Morgunblaðið - 16.08.1975, Side 23

Morgunblaðið - 16.08.1975, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. AGUST 1975 23 Birta Fróðadóttir í Dalsgarði - Minning Fyrstu kynni okkar Birtu i Dalsgarði standa mér nú svo ljós fyrir hugskotssjónum um leið og ég frétti um lát hennar. Það var rétt eftir stríðið og fólk var að streyma heim eft- ir margra ára utlegð. Þar á meðal var Jóhann Jónsson, ný- giftur danskri konu, góðum kvenkosti var okkur sagt. Mér var boðið heim til tengdafor- eldra hennar, Sigriðar Pét- ursdóttur og Jóns Jóhannsson- ar skipstjóra á Stýrimannastíg 6, til að heilsa uppá þau hjónin og bjóða Birtu velkomna til Islands. Hún stóð þarna I borðstofunni há og reisuleg og svo f ersk á svipinn í rauð- og hvítröndóttum kjól. Ég vissi að hún var bæði útlærður húsgagnasmiður og innan- hússarkitekt og sumir sögðu að hún ætti 25 ibúðir í Kaupmanna- höfn. Hún hafði lika átt heima við eina finustu götu Evrópu í heilt ár, i skandinaviska klúbbnum við via Condotti I Rómaborg. Birta var ein sjö barna Gerðu og Fróða Sörensens hagfræðings, sem lika var landbúnaðarkandídat og kennari við Landbúnaðarháskól- ann í Kaupmannahöfn, auk þess sem hann rak umfangsmikla gróðrarstöð I Lyngby. I for- eldrahúsum hét hún Birtha Sörensen, en hér á landi vildi hún heita Birta og lagði stolt sitt í að vera Fróðadóttir, föður sínum til mikillar ánægju, að sagt var. Ég varð heilluð af þessari stúlku og öllu i kringum hana. Aldrei hafði ég séð eins smekk- lega og fallega ibúð og þá sem hún var að innrétta þarna á kvistinum fyrir sig og mann sinn. Aður en varði, var hún búin að taka að sér að innrétta framtíðar- húsið mitt að Gljúfrasteini. Vikum saman hittumst við nærri daglega. Við fórum til Karólínu vefkonu og Birta bjó I hendur henni áklæði, salúnsábreiður og gluggatjöld fyrir allt húsið, teiknaði og valdi húsgögn fyrir smiðina I Björk, valdi liti á vegg- ina og útvegaði búshluti. Það var haldið reisiigildi þar sem við vorum bara tvær kvenna og áður en varði var komið fullbúið hús á hólinn. Litlu síðar fluttu þau Birta og Jóhann sjálf uppi Mosfellssveit, í Reykjahlíð, þar sem Jóhann tók við forstöðu Garðyrkjubús Reykjavíkur sem þá var þar, en setti svo upp sjálfstætt garðyrkju- bú, Dalsgarð. Börnin urðu 8 svo starfið og áhugamálin urðu önn- ur. Enga mömmu þekkti ég sem kunni betur að halda barna- afmæli eða jólagleði með alls- konar föndri, leikjum og góðgæti. Það var unun að starfa með Birtu I margskonar samvinnu fyrir Kvenfélag Lágafellssóknar, hvort heldur það var að skreyta jólatré i Hlégarði eða útbúa veit- ingar handa réttarköllum I Hafra- vatnsrétt. Þá var hún vön að söngla dálítið laglaust, og gekk undan henni einsog vél, en þó vann hún rólega og fyrirhafnar- laust og einhvernveginn fallegar og betur en flestir aðrir. Hún var lika sú kona sem átti einn kjól meðan aðrar áttu marga, en alltaf var hún kvenna best klædd á mannamótum. Það var hún líka 2 dögum fyrir andlát sitt, þegar hún var heima hjá mér I smá- fagnaði, siðfáguð, kurteis og hjartahlý að vanda, f fallega írska handofna kjólnum sinum. Þó klæddi hún sig þá upp af sjúkra- beði. Nú verða gönguferðir okkar Birtu ekki fleiri á Mosfellssveitar- veginum, en oft var það svo að við sáumst ekki allt sumarið, en fórum svo að hittast undir haustið og áttum þá veginn fyrir okkur á vetrarmorgnum, í rigningu, snjó og stundum góðu veðri. Blessuð sé minning hennar. Auður Sveinsdóttir, Gljúfrastcini. „Mjök erum tregt tungu at hræra“ ^ Þegar kær vinur deyr skyndi- lega, er eins og hugurinn lamist, höggið er svo þungt og snöggt. Svo kemur söknuðurinn og sorg- in, einkum við tilhugsunina um ástvinina, sem fyrir missinum verða. Smátt og smátt rifjast upp ótalmargar minningar, að vísu margar ljúfsárar, en allar bjartar, og það