Morgunblaðið - 07.12.1972, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1972
/77 itiin.i ii.i \
'AJLUm
22-0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
14444 -S125555
BÍLALEiGA
CAR RENTAL
STAKSTEINAR_________________
Hérna er
plaggið strákar
Valkostanefndin skiIaAi
lokaskýrslum sínum uiti
ástand efnahagsmála á ís-
landi til ríkisstjórnarinnar á
mánudagsmorgun. Var skýrsl
unni dreift meðal ráðherra og
sérfraeðingarnir voru einnig
með sitt eintak. Aðrir fengu
ekki eintak af skýrslnnni og
var skýrt tekið fram, að hér
væri tim algjört trúnaðarmál
að ræða.
Nokkruni klukkustundum eft
ir að þetta gerðist, er svo hald
inn fundur í kjörbréfanefnd
Alþingis til að kanna kjör-
bréf varaþingmanna. Kom
Ragnar Arnalds á fundinn
með skýrsluna, fleygði henni
á borðið og sagði: „Hérna er
plaggið strákar, hvernig lýst
ykkur á?“
Geti menn sér nú til, hver
hafi afhent honum eintak af
skýrslunni og sýnt þannig
skoðun sína á því, hvernig
meðhöndla eigi trúnaðarmál.
Misjafn tími
I»eir eru nú orðnir margir
mánuðirnir síðan hin marg-
fræga nefnd var sett til þess
að skrifa tipp það, sem nýti-
legt er eftir í búi núverandi
ríkisstjórnar. Að svo stöddu
er ekki vitað, hver árangur
nefndarinnar er, — né til
hvaða ráða eigi að grípa. En
auðséð er á öllu, að „ekki er
allt með felldu í ríki Dana“.
í þessu sambandi er rétt að
minna á, að það tók núver-
andi ríkisstjórn ekki nema
mánuð að kynna sér ástand
efnahagsmálanna, þegar hún
tók við.
Eftir þá könnun var þvl
lýst yfir, að þjóðarbúið þyldl
umfangsiniklar kauphækkan-
ir, — ríkissjóður gæti staðið
undir stóraukniim útgjöidum.
Þannig var ástandið þá, —
slík var óreiðan þá — að nú-
verandi rikisstjórn gat nieira
að segja hjálparlaust áttað
sig á stöðunni.
En lýsir það nú góöri stjórn
efnahagsmála, að þurfa að
kalla til sérstaka nefnd ári
eftir að stjórnin er mynduð,
til þess eins að fá einhvern
botn í fjármálin? Ætli skatt-
rannsóknarstjóra þætti mikið
til koma, ef hann fengi til
meðferðar íyrirtæki, þar sem
tæki her manns vikur og aft-
ur vikur að fá einhverjar upp
lýsingar úr bókhaldinu, — og
það aðeins ári eftir að nýr
bókhaldari var tekinn við?
Hinn mísjafni tími, sem fer
i að kanna stöðu þjóðarbús-
ins, — annars vegar sumar-
mánuðinn 1971 og hins vegar
ársf jórðunginn 1972 talar
skýru máli. Er nema von, að
það veslings fólk, sem glapt-
ist á að styðja þessa ríkis-
stjórn til valda, spyrji: Hvar
er nú heildarsýnin yfir efna-
hagsmál þjóðarinnar?
Andinn
í glasinu
í Tímanum sl. þriðjidag
birtist eftirfarandi frétt:
„Fyrir skömmu var haldinn
fundur að Flúðum í Hruna-
mannahreppi, að tilhlutan
framsóknarfélaganna i ' Ár-
nessýslu. Umræðuefnið var:
Eignarréttur- lands og lands-
gæði. Braga Sigurjónssyni
var boðið á fundinn, þar sem
hann er fUitningsmaður að
þingsályktunartillögu þeirri,
sem. nú liggur fyrir Alþingi
uni eignarrétt ríkisins i
landi. Hafði hann framsögu á
fundinum ásamt Ölver Karls-
syni i Þjórsártúni.
