Morgunblaðið - 03.01.1973, Síða 4

Morgunblaðið - 03.01.1973, Síða 4
4 MORGUNBLAPIÐ, MIDVIKUDAGUR 3. JANtJAR 1973 mjl BiLA rr:if. i v MJALURr ® 22*0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 BÍIALEIGA CAR RENTAL TS 21190 21188 14444 S25555 SKODA EYÐIR MINNA. Shooh LEIGAN AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. VALE kraft- taliur lyfta grettis- taki VALD POULSEN HF verzlun Suðurlandsbraut 10 simi 38520 Ekki sami maður Ræða forsætisráðherra Ólafs Jóhannessonar tU þjóð- arinnar var athyglisverð fyr- ir margra hluta sakir. Ekki var hægt að sjá, að þar væri sami maðurinn og sá, sem sat í öndvegi, er málefna- samningurinn alkunni var saminn. Þau hástemmdu lof- orð, sem prýddu sáttmálann þann, voru ekki endurtekin í þessu áramótaávarpi forsæt- isráðherrans og ljóst var, að hann taldi þau bezt geymd i hirzlum fortíðar og gleymsku. Ekki eyddi forsætisráðherra tima sínum i að ræða ein- hverjar fyrirhugaðar efna- hagsráðstafanir að öðru leyti en því, að hann taidi fótki fyrir beztu að gera sem min..star kröfur til annarra en sjálfra sín. Fólk ætti að una glatt við sitt og þakka það sem úr hnefa væri skammtað á hverjum tíma. Aldrei heyrðust slík hljóð úr því horni sem Ölafur Jó- hannesson sat í þau tólf ár, sem hann var einn af forystu mönnum stjórnarandstöðu. íslendingar eru litil þjóð, sem býr við erfiðar aðstæð- ur. í»eir hafa ætíð þurft að gera kröfur til sjálfra sín. Þegar stórfelldur aflabrestur varð 1967 og 1968 og gífur- legar verðlækkanir urðu á útflutningsvörimiim var þjóð inni skýrt iimbúðalaust frá því. Menn gen— þá samtaka undir J>ær byrðar, sem þessu ástandi fylgdu, enda hafði allur almenningur fuHan skilning á, hvað var að ger- ast. Tilraunir Ólafs Jóhannes- sonar og þeirra, sem nú sitia í rikisstjórn, til að sá óá- nægju þá í því skyni að rjúfa eininguna mistókust. Núverandi valdhafar töldu það smámál að retta þjóðar- skútuna af eftir þá slagsíðu, sem varð af völdum erfiðleika áranna. Nú hins vegar virðist skútan ætla að sökkva við fyrsta kul, ef marka má þeirra eigin orð. En þeir erf- iðleikar, sem nú blasa við, eru því miður ekki vegna utanaðkomandi áhrifa. Það er ríkisstjórnin sjálf, sem skapar erfiðleikana. Það er þvl kaidhæðnislegt, að höfuð- ræninginn sjátfur skuli nú reyna að telja þjóðinni holl- ast að taka því með þögn og þolinmæði, að hann og hinir ráðherrarnir skerði nú mest kjör þeirra, sem þeir iofuðu svo hátíðlega að bæta fyrir einu og hálfu misseri. Vantraust á ríkisstjórnina Sjálfstæðismenn hafa borið fram vantraust á ríkisstjórn- ina, sem brátt kemur til um- ræðu. Það vantraust er vissu Iega ekki of fljótt fram kom- ið. Hins vegar er rétt að benda á, að viss kostur fylg- ir hverjum þeim degi, sem vinstri stjórnin situr lengur. Óreiðustjórn hennar og ótelj- andi misstig er eins og bóiu- efni, sem þjóðinni er gefið í dropa,tali. JLiður nú fljótlega að því að bóluefnið sem þjóð- in hefiír féngið sé orðið svo mikið og virkt, að hún mun ekki fá á sig vinstristjórn næstu árin og áratugina, rétt eins og bólusettiir maður þarf ekki að óttast kúaböl- una. Vinstri stjórnin fyrri þurfti ekki nema rúm tvö ár til að gera þjóðina ónæma næstu tólf ár á eftir. Ekki verður betnr séð, en vinstri stjómin síðari sé endurbætt- ur og að líkindtiin mun virk- ari ónæmisgjafi en sú fyrri var, og þótti hún þó góð. spurt og svarað Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstndags og biðjið um Eesendaþjónustu Morg- unblaðsins. BfLASTÆÐI A EINKALÓÐUM Viggó Jónsson í Freyju spyr: 1. Hvaða ráðum geta lóða eigendur beitt, sem nots eigin lóðir fyrir bílastæði, sem merktar eru ákveðnum bílum, þegar óviðkomandi bílaeig- endur leggja bílum sinum í þessi stæði? Að flytja bílinn burt á kostnað bíleigandans skoða ég ekki sem svar, ef bærist, því sú þjónusta er svo seinvirk, að viðkömandi bif- reið hefur alla jafna verið fjarlægð er kranabifreið kem ur á staðinn, og þá lendir kostnaðurinn á lóðareiganda. 