Alþýðublaðið - 18.10.1930, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 18.10.1930, Blaðsíða 2
* : p'V'.n AEÞÝÐDBtíAÐIÐ Farþegaflugvél yfir Atlantshaf. Lundúnum (UP.), 18. okt, FB. Frá Berlin er símáÖ: Tilkynt sókn hinna þýzku sjódóma sé tií Frá paradís íhaldsins. 1 Italíu eru allar kenningar í- haldsins framkvæmdar. Þar ræð- ur íhaldið, burgeisastéttin, lögum ’ og.lofum,með Mussolini sem ein- valdsherra. Þar hafa samvinnufé- lög verkamanina og bænda verið bönnuð með lögum, samvinnu- búðir brendar tii ösku, verklýðs- félög uppleyst, verklýðsforingjar ofsóttir, fangel'saðir og hneptir í þrældóm til eyjanna. Þar er al- pýðan réttlaus, prentfrelsi óþekt, máifrelsi og skoðanafrelsi afnum- ið — alt er þar á íhaldsvísu. Lýð- ræði og íhaldsstefna eru sitt hvað. Nýlega hafa nierkar fréttir borist frá Italíu. Þar er alt á fall- anda fæti. Mussolini hefir að fullu farið að vilja íhaldsins, en þegar afleiðingarnar koma í ljós, fær hann ekki rönd við reist. Fjárhagskreppa mikil er nú byrjuð. Hún verður með hverjum degi víðtækari og ógurlegri. Fjár- lög ríkisins standast hvergi áætl- un. Tekjuhallinn verður meiri og meiri. Stjórnin hefir reynt að koma fram með ný skattalög, en ekki tekist, vegna þess, að þjóðin er nú þegar sliguð undan skatta- byrðunum. Mörg bæjarfélög hafa orðið að afhenda ríkinu sjóði sína, og nú eru mörg þeirra þvi svo stödd, að þau geta eigi greitt laun til starfsfólksins. Þannig er ástandið í paradís í- haldsins, paradísinni, þar sem rík- isvaldið, óáreitt af samtökum verkalýðsins, fær að féfletta verkafólkið. Hlutavelta fiilltrúaráðs verk)$ðsíélaganna. Á morgun verður hlutavelta álþýðufélaganna í Góðtemplara- húsinu. Eru mjög margir ágætir munir komnir, og enn munu margir bætast við. Alþýðuflokks- fölk, sem getur gefið muni, komi þeim i Góðtemplarahúsið við Templarasund í clag. 1 alt kvöld verður unnið að undirbúningnum, og er flokksfólk beðið að koma í Góðtemplarahúsið til hjálpar. Þelr höíðu svínarækt, Sjöunda þ. m. kom skipið „Dis- ko“ til Khafnar frá Grænlandi, og með því margt manna. Meðal þeirra er Paul Nörgaard, er feng- ist hefir við fornfræðirannsóknir í Grænlandi í sumar. Hefir hann dvalið í Vestribygð, þar sem fornmenn kölluðu Sandnes, graf- ið þar út bæjarrústirnar og fund- ið þar mikið af margs konar húsgögnum og amboðum. 1 einu úthýsi fann hann svinatað á gólfi. * Tekur það af allan. vafa um það, hvort fornmenn í Grænlandi hafi haldið svín, en sumir hafa ekki viljað trúa því að svo hafi verið. hefir verið, að „Dornier Do. X“, stærsta sæflugvél í heimi, sé nú búin til Atlantshafsflugs. Er gert ráð fyrir, að hún fari til Lissabon og þaðan yfir Atlantshaf. Líklega leggur hún af stað 3. nóvember, ef veður verður hagstætt. Hún Oæsta flng yfir tslandi I gær setti Sigurður Jónsson flugmaður háflugsmet hér á landi í „Veiðibjöllunni“. Flaug hann í 3600 metra (11000 feta) hæð hér yfir Reykjavík, — það er um fjórar hæðir Esjunnar —, og hefir aldrei áður verið flogið svo hátt hér á landi. Hefir Sigurður heldur aldrei flogið svo hátt fyrri. Auk hans voru í háfluginu dr. Alex- ander Jóhannesson, formaður Flugfélagsins, Gunnar Jónasson flugvélamaður, Helgi