baldursgötu og Njarðar-
götu.
4. Á Lækjargötu við Búnaðarfé-
lagshúsið.
5. Sunnanvert við Túngötu, 8
metra frá Suðurgötu að fyrstu
bugðu á gangstétíinni við hús-
ið nr. 2 við Suðurgötu, 2
stæði.
6. Á Ljósvallagötu meðfram
kirkjugarðinmn.
7. Á Blómvallagötu fyrir norðan
Sólvallagötu.
8. Vestanvert á Ingólfsstræti
norðan Hverfisgötu að Sölv-
hólsgötu.
9. Á Lækjartorgi við stéttina
með fram bankahúsinu, 2
stæði.
10. 1 Templarasundi með fram Al-
þingishússgarðinum.
Á þessum stöðum mega einka-
bifreiðar standa um stundarsakir,
þó aldrei lengur en 3 klukku-
stundir í senn. Þær skulu raða
sér niður eftir tilvísun lögregl-
unnar og mega aldrei vera fleiri
i senn á hverjum stað en til-
tekið er í samþykt þessari eða
auglýst á staðnum.
III. Bifreiðar til vöraflutninga.
1. Á svæði fyrir austan Bar-
ónsstíg, suður af sundhöll-
inni.
2. Á svæði sunnanvert við
Bræðraborgarstíg fyrir vestan
vestasta húsið við stíginn.
3. Á svæði sunnanvert við Fram-
nesveg fyrir vestan Birtinga-
holt.
Um þessi stæði gilda sömu
reglur og um stæðin, sem talin
eru undir liðnum A, II., b.
B. Bífreiðar skrásettar utan-
bæjar.
Einkabifreiðar til mannflutn-
inga mega standa á stæðum þeim,
ér í A, II., b segir, svo og á
Hlemmi milli Hverfisgötu og
Laugavegar. Þar að eins mega
og standa leigu-mannflutningabif-
reiðar og vöruflutningabifreiðar,
enda raði þær sér eftir fyrir-
sögn lögreglunnar.
Samþykt nm fakmöpknn
nmEerðap 8 Reykjavik.
Samkvæmt 30. gr. lögreglu-
samþyktar fyrir Reykjavík setur
bæjarstjórnin fyrst um sinn þess-
ar reglur:
1. Um Hverfisgötu má að eins
aka i austurátt og um Lauga-
veg að eins í vesturátt frá
gatnamótunum við Hverfis-
götu.
2. Um götuna frá Austurstræti
yfir Lækjartorg með fram
bankahúsinu mega eingöngu
aka þær bifreiðar, sem stæði
hafa á Lækjartorgi eða erindi
eiga að húsum við götuna og
að eins í áttina frá Austur-
stræti.
3. Um Vallarstræti má að eins
aka í áttina frá Pósthússtræti
og um Thorvaldsensstræti að>
eins i áttina frá Vallarstræti.
4. Um Tjarnargötu, milli Kirkju-
strætis og Vonarstrætis, má aðl
eins aka í áttina frá Kirkju-
stræti.
5. Um SpítaLastíg milli Þingholts-
strætis og Ingólfsstrætis má
að eins aka í áttina frá Þing-
holtsstræti.
6. Um Naustin milli Tryggva-
götu og Geirsgötu má að eins