Alþýðublaðið - 13.09.1930, Blaðsíða 3
alþvðublaðið:
3
Útsalan
í útibúi okkap á Langavegi
heidnp áfpam.
Enn ep tœkifœpi til að gepa
góð kanp.
SambandstingS.U.J.
hófst i dag kl. 2 á Siglufirði.
Nærfelt 40 fulltrúar mættu við
þingsetniugu.
í dag kl. 2 hófst sambandsþing
ungra jafnaðarmanna á Sighifirði.
Bæjarstjórn hefir lánað þinghús
bæjarins til fundahaldanna. Húsið
er skreytt rauðum fánum og fé-
lagsfánum. I gær héldu fulltrú-
arnir, sem fóru með „Esju“, æsku-
lýðsfundi á Hofsós og Kolkuós.
Eiia leiðlis.
I „Hávamálum Indíalands" er
þetta haft eftir Drottni allsherjar:
„Hvaða leið, sem mennirnir nálg-
ast mig, segi ég þá boðna og
velkomna, því allir vegir eru
mínir vegir.“ Mér hefir alt af
þótt vænt um þessi orð. Þau
ljóma fyrir augum mínum sem
hámark frjálslyndis og göfugs
skilnings á gildi einstaklingsins.
Vegirnir til sannleikans eru eins
margir og mennirnir. Hvers
vegna er þá Krishnamurti og aðr-
ir að tala um einhverja eina leið,
sem allir verði að ganga, og hver
er þessi eina leið? Eina leiðin
ert pú sjálfur, hver sem þú ert.
Þetta er einstaklingshyggja á
hæsta stigi, munu menn segja,
og er það rétt. Sönn einstaklings-
hyggja er þó í raun réttri hin
bezta heildarhyggja vegna þess,
að alt veltur að lokum á einstak-
lingnum. Því er það t. d. að
jafnaðarstefnan berst réttilega
fyrir bættu uppeldi og aukinni
mentun alþýðu manna, um leið
og hún berst fyrir kerfisbundnu
skipulagi á athafnalífi þjóðanna.
Ekkert ytra skipulag, engin félög,
engar kirkjur, — ekkert af þessu
getur komiði í staðinn fyrir fram-
tak einstaklingsins í andlegum
efnum. Hið eina, sem ytra skipu-
lag getur gert, er að skapa meira
eða minna heppileg skilyrði
sjálfsræktar, en það er lika þarft
verk. Ef neitað er gildi hins ytra
umhverfis er þar með kveðinn
upp dauðadómur yfir öllu upp-
eldi. Slík firra leiðir út í örgustu
ógöngur. Það er t. d. miklu auð-
veldara fyrir venjulega menn að
komast í samband við hið bezta
og göfugasta í sjálfum sér í
kirkju eða á öðrum stað, þar sem
hugsaðar hafa verið hreinar og
háleitar hugsanir, heldur en t. d.
í knæpu eða annars staðar þar,
sem hið andlega andrúmsloft er
þrungið af grófum hugsunum og
ógöfugum tilfinningum. Það er
hægara fyrir okkur að komast í
samband við hið bezta í okkur,
ef við hlustum á yndislegt söng-
lag, eins og t. d. „Ave Maria"
eða „Largo", heldur en ef við
heyrum lög eins og „Svarti Pétur
á sólunum" eða einhvern annan
„grallara“-söng! En meðan svo
er, að hið ytra hefir áhrif á okk-
ur, annaðhvort til ills eða góðs,
erum við ekki hafin yfir. umhverf-
ið. Aðalgildi allra helgisiða bygg-
ist á þessu áhrifavaldi umhverf-
isins. Hitt er annað mál, að að
þvi ber að stefna að verða sem
óháðastur öllu umhverfi. Maður,
sem leitar andlegs frelsis, má
því ekki binda sig efnisböndum.
Maður, sem leitar hins innra, má
ekki verða háður hinu ijtra. Eina
leidin til andlegs frelsis er fólg-
in í því að losa sig smám sam-
an undan áhrifavaldi umhverfis-
ins, afsala sér öllu, sem'"er tak-
markað og því hverfult. Því er
það, að Kiishnamurti segir svo
vel:
„Heildina með þér
haföu í ráðum.