Eyjólfsson flugmaður og Sveinbjörn Magn- ússon. Voru þeir 45mín. á leiðinni upp, en 15 mín. niður aftur. Þeir voru í háfluginu um kl. ðsíðdegis. Þá var 12 stiga frost þar, sem þeir komust hæst, en 4 stiga hiti var þá hér í Reykjavík. Er það þö mlnni munur á hitastigi en venjulega er við þann hæðar- mun. Perlnr, Tímaritið „Perlur“ er ekki gam- alt og gróið. En þrátt fyrir það er það nú orðið landsþekt og aufúsugestur á hverju heimili. Þess hefir verið .getið af öllum blöðum sem eins hins bezta rits að öllum frágangi, sem út er gef- i,ð hér á landi, og efni þess hefir enginn sett út á. Síðasta hefti af „Perlusm" var tvöfalt að stærð og gefið út af tilefni alþingishátíðarinnar. Er heftið mjög eigulegt. Auk prýðj- legs frágangs er efnið gott og fjölbreytt. Rita það margir o.kk- a^ beztu smillinga úr hópi hinna yngri, og ætti það eð vera með- mæli. Það flytur myndir af teikningum og öðrum listaverkum eftir Jón Þorleifsson, Tryggva Magnússon, Kjarval, Guðmund Einarsson, Jón Stefánsson, Gunn- laug Blöndal, Finn Jónsson, Kristján Magnússon, Ásgrím Jóns- son, Kristínu Jónsdóttur, Eggert Laxdal, Freymóð Jóhannesson, Júlíönu Sveinsdóttur, Snorra Ar- inbjarnar, Óskar Scheving, Þor- vald Skúlason, Jön Engilberts, Einar Jónsson og fleiri. Grein er >ar um fyrsta alþingi eftir Sig- urð meistara Skúlason, kvæða- flokkur — Anno Domini 1930, eftir Stefán frá Hvitadal, Vitfirr- ingurinn, saga eftir Einar H. Kvaran, Vala, saga eftir Soffiu Ingvarsdóttur, og margar fleiri sögur eftir íslenzka höfunda, ljóð, hefir tólf mótora, er 150 fet á lengd og 150 fet milli væng- brodda. — Á reynslufluginu flutti vél þesei alls 170 manns, far- þega og skipshöfn, og var þyngd sú, sem hún bar, alls 52 smálestir. Mynd af f.lugvél þesisari var ’hér í blaðinu 28. sept. sönglög, greinir um íslenzka leik- list o. fl., sem ekki er hægt að telja hér. — En ég veit að það, sem hér hefir verið talið, er nóg til að sýna fjölbreytni heftisins, og það er fjársjóður fyrir alla bókfúsa menn að eiga það. r. S. n. Alt er hey í harðind- um. Föstudaginn 10. október hefir „Morgunblaðið" sveigt að mér og stjórn minni á varðskipi rík- isins, „Ægi“. Daginn áður hafði það og í langri grein um dóm hæstaréttar í ímáli togarans „Tyr“ fundið ástæðu til þess að birta útdrátt úr ummælum sjódómsins í Bremerhaven um mál þetta, svo og bréf ríkissamgöngumálaráðu- neytisins þýzka til utanrikisráðu- neytisins í Berlín, því máli með öllu óviðkomandi. Á þessum plöggum byggir „Morgunblaðið" dylgjur sínar um mig. Það lætur í veðri vaka, án þess þó að segja það beint, að hér sé um kærur að ræða, er erlend stjórnarvöld hafa fært fram gegn stárfi mínu. Þetta stafar af furðu-skilnings- leysi blaðs, þar sem annar rit- stjórinn er lögfræðingur. Ef er- lendum stjórnvöldum þykir geng- ið á rétt sinn eð;a þegna síns ríkis, þá snúa þau sér til utan- ríkisstjórnar sins eigin lands, en hún ber síðan málið fyrir íslenzku utanríkisstjómina. Plögg þau, er „Morgunblaðið“ vitnar í, hafa borist hingað milliliðalaust frá hinum kærða togaraskipstjóra til málaflutningsmanns hans, herra hrm. Jóns Ásbjömssonar, sem lagt hefir plöggin fyrir hæstarétt, og