Morgunblaðið - 25.04.1973, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1973
35
aði við það mörgum dýrmætum
sekúndum.
Svig kvenna fór fram neðsf í
Skarðsdal og voru keppendur
13.
FLOKKASVIG
Akureyringar höfðu yfirburði
í flokkasviginu, bæði í karla og
kvennaflokki. 1 karlaflokki fékk
Haukur Jóhannsson bezta braut
artimann í báðum ferðum.
1 flokki kvenna voru þátUöku-
sveitirnar þrjár, frá Akureyri,
Siiglufirði, og blönduð sveit frá
Reykjavík og fsafirði. Akureyr
arsveitin sigraði með yfirburð-
um, Siglfirzku stúlkurnar urðu
aðrar, en blandaða sveitin var
dæmd úr leik, en hún var með
sem gestasveit. Áslaug Sigurðar
dóttir úr Reykjavik sýndi nú
loksins sitt rétta andlit og fékk
beztu brautartímana.
Skipting verðlauna
Skipting verðCiaunia á sikíðaöan dsmótiniu á SiigJufirði var sem
hér segir: Gall Siifur Brons AIis
Akureyri 9 6 4 19
Siglufjörður 4 4 4 12
Fljótamenn 2 2 2 6
Isafjörður S. 2 3 6
Ólafsfjörður — 2 1 3
Reykjavík — — 1 1
Stórsigur úrvalsins
— þrátt fyrir forföll
Itögnvaldur Gottskálksson í sk ðastökki.
að Steingrímur sigraði, en eigi
að síður náði Björn öðru sætinu.
1 flokki 17—19 ána varð Rögn
valdur Gottskálksson hinn ör-
uggi sigurvegari, hann hlaut tæp
lega 100 stigum meira en
nsesti maður, sem var Hörð-
ur Geirsson. Rögnvaldur virðist
vera nokkuð jafnvígur í stökki
og göngu, en segir þó sjálfur að
stökkið sé númer eitt hjá sér.
STÓRSVIG KARLA
Það var ekki sumarlegt á sum-
airdaginn fyrsta er keppni fór
fram i stórsvigi karla og kvenna
og boðgöngu. Hitinn var að
viísu 10 stig, en rigningarsuddi
og ieiðindagjóla gerðu áhorfend
um, sem voru margir, og kepp-
endum lífið leitt. í stórsvigi karla
var búizt við þvi að glíman
myndi standa á milli þeirra fé-
la.ga Hauks Jóhannssonar og
Árna Óðinssonar frá Akureyri.
Isfirðingar voru þó ekki á sömu
byJgjulengd, sögðust þekkja
sána heimamenn og voru vissir í
sinni sök um sigur Hafsteins Sig
urðssonar. Þegar á hólminn var
komið reyndust Vestfirðimgamir
hafa rétt fyrir sér, Hafsteimm
sigraði, em Akureyrimgar urðu að
láta sér nægja annað sætið.
Það var ekki mikill munur á
fyrsta og öðrum manni í stórsvig
taiu, aðeins munaði 15 hundr-
aðshlutum úr sekúndu á tímum
Hafsteiins og Hauks. 1
þriðja sæti varð Reykvíkingur-
irm Guðjón Ingi Sverrisson og
feom frammistaða hans skemmti-
lega á óvart. Guðjón keppti í
b-flokki í Reykjavíkurmótinu í
sviigi og stórsvigi, en hlaut eigi
að sáður beztan tima allra kepp-
enda á því móti. Hann sanmaði
svo rækilega á skiðalands-
mótinu að þeir sigrar voru ekki
nein slembilukka. Guðjón er 19
ára að aldri og vonandi á hann
eftir að halda merki reyk-
viskra skíðamanna hátt á lofti í
framtiiðinni.
Ámi Óðinsson var ræstur nr
11 og vair brautin þá orðin nokk
uð grafin og erfið á köflum.
Árni keyrði samt sem áður á
ful'lu og slakaði ekkeirt á, en í
eimmi beygjunni, talsvert fyrir
neðan miðja braut, hlekktist hon
uon á og missti við það jafnvægi
og allan hraða. Hann hélt þó
áfram og tókst að ná nokkuð góð
um tíma og fjórða sætinu. Gunn
ar Jónsson, ísafirði var ræstur
fyrstur og náði mjög góðum tíma,
en hann var svo óheppinn að |
sieppa úr einu hliði og þrátt fyr
ir að hann tapaði tima á því, var
!hann eðlilega dmmdur úr lelk.
Brautin var löng og tók á þrek
keppemda, sem margir hverjir
voru útkeyrðir er í markið kom.
Þá grófst brautin er leið á, sér-
staklega efst, en þar var blotinn
mestur. Rásmairk var í norður-
hlíð Illviðrisihnjúks og iá braut-
in niður með svonefndum
Skarðsdalshryggjum neðst í
Skarðsdal.
