Morgunblaðið - 27.11.1973, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÖVEMBER 1973
31
— Engar sölur
Framhald af bls. 32
hlakka til þess að taka á móti
íslenzkum fiskiskipum á ný í
Grimsby. Verðið í næstu viku ætti
að verða mjög gott, því þá eru fá
skip væntanleg og flest með lftinn
afla. Verð á þorski hefur farið
upp í 78 kr. kílóið og ýsukilóið
hefur verið selt á kr. 83. Enn
hærra verð fæst fyrir kola, en
mjög lítið framboð hefur verið af
honum síðustu vikurnar.
Ef fiskurinn, sem íslenzku
skipin koma með, verður góður,
sagði Jón, þá þarf ekki að kvarta
undan verðinu.
Bátarnir, sem áttu að selja í
Grimsby í dag, á morgun og á
föstudaginn, eru Freyr KE, Sæ-
unn VE og Arsæll Sigurðsson GK.
Þeir munu ianda í Ostende á
morgun og á fimmtudaginn.
— Borgarstjórn
Framhald af bls. 19
ir til þess að taka að
sér störf, sem þessi. En allt
þetta mál fléttaðist þó inn í lögin
um sálfræðiþjönustu f skólum og
samninga við ríkið um hlutdeild
þessf kostnaði þjónustunnar.
Tillögu Markúsar Arnar var að
lokum vísað til fræðsluráðs með 8
atkvæðum gegn 6.
—Friðarráð-
stefna
Framhald af bls. 15
öryggi Israels, né verði við unað,
að landamæri ísraels verði miðuð
við þau, sem giltu fyrir 1967.
Ekki er vitað hvort forystu-
menn Palestfnu-Araba taka þátt f
f riðarráðstefnunni. Talið er víst,
að Sovétstjórnin sé þvf mjög
fylgjandi og haft fyrir satt, að
hún hafi heitið Yasser Arafat,
leiðtoga frelsis- og skæruliðasam-
taka Araba fullum stuðningi, ef
hann samþykki að taka þátt í ráð-
stefnunni.
Blaðið „An Nahar“ í Beirut f
Libanon segir frá þessu í dag og
því með, að Arafat hafi fengið
þessa stuðningsyfirlýsingu frá
æðstu mönnum í Moskvu eftir 20
klst. samningaviðræður. Arafat er
nú kominn til Alsír.
— Olíumál USA
Framhald af bls. 15
um 5 — 10% og fækka millilanda-
ferðum.
í Vestur-Berlín kveiktu Í.OOO
unglingar varðeld á aðalgötunni
til að fagna banninu og dönsuðu í
kringum hann. Umferð til borgar-
innar lagðist að mestu niður.
Lfkast var að Rússar hefðu aftur
komið á samgöngubanni.
ARABAR A FERÐ
Oliuráðherra Saudi-Arabíu,
Sheik Ahmed Zaki Yamani, og
iðnaðarráðherra Alsírs, Belaid
Abdessalem, komu í dag til
Parísar, sem er fyrsti ákvörðunar-
staður þeirra á Evrópuferð sem
þeir fara til þess að útskýra olíu-
stefnu Arabalanda og afstöðuna
gagnvart Israel.
Ráðherrarnir ætla að kanna
hvaða lönd eru vinveitt Araba-
löndum og eigi því að sleppa við
niðurskurð á olíusölu.
í Stokkhólmi sagði KjelI-OIof
Feldt viðskiptaráðherra, að
skömmtun yrði óhjákvæmileg
innan skamms ef ástandið f olfu-
málunum lagaðist ekki. Svíar
hafa þegar látið prenta
skömmtunarmiða og gert annan
nauðsynlegan undirbúning.
í IloIIandi sagði Michel II.M.
van Ilulten, að bensínskömmtun
in þar yrði mjög kostnaðarsöm og
kallaði á fjölmennt starfslið.
Hann sagði, að að óbreyttu
ástandi yrði að minnka notkun
einkabifreiða og banna bílaum-
ferð í miðborgum á næstu árum.
Landsliðið
sigraði
Panacevo
I GÆRKVÖLDI lék ísl.
landsliðið í handknatt-
leik við Júgóslavneska
liðið Panacevo. Lands-
liðið vann með 20 mörk-
um gegn 15. í hálflcik
var staðan 10:7 fsl. lið-
inu í vil.
