Alþýðublaðið - 09.09.1930, Síða 4
4
ALÞVÐUÐEAÐIÐi '
ekkert „mitt á milli“. Úppreisn
verklýðsœskunnar gegn stétta-
kúguninni sannar pað svo ótví-
rætt, að æskan hefir kastað
trúnni á alt annað en framtíðar-
frelsi sitt og allra kúgaðra um
gervallan heim. Þessi æska lítur
aldrei um öxl og lætur engan
telja sér hughvarf. Hún er vigð
til þeirrar hugsjónar, sem er hið
berandi afl í frelsisstríði alþýð-
unnar, að gera líf allra jarðbúa
betra og fegurra en það nú er.
Uppreisn verklýðsæskunnar
megnar enginn að bæla niður.
Henni verður haldið áfram, unz
öllu er velt í rústir, sem skýlir
ránum og kúgun á þessari jörð.
íslenzk verklýðsœska! Á
skömmum tíma hefir uppreisn
þín orðið til þess að skelfa í-
haldsöflin í landi voru. Fyrir
þremur árum sáust 44 ungir
menn og stúlkur hefja upp hinn
rauða frelsisfána öreiganná í höf-
uðborg íslands. Þetta var vísir-
inn að félagssamtökum hinnar
byltingarsinnuðu öreigaæsku
lands vors. Og á þremur árum
hefir þessi félagsbundna starfs-
fylking æskulýðsins fertugfaldast
Og felur nú í sér þann mátt til
afreka fyrir íslenzka alþýðu, sem
mun veita henni 'fullnaðarsigur á
komandi árum.
Hlutverk öreigaæsku nútímans
er í fyrsta lagi það að gera
sjálfa sig hæfa til þess að taka
við af eldri félögunimi, er þeim
förlast áræði og sóknfimi í sjálfs-
bjargarbaráttu verkalýðsins. Fé-
lög' ungra jafnaðarmanna eru
skólar verklýðsæskunnar. í þeim
á að þjálfa baráttuþrek einstak-
linganna, auka þekkingu þeirra
og brýna þá til viturlegrar sókn-
ár í stéttabaráttu alþýðúnnar. Og
a þessum skólum byggjast glæsi-
legar vonir verkalýðsins í sveit-
nm og bæjum um framtiðarsigur
yfir auðvaldi og kúgun.
Hinn 12. aept. n. k. verður
þriðja þing Sambands ungra
jafnaðarmanna sett á Siglufirði.
Þangað koma fulltrúar frá félög-
um víðs vegár um land. Þar
verður lagður grundvöllurinn
undir starf og stefnu samtak-
anna á næstu árum og þar verða
tekin tií meðferðar mörg stór
mál. Þetta þing verður sennilega
merkilegt og áhrifaríkt, og ekki
þætti mér það ólíklegt, að það
legði að einhverju leyti grund-
völlinn að enn fullkomnara og
öruggara samstarfi íslenzkrar al-
þýðu í frelsisstríði hennar. Til
þessa þings fara fulltrúar æsku-
lýðsins með stórhug og djörf á-
form um að gera félagsskap
ungra jafnaðarmanna að salti
verklýðshreyfingarinnar, svo að
henni verði aldrei liðsvant til
stórræða í sókn og vörn. Væri
vel ef svo færi, sem ég óska, að
úrslit þingsins yrðu til þess að
glæða enn betur þær vonir, sem
gamla verklýðskynslóðin byggir
á samtökum æskunnar um árang-
ur baráttunnar.
Og þess er ég fullviss, að þing-
ið mun koma sér saman um það
sem er aðalatriðið, að æskan kór-
óni verkið, sem fyrri kynslóðir
hafa undirbúið og fórnað lífi sínu
fyrir — það, að skapa ríki verk-
lýðsins á íslandi.
Árni Ágústsson.
2 kr. og frá annari gamalli konu
2 kr. Áður komið 731 kr. Sam-
tals 735 kr.
Veðrið.
Kl. 8 í hrorgun var 9 stiga
hiti í Reykjavík. Útlit hér um
slóðir og á Vestur- og Norður-
landi: Hæg austanátt. Úrkomu-
laust og sums staðar léttskýjað.
Akra
er
orðið
á smjörlikinii, sem
þér borðið.
ÁLÞYÐUPRENTSMIÐJAN,
Hverflsgötu 8, síml 1204,
tekur að sér alls kou-
ar tæktfærlsprentua,
svo sem erfiljóð, «ð-
gðngumiða, kvittanif,
• reikninga, bréf o.
frv„ og afgreiðií
vinnune f,jótt og rið
réttu vex ði.
Ný kæla
KLEIN,
Baldursgötu 14. Sími 73.
Strástólar, stráborð, bambus-
borð og blómasúlur. Mikið úr-
val. Húsgagnaverzlua Reykja*
vikur Vatnsstig 3.
Sigurður Hannesson Hómöóphati
tekur .móti sjúklingum kl. 2—3 og
7—8 á Hallveigastíg 10.
Stúlka óskast fyrri hluta dags.
Upplýsingar í verzlun Kristinar
Hagbarð.
Frá Oddi Sigurgeirssyni. Ég
hefi lengi verið brjóstveill og þar
að auki er ég þrískorinn hol-
undarskurðum. Get ekki unnið
erfiða vinnu, en vil gjarna létta.
