Morgunblaðið - 27.11.1973, Síða 1
40 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
267. tbl. 60. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1973
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Valletta, Möltu
26. nóv AP-NTB
HOLLENZKA farþegaþotan af
gerðinni Boeing 747 frá KLM,
sem arabískir skæruliðar rændu á
sunnudagskvöld, lenti síðdegis í
dag á flugvellinum í Valletta á
Möltu. Er búizt við, að flugvélin
verði þar í nótt, því aðstarfsmenn
flugvallarins segja, að létta verði
á henni til þess að hún geti hafið
sig á loft þaðan, þar sem flug-
brautir séu þar stuttar.
Öryggisgæzla var efld stórlega á
Hinn nýji forseti Grikklands, Gizikis til hægri og Androutsopoulos forsætisráðherra.
Kyrrt í Grikklandi eftir valdatöku nýrrar stjórnar:
Herforingjar reknir sem
andvígir voru byltingunni
Aþenu,26. nóv. AP-NTB-
Líf er nú að taka aftur á sig
eðlilegan blæ í Grikklandi eftir
valdatöku nýrrar ríkisstjórnar,
sem um helgina svipti Georg
Papadopoulos, forseta, völdum og
setti hann í stofufangelsi á
heimili sínu skammt utan við
Aþenu.
2] Hermenn og skriðdrekar
hurfu f dag af götum Aþenu og
Saloniki. útgöngubanni var aflétt,
fólk fór til starfa í morgun, eins
og ekkert hefði í skorizt og dag-
blöð, sem komu út án ritskoðun-
ar, fögnuðu byltingunni.
□ 1 dag hefur nýja stjórnin
um og áhrifastöðum og treysta
menn Papadopoulosar úr embætt-
um og áhrifastöðum og tr.ysta
sjálfa sig f sessi. Meðal annars
hefur nær helmingur foringja í
gríska hernum, svo og lögreglu-
stjórinn í Aþenu, verið sviptir
stöðum sínum og mun tilgangur-
inn sá, að koma í veg fyrir gagn-
Nixon
afhenti
spólurnar
FRÁ því var skýrt í
bandarískum og brezk-
um útvarpsfréttum í
gærkveldi, að Nixon for-
seti hefði afhent John J.
Sirica, dómara Water-
gatesegulbandsspólurn-
ar, svokölluðu. Jafn-
framt hafði Rose Marv
Wood, einkaritari for-
setans borið fyrir rétti í
gær að hún hafi af inis-
tökum þurrkað út af
einni spólunni 18 mínút-
ur af samtali, sem for-
setinn átti við Robert
Haldemann rétt eftir
Watergate innbrotið.
byltingu, því að am.k. sex hers-
höfðingjar, þar á meðal yfirmað-
ur alls hersins, landhersins og
flotans, eru sagðir hafa verið and-
vfgir byltingunni.
Nýskipaður forseti landsins,
Faedon Gizikis, hershöfðingi, lét
það verða eitt af sínum fyrstu
stjórnmálamenn, sem Papa-
dopoulos hafði látið setja í
Papadopoulos hafði látið setja í
stofufangelsi í síðustu viku eftir
stúdentauppreisnina f Aþenu.
Voru það Panayatis Canellopolos,
fyrrum forsætisráðherra og tveir
aðrir fyrrverandi ráðherrar, John
Zighdis og George Mavros, sem
allir höfðu látið í ljós stuðning við
kröfur stúdenta.
Gizikis er maður á miðjum
aldri, sagður hægrisinnaður mjög
og einarður stuðningsmaður
aðildar að Atlantshafsbanda-
laginu og Konstantíns, fyrrum
konungs. Ekki hefur þó verið lát-
ið að þvf liggja að konungur verði
kallaður heim — og ekkert bendir
heldur til þess, að nýja stjórnin
muni standa við þau fyrirheit
Papadopoulosar að efna til þing-
kosninga i Grikklandi. Enda er á
það bent, að sá maður, sem hafi í
raun haft forystu f>Tir bylting-
unni, hafi verið lítt hrifinn af
þeirri fyrirætlun Papadopoulosar
og talið hana ótímabæra. Er hér
átt við Dimitros Ioannides, yfir-
mann herlögreglunnar, sem hafði
flestum sterkari aðstöðu til bylt-
Framhald á bls. 31
f lugvellinum nokkru áður en vél-
in skyldi lenda. Valletta varfjúrði
viðkomustaðurinn frá þvi skæru-
liðarnir tóku völdin í vélinni, en
þangað kom hún frá Trípóii i
Lfbýu. Þar höfðu fulltrúar Líbýu-
stjörnar og KLM reynt að semja
við skæruliða en án árangurs.