Innbrot í
gróðurhús
LÖGREGLUNNI f Reykjavík
bárust tilkynningar um nokk-
ur innbrot um helgina, en
hvergi var um stórþjófnað að
ræða. Brotizt var inn í gróður-
húsið Blómaval við Sigtún og
stolið 4—5 þús. kr. í peningum
og nokkrum leirstyttum af
nöktum konum, í gróðrarstöð
Alaska við Hringbraut, en litlu
stolið, í fbúðarhús við Lang-
holtsveg og hljóðvarpstæki
stolið, í sultu- og efnagerð bak-
ara í Rúgbrauðsgerðinni og
litlu hljóðvarpstæki stolið og í
bifreiðaverkstæði Veltis hf.
við Suðurlandsbraut, en litlu
stolið.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
Á TÍMABILINU frá kl. 19 á
föstudagskvöldið til kl. 10 á
laugardagsmorgun var ekið á
rauða Skoda-bifreið, R-36722,
árgerð 1972, á stæði við Ásgarð
113 og hægra frambretti
hennar beyglað verulega. Þeir,
sem kynnu að geta gefið upp-
lýsingar um ákeyrsluna, eru
beðnir að láta lögregluna vita.
Vélhjóli stolið
ÞANN 11. nóvember sl. var
stolið vélhjólinu R-250, þar
sem það stóð fyrir utan húsið
nr. 5 við Smiðjuveg í Kdpa-
vogi. Iljólið er blátt, af gerð-
inni Honda 50.
Þeir, sem gætu gefið ein-
hverjar upplýsingar um hjólið,
eru beðnir að hafa samband
við rannsóknarlögregluna í
Köpavogi sem fyrst.
Kjaradeilan til
sáttasemjara
Samninganefndir Alþýðu-
sambands Íslands og Vinnu-
veitendasambandsins komu
saman til fundar kl. 16 f gær
og stóð fundurinn í röska tvo
tfma.
Þeir Ólafur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins og Snorri Jóns-
son forseti Alþýðusam-
bandsins sögðu að fundinum
loknum, að ákveðið hefði verið
að vfsa málinu til sáttasemj-
ara, annað markvert hefði
ekki gerzt á fundinum.
Athugasemd
VEGNA skrifa i blaði yðar nú
nýverið um starfsemi Bygg-
ingasamvinnufélags atvinnu-
bifreiðastjóra, BSAB, viljum
vér að gefnu tilefni vekja at-
hygli á, að starfsemi bygginga-
félagsins er bifreiðastöðinni
Hreyfli s.f. óviðkomandi.
Stjórn Samvinnufélagsins
Hreyfils.
Þórður Elíasson, formaður.
Heimar dals og heiða
Ný bók eftir Hallgrím Jónasson
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
ný bók eftir Hallgrím Jónasson,
og nefnist hún Heimar dals og
heiða. Hallgrímur er kunnur út-
varpsmaður. Hann er ferðagarpur
hinn mesti og hefur einnig ritað
margt um ferðalög og þá ekki sízt
- Rússar þjarma
Framhald af bls. 1
þvf fyrir réttinum, að sér hefði
ekki verið leyft að heimsækja
hann í fangelsið í Moskvu, þar
sem honum væri haldið með
leynd. Reznikova skoraði á
dómarann að leyfa sakborningi
að vera viðstaddur réttarhöld-
in, en hann neitaði. Þá fór hún
fram á að réttarhöldum >rði
frestað þar til hún hefði rætt
við hann í fangelsinu, en þeirri
beiðni var einnig synjað.
Shikanovits var kennari við
Moskvuháskóla til ársins 1968,
þegar hann skrifaði undir bréf,
þar sem farið var fram á, að
samkennara hans væri sleppt
af geðsjúkrahúsi. Ilann missti
stöðu sína og var handtekinn í
september 1972, grunaður um
að hafa tekið þátt í dreifingu
neðanjarðarritsins „Nútíma-
annáll". Honum hefur verið
haldið f varðhaldi án ákæru
fimm mánuði um fram það sem
sovézk lög leyfa, — og er haft
fyrir satt, að hann hafi verið í
einangrun og undir handleiðslu
geðlækna.
„Sá tími kemur--------“
Eiginkona Sakharovs hefur
fengið fyrirskipun um að mæta
í fimmtasinn tilyfirheyrslu nk.
þriðjudag. Ilún hefur upplýst,
KGB hafi sýnt sérstakan áhuga
a því, hvernig hún hafi kynnzt
tveimur tilgreindum stjórn-
arandstæðingum, Viktor
Khaustov og Gabriel Superfin
en en hann neitaði að svara því.
Ilún segir, að Svitsjikov,
ofursti, sem annaðist yfir-
heyrsluna, hafi tilkynnt henni,
að sá timi mundi koma, að hún
segi frá öllu saman, en þá verði
þaðekki sem vitni. Ilann skýrði
ekki orð sfn nánar en hún
kvaðst hafa tekið þau svo, að
hún mætti búast við að verða
yfirheyrð sem sakborningur.
Hún neitaði að skrifa undir
skýrslu, sem gerð var um yfir-
heyrsluna, — og er haft eftir
ofurstanum, að hún vinni
manni sfnum tjón með fram-
komu sinni.
