Morgunblaðið - 07.12.1972, Side 15
MORGimBLAÐlÐ, FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1972
Marsibil Magnús-
dóttir — Áttræð
TIMEX
ÚRIN
heimsþekktu eru komin. Tilvalin jólagjöf.
Veljið eftir myndunum. Hringið eða bréf-
sendið númer úrsins og við sendum yður
það um hæl gegn póstkröfu.
__ _ úrin eru seld með 6 mánaða ábyrgð. Örtú-
TIMEX *e^a kaup. Höfum einnig allar gerðir
svissneskra úra.
ÖRA OG SKARTGRIPAVERZL. MAGNÖSAR GUÐLAUGSSONAR,
ÖR-VAL, Strandgötu 19, Hafnarfirði, sími 50590.
Eyðið ekki jólunum í að leita að ónýtum
perum.
Osram jólaseríur endast og endast, ár eftir
ár.
Ef ein peran bilar slökknar ekki á hinum
kertunum.
Osram úti- og inniseríur með kúlum eða
kertum.
OSRAM
yegna gæðanna
Laugavegi 76
Hverfisgötu 26
Simi 1-54-25
Amerískar
KULDA
úlpur
\ Sendum
í póst-
kröfu.
STÆRÐIR: BARNA 6-12
UNGLINGA 14-20
FULLORÐINNA 36-46
1 dag er áttræð orðin Marsibil
á Eyri. Vil ég af því tiiefni
senda henni nokkrar línur með
þökk fyrir þau stuttu en ágætu
kynni, er ég hef af henni haft.
Marsibil er ávallt ánægjulegt að
heimsækja og spjalla við hana
um iiðna tima ög atburði, því
minni hennar er trútt og hún
kann frá mörgu að segja.
Líf hennar hefur verið at-
burðaríkt í ýmsum skilningi og
hinn harði skóli hefur krafizt af
henni dugnaðar og þrautseigju
I ríkum mæli og hefur hún ýmsu
kynnzt, bæði góðu og misjöfnu
af samferðamönnum sínum. En á
þessum hólmi brást hún heldur
ekki, því í vöggugjöf hefur hún
hlotið marga góða kosti er létt
hafa henni gönguna. Hún er
fædd á Látruim og ólst upp hjá
Jóni Sigurðssyni, er þar bjó.
Hann var ljósi hennar og fóstri.
Minnist hún jafnan hans
og konu hans með miklum hlý-
hug. Faðir hennar var Þórðar-
son, en móðirin Elín var Jens-
dóttir og var sá Jens bróðir
Þuríðar í Ögri. Var sú kona og
það ættfólk hið mikilhæfasta og
veí efnum búið. Sjállf reiddi
Marsibil aldrei gildan sjóð sér
við hlið. Snemma tók hún að
vinna fyrir sér í kaupavinnu og
með því er til féll, en ekki að-
eins fyrir sjálfri sér því
hún tók til fósturs dótturson
fóstra sins, Halldór og ólst hann
upp hjá henni. Er ekki að efa
að það hiutverk hefur hún
nækt af mdkilli kostgæf'ni og ást-
úð. Hefur það á hinn bóginn ver
ið henni mikill gleðigjafi að
hafa drenginn til að hugsa um
og annast.
Víðreist gerði hún ekki
um dagana og allan sinn búskap
hefur hún búið í Mjóafirði. Fyrst
bjó hún á Kleifarkoti ásamt
bróður sínum Elíasi og voru þau
búendur þar í um 20 ár. Eftir
þau hefur ekki verið búið þar.
Siðan tekur við búskapur
í Botni I eitt ár, en þá á Eyri
íram á síðustu tíma að fóstur-
sonur hennar, Halldór og kona
hans hafa tekið við búsforráð-
um. Veit ég að þar kann Marsi-
bil vel við sig og er yngsta kyn
slóðin á heimilinu henni til mik-
illar ánægju og lætur hún sér
annt um börn hjónanna.
Nú á tímum hraða og breyt-
inga vill margt brenglast í hug-
myndalegurr efnum hjá mörgum.
En afmæiisbarnið á Eyri er
geymið á fornar dyggðir og þau
gömlu gildi er í hávegum voru
höfð á hennar uppvaxtarárum.
Heillyndi sitt hefur hún varð-
veitt til þessa og er söm við sig
í háttum sínum þótt aðstæður all
ar hafi til hiins betra breytzt.
Ég óska henni aUs hins bezta
á ókoimnum árum og vænti þess
að hún megi ianga stund enn
halda hreysti sinni og gleði.
Sr. Baidur Vilhelmsson,
Vatnsfirði.
Tilboð óskast
í Volkswagen 1300! I árg. 1970 í því ástandi sem
hann nú er í eftir árekstur.
Bifreiðin er til sýnis hjá bifreiðaverkstæðinu Armi,
Skeifunni 5.
Tilboðum sé skilað til Tjónadeildar vorar fyrir kl. 17
föstudaginn 8. desember nk.
HAGTRYGGING H/F.
Bændur athugiö
Við viljum vinsamlega minna ykkur á, að þann 31.
desember n.k. rennur ut fresturinn, sem veittur var
til umsóknar um stofnlán til búvélakaupa.
Félag búvélainnflytjenda.
Vinnufatabúiin
Gleðilegri jól
með
QSRAM
jólalýsingu