STÓRSVIG KVENNA
Stórsvig kvenna fór fram sunn
ar í hliðinni fyrir neðan
Illviðrahnjúk en stórsvig karla,
en markið var á sama stað. 1
stórsvigi kvenna mættu 10 kepp
endur til leiks, af þeim voru f jór
ar frá Akureyri. Akureyrsku
stúlkurnar gerðu það ekki enda
sleppt í stórsviginu þær unnu
þrefalt og hlutu auk þess fimmta
sætið.
Margrét Raldvinsdótiir bar
sigur úr býtum og var tími henn
ar rúmum þremur sekúndum
betri en Margrétar Þorvaldsdótt
ur, sem varð önnur, á annarri
og áttundu manneskju munaði
svo ekki nema tæpum þremur
sekúndum og sést á því að bar-
áttan var hörð um hvert einasia
sæti. Þær sem fyrstar voru ræst
ar höfðu þau hlunnindi að fara
ógrafna braut og var það þungt
á metunum.
Sigrún Grímsdóttir frá ísa-
firði og Áslaug Sigurðardóttir
úr Reykjavík voru taldar líkleg
ar til að hljóta verðlaunasæti,
en þeim tókst ekki veJ upp og
urðu að sætta sig við fjórða og
sjötta sætið. Allar eru stúlkurn-
ar, sem efstu sætin skipuðu ung
ar að árum og eiga því að öJlum
líkindum eftir að berjast á
næstu landsmótum.
SVIG KARLA
Akursyringar voru harðir i hom
að taka á þessu skíðalandsmóti
og þeir sönkuðu að sér góðmálm
inum, hlutu alls níu gullverð-
laun. 1 svigi karla voru þeir
Árni Óðinsson og Haukur Jó-
hannsson í sérflokki, eftir fyrri
umferðina hafði Haukur tæprar
sekúndu forskot. 1 síðari ferð-
nni kisyrði Ámi á fujlu, greini-
lega ákveðinn í að verja tlitil sinn.
Það tókst honum ekki, þvi þó
hann minnkaði muninn mjög mik
ið munaði 3/100 úr sekúndu á
þeim, Hauki í vil.
Hafsteinn Sigurðsson skipaði
svo þriðja sætið í sviginu og
mjög efniiegur ísfirðingur, Val-
ur Jónatansson, það fjórða. Það
er nokkuð einkennilegt að Ak-
ureyringur sigri í svigi, en ísfirð
ingur i stórsvigi, venjan hefur
verið sú að Akureyringar væru
sterkari í stórsvigi og Isfirðing-
ar í svigi.
Jóhann Vilbergsson, sá
„aldni“ skíðakappi stóð sig með
miklum sóma á þessu móti, hann
vairð fimmti í sviginu og áttundi
i stórsviginu. Jóhann hefur nú
tekið þátt í 23 skiðalandsmótum
i röð.
Siglfirðingar áttu ekki marg-
ar s'kraut fjaörir í alpagreinun-
um, en þó kom franwnistaða And
résar Stefánssonar skemmtilega
á óvart, hann hefur ekki tekið
þátt í neinu punktamóti í
vetur og hafði því lélegt rásnúm
er, en stóð sig eigi að síður með
ágætum. Svigkeppnin fór fram
á laugardaginn í norðurhlíð
Skarðsdals og voru þátttakend-
ur 28. Haukur Jóhannsson fékk
beztan brautartima í fyrri
ferðinni, en Árni Óðinsson
í þeirri sCðari.
SVIG KVENNA
I svigi kvenna var eingöngu
um innbyrðis keppni Akureyrar
stúlknanna að ræða. Eftir fyrri
ferðina hafði Margrét Þor-
valdsdóttir beztan tíma, rúmlega
hálfri sekúndu betri en nafna
hennar Baldvinsdóttir. I síðari
ferðinni hlekktist Margréti Þor-
valdsdóttur á og hætti keppni.
Sigraði Margrét BaJdvinsdóttir
því nokkuð örugglega fékk
tveimur sekúndum betri tíma en
þriðja Margrétin, Vilhelmsdótt-
ir. Það undraði engan á því að
tár skyldu blika á kinnum Mar-
grétar Þorvaldsdóttur þegar hún
óskaði stöUum sinum til ham-
ingju.
Þetta S'kíðaJandsmót á örugg-
Jega eftir að geymast í huga Sig-
rúnar Gfl'imsdóttur frá ísafirði,
ekki vegna glæstra sigra, heldur
vegna mikillar óheppni. Undir
eðlilegum kringumstæðum hefði
hún átt að geta veitt Akureyr-
arstúlkunum verðuga keppni, en
bæði í flokkasvigi og svigi
missti hún af sór skíðin og tap-
• ••■ ■'•.v • •Í.s'-'A-Xx.v. ••••• ^
Úrvalslið Körfuknattleikssam
| bandsins átti ekki í miklum erf-
iðleikum með að sigra liðið T 71
Dudeiange frá Luxemborg, en
það hafði héi viðkomu á leið
frá Bandaríkjunum um helgina.
