Morgunblaðið - 27.11.1973, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1973
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf, Árvakur, Reykjavlk.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sími 10-100.
Aðalstræti 6, sími 22-4-80.
Áskriftargjald 360,00 krá mánuði innanlands.
i lausasölu 22, 00 kr. eintakið
hannesson um „undan-
slátt“ í landhelgismálinu
og um varnarmálaviðræð-
urnar segir í fréttabréfinu:
„Á sama tíma ákvað Einar
Ágústsson að vera einn
með sína embættismenn í
viðræðum við Bandaríkja-
menn um brottför hersins,
þrátt fyrir loforð um, að
allir flokkar ríkisstjómar-
innar skyldu eiga þar full-
trúa.“
Jafnframt því, sem
trúnaðarmenn kommún-
ista fá með þessum hætti
SVIKSEMIKOMMÚNISTA
Fyrirsjáanlegt var,
þegar Alþýðubanda-
lagsmenn voru auðmýktir
og gerðir að athlægi í aug-
um alþjóðar með samning-
unum við Breta um
landhelgismálið, að þeir
mundu bregðast við á þann
hátt, að vega aftan að sam-
starfsmönnum sínum í
ríkisstjórninni.
Áhrifamaður í stjómar-
liðinu, sem vel þekkir til
vinnubragða kommúnista
komst svo að orði, er land-
helgissamningamir höfðu
verið gerðir, að nú mundi
hefjast nýr kafli í sögu
þessarar vinstri stjómar,
og ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins yrðu sýnu erfiðari
viðureignar en hingað til
og myndu engu eira.
Þessir spádómar um
starfsaðferðir kommúnista
eru nú að koma fram. í
fyrradag birti Morgun-
blaðið glefsur úr frétta-
bréfi, sem framkvæmda-
stjórn Alþýðubandalagsins
hefur sent trúnaðarmönn-
um kommúnista, þar sem
m.a. er fjallað um síðustu
atburði í landhelgismálum
og vamarmálum og Ólafur
Jóhannesson forsætisráð-
herra sakaður um undan-
slátt í landhelgismálinu og
Einar Ágústsson um svik í
vamarmálum. í frétta-
bréfinu kemur þannig
fram, að í ræðu, sem Lúð-
vík Jósepsson sjávar-
útvegsráðherra flutti á
flokksráðsfundi kommún-
ista, sakaði hann Ólaf Jd-
fyrirmæli um að bera út
þann áburð, aðforsætisráð-
herra hafi gerzt sekur um
undanslátt í landhelgis-
málinu og utanríkisráð-
herra svikið gefin loforð í
varnarmálunum hóf Þjóð-
viljinn skipulagsbundna
herferð gegn Magnúsi
Torfa Ólafssyni mennta-
málaráðherra fyrir nokkr-
um vikum, þar sem
menntamálaráðherra er
sakaður um pólitíska mis-
beitingu embættisvalds
síns við veitingu embættis
við Háskóla íslands. Er
bersýnilegt, að með þessari
herferð gegn menntamála-
ráðherra vilja kommúnist-
ar reyna að afla sér fylgis
meðal vinstri sinnaðra
menntamanna, sem hafa
hallazt aðSamtökum frjáls-
lyndra og vinstri manna,
en kommúnistar hafa nú
von um aðnáyfir til sín.
Þessi þrjú dæmi, sem hér
hafa veriðnefnd um vinnu-
brögð Alþýðubandalagsins
gagnvart samstarfs-
flokkunum tveimur i ríkis-
stjórn, eru áreiðanlega
aðeins forsmekkurinn að
því, sem koma skal. Með
þessum hætti mun Alþýðu-
bandalagið sitja áfram í
ríkisstjórninni; halda
völdunum, en vega stöðugt
aftan að samstarfsflokkum
og samstarfsmönnum í
rfkisstjórninni. Fróðlegt
verður að sjá, hve lengi
ráðherrar Framsóknar-
flokksins og SFV hafa geð í
sér til að sitja undir slíkum
árásum.
Bindindisdagurinn
Hinn árlegi bindindis-
dagur Landsambands
gegn áfengisböli var í
fyrradag. Landsambandið
er ekki byggt upp sem
bindindissamtök, enda
hafa mörg aðildarfélög
þess ekki bindindi á stefnu-
skrá sinni, þótt þau sjái það
mikla böl, sem áfengis-
neyzlan veldur, og vilji
leggja landsambandinu lið
af heilum hug.
Engum dylst, að ofneyzla
áfengis meðal íslenzku
þjóðarinnar veldur miklu
böli. Oft hefur reynzt erfitt
að taka á þeim málum á
þann veg, að verulegur
árangur yrði til úrbóta.
Hins vegar er enginn vafi á
því, að ýmis félagasamtök
og einstaklingar hafa
unnið mikið og fórnfúst
starf, sem miklu hefur
bjargað, þótt enn sígi mjög
á ógæfuhlið. Fer ekki hjá
því, að stjórnvöld verði að
gera hug sinn upp í því
efni, hvemig taka skuli á
þessum málum og þá ekki
eingöngu, hvað snertir þá,
sem sjúkir eru orðnir,
heldur ekki síður, hvemig
hægt er að koma i veg
fyrir, að fólk verði sjúk-
lingar eða afbrotafólk
vegna áfengisneyzlu. í
þessum efnum getur verið
gott fyrir stjórnvöld að
hlusta á ráð þeirra manna,
sem mesta reynslu og
þekkingu hafa í því efni að
koma í veg fyrir áfengis-
neyzlu og beita í því sam-
bandi öllum tiltækum ráð-
um. Tjón af völdum
áfengisneyzlu er gífurlegt
og verður ekki í tölum talið
auk þeirra þjáninga, sem
fjölmargir aðstandendur
hins ógæfusama fólks
verða aðlíða.
