Alþýðublaðið - 09.09.1930, Síða 2
ALÞ7ÐUBLAÐIÐ
að geta átt heima sem næst
vinnustöðvTjnum, aðallega höfn-
inni. En við höfnina sjálfa er
engar lóðir hægt að fá til íbúð-
arhúsabygginga. Við rituðum því
bæjarstjórni og báðum um Land á
Melunum, milli Hringbrautar og
Grimsstaðaholts. Höfum við far-
ið með fasteignanefnd og athugað
þenna stað og aðra fleiri vestan
við aðalbæinn. Þar er enn nóg
landrými og því sjálfsagt að taka
þegar í upphafi nægilega stóra
spildu. Að austanverðu hefir enn
ekki verið beðið um ákveðinn
stað. Bærinn á þar einnig nægi-
legt land, en það liggur lengra
frá höfninni. Garður á að fylgja
hverri íbúð, og þarf því allmikið^
landrými.
Hvenær verður byrjað?
Við verðum að geta byrjað
næsta vor. Þurfum að byggja
fyrir 1 miljón króna næsta ár.
Við höfum skrifað stjórn Bygg-
ingarsjóðsins og beðið hann að
útvega okkur lán, eins og lögin
gera ráð fyrir. Ríkið og bærinn
eiga að ábyrgjast lánin að hálfu
hvort. í frv. okkar var ætlast
til, að ríki og bær ábyrgðust
lánin sameiginlega, en því breyttu
„Framsóknar“-menn, eins og
öðru fleiru. Ætti þetta þó ekki
að koma að sök hvað Reykjavík
snertir. En bezt væri þó að breyta
þessu ákvæði strax á næsta þingi.
— Nú veltur á sjóðsstjórnmni,
hvernig henni tekst að útvega
lánsfé.
I stjórn Byggingarsjóðsins í
Reykjavík eru þessir menn:
Magnús Sigurðsson bankastjóri,
Haraldur Gríðmundsson og Jakob
Möller.
Mannslát af slysi
í Stykkistaólmi.
Fregn hafði borist hingað um,
að maður hefði orðið fyrir bif-
reið vestur á Snæfellsnesi og beð-
ið bana. Tii þess að komast að
þvi, hvað satt væri í fregninni,
átti Alþýðublaðlið siðdegis í gær
simtal við sýslumanninn í Stykk-
ishólmi. Var hann nýkominn
heim úr embættisferð út með
Sriæfellsnesi, en samkvæmt upp-
lýsingum þeim, sem hann hafði
þá þegar fengið um málið, var
það svo sem nú skal greina; en
réttarhöld í því fara fram í dag.
Síðari hluta föstudagsins eð var
fór fram uppskipun á vörum í
Stykkishólmi. Var þröng á upp-
skipunarstaðnum bæði af vörum
og fólki. Bifxeið var verið að
setja í gang, en þegar bifreiðar-
gtjórinn snéri sveifinni hrökk bif-
reiðin aftur á bak um eitt til
tvö fet. Fyrir aftan hana voru
tveir verkamenn með handvagn.
Rakst afturbrún bifreiðarinnar á
bakið á öðrum þeirra, svo að
hann hrökk áfram og lenti með
brjóstið eða (líklega heldur) kvið-
inn á handvagninum. Ekki varð
hann þó á milli þeirra, þar eð
bifreiðin stöðvaðist þegar.
Maðurinn hélt vinnunni áfram
um stund, en kendi bráðlega
verkjar og var honum þá ekið
heim til hans. Lagðist hann þegar
rúmfastur og dó um hádegi á
sunnudaginn. Segir læknirinn, að
hann hafi fengið lífhimnubólgu.
Maðurinn hét Elívarður Jóns-
son, verkamaður í Stykkishólmi,
ættaður af Skarðsströnd. Eftir
lifir ekkja hans og fjögur börn
ung.
2
'*'***'
Verkamannabústaflirnir.
Viðtal við Héð n Valdimarsson.
