Morgunblaðið - 27.11.1973, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1973
Fa
/1 «//, i >
4 FUR?
22*0*22*
RAUÐARÁRSTIG 31
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
tel 14444 * 25555
W
BlLALEIGA CAR RENTALI
/p* BÍLALEIGAN
felEYSIR
CAR RENTAL
■ap24460
í HVERJUM BÍL
PIO NEER
ÚTVARP OG STEREO
KASSETTUTÆKI
■
OM-MHTM.-
Hvcrfisgöfu 18
86060
MARGT SMÁTT
GERIR EITT ST
$ SAMVINNUBANKINN
FERÐABÍLAR HF.
Bilaleiga. - Simi 81260.
Fimm manna Citroen G S stat-
ion Fimm manna Citroen G.S.
8—22 manna Mercedes Benz
hópfnrðabilar (m. bilstjórum).
HQPFERÐIR
Til leigu í lengri og
skemmri ferðir 8—50 far-
þega bílar.
KJARTAN
INGIMARSSON.
sími 861 55 og 32716.
“SKODA EYÐIR MINNA.
Shod n
LfíOAH
AUÐBREKKU 44-46.
SfMI 42600.
Knútur Bruun hdl.
Lögmamuslcrifjtofo
Grcttisgötu 8 II. h.
Sími 24940.
Lagning hitaveitu
ÞAÐ er engin nýlunda að heyra
Magnús Kjartansson iðnaðar-
ráðherra gera sig breiðan fyrir
framan alþjóð, en framkoma
hans i sambandi við beiðni
Reykjavíkurborgar umhækkun
á gjaldskrá fyrir Hitaveitu
Reykjavíkur vekur hina mestu
furðu.
Forsaga málsins er sú, að
Reykjavíkurborg hefur gyrt
samninga við nágrannasveitar-
félögin f Kúpavogi og Hafnar-
firði um, að Hitaveita Reykja-
víkur sjái um framkvæmdir við
lagningu dreifikerfis hitaveitu
á þessum stöðum. Einnig munu
standa fyrir dyrum sams konar
samningar við sveitarstjórn
Garðahrepps. f þessum
samningum hefur það verið
tekið fram, að Hitaveita
Reykjavíkur geri fyrirvara um
framkvæmdahraða við þessar
framkvæmdir, ef arðsemi af
fyrirtækinu nær ekki 7% á ári
miðað við hreina eign í árs-
byrjun. Fyrirvari þessi er
þannig til kominn, að Alþjóða-
bankinn setti það skilyrði fyrir
lánveitingum til framkvæmda
Hitaveitu Reykjavfkur, að
fyrirtækið skilaði þessum arði.
Samningarnir við Alþjóða-
bankann eru gerðir af rfkinu,
sem sfðan hefur endurlán-
að Hitaveitunni þetta fé.
Þetta er sá fjárhagslegi
grundvöllur, sem Hitaveita
Reykjavíkur byggir á, þegar
hún ákveður umsvif sfn, enda
nauðsynlegt, þvf að nýjar lán-
tökur með sömu skilmálum eru
henni nauðsynlegar vegna
framkvæmda við aukna
virkjun á heitu vatr.i og til að
leggja dreifikerfi, hvort sem
það er f ný hverfi f Reykjavík
eða f Kópavog, Garðahrepp og
Hafnarfjörð.
Það er svo á hinn bóginn
hverjum manni ljóst, að Hita-
veitan verður að fá hækkanir á
gjaldskrá sinni til samræmis
við verðbólguna til að henni sé
unnt að uppfylla þetta skilyrði.
Hér er engan veginn um það að
ræða, að fbúar Reykjavíkur-
borgar greiði að neinu leyti
framkvæmdirnar við lagningu
dreifikerfisins I nágranna-
sveitarfélögin, heldur er 7%
arðsemi af rekstri fyrirtækis-
ins skilyrði fyrir frekari lánum
veitunnar, sem nauðsynleg eru
til að fjármagna þessar fram-
kvæmdir.