í upphafi dáðu menn kjark
Braga, að þora að mæta á
fund þennan, en svo fór að
kjarkurinn bilaði undir
ræðu þriðja ræðumanns, og
hljópst hann á brott, enda
var þá búið að lesa nokkuð
yfir honum, þó að sumir fund
armenn teldu að mest af
skömnt'iniim væri eftir.
Eftir þetta voru þó haldnar
10 ræður. Menn sltippu þó við
að deila innbyrðis, því að ein-
hver Wiílti vatnsglasi upp i
sæti Braga og töiuðu menn
við það, það sem eftir var
kvö!ds.“
TS 21190 21188
FERBABÍLAR HF.
Bílaleiga — sími 81260.
Tveggja marma Jdroen fWehari.
Fimm manna Citroen G S.
8—22 rnanna Mercedes-Benz
hópferðabílar (m. bílstjórum).
HÓFFERÐIR
Til leigu í lengri og skemmrí
ferðii 8—34 farþega bílar.
Kjartan Ingimarsson,
sími 32716.
komnir aftur
HÚSGAGNAVERZLUN
Árna Jónssonar
Simi 16463.
spurt og svarad
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Hringið í sima 10100 k!.
10—11 frá mánudegi til
föstudags og biCjið um
Lesendaþjónustu Mnrg-
unblaðsins.
TÓNIJST OG ÚTVAItP
Samúel Jón Samúelsson,
Birkimei lt A, spyr:
Þurfa söngvarar að vinna
hjá Ríkisútvarpinu til þess að
hlustendur fái að njóta
þeirra. Ef ekki, hvers vegna
eru þá aldrei spilaðar gaml-
ar upptckur með Katli Jens-
syni?
Þorsteinn Hannesson hjá
tónlistardeild útvarpsins,
svarar:
Það breytir engu um það
hvort menn heyrast í útvarp
inu eða ekki, hvort þeir
vinna hjá Fiskmatinu eða Rík
isútvarpinu. Það eru til
nokkrar upptökur og plötur
með Katli og hafi þær ekki
heyrzt í útvarpinu er það al-
ger tilviljun.
ELDVARNIR
Bergþóra Jóhannsdóttir,
Þingholtsstræti 7 spyr:
1 Reykjavík er starfrækt
eldvamareftirlit, sem .hefur
eftirlit með skólahúsum og
stórum húsum. Ég bý í einu
þéttbýlasta timburhúsahverfi
borgarinnar og spyr því: Er
ekki æskilegt að eftir-
litsmenn heimsæki okkur,
geri sínar athuganir, og gefi
okkur góð ráð. Ég hef enga
slíka heimsókn fengið þau 10
ár, sem ég hef búið hér, en
yrði þakklát fyrir að fá hana.
Gunnar Ölafsson, forstöðu
maður eldvarnaeftirlits
Reykjavíkiirborgar svarar:
Það tr rétt að við höfum
ekki skipulegt eftirlit með
öllum íbúðarhúsum. Mjög
stór timburhús eru þó yfir-
farin reglulega. Önnur ibúð-
arhús eru skoðuð aðeins eft-
ir beiðni íbúanna. Það er allt
af töluvert um slikar beiðn-
ir og við erum fúsir að verða
fólki að liði í þessum efnum.
Eldvarnaeftirlitið er til húsa
í Slökkvistöðinni og síminn
er 22040
KARTÖFLUR
Valgerður Bára spyr:
Er engin lágrmarksstærð á
1. fl. k&rtöflum?
E.B. Malmquist, yfirmats
maður garðávaxta svarar:
Lágmarksstærð á 1. fl.
kartöflum skal vera 33—40
millimetrar í þvermál. Matið
fer fram er varan er keypt
frá framleiðandanum, en
kartöflur rýrna við geymslu
og dreifingu og því er ekki
öruggt að ekki finnist
kartöflur i 1. fl. sem eru und
ir áðurgreindu máli, en frá-
vikið má ekki vera yfir 2%.
