Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÖVEMBER 1973
15
Willy Brandt og Pompidou
ræða olíu- og varnarmál
París, 26, nóv. AP-NTB.
George Pompidou, forseti
Frakklands og Willy Brandt,
kansiari Vestur-Þýzkalands, hófu
f dag tveggja daga viðræður sínar,
hinar þriðju á þessu ári. Helztu
umræðuefni þeirra verða olíu-
málin, samskipti Evrópu og
Bandaríkjanna og stefna Evrópu-
rfkjanna ! varnarmálum.
A fundi sfnum f dag urðu þeir
sammála um nauðsyn aukinnar
einingar aðildarrfkja Efnahags-
bandalags Evrópu og samræmdr-
ar lausnar á þeim vandamálum,
sem orkuskortur kynni að hafa í
för með sér.
Brandt lagði til, að ráðherra-
nefnd EBE tæki olíumálin til
meðferðar á næsta fundi sinum 3.
og 4. desember nk.; en haft er
eftir góðum heimildum, að þeir
Brandt og Pompidou hafi ekkert
um það talað, hvað gera skyidi til
hjálpar Hollendingum, sem
Arabaríkin settu olíusölubann á
eftir að Hollendingar höfðu lýst
stuðningi við Israelsmenn. Er
haft fyrir satt, að Brandt sé því
hlynntur, að EBE-ríkin sýni Ifol-
lendingum stuðning í verki en
Pompidou hafi á þvf lítinn áhuga.
Auk olíumálanna verður eitt
heizta viðfangsefni fundar þeirra
Brandts og Pompidou hvernig
efla megi stjórnmálasamvinnu
EBE-ríkjanna. Sömuleiðis er víst,
að þeir muni ræða varnarmál
Evrópu og afstöðu VesturEvrópu-
ríkja til Bandaríkjanna með hlið-
sjón af styrjöldinni í október og
afleiðingum hennar. Þá er haft
eftir frönskum embættismanni,
að þeir muni ræða hugmyndir
Frakka um sérstaka evrópska
skipulagsnefnd í varnarmálum
innan vébanda VesturEvrópu-
bandalagsins. Segja sömu heim-
ildir, að með því að hafa slíka
nefnd á þess vegum, verði Banda-
ríkin útilokuð frá starfi hennar.
Willy Brandt sé þess fýsandi, að
nefndin starfi innan vébanda
NATO en Frakkar séu þvf andvig-
ar, þar eð þeir taki ekki þátt í
varnarsamstarfi NATO ríkja. Er
fullvíst talið, að erfitt muni
reynast að samræma sjónarmið
Willy Brandts og Georges Pompi-
dous f þessum efnum.
Áskorun S.Þ.:
HJALPH) AFRIKU
RÍKJUM í NEYÐ!
15% minni olía til húsakynd-
inga í USA í framtíðinni
Washington, 26. nóvember, AP.
NIXON forseti boðaði f gærkvöldi
lokun bensínstöðva frá laugar-
dagskvöldum til niðnættis á
sunnudögum vegna olfuskortsins
og að dregið yrði úr olfusölu —
um 10% til iðjuvera, 15% til
hýsakyndinga og 25% til
verzlana.
Eidsneyti til þotna verður
minnkað um 5% frá 1. desember.
Alþjóðaflugfélög fá sama
eldsneytismagn og 1972, en 7.
janúar verður eldsneyti til ailra
flugfélaga minnkað um 15%.
Nixon sagði, að hann mundi
fyrirskipa 50 mílna hámarks-
hraða, en 55 mflna hámarkshraða
fyrir vöru- og hópferðabifreiðir,
sem eyða minn.a magni á þeim
hraða. Öþarfa ljósaskreytingar og
ljósaauglýsingar verða bannaðar.
Olíuskorturinn samsvarar um
17% neyzlunnar, en með þessum
ráðstöfunum verður dregið úr
neyzlunni um 10%. Væntanlegar
Friðarráðstefna
í Genf 18. des.?
Tel Aviv,26. nóv. AP
STJÓRN ísraels hefur birt til-
kynningu þess efnis, að hún
fallist f grundvallaratriðum á að
taka þátt í friðarráðstefnu, er
hefjist í Genf 18. desember, sam-
kvæmt tillögu Henrys Kissingers,
utanríkisráðherra Bandarfkj-
anna. Utanríkisráðherra Egypta-
lands, Ismail Fahmy, hefur
einnig lýst því yfir, að Egyptar
séu reiðubúnir til þátttöku og
báðir aðiiar staðhæfa, að þeir óski
friðsamlegrar iausnar deilumála
þeirra svo að þeir geti I ifað f friði.
Gert er ráð fyrir, að fulltrúar á
ráðstefnunni verði frá ísrael,
Egyptalandi, Jórdaníu, Sýrlandi,
Bandaríkjunum og Sovétríkjun-
um, auk þess sem Kurt Wald-
heim, framkvæmdastjöri Sam-
einuðu þjóðanna, sitji fundi sem
áheyrnarfulltrúi.
