Alþýðublaðið - 29.09.1930, Blaðsíða 2
ar
ALÞÝÐÖBLAÐÍÐ
Verkamannafélagið
DagskrAn.
Mikil félagsaukning.
Verkamannafélagið Dagsbrún
hélt fund síðastliðið laugardags-
kvöld. Voru félagsmál fyrst rædd
og þótti öllum starf stjórnarionnar
á sumrinu vænlegt. 118 nýir fé-
lagar sóttu um upptöku og voru
þeir allir samþyktir; par af voru
67 fólksbifreiÖastjórar. Er Dags-
brún þar með orðin fjölmennasta
stéttarfélagið, sem nokkum tima
hefir verið til hér á landi og efl-
ing þess heldur stöðugt áfram. —
Á fundinum var enn fremur rætt
um hið svonefnda verklýðssam-
bánd, er nokkrir menn vilja að
stofnað verði. Voru umræður
fjörugar.
Lýðstjórnarkrafan efiist
á Spáni.
Lundúnum (UP). 29. sept. FB.
Frá Madrid á Spáni er símað:
Siðdegis í gær ræddu lýðveldis-
sinnar um einvaldsstjómina og
kröfðust þess fastlega, að hún
væri afnumin. Völdu þeir nauta-
atssvæðin til ræðuhalda, því að
þar var fólk fyrir þúsundum
saman. Á nautaatssvæðinu í Ma-
drid er talið, að 20 000 manna
hafi verið viðstaddir. Alejandro
Lerroux, róttækur flokksleiðtogi,
skoraði á herinn að vinna með
þjóðinni, sem heimtar valdaafsal
konungszns og stofnun lýðveldis.
Mllton Sills tfáinn.
Hann lézt að heimili sínu í
Hollywood um miðjan mánuðinn.
Hann var að leika tennis við
konu sina í garðinum við hús
sitt og kendi sér einskis meins.
Hné hann þá skyndilega niður
og var örendur er að var gáð.
Hann hafði fengið hjartaslag.
Milton Sills var þektur um
vi'ða veröld og var þó orðinn
nokkuð gamall er hann fór að
leika í kvikmyndum. Hann var
giftur kvikmyndakonunni Doris
Kenyon.
Milton Sills var eins og kunn-
ugt er mjög velviljaður Islandi
og Islendingum, og mun það hafa
átt rót að rekja til þess, að hann
hafði íslenzkan mann sem leik-
fimikennara og þjálfara, sem er
Haraldur Sveinbjömsson, bróðir
Valdimars leikfimikennara hér í
Reykjavík.
Safnaðarfundur,
verður annað kvöld kl. 81/2 í
dómkirkjunni. Fer þá fram loka-
atkvæðagreiðsla um kirkjugarðs-
girðinguna.
Bíó-auglýs ngar
eru á 4. síðu.
Skólastjórastaðan
við
nýja barnaskólann.
„Moðhausar" „Morgunblaðsins"
hafa að undanförnu verið að
skrifa um skólamál. Hafa þeir
látið sér títt um nýja barnaskól-
ann og skólastjóravalið við hann.
Að visu taka ekki aðrir en allra
einföldustu íhaldssálir mark á
þessum skrifum, því það er
kunnugra en frá þurfi að segja,
að „Morgunblaðs“-fénaðurinn er
gersneyddur öllum áhuga á
skóla- og uppeldis-málum og hef-
ir ekki snefil af þekkingu á þeim
til brunns að bera. En í hvert
sinn er veitt er einhver þýðing-
aimikil kennarastaða, þá fá þess-
ir vitringar kippi og fyllast
„helgri" vandlætingu, ef embætt-
isveitingar eru ekki að þeirra
skapi.
I fyrra hauat var það rektor
mentaskólans, sem varð þeim
hneykslunarhella. Úr því hefir
raknað svo, að allir eru nú stór-
ánægöir með þá ráðstöftm, og
nýr og betri andi en áður rikti
í þeim skóla er nú að skapast
þar.