Spilling býr í broti."
Sá maður, sem hefir heildina
með sér í ráðum, en festir ekki
hug eða hjarta við það, sem að
eins er brot, hversu stórt sem
það er, siglir beggja skauta byr
upp að ströndum hins eilífa lífs.
Grétar Fells.
Eyðing kolabirgðanna.
Fundur efnafræðinga, er stunda
hagnýta efnafræði, var haldinn
í Birminghani í Englandi 15. júlí.
Sagði forsetinn, dr. Herbert Le-
vinstein, í setningarræðunn/, að
sá tími, sem kolaöldin stæði, þ. e.
sá tími, er kolin væri orkugjafi
rr-
II
Bezta Cigarettan í 20 stk. pokkum,
sem kosta 1 krénn, er:
Coiiander,
Westminster,
Virgínia,
ClgarettiiF.
Fást í öllum verzlunum.
I hvep|iun pakba ep gnllXalleg islenzk
mynd, og fæp hvep sá, ep safnað helip 50
myndnm, eina stækkaða mynd.
I
Áætlmarferðir
á Seltjarnarnes.
8V» f. h. Frá Nýjabæ kl. 8SA
9Vs f. h. — - - 98A
1210 e. h. — — — 12SA
3 - — - - - 372
61/2 - — — — — 7
8 - — — — — 872
11 - — — — — 1172
2.
3.
4.
5.
6.
7.
Viðkomustaðir bífreiðanna verða ennfremur sem hér segir:
1. Á vegamötum Vesturgötu og Brœðraborgastígs.
2. Á vegamótum Bræðraborgarst. og Sólvallagötu.
3. Sveinstöðum í Kaplaskjóli.
4. Verzluninni Vegamót.
5. Sanitas.
G. Mýrarhúsum og Nýjabæ.
Fargjöld verða 40 aurar að Sanitas og þaðan af 50 aurar.
Nýja Blfreiðastðdin
í Kolasnndi, — Símar 1216 og 1870
N.B. Fytsta ferðin felint niður á helgum dogum.
iðnaðarins, yrði ekki nema ör-
lítið brot úr sögu mannkynsins
— ekki lengri en tíminn sem yf-
irráð Máranna hefði verið á
Spáni. Sum lönd gætu tekið upp
notkun vatnsafls í stað kola, en
ekki gætu Bietar þaÖ; vatnisafl
það, er þeir notuðu til alúmíni-
um-framleiðslu, svaraði þó til
840000 smálesta af kolum á ári,
en alúmíníum-framleiðsla væri
eini stóriðnaðurinn í Bretlandi, er
grundvallaðist á vatnsafli. Væri
ekki fundin ný orkulind innan-
lands áður en kolabirgðirnar
þrytu — en þær entust ekki lengi
— hlyti Bretlandi að hnigna.
Kolaskíp kom í gær til Ólafs
Gislasonar & Co. og ýmsra fleiri,
/Og í dag er von á öðru til „Kola
og salts“.
Ðýp frfmerki.
Notkun frímerkja hófst fyrir 90
árum í Bretlandi, og frímerkja-
söfnun um 20 árum síðar, þ. e.
um 1860.
Stærstu frímerkjasöfn eru nú
S Bietasafni í Lundúnum, í Póst-
tnálasafninu í Berlín og Póst-
málasafninu í Stokkhólmi; hefir
Svíi einn í New York, að nafni
Hans Lagerlöf, gefið síðast talda
safninu mörg af verðmætustu
frímerkjum þess. Stærsta frí-
tnerkjasafu. sena verið Issfir í eigu
einstaks manns, var safn Phi-
lippe la Renstiere von Ferrari,
sem dó í Sviss 1917. Meiri hluti
þessa safns var í París og var
gerður upptækur þar og seldur á
14 uppboðum, er haldin voru árin
1922—25; stóðu þau uppboÖ alls