1 l.fi eru nær ein-
göngu rauðar ísl. kairtöflur,
gulfeuga og kartöfluafbrigð-
ið Helga.
Á markaði hér eru að iang
mestu leyti 2. fl. kartöflur.
Stærðin á þeim skal vera
30—40 millimetrar í þvermál.
Þar eru því ívið minni kart-
öflur en í 1. fl. og tegundir
sem að öðru leyti flokkast
ekki í 1. flokk við móttöku
frá framleiðandanum. Rýrn-
un gett.'r einnig orðið þar sem
í. 1. fl. en er einnig miðuð
við 2%
MATUR EKLENDIS FRÁ
Valgei-ður Bára spyr:
Megum við fá til íslands
matarpakka erlendis frá á
sama hátt og við getum sent
ísl. mat út um allan heim? Ef
ekki, hvaða lög ráða slíku?
Gunnlaugur Briem, ráðu-
neytisstjóri landbúnaðar-
ráðuneytisins svarar:
Lög nr. 11 frá 1928 um
vamir gegn gin- og klaufa-
veiki banna innflutning á
ýmsum matartegundum, enda
hafa íslendingar dýrkeypta
reynslu af slíku. Það er t.d.
bannaður innflutningur á
heyi, hálmi, alidýraáburði,
hráum og litt söltuðum slát-
urafurðum, ósoðinni mjólk og
fleiru. Hráar kjötvörur
eru þess vegna teknar af
ferðamcnnum eða stöðvaðar
berist þær til landsins á ann
an hátt. Niðursoðinn mat eða
reyktar má hins vegar fá til
landsins.
STRÆTISVAGNAR
Eiríka Friðriksdóttir, Ljós
heimuni 22 spyr:
Strætisvagnar Reykjavik
ur hafa starfsmenn á Lækj-
artorgi, sem flýta fyrir af-
greiðslu og auðvelda fólki
inngöngu í vagnana með því
að selja inn um afturdyrnar.
Er ekki hægt að fá slxka
starfsimenn á Hiemmtorg
líka?
Gunnl.jöm Gunnarsson,
innferðareftirlitsmaðiir SVB
svarar:
Vissulega er það hægt, en
vandinn er aðeins sá að á
Hlemmtorgi fara svo marg-
ir úr vcgnunum að aftari til
að ná í aðra vagna t.d. Breið-
holts- og Árbæ j arvagn-
ana, að afturdyrnar eru Iengi
tepptar Reynslan hjá okkur
er þvi sú að oftast stenzt það
á endum, að fólk er farið úr
vögnunum að aftan og þær
þá lausar tii umgangs, og
vagnstjórinn sjálfur hefur af
greitt það fólk inn um fram-
dymar sem bætist í vagninn
á Hlemmtorgi.
BÍLACARÐUR
OPIÐ í KVOLD.
Innisýningarsalur BÍLAGARÐS opinn í kvöld til kl. 10,
verður framvegis opinn á fimmtudagskvöldum.
Bílar fyrir 3—10 ára fasteignatryggð veðskuldabréf.
Bílar fyrir mánaðargreiðslur eingöngu. Hvergi betrí
kjör,— Lítið inn það borgar sig.
BÍLAGARÐUR stendur á horni Lækjargötu og Kefla-
víkurvegar í Hafnarfirði, gegnt aðkeyrslunni að Sól-
vangi.
BÍLAGARÐUR
Simar: 53188 og 53189.
ión Rúnar Oddgeirsson.
Kjötiðnaðarmenn
Mötneyti og kjötverzlanir.
Hjá okkur fáið þið kjötnet og rör fyrir úrbeinað kjöt
og rúllupylsur.
Sparið vinnu og tima.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
SIGURÐUR HANNESSON & CO. HF.,
Ármúla 5 II. hæð — Sími 85513.