Nú er það skólastjórinn við
nýja bamaskólann, sem er aðal-
umræðuefnið. „Morgunbl." þykir
hann of ungur („óreyndur ung-
lingur“), gefur í skyn að hann
sé lítt lærður og maður, sem eng-
inn treysti til starfans.
Alt eru þetta ósannindi og ó-
rökstuddar staðhæfingar.
Sigurður Thorlacius skólastjóri
(þessi „óreyndi unglingur") er
maður rúmlega þrítugur, svo
hann vérður tæplega sakaður um
of mikla æsku. Hann er stúdent
frá 1922, itök heimspekipróf við
háskólann hér og kennarapróf við
kennaraskólann 1924. Hann hefir
síðan lagt stund á kenslustörf og
jafnframt aflað sér frekari ment-
unar í uppeldisfræði bæði utan
lands og innan, m. a. í einhverj-
um bezta kennaraháskóla Norð-
urálfunnar — í Genf. Hann er
því áreiðanlega þaulmentaður
maður í sínum fræðum.
Að því er traustleysi skóla-
stjórans snertir, þá vaða „Morg-
unblaðs“-mennirnir þar allmikinn
reyk, eða þeir tala gegn betri
vitund, því að það er vitanlegt,
að Sigurður skólastjóri hefir
traust allra þeirra, sem hann
þekkja, og þeirra rnest, sem
þekkja hann bezt. Og hann á
lífca skilið traust og virðingu
allra góðra manna, þvi að hann
er ágætur drengur, góður maður
og réttsýnn.
S:<ðastli'ðinn vetur var Sigurð-
ur kennari við Laugarvatnsskól-
ann. Þegar hann sótti um skóla-
stjórastöðuna við nýja barnaskól-
ann, þá gaf skólastjórinn á Laug-
arvatni honum svohljóðandi með-
mæli:
„Sigurður Thorlacius kennari
var samverkamaður minn á
Laugarvatni siðastliðinn vetur.
Mér er bæði geðfelt og skylt að
gefa honum sérstaklega góð með-
mæli.
Ég tel hann gæddan flestum
þeim kostum, sem einkum prýða
kennara. Hann er lærður vel,
hæglátur, rökvis og þéttur fyrir.
Kensluna byggir hann mjög á
vísindalegum grundvelli. Skilyrði
í þá átt hefir hann góð, því að
saman fer brennandi áhugi og
allmikil sérþekking á rannsófcnar-
aðferðum í sálarlífi bama.
Traust og virðing samfcennara
og nemenda á Laugarvatþi fór
vaxandi eftir því sem viðkynning
varð nánari. Tel ég það gæfu
fyrir hvern skóla að njóía starfs
þgssa ágæta manns.“
Það er spá mín, að Sigurður
skólastjóri vinni sér fljótt traust
og virðingu samkennara sinna,
skólabarnanna og foreldra þeirra,
og að ekki líði á löngu áður en
Reykvikingar sjá, að það hefir
verið þeim hið mesta .happ að fá
hann fyrir skólastjóra. Og áreið-
anlega verður það ofvaxið moð-
hausum „Morgunhlaðsins" að
spilla samvinnu skólastjórans og
kennaranna við nýja barnaskól-
ann og þar með framtíð skólans.
Ps.
K. B.
Nú er íþróttastarfsemin að
byrja. „Ármann“, „1. R.“, „K. R.“
o. fl. undirbúa nú starfsemi sína
af miklu kappi. Má óefað ætla,
að þátttakan í æfingum félag-
anna verði enn meiri í vetur en
undanfarna vetur.
1 dag auglýsir K. R. æfingar
sínar hér í blaðinu. Verða þær
mjög fjölbneyttar og jafnt fyrir
stúlkur sem pilta. Mesta áherzlu
leggur félagið á leikfimi, en einn-
ig verður æft í róðri, íslenzkri
glímu, knattspyrnu, hnefaleik,
hlaupum o. s. frv.