Óvinveitt ríkisstjórn
Sú rfkisstjórn, sem nú situr
að völdum, er afar óvinveitt
Reykjavíkurborg og neytir allra
tækifæra til að gera rekstur
borgarinnar sem erfiðastan.
Þannig hefur rfkisstjórnin
hvað eftir annað dregið úr
hömlu að afgreiða beiðnir
borgaryfirvalda um gjaldskrár-
hækkanir fyrirtækja sinna og
loksins fallizt á alls ófull-
nægjandi hækkanir, þrátt fyrir
að þessar beiðnir hafi undan-
tekningalaust verið vel rök-
studdar og svo f hóf stillt að
gera hefur þurft á þeim
breytingar á þeim tfma, sem
rfkisstjórnin hefur haft þær til
meðferðar. Synjanir ríkis-
stjórnarinnar hafa verið rök-
studdar með þvf, að ekki mætti
auka verðbólguna. Þessar rök-
semdafærslur dæma sig auð-
vitað sjálfar, þvf að það eru
ekki borgaryfirvöld í Reykja-
vfk, sem stjórna þróun efna-
hagsmála hér I þessu landi,
heldur rfkisstjðrnin. Þörfin á
hækkunum gjaldskránna hefur
auðvitað stafað af þeirri
geigvænlegM verðbólguþróun,
sem þessi ríkisstjórn ber
ábyrgðá.
1 ágúst sl. sumar óskaði
Reykjavíkurborg eftir 12%
gjaldskrárhækkun fyrir hifa-
veituna og var þessi beiðni við
það miðuð, að unnt reyndist að
standa við framangreinda skil-
mála við Alþjóðabankann.
Rfkisstjórnin afgreiddi þessa
beiðni f byrjun nóvember og þá
auðvitað á hinn dæmigerða hátt
— beiðninni var synjað. Þá
kom það upp úr kafinu, að ekki
var einungis verið að níðast á
hagsmunum Reykjavfkur-
borgar, heldur höfðu fleiri
sveitarfélög hagsmuni af þvf,
að orðið yrði við beiðninni. Þá
er málið tekið upp aftur og
beiðnin samþykkt, þótt að vfsu
svo seint sé, að verðbólga rfkis-
stjórnarinnar krefjist enn
frekari hækkana nú þegar.
Við þessa afgreiðslu málsins
leyfir svo Magnús Kjartansson
sér að vera með heitingar út f
Hitaveitu Reykjavíkur, það
fyrirtæki, sem f óþökk hans
hefur verið brautryðjandi í
stórfelldri nýtingu jarðvarma
til húsahitunar. Þetta fyrirtæki
hefur verið vel rekið og staðið
við sfnar skuldbindingar, nema
kannski, þegar það hefur þurft
að vera upp á þröngsýn sjónar-
mið Magnúsar Kjartanssonar
og samráðherra hans komið.
Þessi ráðherra ætti að
skammast sfn og afgreiða
málefni fyrirtækja Reykja-
víkurborgar hljóðalaust í fram-
tfðinni.
Hvers vegna gerðist
ísland aðili að
Atlantshafs-
bandalaginu?
BJARNI BENEDIKTSSON var
utanríkisráðherra Islands 1949
og undirritaði hann
Atlantshafssáttmálann. í
viðtali við Morgunblaðið 3.