Samkvæmt áætlun Kissingers,
sem Abba Eban, utanríkisráð-
herra Isr’ael mun hafa haft heim
með sér frá Bandaríkjunum, er
gert ráð fyrir, að ráðstefnan verði
sett 18. des. en fundum síðan
frestað fram yfir þingkosningarn-
ar í ísrael, sem fram eiga að fara
31. desember.
AP hefur eftir egypzkum em-
bættismanni f Alsír í dag, að þessi
yfirlýsing ísraelsstjórnar, þar
sem hún fellst á ráðstefnuna, hafi
verið gefin út á sunnudag í því
skyni að skapa úlfúð í dagí Alsír.
Agreiningur er sagður veruleg-
ur meðal þeirra um hvort þeir
eigi að ganga til friðarsamninga
við Israel. Sömuleiðis sýnast
forystumenn ísraels ekki á eitt
sáttir um það, hvort vænta megi
árangurs af friðarráðstefnunni.
Moshe Dayan, landvarnaráðherra
hefur lýst því yfir, að engin von
sé um varanlegan frið, þvf að
Arabar vilji ekki frið. Golda Meir
hefur hins vegar látið í ljós meiri
bjartsýni en jafnframt tekið
fram, að ekki komi til greina að
fela erlendum aðilum að tryggja
Framhald á bls. 31
eru fleiri ráðstafanir til að brúa
þetta bil.
Ilúseigendur verða beðnir að
lækka hjá sér hitann úr 23,3
gráðum á celsíus f 20°.
DANIR HEIMA
1 Danmörku var sunnudags-
akstur bannaður í fyrsta skipti f
manna minnum í gær. Alls voru
17 ökumenn teknir fyrir að brjóta
bannið. Miklu minna var beðið
um leigubíla en búizt var við.
1 þremur öðrum Evrópulöndum
var sunnudagsakstur bannaður í
fyrsta skipti: Sviss, Luxemburg
og Vestur-Þýzkalandi.
Ökumenn í Ilollandi og Belgíu
þekktu bannið frá fyrri helgum,
og ítalía bætist í hópinn um
næstu helgi.
1 Sviss braut enginn bannið, í
Luxemborg þrjátíu. 1 Vestur-
Þýzkalandi fjölgaði lítið far-
þegum með járnbrautum og
strætisvögnum.
I Noregi var bensínsala bönnuð
f gær ög bílaumferð var með
minna móti. Flugfélagið SAS
ætlar að minnka eldsneytiseyðslu
Framhald á bls. 31
Sameinuðu þjóðunum, AP.
Kurt Waldheim framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna hefur
farið þess á leit við aðildarrfki
samtakanna, að þau leggi fram
um 30 milljónir dollara og
520.000 lestir af matvælum til
þess að bjarga frá hungursneyð
íbúum á þurrkasvæðum í Afríku-
rfkjunum Chad, Mali, Mauri-
8 bréfsprengjur
til Israels
Frankfurt, AP.
Átta bréfsprengjur voru póst-
lagðar f ýmsum pósthúsum í
Frankfurt sl. föstudag og áttu öll
bréfin að fara til Israels. Tvær
sprengjanna sprungu á laugar-
dagsmorgun í pósthúsunum, þar
sem unnið var að greiningu bréfa
og særðust þá tveir póstmenn.
taniu, Niger, Senegal og Efri-
Volta. Af þessu magni matvæla
þurfa um 70.000 lestir að vera
sérstök ungbarnafæða, fæða
handa konum, sem nýlega hafa
alið börn og hala þau á brjósti og
sérfæða handa gamalmennum.
Yfirmaður FAO, Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar S.Þ.,
stendur að þessari áskorun ásamt
Waidheim cg var hún send frá
aðalstöðvum FAO i Rómaborg.
Þar segir, að skýrslur þeirra, sem
kannað hafi ástandið á þurrka-
svæðunum, sýni, að halda verði
áfram að veita íbúum þar aðstoð
út árið 1974, þvi jafnvel þótt rigni
svo, að eðlileg uppskera fáist á
næsta ári muni hún ekki duga til
að fæða fbúa þessara landsvæða.
Volvo hækkar
G AUTABORG (NTB) — Volvo-
bifreiðar munu hækka í verði á
næstunni vegna oliukreppunnar.
Hækkandi verð á olíu hefur
leitt til þess, að verð á plasti hefur
tvöfaldazt, verð á zinki hefur
hækkað um 325% og verðá kopar
um 100%.
Ákveðið verður í lok næsta
mánaðar, hve mikil hækkun verð-
ur og hvenær hún kemur til fram-
kvæmda.
Kennedy
langefstur
Washington, 26. nóvember, NTB.