öræfi íslands m.a. í Arbækur
Ferðafélags Íslands. Hallgrfmur
Jónasson er einnig þekktur af
Ijóðum sfnum og ferskeytlum.
Á bókarkápu er m.a. getið
ummæla Andrésar Kristjáns-
sonar, fyrrum ritstjóra, um
Arbækur Ferðafélags islands,
sem Hallgrímur hefur ritað, og
segir þar m.a.:
„Árbók Ferðafélags íslands árið
1971 fjallar um Kjalveg hinn
forna og rituð af Ilallgrími Jónas-
syni, kennara, einhverjum ger-
kunnugasta manni á miðhá-
lendinu. Ilann ritaði einnig bók
um Sprengisand, er út kom 1967
og var hún frábærlega vel gerð,
bæði mjög vönduð af öllum staða-
og leiðarlýsingum og listavel
skrifuð, yljuð og skreytt stökum
og þjóðsögum, sannkallaður
skemmtilestur.
Þá er þess jafnframt getið á
bókarkápu, að Þorsteinn Jónsson
eða Þórir Bergsson hafi m.a. sagt
um bókina Á Öræfum, eftir Ilall-
grím Jónassson:
Framhald af bls. 1
ingar og var sagður ákaflega
gramur Papadopoulosi fyrir
tregðu hans á þvf að láta til skarar
skríða gegn stúdentum í óeirðun-
um á dögunum. Það bendir og til
styrkleika Ioannides, að hann hef-
ur haldið fund með blaðaútgef-
endum og varað þá við því að
ganga of langt í skrifum gegn
stjórninni.
Athygii hefur vakið, að ekki
kom til neinna blóðsúthellinga í
byltingu þessari, frekar en í bylt-
ingu Papadopoulosar og félaga
hans 1967.
Þeir menn, sem skipa hina nýju
stjórn fyrir utan Gizikis, eru flest-
ir herforingjar á eftirlaunum, eða
mjög íhaldssamir stjórnmála-
menn. Forsætisráðherra er
Adamantios Androutsopoulos,
sem áður var fjármálaráðherra i
stjórn Papdopoulosar.
Skref til einhvers betra?
Byltingin var gerð kl 3 aðfarar-
nótt sunnudagsins. Þá dku bryn-
varðar bifreiðar og skriðdreka-
sveitir inn í miðborg Aþenu og
tóku stöðu við allar mikilvægustu
byggingar i borginni. Á þjóðveg-
um til Aþenu voru settir upp
vegatálmar og útgöngubann sett
bæði þar og í Saloniki. Landa-
mærum Grikklands og Týrklands
var lokað til þess að koma í veg
fyrir, að áhrifamenn griskir leit-
uðu hælis i Tyrklandi. Hermenn
tóku yfir stjórn útvarps, sjón-
Höfundur þessarar bókar, Ilall-
grimur Jónasson, kennari, er
löngu orðinn þjóðkunnur maðúr .
.. Ilann á í ríkum mæli andríki og
frásagnarhæfileika. Hann er
skáld. Þessar ferðasögur eru
afburða vel ritaðar og allar
skemmtilegar . . . og alveg hik-
laust í flokki allra beztu frásagna
um ferðalög, sem ég hef lesið."
varps og settust að í ritstjdrnar-
skrifstofum dagblaða.
Viðbrögð við fregnina af bylt-
ingunni meðal griskra útlaga
virðast þau samkvæmt fréttum
NTB, að þeir vænti einhvers
betra frá þessari stjórn en Papa-
dopoulosi. Andreas Papandreou
sagði, að bandaríska leyniþjónust-
an hefði að vfsu stjórnað bylting-
unni, en þó, væri hún sigur úr því
gríska þjóðin væri nú laus við
Papadopoulos, sem hún hataði:
Helen Vlakos, sem áður var blaða-
útgefandi i Aþenu, sagði, að
Grikkii- væru nú sýnu nær því að
fá aftur Iýðræðisstjórn en undir
yfirráðuth Papadopoulosar. Af
hálfu bandaríska utanríkisráðu-
nejdisins hefur ekkert verið um
mál þetta sagt og samkvæmt
NTB-fréttum hefur enginn sér-
stakur fundur verið haldinn hjá
Atlantshafsbandalaginu um bylt-
inguna. Er hans ekki að vænta,
nema griska stjórnin fari sjálf
fram á slíkan fund.
I New York fóru nokkur hundr-
uð Grikkir hópgöngu til að mót-
mæla valdatöku hinnar nýju
stjórnar og stjórnartalsmenn
Danmerkur og Noregs fóru litlum
hrifningarorðum um tiðindin frá
Aþeni^töldu þau ekki boðagrísku
þjóðinni neina stjórnarbót.