Æfingamar byrja 6. október.
K. R.-félagar! Eyðið tómstund-
um ykkar í félagsstarfseminni;
þar með þroskið þið sjálfa ykkur,
bæði líkamlega og andlega.
Rangmæli
er það og ritvilla að nota orðið
Imeter í stað hinnar ísl. orðmynd-
ar imetri, og þó sést þetta orð-
skrípi í flestum auglýsingum og
jafnvel í námsbókum og heyrist
hvarvetna. Flexrtöluorðmyndin af
metri er metrar. Er auðsætt, að
þar hefir íslenzkt málfar kvatt
sér hljóðs, svo enginn ætti þvi að
þurfa að efast um rétta eintölu-
orðmynd.
Annað raunalegt oröskrípi
verður einatt fyrir manni í aug-
lýsingum. Það er orðið stell.
Mér hefir nú dottið i hug, hvort
ekki myndi tiltækilegt að nota
í þess stað orðið búnaður, aðal-
lega til samræmis við orðið borð-
búna^ur, er virðist vera fast 1
málinu.
Yrði þá matarstell: matbúnað-
ur, kaffistell: kaffibúnaður, reyk-
stell: reykbúnaður o. s. frv. Borð-
búnaður verður þá heildarheitið
á þessum borðrænu hugtökum.
Kæmi þetta enda vel heim við þá
málvenju að tala um að búsí
borð.
J. G. E.
Um daginn ©n vegjlrais*
Næturlæknir
er í nótt Ölafur Helgason, Ing-
ólfsstræti 6, simi 2128.
Sjómenn!
I dag er síðasti. dagurinn fyrir
línubátasjómenn í Sjómannafélagi
Reykjavíkur til að greiða atkvæði
um, hvort samningum við línu-
bátaeigendur skuli sagt upp eða
ekki.
Sjómannafélag Hafnarfjarðar.
I dag er síðasti dagurinn, sem
hægt er að gieiða atkvæði um,
hvort sagt skuli upp eða ekki
samningum við togaraútgerðar-
menn og við línubátaeigendur.
Maður ríður á bífreið.
Maður var á reið í gær innan:
við Elliðaár. I Ártúnsbrekkunni
reið hann á bifreið og meiddist
hesturinn talsvert. Var farið með
hestinn að Tungu, og varð að
sauma hann á hálsinum. Bif-
reiðarstjórinn segir, að reiðmað-
urinn hafi verið ölvaður.
Kyrrsettur
var í Færeyjum Norðmaður sá.
er gaf tréspiritus manni þeim á
Isafirði, er nýlega beið bana af
því að diekka hann. Verður Norð-
maður þessi sendur hingað aftur
til réttarrannsóknar.
Hlutavelta „Verðandi“.
Gunnar Jónssom, Þingholts-
stræti 8, fékk ljósmyndina (100
kr. virði). Konráð Vilhjálmsson,
Laugavegi 67, fékk málverkið
(140 kr. virði). Útvarpstæki, fjög-
urra lampa, fékk 5 ára drengur,,
sonur Karls Jónssonar, Njálsgötu
49 B. Pétur Zophoníasson fékk
kaffitæki, 12 manna, og sömu-
leiðis kvenúr úr silfri.
Hlutavelta „Ármanns11.
Dregið var um happadrættið S
skrifstofu lögmanns í morgun og
komu þessi númer upp: 580 hést-
urinn, 1586 kensla í bifreiðaakstri
og 3816 ljósakróna. Hamdhafar
þessara miða eru vinsamlega
beðnir að gefa sig fram sem allra
fyrst við Þórarin Magnússpn,
Laugavegi 30.
Veðrið.
Kl. 8 í morgun var 10 stiga;
hiti í Reykjavík. ÚtHt hér um
slóðir: Hægviðri. Skýjað loft, en
)