Hefi í eftirlaun 20 kr. á viku;
þar af verð ég að sokka mig,
klæða og skæða og fæða að
nokkru leyti og borga þjónustu
og tóbak, og þegar fötin mín eru
stundum hertekin og látin dúsa
í fangelsi von úr viti, þá verður
það mér útdragssamt. Af þessu
get ég ekki borgað húsaleigu og
verð því að hírast í bæjarskrifl-
inu, sem ekki heldur vindi né
vatni. Bæjarstjórnin verður að
ráða bót á þessu, útvega mér
húsnæði — eða gera við bæinn.
framvisa honum við Kristján L'.
Giestsson í verzlun Haralds Árna-
sonar. Einnig eru þeir, sem fengu
ávísanir á kjöttunnuna, lambið,
dvölina á Þingvöllum o. f 1., beðn-
ir að framvísa þeim sem fyrst.
„Lyra“ kom í gær frá Noregi.
„Súðin“ fór af Homafirði um kl.
1 í dag. Hún kemur hingað ann-
að kvöld. — I morgun kom
norskt timburskip hingað. Er það
aðallega með timbur til Hafnar-
fjarðar.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Haraldur Guðmundsson.
Alþýðuprentsmiðjan.
Verður köfnunarefnis-
áburður dýrari?
Samkomulag er nú orðið milli
svo að segja allra þeirra, er
framleiða köfnunarefnisáburð, um
að hafa sameiginiegt verð á hon-
um og að takmarka framleiðsluna
í samræmi við það.
Ríkið Chile í Suður-Ameríku,
sem framleiðir mikið af köfnunar-
efnisáburði (Chile-saltpétri; hann
er grafinn þar úr jörð), kvað þó
ekki vera nema að nokkru leyti
með í samtökum þessum. For-
göngumenn þessa nýja hrings
hafa sagt í viðtali við blaða-
menn, að þetta eigi ekki að vera
til þess að gera áburðinn dýrari,
heldur að eins til þess að halda
verðinu hæfilegu. Enginn þarf þó
víst að efast um, að auðvalds-
hringur þessi á það sammerkt*
við aðra slíka hringi, að hann fer
það sem hann kemst, svo við
má búast að köfnunarefnisáburð-
ur hækki i verði þegar ahrifa
hringsins fer að gæta.
Um daglrass ogf vegiaass.
Næturlæknir
ejr'./ nótt Ólafur Helgason, Ing-
ólfsstræti 6, sírni 2128.
Kristin Sölvadóttir,
sem verið hefir starfsstúlka í
Alþýðuprentsmiðjunni, fer utan í
kvöld með „Gullfossi11 áleiðis til
Ameríku. — Alþýðublaðið óskar
henni góðrar framtiðar.
Guðmundur G. Hagalín
rithöfundur, kona hans og börn,
komu hingað til Reykjavíkur í
gær með „Islandi".
„Veiðibjallan"
fór .norður í dag og heldur á-
fram síldarleitum.
„Súlanú
Viðgerðarhlutirnir koma í dag
eða á morgun með togaranum
„Geir“. Er búist við, að hún geti
byrjað flug aftur á fimtudaginn.
Dánarfregn.
Sigurður Pálsson., bróðir Gests
Pálssonar skálds, andaðist á laug-
tardaginn í sjúkrahúsinú í Landa-
koti. Hann var fyrrum verzlunar-
stjóri á Hesteyri í Jökulfjörðum,
en', átti heima hér í Reykjavík síð-
ustu árin.
Til berkiáveika drengsins
frá Flatey: Frá gamalli konu
Með veikan mann
kom togarinn „Max Pember-
ton“ í gær.
Óþurkasamt
hefir verið viðast hvar á land-
inu í sumar. Svo er meðal ann-
ars á Snæfellsnesi, að þar gengur
mjög erfiðlega að þurka fisk og
hey.
Heilsufarsfréttir,
(Frá skrifstofu landiæknisins.)
Samkvæmt ágústmánaðarskýrsl-
um hefir heilsufar verið fremur
gott yfirleitt á landinu. Af skar-
latssótt veiktust yfir mánuðinn 6
i Reykjavík, 7 annars staðar á
Suðurlandi og 9 á Norðurlandi.
Annars engar nýjar farsóttiir, enda
skarlatssóftin komin upp áður.
ÍHér í Reykjavík var nokkuð um
hálsbólgu og kvefsótt, en mink-
andi undir lok mánaðarins.
Rio Rita
er ein hin merkasta og skraut-
legasta kvikmynd, sem hér hefir
sést, einnig fram úr skarandi
skýr tal-, söng- og hljóm-mynd.
Saga myndarinnar gerist í litlum
bæ í Mexíkó og alt er því með
mexikönskum blæ, búningar, hús
og menn.
Ungir jafnaðarmenn,
sem fara norður með „Esju“
annað kvöld, eru beðnir að mæta
í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu
ekki síðar en kl. 9Ú2, þvi að
„Esja“ fer af stað kl. 10. Þess
er fastlega vænst, að allir fé-
lagarnir fari eftir þessu.
Blfreiðarslysið
á Hellisheiði var, sem betur
fór, minna en frá var sagt í
fyrstu. Hafði blaðinu og verið
skýrt rangt frá nafni mannsins,
sem meiddist. Það var Pétur Ket-
ilsson, Freyjugötu 24. Hann
meiddist þó ekki mikið. Hins veg-
ar stýrði Georg bifreiðinni.
Jónas Þorbergsson
útvarpsstjóri er nú á góðum
batavegi.
Hvað er að frétfa?
Ensk skemtisnekkja, „Arpha“,
kom hingað í morgun.
Skipafréttir.
Hlutaveltg. „K. R.“ I gær var
dregið hjá lögmanni um farseð-
ilinn til Sviss, sem var happ-
drætti, og kom upp nr. 2997. Er
handhafi þessa miða beðinn að