eru þær, sem búa áfram í huganum, þegar mesti söknuður- inn er liðinn hjá. Birta Fróðadóttir, sem ég vil minnast hér, lézt að morgni hins 9. ágúst. Hún var úr hópi þeirra dönsku kvenna, sem hafa fylgt eiginmanni sínum til Islands og tekið við það ástfóstri. Hún var íslenzkari en mörg konan af Islenzku bergi brotin og kunni til fulls að meta unað og töfra ís enzkrar náttúru. Húsmóðir var Birta frábær og gestrisin svo að af bar, enda var bekkurinn oft þétt setinn í Dals- garði, þar sem hjónin voru sam- hent um að láta öllum líða vel, sem að garði bar. Ég minnist margra ánægjustunda á heimili þeirra hjóna við fjörugar samræður og glatt viðmót, en ekki siður þeirra stunda er við nutum saman tvær með barnahópnum okkar beggja. Þar var Birta í ess- inu sínu. Hún var óþreytandi að finna verkefni og búa í hendur barna á öllum aldri og naut sin til fulls I miðjum hópnum, enda löð uðust börn og unglingar að henni alla tíð. Kæmi eitthvert vandamál upp, var alltaf til ráð til úr- lausnar, þryti efnivið, mátti alltaf finna eitthvað, sem kæmi að gagni i staðinn. Allt var gert með sama Ijúfa viðmótinu. Það var því engin furða þó að ekki einungis börnin, heldur líka nágrannar og vinir leituðu til Birtu um lausn eða umræðu um ólíkustu mál, og var ég ein af þeim. Alltaf kom ég aftur ríkari af þeim fundi og'efa ég ekki, að svo hefur verið um fleiri. Heimilið var stórt. Þau hjónin eignuðust 8 mannvænleg börn, svo að ærinn var starfinn, en hús- móðirin var óþreytandi í fyrir- hyggju sinni og umönnun. Samt gaf hún sér alltaf tima til að taka þátt I gleði og sorg nágranna og vina og aðstoða eftir megni, þar sem þess var þörf. Síðustu árin var heilsa Birtu mikið tekin að bila, en allt til þess síðasta duldi hún aðra þess, hvernig henni leið, enda kom dauði hennar eins og reiðarslagyfir alla. Birta Fróðadóttir fæddist 17. okt. 1919 á Sjálandi I Danmörku, en faðir hennar, Frode Sörensen, átti og rak mikla gróðrarstöð að Emdruphöj I Lyngby. Birta ólst þar upp á myndarheimili foreldra sinna i stórum hópi systkina, sem ætíð var mjög samrýndur. Hún stundaði nám I húsgagnasmíði og lauk sveinsprófi I þeirri grein. Manni sínum Jóhanni Jónssyni garðyrkjubónda, kynntist hún á Emdruphöj, þar sem hann vann garðyrkjustörf, en þangað sóttu menn að til náms og starfa víðs- vegar frá. Þau hjónin fluttust hingað til Iands strax að stríðinu loknu og tók Jóhann fljótlega við rekstri gróðrarstöðvarinnar í Reykjahlíð í Mosfellssveit. Að nokkrum árum liðnum stofnuðu þau sitt eigið býli sem þau nefndu Dalsgarð. Frumbýlingsárin voru oft erfið, en með sameiginlegu átaki heppnaðist hjónunum að reisa þar myndarlega garðyrkju- stöð. Nú er skarð fyrir skildi, þar sem húsmóðirin og móðirin er fallin frá langt um aldur fram. Við minnumst hennar öll með virðingu og þakklæti. Málfríður Bjarnadóttir. Afmælis- og minningar- greinar ATHVGLl skal vakin á því, að afmælis- og íninningargieinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast i síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og liliðstælí með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. Minning: Bjarni Kristmunds- son húsasmíðameistari Bjarni Kristmundsson lést 8. ágúst s.I. eftir langa sjúkdóms- legu og þar með er lokið viðburð- arrikri ævi. Bjarni fæddist 13.4. 