Morgunblaðið - 07.12.1972, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1972
Fiskiskip til sölu
250 lesta skip i mjög góðu standi, 100 lesta stálskip, nýr 50
lesta stálbátur. einnig 90, 87, 67, 60, 55, 51, 49, 29, 20, 11
lesta eikarbátar.
FISKISKIP, Austurstræti 14 3ja hæð,
Sími 22475, kvöld og helgidagasími 13742.
Nauöungaruppboð
Eftir kröfu Hafsteins Sigurðssonar hrl., dr. Hafþórs Guðmunds-
sonar hdl., bæjarsjóðs Kópavogs og skattheimtu ríkisins í
Kópavogi verða eftirgreindir lausafjármunir seldir á nauðungar-
uppboði, sem hefst á skrifstofu minni að Álfhólsvegi 7, mið-
vikudaginn 13. des. 1972 kl. 16.00, en sem síðan verður haldið
áfram þar sem 3 síðastgreindir munir eru geymdir: 5 sjón-
varpstæki, útvarpstæki. útvarpsfónn, 3 sófasett, 1 borðstofu-
sett, 5 isskápar, 2 málverk eftir Kára Eiríksson, svefnsófi,
skrifborð, skatthol, uppþvottavél, sófaborð. Einnig burstagerðar-
vél að Auðbrekku 32, bifreiðalyfta að Borgarholtsbraut 69 og
Aeraton áfyllingarsamstæða að Auðbrekku 51.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetmn i Kópavogi. ,
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík fer fram nauðungaruppboð
í vörugeymslu Eimskipafélags fslands h.f. í Skúlaskála við
Skúlagötu, inngangur frá Vatnsstíg, laugardaginn 9. desember
1972 kl. 13.30. Verða þar seldar ótollafgreiddar v«ur, svo sem
undirburður (kítti), þéttiefni, gólfdúkur, þakpappi, gler, plast-
ristar, vélá- og bífreiðavarahlutir, bilalökk, fyllir, hjólbarðar,
kven- og bamaskófatnaður, kven- barna- og karlmannafatnaður,
leikföng, jólaskraut, allsk. matvara, svo sem súpuefni, ávaxta-
safi, aldinsulta o. fl., þvottaefni,, stálull, plastvörur, borðbún-
aður, sjónvörp, eldavélar, húsgögn, litabækur, gerviblóm og
1 margt fleira.
Ennfremur verður selt á sama stað og tíma, eftir kröfu
ýnisra lögmanna. stofnana, skiptaréttar Reykjavíkur o. fl„ kæli-
skápar, þvottavélar, sjónvarpstæki, skrifstofuvélar, skrifborð,
útvarp, radíófónn, plötuspilarar, borðstofu- og dagstofuhúsgögn,
rafsuðuvél, rafmagnsorgel, bækur, málverk, búðarkassi, hansa-
hillur, teppisstrangi og margt fleira.
Greiðsl við hamarshögg.
Avísanir ekki teknar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Hákon Bjarnason:
Dánargjöf Péturs Jóns-
sonar Hafþórsstöðum
til Landgræðslusjóðs
1 fyrra haust fékk ég boð frá
Pétri Jónssyni, þá að Jaðri við
Sundlaugaveg, að hitta hann að
máli. Hafði ég engar spurn
ir haft af honum áður, en í dyr-
unum mætti ég hávöxnum tein-
réttum öldruðum manni, skarp-
leitum og einörðum á svip. Bauð
hann af sér góðan þokka. Leiddi
hann mig til lítillar stofu, þar
sem við tókum tal saman.
Pétur kvaðst fæddur að Haf-
þórsstöðum í Borgarfirði og væri
orðinn 86 ára Sagði hann heilsu
sinni hraka og taldi sig ekki
eiga eftir marga hérvistardaga.
Hins vegai ætti hann dálítið til
af peningum, og með því að
hann átti enga lífserfingja taldi
hann rétt, að gróður landsins
mætti njóta þeirra. Gæti hann
þá greitt að nokkru það, seim
kindur hans hefðu eytt á fyrri
árum.