EDW'ARD Kennedy kemur sem
fyrr langhelzt til greina sem
forseta efni demókrata 1976.
Samkvæmt síðustu skoðana-
könnun Gallups styður 41%
Kennedy, 15% George Wallace
frá Alabama, en færri styðja
Edmund Muskie, George
MacGovern og Ilenry Jackson frá
Washington-ríki.
Edward Kennedy hefur sagt, að
hann ákveði ekki, hvort hann gef-
ur kost á sér fyrr en eftir þing-
kosningarnar 1974.
Svíar reiðast ofbeldi við
sendiherra og flóttakonu
Stokkhólmi, 26. nóvember.
AP.NTB.
UTANRÍ KISR AÐHERRA
Svía, Sven Andersson, fól f dag
Harald Edelstam sendiherra að
afhenda Chilestjórn opinber
mótmæli vegna meðferðarinn-
ar, sem Edelstam og aðrir
sænskir sendiráðsmenn fengu
þegar þeir reyndu að halda
verndarhendi yfir veikri konu
frá Uruguay, sem hermenn
reyndu að fjarlægja af sjúkra-
húsi.
í motmælaorðsendingunni er
lýst viðurstyggð á því, að kona,
sem hafði nýlega gengizt undir
uþpskurð og læknar höfðu ráð-
lagt að hvílast, var fjarlægð af
sjúkrahúsinu og sagt, að það
líkamlega ofbeldi, sem var sýnt
sænska sendiherranum og
sænskum sendiráðsmönnum
brjóti í bága undirstöðureglur
umfriðhelgi diplómata.
Enn fremur segir, að afskipti
hermannanna af konunni hafi
verið svik við loforð, sem opin-
berir sænskir fulltrúar hafi
fengið hjá réttum yfirvöldum
og þeir hafi treyst. Þess er
krafizt, að konan, ungfrú
Alonet Freiria, fái þegar I stað
að snúa aftur til sænska sendi-
ráðsins enda njóti hún verndar
þess. „Sendiráðið mótmælir
því, sem gerðist og krefst þess,
að Chile-stjórn geri ráðstafanir
til þess að koma í veg fyrir að
svipuð afskipti endurtaki sig,“
segir í orðsendingunni.
Edelstam var tvisvar sleginn
niður og neglur voru tættar af
honum þegar hann nghélt í
sjúkrarúm konunnar. Þegar
hann lá í gólfinu klemmdi hann
fótunum i hjólin og hann er
með kúlu eftir auk annarra
áverka. Lögreglumönnunum
tókst ekki að yfirbuga sendi-
ráðsmennina. Starfsmaður
flóttamannanefndar Sam-
einuðu þjóðanna tók einnig
þátt í áflogunum.
Konan er pólitískur flótta-
maður frá landi sínu og hefur
búið í kúbanska sendiráðinu
ásamt um 20 samlöndum. Edel-
stam sendiherra hefur gætt
hagsmuna Kúbu í Chile síðan
starfsmönnum kúbanska sendi-
ráðsins var vísað úr landi.
Konan veiktist alvarlega í
gær og varð að komast á sjúkra-
hús. Edelstam bað um að hún
fengi óáreitt að leggjast f
sjúkrahúsið, en þegar þangað
kom tóku lögregla og hermenn
á móti þeim. Til öryggis var
franski sendiherrann, Pierre
de Mendhon, meðí förinni.
Lögreglumönnum tókst ekki
að fjarlægja konuna þótt þeir
kölluðu á liðsauka. Þegar Edel-
stam hafði vérið sleginn niður
öðru sinni bað lögreglan yfir-
mann herlögreglunnar um
hjálp.
Á meðan fengu sendiherrarn-
ir af tur loforð um að konan yrði
látin óáreitt, og að hún fengi að
fara aftur til kúbanska sendi-
ráðsins.
En þegar sendiherrarnir
komu út úr sjúkrahúsinu um-
kringdu þá hermenn vopnaðir
vélbyssum. Nokkrir sænskir
sendiráðsmenn reyndu að veita
viðnám en voru yfirbugaðir og
konan var flutt burtu, en var
róleg.
„Við höfum þungar áhyggjur
af þvi hvað verður um hana,“
sagði Edelstam sendiherra.
Seinna vísaði utanríkisráðu-
neyti Chile mótmælum sænsku
stjórnarinnar á bug og sagði að
Edelstam hefði ekki útvegað
sér nauðsynleg skilríki til þess
að flytja sjúku konuna f sjúkra-
húsið. Talsmaður ráðunejdisins
sagði að ráðuneytið hefði
ekkert heyrt um málið fyrr en
það fékk skýrslu um það frá
sendifulltrúa Chile i Stokk-
hólmi.
Fullyrðing stendur gegn full-
yrðingu því Edelstam segir að
hann hafi fengið nauðsynlegt
leyfi hjá utanríkisráðuneytinu
en lögreglan og hermenn neitað
aðtaka það gilt.