lái ég honum ekki, þótt hann geri alt, sem í hans valdi stend- ur, til þess að bæta málstað um- bjóðanda síns; til þess er hann skyldur; en ekki verða skjölin að opinberum kærum á hendur mér fyrir það. Það er alkunnugt, að öll togara- mál, hvort sem þau eriu héðan eða annars staðar að, eru sett fyrir sjódóm heimalandsins vegna þess, að á upptökuna er litið sem sjótjón, og ber auðvitað að ranm saka, hverjum sé um að kenna, upp á skaðabótaskyldu og aöra ábyrgð, er af kann að hjjóitast, sem erlendir dómstólar eltki geta fengist við. „Morgunblaðið“ læt- ;ur i veðri vaka, að þessi rann- þess gerð að athuga réttmæti, hinna uppkveðnu erlendu dóma, en slíkt ætti lögfræðingurinn að vita að er ómögulegt, þvi að það er eitt helzta merki sjálfstæð- isins, sem „Morgunblaðinu" er nú orðið isvo ant um, að það minn- ist aldrei á það, að dómar lands- iins eru öllum erlendum áhrifunr óháðir. Rannsókn þýzka sjódóms- ins snýst því eingöngu um ábyrgð hins kærða skipstjóra gagnvart eigendum skipsins. Ef um rann- sókn á stjórn minni á varðskip- inu hefði verið að ræða, hlýtur lögfræðingurinn að játa, að þýzka réttarfarið væri mjög einkenni- legt, ef hún væri framin án þess að mér væri gert aðvart eða heimilað að setja fram mína skoðun á málinu, og siðan feld- ur úrskurður um það einhliða, byggður á ummælum kærðs manns. Þjóðverjar hafa fengið orð fyr- ir að vera menningarþjóð, en sá orðrómur myndi fljótt hjiaðna, ef þar væri það réttarfar, sem lög- fræðingur „Morgunblaðsins“ vill láta lesendur halda. Auðvitað liggur starf mitt eingöngu undir dómi íslenzkra dómstóla og dómsmálaráðuneytisins hér. Annars er þessi „Morgunblaðs“- lögfræðingur einkennilegur um fleira en eitt. Hann heldur því fram, að þýzka rikið gæti gert skaðabótakröfu til íslenzka rikis- ins, ef varðskipsstjórn mín færí að einhverju leyti í handaskolum,. svo að þýzkir togarar yrðú sekt- aöir hér saklausir af þeim or- sökum. Mér er spurn, er ríkis- útgerð á þýzkum togurum? Með því einu móti getur þýzka ríkið ■átt skaðabótakröfu á hendur Isr landi. Nú eru yfirleitt þýzkir tog- arar einstaklingseign, og ef um skaðabótaskyldu íslenzku stjórn- arinnar væri að ræða, þá hlyti hún að vera gagnvart hinum • ranglega sektaða togaraskipstjóra og útgerðarfélaginu, sem fyrir tjóninu hefði orðið, en kröfu þýzka ríkisins myndi alls staðar verða vísað á bug vegna aðilda- skorts. Þetta skil ég, jafnvel þótt ég hafi ekki nægilega. „sérment- ún“ í lögfræði, hvað sem annari „sérmentun“ minni kann að líða. En úr því ég er farinn að tala um sérmentun, vildi ég vikja nokkrum orðum að því, að „Morgunblaðið“ lætur í veðri vaka, að sérþekkingu minni til starfs mins sé ábótavant, sam- an' borið við einn starfsbróður minn, sem var. „Morgunblaðið" telur fyrrverandi stjórn hafa lagt mikla áherzlu á það, að skip- stjórar íslenzkra varðskipa „hefðu sams konar sérmentun og heimt- uð er af varðskipaforingjum ann- ara ríkja". Þetta er óefað vel hugsað af fyrrverandi stjórn, en þó víst ekki nægilega vel. Svo er mál með vexti, að önnur ríki ájfunnar hafa hermál, og hafa því flest hernaðartæki, þar með tal-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.