apríl 1969 rifjaði hann upp
aðdragandann að aðild íslands
og sagði: „Segja má, að legið
hafi í loftinu um veturinn, að
íslandi yrði boðin þátttaka í
þessu samstarfi og þess vegna
m.a. kynntu menn sér viðhorf
forystumanna i nágrannalönd-
unum, Danmörku, Noregi og
Englandi. Þær fregnir, sem við
fengum frá þessum löndum
urðu til þess að glæða áhuga
okkar á málinu. Ég tel, að þátt-
taka Dana og Norðmanna hafi
haft mikla þýðingu fyrir
skoðanamyndun hér á landi. Ef
þessi lönd hefðu ekki gerzt
aðilar að Atlantshafsbanda-
laginu, er næstum því víst, að
við hefðum ekki gert það
heldur. Má segja, að afstaða
Norðmanna hafi haft Urslita-
áhrif á það, aðviðtækjumþáttí
þessu samstarfi. Margir voru í
fyrstu hikandi. Innan
flokkanna fóru fram mjög ítar-
legar umræður. I þingflokki
sjálfstæðismanna urðu allir
sammála, en misjafnlega
áhugasamir eins og gengur. Um
sjálfan mig get ég sagt, að ég
hafi fylgzt mjög náið með
öryggismálunum allt frá upp-
hafi, því að ég tók þátt í undir-
búningi þeirrar ákvörðunar um
skipan mála, er tekin var hér
strax eftir hernám Danmerkur.
Þá vonuðum við, að sú
ákvörðun, sem tekin var 10.
apríl 1940, yrði til þess að
tryggja hlutleysi íslands. Það
reyndust þó algjörar falsvonir,
þvf að Bretar hemámu landið
rétt um mánuði síðar, eins og
allir vita. Því hernámi var að
vísu mótmælt, en mótmælin
voru með öllu þýðingarlaus.
Rúmu ári síðar var gerður her-
verndarsamningur við Banda-
ríkin. Sá samningur var gerður
af mikilli skynding, en með
honum má segja, að nýtt tíma-
bil hefjist í afstöðu íslendinga
til annarra landa, þvf að
samningurinn sýndi, að
vaknaður var skilningur á
nauðsyn þess að tryggja öryggi
landsins með virkum ákvörðun-
um. Menn höfðu áttað sig á, að
hjáseta ein og tómar yfir-
lýsingar um hlutleysi stoðuðu
lítið. Eftir styrjöldina var það
von manna, að stofnun
Sameinuðu þjóðanna og aðild
okkar að þeim mundi veita okk-
ur nægilega tryggingu, en
atburðarásin sýndi, að svo var
ekki. i*íeð öllum þessum atburð
um hafði ég fylgzt ná-
ið og tekið meiri og
minni þátt í undir-
búningi þeirra ákvarðana sém
teknar voru. A mig hafði það
ennfremur mikil áhrif, að ég
var þátttakandi i fundi utan-
ríkisráðherra Norðurlanda,
þegar endanlega slitnaði upp
úr samningaviðræðum um
stofnun norræns vamarbanda-
lags, og kynntist af eigin raun
þvf hugarfari, sem þar rikti. Þá
var ég einnig staddur í Osló um
það leyti, sem kommúnistar
frömdu valdaránið í Tékkó-
slóvakíu 1948, og átti þá ítarlegt
samtal við þáverandi sendi-
herra Tékkóslóvakíu í Noregi
og á Islandi Emil Walter, sem
vel var að sér í íslenzkum forn-
bókmenntum og þýddi sumt af
þeim á móðurmál sitt. Ég hef
aldrei séð mann í meiri sálar-
neyð en hann, þegar hann
skýrði okkur frá atburðunum I
heimalandi sinu. Þvílík atvik
ráða auðvitað ekki úrslitum, en
þvf er ekki að neita, að þetta
samtal hafði djúp áhrif á mig.“
Bridgesamband íslands hefur
ákveðið, í samráði við Flugfélag
Islands, að beita sér fyrir 3ja
vikna hópferð til Kánaríeyja, 2r24
maí n.k., en á þeim tíma fer þar
fram Olympíumót f eftirtöldum
bridgegreinum:
A 5.-6 mai: Tvenndarkeppni í
tvímenning. Otakmörkuð þátt-
taka.
B 7.-11 maí: Tvennarsveitar-
keppni. Þátttaka tilk. af B.S.Í.