Satt bezt að segja var aldrei um
neina keppni að ræða, og er lítt
skiljanlegt hvað lið eins og
þetta hefur að gera í keppnis-
ferð til Bandaríkjanna ár eftir
ár. Við hefðum sennilega getað
teflt fram II. deildar liði gegn
þeim og unnið samt. Lið þetta
lék hér einnig fyrir rúmu ári
siðan, og var þá miklum mun
betra.
Það voru mikil forföll í liði
K.K.Í. í þessum leik, t.d. vant-
aði Birgi Jakobsson, Kolbein
Pálsson, Kristin Stefánsson,
Gunnar Gunnarsson ■ og Gutt-
orm Ólafsson. En 9 manna lið
sem lék þennan leik sýndi oft
á tíðum mjög góðan leik, og
sýndi að breiddin í íslenzkum
körfuknattleik er að verða tals-
verð. Sérstaklega var gaman að
sjá liðið beita hraðaupphlaup-
um sem tókust oft mjög skemmti
lega, og var Jón Sigurðsson þar
potturinn og pannan. Oft á tið-
um lék hann vörn Dudelange
svo grátt, með sinni frábæru
tækni, að þeir vissu hreinlega
ekki hvar í ósköpunum knött-
urinn var. Þá sýndi Birgir Guð-
björnsson ágætan leik, og sömu
sögu er að segja um Þóri Magn-
ússon, Hjört Hansson, Agnar
Friðriksson. En mótstaðan var
sorglega lítil.
1 hálfleik var staðan 36:19 fyr
ir úrval K.K.Í. og um miðjan
síðari háfleik var hún orðin
60:28. Á þessu tímabili gátu okk
ar menn greinilega leyft sér alla
hluti gegn hinu stirðbusalega
liði Dudelange sem léku „göngu
bolta“. En þegar líða tók á síð-
ari hálfleikinn var farið að
slaka á og þá náðu Luxemborg
ararnir aðeins að rétta sinn
blut. I.okatölur urðu 88:60.
gk.
Mikið starf innan HSf>
SEXTUGASTA ársþing Héraðs-
sambands Snður-Þingeyinga var
haldið dagana 24. og 25. marz síð
astiiðna í Hafralækjaskóla í Aðal
dal. Formaðnr HSÞ, Óskar
Ágústsson, setti þingið með á-
varpi og banð þingfuiltrúa og
gesti velkomna, en gestir þings
ins voru þeir Hafsteinn Þorx alds
son formaður UMFÍ og Sigurður
Geirdal framkvæmdastjóri UM
Fí. Á þinginu var lögð fram
starfsskýrsla HSÞ 1972 og auk
Sigursveit Akureyringa í flokkasvigi. Frá vinstri: Haukiir -ló-
hannsson, Árni Óðinsson, Jónas Sigurbjörnsson og Viðar Garð
arsson.
þess íþróttasliýrsla HSÞ 1972.
Félagar í HSÞ voru um síð-
ustu áramót samtals 1148 í 13
félögum og á vegum HSÞ störf-
uðu 10 íþróttakennarar um
lengri eða ökemmri tíma. Arn-
aldur Bjarnason var ráðinn fram
kvæmdastjóri sambandsins, fyrst
yfir sumarrnánuðina en siðan á-
fram um óákveðinn tíma.
íþróttafólk HSÞ tók þátt i 133
mótum og vcru þátttakendur í
þeim 1730, en alls voru iðkaðar
12 íþróttagreinar á sambands-
svæðitju með 1366 iðkendum.
Frjálsíþrótfafólk HSÞ tók þátt
í 23 mótum á síðastliðnu ári, 7
’nnan héraðs og 16 utan héraðs
og voru þátttakendur í þeim 290.
Sett voru 29 héraðsmet í frjáls-
um íþróttum á árinu og voru 5
þeirra jafnframt íslandsmet.
i Sendir voru keppendur á öll
heiztu mót utan héraðs, m.a.
; Norðurlandsmótð sem HSÞ vann
með 118 stigum, meistaramót Is
| lands, unglingakeppni FRÍ o.fl.
j Glíma var iðkuð af 33 mönn-
j um innan sambandsins og tóku
I þeir þátt í sjö mótum með ágæt
j um árangri. Skíðaíþróttin er
I mikið iðkuð á Húsavík, en ekkert
skíðamót var haldið á sambands
svæðinu á s.l. ári vegna snjóleys
i is.
Knattspyma var mikið iðkuð
innan HSÞ og voru iðkendur
hennar 286. Haldið var héraðs-
mót í knattspymu í tveimur
flokkum og tóku 10 lið þátt í
því móti, auk þess sem Iþrótta-
félagið Völsungur tók þátt í Is-
landsmótinu í öllum flokkum.
Þá tók Magni þátí í 3. deild Is-
landsmótsins.
Handknattleikur er iðkaður á
Húsavík og eru iðkendur þar
236, karlar og konur, lið frá Völs
Framhakl á bls. 39