Los Angeles, AP
CONSTANCE Talmadge, kunn
kvikmyndastjarna frá tímum
þöglu myndanna, lézt á sjúkra-
húsi í Kalífornfu i síðustu viku, 73
ára að aldri.
— Grikkland
— Bókmenntir
Framhald af bls. 13
ungum engu síður en nú. Lýsing-
ar Sveinbjarnar eiga þó ekki
almennt við vestfirzka sjómenn
þess tíma, en sérstakar aðstæður
ollu þvf, að á skipið varð að ráða
nokkuð marga, sem voru öðrum
fremur Bakkusi hollir og sumir
ef til vill að upplagi hálgildings
vandræðagemlingar. Af öðrum
frumsömdum frásögnum nefni
ég Norður með landi. Þeg
ar Skúli fögeti sökk, eftir
Hallgrím Jónsson vél-
stjóra. Það var hitamunurinn
þá nótt, eftir Þórð á Látrum,
Hákarlaróður á Ströndum, eftir
Guðmund Guðmundsson frá
Ófeigsfirði og Ilinn
síðasti róður eftir Guðbjörn
Guðbjörnsson. Frásögn Ilall-
gríms ef sem vænta mátti skýr og
skipuleg lýsing á hinu fyrsta skip-
og manntjóni, sem íslendingar
urðu að þola í heimsstyrjöldinni
fyrri, og frásön Þórðar á störfum
togarasjómanna er sérstæð að þvf,
hve glöggva hugmynd lesandinn
fær um þær hættur, sem vofa yfir
slíkum mönnum við vinnu þeirra
á sjónum — og þá einkum öll-
um nýliðum. En glöggt verð-
ur einnig, að þeir njóta leiðbein-
inga vanari félaga — og vissu-
lega skorinorða skolínóna
ábyrgra yfirmanna. Meðal
annars segir stýrimaður
svo við Þórð, sem á sér einskis ills
von: „Ef skipið hefði lyfzt hálfu
feti hærra á bárunni, þá væri
helvízkur hausinn af þér úti f sjó,
en hauslaus búkurinn á þilfarinu,
konan þín orðin ekkja, krakkinn
þinn orðinn föðurlaus, við mætt-
um hætta veiðum og sigla inn
til að skila skrokknum. Svo
væri stýrimanni kennt um
allt saman .“ Guð-
mundur frá Ófeigsfirði lýsir
með ágætum hákarlaróðri, sem
hann fór í unglingur norður í
Ishaf með öldruðum föður sínum
á teinæringnum öfeigi, og ber
frásögnin þvi ljóst vitni, hverja
afburðasjómennsku, áræði, seiglu
og karlmennsku þurfti til þess að
sækja um hávetur björg f greipar
Ægis á djúpmið og bjarga skipi
og áhöfn heilum að landi í hörku
frostbyljum og stórum sjóum. En
alla þá áratugi, sem Guðmundur
bóndi i Ófeigsfirði stundaði há
karlaveiði á Ófeigi, henti hann
aldrei nokkurt slys. Eg þóttist
heppinn sumarið 1929, að siá
bæði Ófeig og Guðmund, drekann
óvinnandi og hinn lágvaxna, en
svipmikla snilling, sem honum
hafði stýrt, — svo að ekki sé nú
minnzt á rausnina á heimili
Péturs Guðmundssonar í Ófeigs-
firði . . . Hinn síðasti róður er
listilega ritað greinarkorn um
seinustu æviár Odds hins sterka
af Skaganum og andlát hans á
Elliheimilinu Grund.
Af hinum þýddu frásögnum get
ég aðeins tveggja, en þær eru
báðar mjög spennandi. Kafbáta-
skelfirinn segir frá sjóhetjunni
brezku, Fredrick John Walker,
sem markaði tímamót í barátt-
unni við kafbátaflota þjóðverja f
heimsstyrjöldinni síðari, gerði
mögulega, svo fljótt sem raun
varð á innrásina yfir Ermarsund
og lézt síðan beinlínis af
ofþreytu! Þáer það ioks Mannvit
og milljónaher, frásögn af striði
Leningens stórbónda í Brasilíu
gegn óvígum her maura, sem
reynslan hafði sýnt, að ekkert
fengi staðizt. Mun ýmsum þykja
skiýtið, að slík frásögn skuli hafa
verið valih í sjómannablaðið
Vfking og síðan í þessa bók. En
mér virðist það auðskilið. Fyrir-
hyggja, stálvilji, seigla og hug-
kvæmni stórbóndans, sem vann
öðrum óskiljanlegan sigur, er
sannarlega í ætt við þp beztu
kosti, sem sjómann mega prýða,
og víst mun frásögnin hafa hlotið
hljómgrunn jafnt hjá lesendum
sem ritstjóra Vfkingsins.
Svo hef ég þá gert þessari bók
„sálufélga" minna sómasamleg
skil.
Guðmundur Gfslason Hagalin.