' C 12.-7 mai: Kvennakeppni í tví-
menning. Þátttaka tilk. af B.S.Í.
D 12.-17. maí Opinn flokkur í tví
menning. Þátttaka tilk. af B.S.Í.
ESns og sjá má á ofantöldu er
öllum heimil þatttaka í tvenndar-
tvímenningskeppninni (karla og
kona) en styrkleiki spilara þar er
mjög misjafn, þó að þar spili
venjulega margir af beztu spilur-
um heims, karlar og konur. Þátt-
töku í öðrum greinum ákveður
B.S.I.
Hér er því kjörið tækifæri fyrir
bridge-áhugafólk að fá sér smá-
forskot á sumarí, spila urn leið
svolítið bridge, á alþjóðlegum
vettvangi eða við samferðafólkið,
horfa á bridge, eða einfaldlega
njóta sjávar og sólskins í félags-
skap fólks meðsvipuð áhugamál.
Með samningum við Flugfélag
íslands getur B.S.Í. boðið upp á
mjög hagstætt verð, sem eru mis-
munandi eftir gististað, frá
23.300, — kr. á mann fyrir ferðir,
gistingu (í 2ja manna herbergi)
og morgunverð.
Kanaríferðir F.í. hafa notið
mikilla vinsælda undanfarin ár
og eftirspurn farið vaxandi. Því
er rétt að panta tímanlega. Allar
upplýsingar um verð, gististaði,
spilamennsku o.fl. gefur:
Karla Sigurhjartarson
Flugfélagi íslands, sími: 16600
Reykjavík.
Einnig má fá upplýsingar hjá
umboðsmönnum F.í. um land allt.
leik. (Bridgefélagi Hafnarfjarð-
ar)
Norður
S. 10-8-5-3
H.6
T. 10-7-5-4-3
á þvf að taka fyrsta slaginn heima
á laufaás. Síðan spilaði hann
hjartanu í botn og heriti 3 spöðum
og tveim tíglum úr borði. Vestur
henti einum tígli og tveimur spöð-
L. K-D-9 suður tígul ás og litlu laufi spilað
Vestur Austur á laufa kónginn. Þegar hér er
S. A-D-6-4 S. 9-6-2 komið við sögu, líta spilin þannig
H.4-2 H. 10-8-7-3 út:
T. D-9-8-2 T. 6 N. A. S. V.
L. 7-6-3 L. G-10-8-5-2
Suður S. 10 s. 9 S. K-7 s- A-D
S. K-7 H. — II. — II.— H —
H. A-K-D-G-9-5 T. 10-7 T. — T. K-G T. D-9
T. A-K-G L. D L. G-8-5 L. — L. —
L. A-4 Eftir að suður hafði opnað á Laufa drottningunni er næst
☆ ☆ ☆
Eftirfarandi spil kom fyrir í
leik fyrir skömmu milli sveita
Sævars og Kristjáns í síðari hálf-
alkröfu 2 lauf og spurt um hjarta-
lengd norðurs endaði suður, Ámi
Þorvaldsson, í 6 gröndum. Fyrsta
vandamál vesturs var að finna
gott útspil, og hann var heppinn
með það — hann spilaði út laufa
sexi, en þar með er ekki öll sagan
sögð. í fljótu bragði virðist suður
ekki komast hjá því að gefa einn
slag á tfgul og einn á spaða. En
suður spilaði spilið vel og byrjaði
’t'* ojui:
Vestur er nú kominn í óverjandi
kastþröng, sem suður nýtti sér á
skemmtilegan hátt. Ef vestur
hendir spaðadrottningunni, þá
spilar suður vestri inn á spaða ás
og vestur verður að spila tígli upp
í gosa — kóng suðurs. A hinu
borðinu voru einnig spiluð 6
grönd, en þar fann sagnhafi ekki
réttu vinningsleiðina.