í vor var stofnað hér Bygging-
arfélag verkamanna samkv. lög-
unum um verkatmannabústaði,
sem þingmenn Alþýðuílokksins
fengu samþykt á þinginu í fyrra,
með miklum og slæmum breyt-
ingum þó, svo sem helonings
lækkun á framlagi xikis og bæja.
Félagsmeim eru nú þegar orðn-
jr nokkuð á 3. hundrað. Stjórn-
ina skipa:
Héöfinn Valdimarsson,
Stefán J. Björnsson og
Pétur Hraunfjörð.
Héðinn hefir skýrt Alþýðu-
blaðinu svo frá framkvæmdum
og fyrirætlunum félágsins.
Samþyktir félagsins.
Fyrsta vertóð var auðvitað að
ganga frá samþyktum félagsins.
Það var gert strax x vor og
voru pær senarir stjörn Bygging-
arsjóðsins og rikisstjórninni, sem
á að staðfesta þær.
Svo er til ætlast, að stofnendur
gangi fyrir um kaup á íbúðum,
og verður varpað hlutkesti um
það, í hvaða röð þeir fá íbúðir.
Siðan kemur að öðrum félags-
mönnum í þeirri röð, sem þeir
ganga í félagið. Er þetta gert
til þess að útiloka alla óánægju
yfir því ,að gert sé upp á milli
manna.
Þeir eiriir hafa rétt til að fá
keyptar íbúðir af félaginu, sem
ekki eiga yfir 4000 króna eign
og ekki hafa haft yfir 4000 króna
meðal-árstekjur 3 síðustu ár.
Sjálfir þurfa félagsmenn að geta
útvegað sér 15°/o af verði íbúð-
arinnur, en 85°/o á Byggingarsjóð-
urinn að lána til 42 ára gegn 6°/o
gxeiðslu á ári i vexti og afborg-
anir.
Gerð húsanna.
Næst var að ákveða gerð og
fyrirkomulag húsanna.
Eftir lögunum á rikisstjórnin
að láta gera fyrirmyndarupp-
drætti. Við skrifuðum því ríkis-
stjórninni og óskuðum eftir, að
hún stofnaði til samkeppni um
uppdrætti af verkamannabústöð-
um, bæði stórum sambyggingum
og smáhúsum. Þetta hefir ríkis-
stjórnin gert. Hefir hún heitið
þremur verðlaunum, og eru þau
hæstu 1500 krónur. Uppdrætt-
irnir eiga að vera komnir til
stjórnarinnar 15. nóvember í
haust. Verður þá væntanlega upp
úr því teknar ákvarðanir um gerð
húsanna, og upplýsingar þá fyrir
hendi um kostnaðarhliðina, t. d.
samanburður á smáhúsum og
sambyggingum.
Hvar á að byggja?
Samkv. lögunum á að byggja
húsin á leigulóðum, sem bærinn
leggur til. Meðan engin sam-
göngutæki eru í bænum, er
verkamönnum hia mesta nauðsyn
Rússar keppa á heims-
markaðinum.
Lundúnum (UP). 8. sept. FB.
Frá Berlín er sirnað: Fregnir frá
Genf herma, að fulltrúar Þjóða-
bandalagsríkjanna ræði mjög um
hættuna, sem þeim ríkjum stafi
af því, að Rússar flytja nú út
mikið af timbri og trjáefni til
pappírsgerðar undir því verði,
sem aðrar þjóðir geta selt þessar
vörur fyrir.
Frá Argentínu.
Lundúnum (UP). 8. sept. FB.
Frá Montevideo er símað: All-
margar herdeildir hafa gert til-
raun til gagnbyltingar í Buenos
Aires. Baxdagarnir hófust í Plaza
Mayo, er ráðist var á hermanna-
skóla, sem þar er.
Útsölur standa margar yfir í
bænum þessa dagana. í rgær byi'j-
aði útsala í verzlun Haralds
Árnasonar og á morgun byrjar
útsala í verzluninni Edinborg.
Eun nm afleið’ngar fellibyljar-
ins.
Lundúnuxn (UP.), 6. sept., FB.
