Morgunblaðið - 18.09.1973, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1973
velvakandi
Velvakandi svarar í sirna
1010C frá mánudegi til
föstudags kl. 14—13.
0 Brot um daginn
og veginn
Árný Filippusdóttir, skrifar:
„Daglega eru menn að skrifa,
en oft gleyma lesendur að lofa
og þakka það, sem berst til
þeirra, en veldur þeim þó g’ieði.
Við sofum svo mörg á verð-
inum, og sjáum illa hvað í'yrir
a.ugun ber. Við kunnum ekki
heldur að njóta lífsins, en kvört
um þess i stað yfir alls koriar
leiðindum, oftast yfir okkar eiig
im sjóndepru og fákunná'ttu i
störfum.
Nú heíur Kassagerð Reykja
víkur gefið út dagatal með
myndum frá Vestmannaeyjum.
Eldgosið er sýnt þar í fögrum
litbrigðum. Þar hefur smekk-
vísi og listrænt auga þess, sem
tekið hefur myndirnar gert þær
ógleymanlegar. Þökk sé þeim,
sem lagt hafa hönd á þetta daga
tal og hafa dreift því til að
skreyta vistarverur manna og
gleðja huga allra, er á horfa.
Mikið var að þakka, þegar
hið mikla gos varð í Vestmanna
eyjum. Þau undur og erfiðleik
hafa verið til umræðu daglega.
Sumir hafa þó "verið fulir af
vanþakklæti og tortryggni —
en sem betur fer voru þó ótal
margir, sem með réttlætiskennd
og hógværð báðu um hjálp
Guðs og leituðu kyrrðar og frið
ar þegar í nauðir rak. Það var
eins og ævinlega bezta lausnin
—sú eina er dugar. Ekki get
ég látið hjá líða að koma hér
að stöku, er Vestmannaeying-
ur, sem var að koma frá eldin-
um til Reykjavíkur, mæiti af
munni fram við mann, er spurði
um ferðir hans:
Þú spyrð að því hvaðan ég
komi og hvaðan óg sé
Ég vil ekki ljúga né liiggja á
svari og læt það í té.
Ég hefi aldrei vitað, hvaðan
ég kom eða hvenær ég fer.
Mér finnst þetta ágætis
áningarstaður, og er bara
hér.
Þarna var að finna mann,
sem var og er þéttur í lund,
mikill starfsmaður, skipasmið-
ur og skáld gott, með ’nugsun
og kanm að sjá og heyra. Þess
háttar menn eru ekki „að emjá
af kvölum eða blása í kaun,
þótt innra sé glóð og örfoka-
hraun.“
Furðuverk og gersemar ger
ast oft frá sólarupprás til sólar
lags. Við erum vanmegnug o<g
Mtil, en lofigjörð og bæn styrkif
okkur mennina. Guð hjálpar
þeim einum, sem fúsir eru að
hjálpa sér sjálfir. Að vinna til
bóta í kyrrþey, er bezta ráðið.
— Hið mlkla skáld okkar, Einar
Benediktsson, sagði: Gráttu
hljótt, því þor og þrótt befur
margur sótt.
SÍMI í MÍMI er 10004
Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám
Söngfólk
PÖLÝFÖNKÖRINN getur bætt við nokkr-
um góðum söngröddum í haust, körl-
um og konum.
Þeir, sem hafa áhuga á að sækja um
inngöngu, geri svo vel að hringja í síma
2 66 1.
PÓLÝFÓNKÓRINN.
Kórskólinn
Kórskóli Pólýfónkórsins tekur til starfa
um næstu mánaðamót.
Kennt verður eitt kvöld í viku, 2 stundir
í senn. Kennslugreinar: Söngur, heyrn-
arþjálfun (tónheyrn og hljóðfall), nótna-
lestur, kórsöngur.
Inntökuskilyrði engin fyrir byrjendur,
en einnig verður starfræktur framhalds-
flokkur fyrir lengra komna. Kennslu-
gjald kr. 2.000.- greiðist fyrirfram.
Innritun í síma 2 66 11 á skrifstofutíma.
PÓLÝFÓNKÓRINN.
Ai
- ÞINGHOLT-
Ráhstefnu- og veizlusalur
Sírni: 21050
0 Kirkjufell
Mig langar til að leggj a orð í
belg með Vestmannaeyinigum-
Þeir eiga þetta fagra fjall,
Heligafell. Nú hafa þeir fengið
annað stórt og mikið. Ég bið
þess, að það verði látið heita
KirkjufeM. Hin hulda hönd hef-
ur byggt bæði fellin og þa>u
eiga eftir að skýla og vernda.
Fögur eru þau á að llta, og eiga
bæði skilið prýðileg nöfn.
Lifum í sátt og starfi, til að
rækta alit það bezta, sem til
er í starfi okkar.
Hveragerði, 3. sept. 1973.
Árný Filippusdóttir."
0 Hvers vegna?
Dagný Ó. Guðmundsdóttir.
„Kæri Velvakandi!
Fyrir nokkrum dögum las ég
í Morgunblaðinu um niðurfell-
ingu z úr íslenzku. Fellur mér
þessi breyting mjög illa og get
ég alls ekki sætt mig við það að
hætta að nota z og skrifa þau
orð sem hingað til (eða frá því
z var sett inn i islenzkt ritmá’x)
hafa verið skrifuð með z.
Hvers vegna var .þessi bréýt-
ing gerð? Vel má vera að sum
um finnist þessi tilhögun tli
bóta, en getur ekki lika "verið
hætta á, að fólk fari að, skrifa
íslenzkuna eftir framburði?
Mér er spurn, hvernig mun
íslenzkt ritmál þá líta út að
nokkrum árum liðnum? Búast
má við, að tatenalið fari ekki
varhluta af afleiðingum þessa.
Þá emda ég þetta bréf mitt,
þið ráðið því hvort þið birtið
það eður ei.
Með kærri kveðju,
Dagný Ó. Guðmundsdóttir,
Eyri, Flókadal, Borgarfirði.
Margir hafa spurt þessarat
sömu spumingar — hvers
vegna z hafi verið numin úr ís
lenzku ritmáli. En það er nú
bara svo margt, sem við menn
irnir skiljum ekki. Eina "vonin
er sú, að næsti menntamálaráð-
herra lagfæri þennan hégóma.
argus auglýsingastofa
Lykiloröiö er YALE
Frúin nefnir þær túlípana-
læsingar, en karlmennirnir
líkja þeim við koníaksglös.
Samt sem áður gleymir
hvorugt þeirra að biðja um
YALE.
YALE læsingar með túlí-
panalaginu fara vel í hendi.
Aðeins rétti lykillinn opnar
YALE læsingu — lykillinn
yðar.
VERIÐ VISS UM AÐ MERKIÐ SE YALE
ÖRUGGAR OG FALLEGAR LÆSINGAR