Pétur Jónsson fæddist á Haf-
þórsstöðum 18. maí, 1885, son-
ur hjónanna Jóns Loftssonar og
Guðrúnar Pétursdóttur. Jón
Loftsson er fæddur 1849 og deyr
1904. Foreldrar hans bjuggu í
Miðdal í Kjós. Móðir Péturs var
Guðrún Pétursdóltir, fædd 1855
en deyr 1894, þegar Pétur var að-
eins níu ára að aldri. Faðir G>uð-
rúnar var Pétur Eggertsson, sem
var dóttursonur Magnúsar Ket-
ilssonar, sýslumanns I Dölum, en
Magnús var einn mikilhæfasti
maður sinriar samtíðar og meðal
annars einn fyrsti skógræktar-
maður á íslandi, sem hafði árang
ur sem erfiði um nokkur ár.
Pétur Jónsson var lausamað-
ur alla sína ævi, og var hann
fyrst í ýmsum vistum í Borgar-
firði en síðar í Reykjavík. Ung-
ur að árum fór hann til séra
Gísla Einarssonar í Stafholt og
var þar um skeið. Sverrir, sonur
séra Gísla vair jafnald-ri Péturs
og mun haía tekizt með þedm
vinátta, því að um 1920
flyzt Pétur að Hvaimimd í Norð-
urárdal, þar sem Sverrir bjó um
fjölda ára og taldi hann síðan
Hvamm sem lögheimili sitt með-
an hann var í sveit. En á þeim
árum var hann I vistum
um skeið á öðrum bæjum,
Brekku og Hvassafelli og ef til
vill viðar, þótt mér sé það ekki
kunnugt. Átti hann oft nokkuð
af kindurr, aUt upp í 100, þeg-
ar bezt lét, og búnaðist vel. Var
FRÁ JFJL UCF'JÉJLÆCMJVU
Rœsting
FlugféJag íslands óskar eftir að ráða konu til
starfa við ræstingu flugvéla á Reykjavíkurflug-
velli. Vaktavinna.
Upplýsingar gefur Sverrir Jónsson stöðvarstjóri
Reykjavíkurflugvelli.
Pétur Jónsson.
hann ýmist í vinnumennsku eða
stundaði sumarvinnu við sima-
og vegalagningar. Um 1940 fer
Pétur til Reykjavíkur og bjó
hér alla tíð síðan hjá Guðjóni
Jónssyni, hálfbróður sínum og
fjölskyldu hans að Jaðri við
Sundlaugaveg. Vann hann fyrst
við símalagningar en síðar við
ýmis störf hjá Guðmundi
Guðmundssyni í húsgagmaverk-
stæði hans í Víði meðam heilsa
og kraftar leyfðu. Þótti hann
hvairvetna dyggur og góður stau'f.s
maður.
Pétur Jónsson var góðum gáf
um gæddur, hafði lesið sér margt
til og hafði ákveðnar skoðanir á
lajndsmálum. Þar varð ekki um
þokað, en annars var hann frjáls
lyndur og víðsýnn fríhyggjumað
ur, sem fór sínar eigin leiðir en
fylgdi ekki förum annarra, ef
það braut i' bága við heilbrigða
skynsemi.
Pétur lét eftir sig rösk-
ar 800.000 krónur, sem stjórn
Landgræðslusjóðs mun ávaxta
á þann hátt, sem hún telur að
bezt geymi minningu hins dygga
þjóns og samvizkusama verka-
manns.
5
S íærsta og útbreiddasta dagbiaöið
í Jezta augiýsingablaöið
Áttþúhlutí
banka?
SAMVINNUBANKINN
BANKASTRÆTI 7, RVÍK. SÍMI: 20700
Samvinnubankinn hefur ákveðið;
að auka hlutafé bankans úr tæpum 16 millj. króna
í allt að 100 milljónir,
að bjóða öllum samvinnumönnum að gerast hluthafar,
að gefa þér þannig kost á að gerast virkur
þátttakandi í starfsemi bankaná.'
Hlutafjárútboðið er hafið á.10 ára afmæli bankans.
Hlutabréfin eru að nafnverði 5 þús., 10 þús.
og 100 þús. krónur. Helmingur greiðist við áskrift, en
afgangurinn innan árs.
Upplýsingar og áskriftalistar í aðalbankanum,
útibúum hans og í kaupfélögunum um land allt.
Hér er tækifæri til að eignast hlut í banka. -
Vilt þú vera með?