Morgunblaðið - 07.09.1973, Blaðsíða 23
MORGUNiBLAÐÍÐ — FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1973
23
Noregsbréf
Framhald af bls. 17.
ir um að Tiá þingsætum, sem
geta orðið mikils virði, ef
Bratteli nær ekki hreinum
meirihliuita.
— Þá er ernn eftir að minn-
ast á einn kynlegan fuigl, sem
heitir Anders Lange og hefur
nú sfcotið út stjórnmálaferj u
sirnni, og þykist ætla að veiða
vel. Agnið hans er orðið þjóð-
frægt: Hann lofaði sem sé að
létta átta milljarða króna
skattbyrði af hinni pindu
þjóð. Káre WilLoch sannaði
honum, að þessir 8 milljarðar
yrðu teknar af þjóðinni undir
öðrum nöfnuim, svo’ að hagn
aður þegnanna yrði naumast
naeiri ern 50 aurar á viku! Síð-
an hefur Lange Iækkað loforð
ið ag er nú kominn niður i
i 300 milljótnir enda virðist
fylgi hans hafa farið rénandi
að sama skapi. 1 fyrstu kvað
einhver skoðanakönnun hafa
sýnt, að hann hefði 24% kjós
enda fylgii, en í gær var það
komið niður í 4%. t á stóðu
tveir fyligismenn hans fyrir
svörum í útvarpinu, harð-
skeyttur maður og svo burða
lítii kona, sem komst í vand-
ræði þegar hún átti að verja
þau ummæli Langes, að konur
væru „óhæfar til stjórnmála-
starfa nema kannski ef þær
væru kynvilliinigar“.
Ainnars er Lange fyrir
iöngu þjóðkunnur maður. —
Hann rekur hundabú einhvers
staðar í Þelamörk og hefur ár
um saman gefið út „Hunde-
avisen“ og birt skrítnar til-
kyinningar í blöðunum. Þetta
kvað vera bezti maður i við-
kynnimgiu, góðlátur og gam-
ansamur. En flestum finnst
það fullmikil gamansemi af
honum að fara að bjóða sig
fram til þings og stofna
stj órnmálaflokk.
Þess má geta, að borgara
flokkarnir, einkum þeir þrír
„loðnu“ hafa með sér fram-
boðslistasamband í flestum
kjördæmum, til þess að nýta
Bem bezt atkvæði sin. AP
Brattelis þarf sízt á slíku að
halda — hann býðu.r fram í öll
um kjördæmum og það mun
Hægri gera lika. Smáflokk-
arnir sem hafa aukið flokka-
töluna við þessar kosningar
upp í 14 eða 15, bjóða sumir
ekki fram nema í einu kjör-
dæmi og hafa hrossakaup á
þeim atkvæðum, sem þeir
kynnu að fá í öðrum kjördæm
um eða fylkjum.
Öllum almenningi er frem-
ur illa við þennan aragrúa af
flokkum og óskar þess af heil
um hiuig að stjórnmálin verði
gerð dálítið óbrotnari en þau
eru í Noregi i dag, og að skipt
ingin verði aðeins ein: —
hægri eða vinstri. 1 öllu mold
rokinu sést skárst grilla í
Trygve Bratteli, þvi að hans
flokkur er stærstur og nokk-
urn veginn samstæður. Ef
hann fær sigur getur hann tal
að um kosningasiigur. En ef
borgaraflokkarnir s'gra geta
þeir samt ekki hrósað sigri,
þó að þeir hafi lýst yifir því,
að þeir vilji þá mynda „bong
aralega" stjóm, því að þeir
eru ósamstæðir.
— Sannast að segja hef.ur
norska þjóðin ekki haft mk'a
ánægju af samsteypustjórn-
unum sínum.
Skúli Skúlason.
Ungar-raftœkin
fást nú aftuir og einnig element og fylgihlutir.
Pantana óskast vitjað.
RAFTÆKJAVERZLUNIN LAMPINN,
Laugavegi 87. — Sími 18086.
c5Austuístræti
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Staða AÐSTOÐARLÆKNIS við TAUGALÆKN-
INGADEILD Landspítalans er laus til umsóknar
og veitist frá 1. október nk. Umsóknum ber að
skila til stjórnarnefndar ríkisspítalanna fyrir
25. þ.m.
Staða RITARA við LYFLÆKNINGADEILD Land
spítalans er laus til umsóknar og veitist frá 1.
október nk. Umsækjendur þurfa að hafa stúdents-
próf eða hliðstæða menntun og hafa gott vald á
ensku og einu Norðurlandamáli, ásamt nægri
starfsreynslu til að geta annast verkstjórn á skrif-
stofu. Umsóknum ber að skila til skrifstofu ríkis-
spítalanna fyrir 20. þ.m.
STARFSSTÚLKA óskast til starfa í ELDHÚSI
ríkispítalanna á síðdegisvakt, þ.e. milli kl. 16 og
20 fimm daga vikunnar. Upplýsingar veitir yfir-
matráðskonan, sími 24160.
Reykjavík, 4. september 1973.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5,SÍMI 11765
Jersey blússur, gallabuxur,
kjólar, toppar (margir litir),
allskonar perlufestar,
ofl., ofl., ofi.,