Frá New York er símað: Ræðis-
maður Bandaríkjanna í San Do-
mingo hefir í viðtali við „United
Press“ sagt, að þaú sé varlega
áætlað, að 1500 menn hafi beðið
bana, en 5000 meiðst, af völdum
fellibyljarins.
Harðstjórnln í Póllandi.
Lundúnum (UP.), 6. sept., FB.
Frá Varsjá er símað: Fimm kom-
múnistar, fyrrverandi þingmenri á
Póllandsþingi, voru handteknir í
dag, er þeir gerðu tilraun til þess
að komast yfir landamærin til
Rússlands án brottfararleyfis. [Er
látið í veðri vaka, að] þýðingar-
mikil skjöl hafi fundist á þeinx.
Togammir. „Otur“ kom. í
mdrgun af veiðum með 1500
körfur og „Baldur“ með 1600
körfur.
Ihaldið og Sáias-
traust landsins.
Ihaldsblöðin hafa þrástagast á
því xmdanfarna mánuði, að láns-
traust landsins væri glatað. Hafa-
blöð þessi beint þeirri þungu á-
sökun að núverandi ríkisstjórn,
að hún hafi með aðförum sínum
eyðilagt álit íslands hjá erlendum
lánsstofnunum.
Það er óneitanlega einkennilegt,
að það skuli vera íhaldsflokkur-
inn, sem ber öðrum á brýn ó-
stjórn í fjármálum. Og óneitan-
lega kemur það illa heirn við
„föðurlandsást frelsishetjanna"
að rægja land sitt og ófrægja í
augum erlendra þjóða. En þeir,
sem til þekkja, undrast ekki þó
föðurlandsást hinna svo nefndu
„sjálfstæðismanna“ verði létt á
metunum, ef þeir gera sér vonir
mn að geta ófrægt andstæðinga
sína.
En þegar rætt er um lánstraust
landsins, er vert að athuga, hverj-
ít það eru, sem með athæfi sínu
hafa mest gert til þess að rýra
lánstraustið. Þó margt megi með
sönnu segja núverandi ríkisstjórn
til ámælis, bæði hvað snertir
fjárstjórn og annað, þá er það
þó víst, að undir verndarvæng
íhaldsins hafa þrifist og dafnað
mest fjárhagslegt brask, sviksemi,
og óreiða. Þeir stjórnarhættir í-
haldsins hafa sannarlega ekki
orðið til þess að auka hróður
landsins né afla því álits. Það
var fjármálaráðherra íhaldsins,..
Magnús Giuimumlsson, sem tók
hið alræmda bnezka lán fyrir
ríkið, en af því láni hefir orðið
að gjalda nærri 10%! j vexti, auk
þess sem tolltekjur landsins voru
fastsettar handa lánardrottninum-
Þad er petta ókjaralán Magnúsar
Gudmundssonar, sem ápreifanleg-
ast hefir ordid til pess ad spilla
íslenzku lánstmusti. Fyrir því
finnast sannanir og opinberar yf-
irlýsingar flokksmanna hans, svo
sem Knúts borgarstjóra.
Það var einnig íslenzka íhaldið,.
sem hafði í kjöri til virðingar-
mesta sætisins, sem alþingi skip-
ar, mann, sem þá var ákærður og
dæmdúr í undirrétti fyrir að hafa
dregið sér fé annara. En slíkt
athæfi hefir áreiðanlega ekki auk-
ið hróður íslands meðial erlendra
þjóða.
Það voru íhaldsmenn, sem
slógu skjaldborg um óreiðu og
óhæfilega stjórn Islandsbanka á
íslenzkum fjármálum. Einn af for-
ingjum íhaldsins er bankaeftir-
litsmaðurinn Jakob Möller. En
það var hann, sem ekkert hafði
að athuga við það, þó reikningar
íslandsbanka væru rangir. Það er
íslenzka íhaldið, sem ber ábyrgð
á því, að ár eftir ár reyndi Is-
landsbanki að blekkja erlendar
lánsstofnanir með röngum reikn-
ingum. Eftir að Islandsbanki var
búinn að tapa tugum milljóna á