Þeir hafa sett fram þá kröfu, að
hollenzka stjórnin hætti öllum
stuðningi við Israel og Gjðinga,
sem flytjast þangað frá Sovétrfkj-
unum og leggja leið sína um Hoi-
land. Fréttastofan ARNA í Líbýu
segir í kvöld, að hollenzkir emb-
ættismenn hafi látið fuiltrúum
Lfby'ustjórnar í té skýrslur, sem
bendi gegn því að llollendingar
hafi veitt Israel nokkurs konar
aðstoð eða sovézkum Gyðingum.
Eftir að samningatilraunir við
ræningjana fóru út um þúfur f
Tripóli. hótuðu þeir að sprengja
vélina í loft upp, ef þeir fengju
ekki að fara þaðan burt. Þá bauð
Dom Mintoff, forsætisráðherra
Möltu, að vélin yrði send þangað.
Þota þessi var á leið frá Beirut
til Tokío, þegar henni var rænt.
Ekki er vitað með vissu hvaða
samtökum skæruliðarnir tilheyra,
sennilega þó æskulýðssamtökum
nokkrum, en arabískar heimildir
herma frá Alsír, að rán þetta hafi
verið framkvæmt í því skyni, að
koma i veg fyrir leiðtogafund
Arabaríkjanna, sem hófst þai' í
dag. Er talið víst, áð skæruliðar
séu algerlega andvígir hvers
konar friðai'samningum við Israel
og vilji koma í veg fyrir. að slík
stefna verði ofan á i Alsír.
Fundur leiðtoga
Arabaríkja í Alsír
Alsir,26. nóv. AP—NTB.
LEIÐTOGAFUNDUR Arabaríkj-
anna hófst í Alsír í kvöld. Helzta
viðfangsefni fundarins er að
ákveða sameiginlega stefnu gagn-
vart israelum, og ákveða hvort
gengið skuli til friðarsamninga
við þá. Fvrirhugað var, að ráð-
stefnan >Tði sett fyrr í dag, en á
því varð frestur, bæði vegna
ágreinings um skipan dagskrár og
um það hver vera skyldi málsvari
Palestínu-Araba á fundinum.
Yasser Arafat, leiðtogi frelsis-
og skæruliðasamtaka Palestínu
Araba er kominn til Alsir og situr
fundinn sem málsvari Palestínu-
Araba með þeim afleiðingum, að
Ilussein, konungur Jórdaniu, sem
þar átti og ætlaði að vera, neitaði
að koma til fundarins. Hann
viðurkennir ekki þetta umboð
Arafats.
Houari Boumedienne, forseti
Alsir, setti fundinn i kvöld með
ræðu, þar sem hann sagði meðal
annars, að ísrael mundi aldrei
verða Arabaríkjunum sterkara,
því að Arabar hefðu réttlætið sín
megin og þá skorti ekki styrk. Það
vakti athygli á fundinum, að
skeyti, sem hafði borizt frá Sovét-
stjórninni var ekki lesið upp.
Verulegur ágreiningur er uppi
meðal Arabaríkjanna um stefn-
una gagnvart Israel svo og um það
hvernig beita beri olíunni sem
vopni í baráttunni við ísrael og-
stuðningsmenn þeirra. Meðal
þeirra, sem andvígir eru hinum
miklu oliutakmörkunum — svo
og vopnahléinu sem gert var í
októberlok — eru Lfbýa og Irak
og taka leiðtogar þeirra ekki þátt
í þessum fundi.
Andrei Sakharov og kona hans
Sovétstjórnin þjarmar
að andstæðingum sínum
Moskvu,26. nóv. NTB—AP
~] HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum í Moskvu, að dóm-
stóll f útjaðri borgarinnar hafi
kveðið upp þann úrskurð, að
fyrrverandi kennari í stærð-
fræði við háskólann í Moskvu,
Dr. Juri Shikanovits, skuli
fluttur á almennt geðveikra-
hæli á þeirri forsendu að hann
hafi ekki geðheilsu til að
gangast undir réttarhöld. Hann
hefur verið sakaður um and-
sovézka starfsemi og verið
haldið f varðhaldi í fjórtán
mánuði. Meðal þeirra, sem hafa
farið fram á, að honum verði
sleppt úr fangelsi gegn
tryggingu er kjarnorkufræðing
urinn Andrei Sakharov, sem
enn á í stríði við sovézk yfir-
völd. Þau hafa nú snúizt gegn
konu hans, sem skýrði frá því
sl. laugardag, að sovézka leyni-
þjónustan hefði hótað að kalla
hana fyrir rétt og stefna henni
fyrir andsovézka starfsemi.
Hún hefur fjórum sinnuin ver-
ið kölluð til yfirheyrslu hjá
KGB.
Þegar dómsúrskurður yfir
Dr. Juri Shikanovits var kveð-
inn upp í dag var hann hvergi
nærri — og verjandi hans.
Yelena Réznikova. kvartaði yfir
Framhald á bls. 31
KLM-þotan á
Möltu í nótt