2. Hvar stendur lóðareig- andi réttarfarslega, ef hann límir sðvörunarmiða á fram- rúðu bifreiðarinnar, sem í óleyfi stendur, sérstaklega ef erfitt reynist að ná honum af strax, en hann velctur þó ekki tjóni á framrúðunni? 3. Hvernig stendur á þvi að Umferðarnefnd — í nafni borgarinnar — -— leigir bíla- stæði af lóðaeigendum fyrir ákveðið gj&ki fyrir hverja bifreið, sem taiin er rúmast þar, en síðan kemur lögregl- an og klippir númer af bif- reiðum þar í unnvörpum, og btlarnir síðan látnir þar af- skiptalausir svo mánuðum, og jafnvel árum skiptir? Af hverju fylgist lögreglan ekki með þessum bílum eftir „klippinguna"? Sem dæmi má nefna bílastæði á lóðun- um Lindargötu 15—17. Þar standa nú sex bilar númers- lausir eftir „klippingu", einn þeirra síðan í ágúst eða sept ember 1971, en hinir fimim síð an í „klippingunni" miki'u í haust. Þessir bílar taka upp Vs hluta allrar lóðarinnar, sem leigð er fyrir bilastæði. Hvers vegna eru þessir bílar ekki fjarlægðir og þá á kostn að eigenda? Guttormur Þormar fulltrúi hjá gatnamálastjóra í Rvík svarar: 1. Þarna er hreyft við máli, sem er mjög erfítt viðfengs, bæði fyrir lóðareigendur og opinbera aðila. Öruggasta ráðið til að koma í veg fyrir, að óviðkomandi leggi bifreið- um á merkt bifreiðastæði á einkalóðum, mun vera að loka stæðinu með hliði eða keðju. 2. Ég treysti mér ekSci til að gefe svar við þessari spum- ingu. Það mun vera dómstól- anna að skera úr hver réttur lóðareigenda er og hefi ég fregnað, að eitt slikt mál sé nú í uppsiglingu. 3. Hér er komið inn á mik- ið og vaxandi vandamál. Lög reglunni ber skv. lagaboði að tate númer af bifreiðwm, sem ekki hafa verið færðar til lög boðinnar skoðunar, og er þá sama hvar bifreiðin er stödd. Uigreglan reynir síðan að hafa upp á eiganda hifreiðar innar og fer fram á, að hún sé fjarlægð, standi hún á op- inberu bifreiðastæði. Ef eig- andi sinnir þessu ekki og hirðir ekki um bifreið sína, er leitað til fyrirtækis, sem sér um flutning og geymslu á slíkum bifreiðum. Aðeins eitt fyrirtæki sér um þessa þjón- ustu hér í borginni, en að- staða þess hefur alls ekki ver ið nógu góð fram að þessu. Hefur fyrirtækið varla getað sinnt öðrum bifreiðum en þeim, sem laskazt hafa í ákeyrslum, en hefur nú feng- ið stærri og betri lóð til af- nota. Vel má vera, að Reykja víkurborg þyrfti sjálf að koma sér upp aðstöðu til flutnings og geymslu á þess- um bifreiðuim, því vanda- málið er mikið eins og Viggó Jónsson bendir á. 107 nemendur — í Húsmæðraskóla Akureyrar FYRRA námstímabili í Hús- mæðraskóla Akureyrar lauk 15. desemiber. síð&stliðirm, en 107 nanendur stunduðu náan á mis- m'unandi löngum námskeiðum við skólann frá 2ja vikna til 2ja máinaða. Aðsókn að námskeið- unum var mjög góð og komust færri að en vildu. Seinna nám- skfiiðafcímiabil hefst 8. janúar. Hefst þá 5 mánaða hússtjómar- dsild, þar seim kennd er mat- reiðsla, hibýla'U'mgen’gni, ís- lenzka, samfélagsfræði, næring- arefnafræði, uppeldisfræði, heilsufræði, híbilafræði og fleira. Þau námskeið, sena ha’din voru og lauk í de.somber voru ráðskoniunámskeið, niámskeið í fatasaium, myndvefnaði, vefn- aði, listiðnaði og 2ja már.aða námskeið fyrir miatsveina á fiski- og flutningaiskipuni. Nemendur iuku niámsikeiðireu með prófi og hiaut Sævar Frí- marensson hassbu einkunn i fyrsta hiuta, ágætisieinkunn, 9,2 og Ása Leósdóttir i öðeum hluta, ágætisein'kunn 9,0. Þátttakendur í matsveinanámskeiði og kennari þeirra Margrét K ristinsdóttir. Tvo nemendur vant ar á myndina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.