Morgunblaðið - 18.09.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1974
13
Taldi Haig
Ford á að
náða Nixon
New York, 17. september. AP
BLAÐIÐ New York Times sagði I
dag, að Alexander M. Haig hers-
höfðingi, yfirmaður starfsliðs
Hvfta hússins, hefði frétt um
versnandi heilsufar Richards
Nixons fyrrverandi forseta og tal-
ið Ford forseta á að náða hann
þegar f stað.
Að sögn gamals vinar Nixons
fékk Haig fréttir um andlega og
Ifkamlega afturför forsetans fyrr-
verandi frá dætrum hans, Julie
Eisenhower og Tricia Cox, og vin
um hans, Robert H. Abplanap og
Charles „Bebe“ Rebozo. Haig
ræddi einnig þessar upplýsingar
við Ronald Ziegler fv. blaðafull-
trúa.
28. ágúst sagði Ford, að hann
gæti ekki náðað Nixon fyrr en
hann yrði lögsðttur, en daginn
eftir taldi Haig hann á að náða
hann strax vegna andlegs ástands
hans. Haig sagði, að Nixon yrði að
fá algera og skilyrðislausa náðun
fljótt þvf annars gæti orðið of
seint að afstýra mannlegum
harmleik og þjóðarharmleik.
Seinna f dag sagði Ford forseti
að Haig hershöfðingi hefði aldrei
rætt við hann um andlegt eða
Ifkamfegt ástand Nixons áður en
hann ákvað að náða hann.
Talsmaður forsetans John
Hushen gaf út yfirlýsingu f nafni
hans og þar er frétt New York
Times vfsað á bug.
FORD VER NÁÐUN
Á blaðamannafundi í gærkvöldi
sagði Ford, að áður en hann náð-
aði Nixon hefði hann engar
ákveðnar upplýsingar haft um
heilsu hans aðrar en þær, sem
hefðu komið fram í fréttum og
frásögnum starfsmanna sinna,
sem hefðu heimsótt Nixon.
Ford sagðist enga samninga
hafa gert við Nixon í staðinn fyrir
náðunina og varði hana kröftug-
lega. Hann sagði, að það hefði
verið mjög vel hugsanlegt, að Nix-
on hefði verið ákærður fyrir 11
lögbrot vegna Watergate-málsins.
Hann sagði, að Nixon hefði orð-
ið að þola nóga niðurlægingu þeg-
ar hann sagði af sér. Hann sagði,
að margir gætu túlkað þá ákvörð-
un Nixons að fallast á náðun sem
játningu um sekt.
Ymsir þingmenn demókrata
kváðust ekki vera ánægðir með
hvernig Ford varði náðunina.
Um afskipti leyniþjónustunnar
CIA af ástandinu í Chile í tíð
Allende-stjórnarinnar sagði Ford,
að Bandarfkin hefðu reynt að
styðja við bakið á blöðum stjórn-
arandstæðinga og flokkum þeirra
til að stuðla að varðveizlu þeirra.
„Ég held, að þetta hafi verið í
þágu beztu hagsmuna Chile og
beztu hagsmuna okkar,“ sagði
hann.
Nixon fer sjaldan úr bústað sínum í San Clemente í
Kaliforníu. Þó brá hann sér nýlega niður á ströndina
og ræddi við sóldýrkendur. Með honum eru Tricia
dóttir hans og tengdasonur hans, Edward Cox.
Indíánar frá Wounded
Knee hrósuðu sigri
St. Paul, Minnesota,
17. september. Reuter.
INDlÁNAR ráku upp strfðsöskur
þegar dómari f St. Paul f Indfana
lét niður falla allar ákærur á
hendur tveimur mönnum, sem
voru sakaðir um að hafa stjórnað
uppreisninni f Wounded Knee
fyrir 19 mánuðum.
Dómarinn, Fred Nichol, sakaði
stjórnvöld um misferli f málinu f
lok réttarhaldanna, scm hafa
staðið f átta mánuði.
300 Indlánar lögðu undir sig
þorpið Wounded Knee í Suður-
Dakota í febrúar 1973 til þess að
vekja athygli á bágum lífskjörum
Indíána. Tveir Indíánar féllu og
sex særðust í 71 dags umsátri.
Dennis Banks, 35 ára Sioux-
Indíáni, og Russel Means, 42 ára
Chippewa-Indíáni, voru ákærðir
fyrir árásir á embættismenn, sam-
særi og þjófnað.
Nichol dómari sagði, að sækj-
andinn, Richard Hudd, hefði
blekkt sig um vitni, sem hann
leiddi fram. Hann kvað einnig
ótrúlegt að sækjandinn neitaði að
leyfa kviðdómendunum að halda
áfram ráðfæringum sínum þegar
einn þeirra hafði fengið aðkenn-
ingu að slagi og var fluttur f
sjúkrahús.
Eitt af vitnum sækjanda, Louis
Camp, Sioux-Indiáni, kvaðst hafa
séð Means og Banks skjóta á lög-
reglumenn og stjórna árásum á
verzlanir og heimili. Kona hans
sagði, að stjórnin hefði lofað hon-
um húsnæði og öðrum hlunnind-
um ef hann vitnaði gegn Means
og Banks.
Verjendur í málinu sögðu, að
stjórnin hefði enga lögsögu yfir
landi Sioux-Indíána, þarmeð talið
Wounded Knee, þar sem Banda-
ríkin hefðu brotið friðarsamning-
inn, sem var gerður við Sioux-
Indfána.
Talið er ólíklegt, að sækjendur
áfrýi frávísun dómarans.
REYKJAVÍK- AKRANES
En er hægt að þroska með sér HUGREKK/
SJÁLFSTRA UST?
betra M/NN/ — REISN og
Hvernig á að ná góðri ÁHEYRN og ha/da henni —
Draga úrÁHYGGJUM og KVÍÐA —
Verða ÁHUGA VERÐARI einstaklingur —
Hver er /eyndardómur VELGENGN/NNAR?
Þessum spurningum er svarað í DALE CARNEGIE NÁMSKE/Ð/NU.
FJÁRFESTING í MENNTUN GEFUR ÞÉR ARÐ ÆVILANGT
Innritun og upplýsingar í síma 82411
Verð til viðtals á Akranesi föstudaginn 20. september kl. 7—9 /
s/áifstæðishúsinu. Stjómunarskólinn
Konráð Adolphson.
Vi«# getum auJvitaJ ekki öbyrgzt þér
vélritun
é vorprófinu.
En likur þess aukast notir þú
skólaritvél
%
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
^
%v : x
Hverfisgötu 33
Simi 20560 - Pósthólf 377