Auður Auðuns
formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna
SUNNUDAGINN 18. nóvember
var haldið í Reykjavík fjórða
þing Landssambands sjálfstæð-
iskvenna. 1 sambandinu eru nú
18 félög með hátt á þriðja þús-
und félagskvenna.
A þinginu fór fram stjórnar-
kjör. Þrjár konur úr fráfarandi
stjórn gáfu ekki kost á sér til
endurkjörs, þær Ragnheiður
Guðmundsdóttir læknir, sem
var formaður, Elin Jósefsdóttir
og Jakobína Mathiesen.
Auður Auðuns, fyrrv. ráð-
herra, var kjörin formaður
sambandsins, en stjórnin er
þannig skipuð að öðru leyti:
Sigurlaug Bjarnadóttir,
Reykjavík, varaformaður, Ólöf
Benediktsdóttir, Reykjavfk, rit-
ari og Helga Guðmundsdóttir,
Hafnarfirði, gjaldkeri, en með-
stjórnendur eru: Freyja Jóns-
dóttir, Akureyri, Geirþrúður H.
Bernhöft, Reykjavík, Ingibjörg
Johnsen, Vestmannaeyjum,
Kristjana Ágústsdóttir, Búðar-
dal, Margrét Einarsdóttir,
Reykjavík, María Haraldsdótt-
ir, Bolungarvík, Ragnheiður
Þórðardóttir, Akranesi, Sess-
elja Magnúsdóttir, Keflavík,
Svava Kjartansdóttir, Selfossi
og Sigríður Gísiadóttir, Kópa-
vogi.
Auk venjulegra þingstarfa
var rætt um verkaskiptingu
milli rikis og sveitarfélaga, og
fluttu framsöguerindi um það
efni Birgir Isl. Gunnarsson
borgarstjóri, dr. Gunnar
Thoroddsen alþingismaður,
Páll Líndal formaður Sam-
bands íslenzkra sveitarfélaga
og Salóme Þorkelsdóttir, sem
sæti á í hreppsnefnd Mosfells-
hrepps.
1 málflutningi frummælenda
og umræðum á fundinum kom
m.a. fram, að skert athafna-
frelsi sveitarfélaga hamlar nú
mjög eðlilegum framkvæmdum
á vegum þeirra. Rætt var um
ójafna aðstöðu með tilliti til bú-
setu í strjálbýli og það, sem til
úrbóta gæti orðið i því efni.
Gagnrýni kom fram á stefnu
ríkisstjórnarinnar í dagvist-
unarmálum, og var i því sam-
Auður Auðuns
bandi vakin athygli á gefnum
loforðum ríkisstjórnarinnar og
vanefndum á þeim.
Á þinginu var samþykkt að
vekja athygli á eftirfarandi:
Varnarmál
Þing Landssambands sjálf-
stæðiskvenna haldið f
Reykjavík 18. nóvember
1973 telur:
1. Að engan veginn horfi svo
friðvænlega í heiminum
í dag, að réttlætanlegt
væri að stofna öryggi og
fullveldi þjóðarinnar í þá
hættu, sem varnarleysi
og einangrun myndi fela
f sér.
2. Landsþingið varar við
þeim öfgafullu og
ábyrgðarlausu öflum inn-
an núverandi rfkisstjórn-
ar, sem vilja slfta sam-
bandi okkar og samvinnu
við varnarbandalag vest-
rænna rfkja og hafa land-
ið varnarlaust. Engu að
sfður telur landsþingið
eðlilegt og sjálfsagt, að
endurskoðun fari fram á
varnarsamningi við
Bandaríkin.
3. Landsþingið skorar á fs-
lenzku þjóðina alla að
fhuga vandlega þetta al-
vörumál, sem varðar
öryggi hennar og sjálf-
stæði f nútfð og framtíð.
Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
ÞING Lnadssambands sjálf-
stæðiskvenna, haldið í
Reykjavík 18. nóvember,
leggur áherzlu á, að sveitar-
félögum sé gert kleift að búa
svo að íbúum sínum og upp-
eldi ungu kynslóðarinnar, að
fólk uni í heimabyggðum.
Telur þingið, að því verði
sveitarfélögum aukin verk-
efni í hendur frá ríkinu.
Þá telur þingið, að mikil-
vægt sé, að frumkvæði,
framkvæmd og fjárhagsleg
ábyrgð sé hjá sama aðila og
að sveitarfélögum verði séð
fyrir nægilegu fjármagni til
að sinna sínum verkefnum.
bezt borgið með auknu sjálf-
stæði pg forræði sveitar-
félaganna á ýmsum sviðum,
þ.á m. í fræðslumálum.
Þingið telur, að við skipt-
ingu verkefna milli ríkis og
sveitarfélaga, sem nefnd
vinnur nú að endurskoðun á,
beri að stefna að því að færa