1901 og var hann kenndur við Goðdal. En við bæinn Goðdal og Jóhann bónda i Goðdal, bróður Bjarna, kannast margir eftir hin- ar hörmulegu náttúruhamfarir (1948) sem þar urðu vegna snjó- flóðs, sem gróf bæinn og heimilis- fólkið og baráttu þess undir snjó- farginu og endalokin. Ég minnist þess alltaf hve Bjarni brást skjótt við þegar hann frétti um slysið og allt það sem hann gerði i þvi sambandi til hjálpar. Ekki veit ég um ætt Bjarna, en ef Bjarni hefur verið samnefnari ættarinnar, þá veit ég að minnsta kosti að hún hlýtur að hafa verið samvizkusöm og dugleg. Þessar fátæklegu línur eru skrifaðar sem kveðja frá gömlum svifflugfélögum, en ^ljarni var einn af máttarstólpum þess félags svo og Vélflugdeildar Svifflugfél- ags íslands og fl. Upphaf kunningsskapar okkar voru þau, að Bjarni tók herbergi á leigu í húsi þar sem heima áttu tveir svifflugfélagar. Þeim fannst Bjarni vera nokkuð einmana, en þeir kynntust honum samt fljót- lega. Bjarni hreifst af áhuga þeirra á flugmálum, sem varð til þess að hann fór að starfa með svifflugfélögunum og gerðist fél- agi og starfaði af lífi og sál uppfrá því í mörg ár. Bjarni var góður smiður, og þessvegna voru honum falin mörg vandasöm verkefni eins og t.d. að gera við brotna vængbita. Okkur þótti vissara að fela Bjarna það Sigurbjörn Teitsson Hvammstanga — Minning Nú á dögum eiga margir erfitt með að setja sig í þau spor og skilja þau viðhorf, sem blöstu við því fólki, sem var að vaxa upp og leggja út á lífsbraut sina um sið- ustu aldamót. Meginhluti nútiðar- fólks þekkir ekki annað en sívax- andi tækniþróun, þar sem véla- orkan i einni eða annarri mynd hefur leyst handaflið af hólmi. Upphaf aldarinnar er orðið fortíð, sern heyrir sögunni til og er svo fjarri, að flestir eiga erfitt með að gera sér grein fyrir því, við hvað fólk þurfti að búa og hvernig það leysti hin margvislegu verkefni af hendi. Sigurbjörn Teitsson tilheyrði aldamótakynslóðinni. Hann andaðist 9. ágúst s.l. 88 ára að aldri. Sigurbjörn var fæddur 26. júli 1887 að Dalkoti í Hlíðardal á Vatnsnesi, sonur hjónanna Ingi- bjargar Árnadóttur og Teits Halldórssonar, er þar bjuggu. Hann var fimmta barn af fimmtán systkinum, sem öll komust til fullorðins ára. Foreldrar Sigurbjörns bjuggu við lítil efni og oft var þröngt I búi. Þau lögðu því hart að sér til að vinna fyrir hinum stóra barna- hópi og þegar börnin komust á legg beið þeirra vinnan bæði heima og að heiman til þess að hjálpa til við að sjá heimilinu farborða. Og ekki hvað sízt lenti það á eldri börnunum. Sigurbjörn fór þvi ekki varhluta af mikilli vinnu strax og hann gat farið að snúast heima fyrir og þegar árun- um fjölgaði var farið að lána hann til vinnu utan heimilis. Flest þátímaverk til lands og sjávar vann Sigurbjörn. Var i kaupavinnu á sumrin og sótti sjó- inn bæði heima og á vertíðum sunnanlands. Svo langt, sem ég man, vann Sigurbjörn við slátur- hús Kaupfélags Vestur- Húnvetninga á haustin og mikið við smiðar aðra tíma og margt rekaviðartré sagaði hann um dag- ana. Aldrei minnist ég þess að Sigurbjörn hefði ekki alltaf nóg verkefni framundan, enda var það hvorttveggja að hann var góð- ur verkmaður að hverju, sem hann gekk, ákaflega trúr og vand- virkur og að hann tók lág laun. Sigurbjörn var mjög bóngóður og átti erfitt með að neita nokkrum manni. Oft var til hans leitað fyrr á árum til að fara kaup- staðarferðir og þá einkum að vetr- arlagi. Var þá ekki um annað að ræða en fara fótgangandi og bera verkefni, þvi við vissum að þá væri óhætt að treysta vængnum. En það var ekki nóg með að við eignuðumst góðan og samvizku- saman félaga, heldur var hann mörgum okkar sannur velgjörðar- maður. Fyrir það viljum við einn- ig þakka. Þá var undirrituðum vel kunnugt um hve hann lét sér annt um hag bróðursona sinna, er misst höfðu svo mikið I snjóflóð- inu sem minnzt var á hér að ofan. Bjarni átti sjálfur við erfiðleika að etja, meðal annars missti hann annað augað. Og svo varð hann fyrir þvi slysi við vinnu sina að falla af vinnupalli, sem reistur hafði verið í kirkjukór og slasast. En Bjarni var ekki á því að gefast upp. Hann var geysiharður við sjálfan sig. Liklega hefur hann alizt upp við mikla vinnu og harða baráttu við óblíða veðráttu. Enda virtist okkur slæm veður ekki aftra honum frá að vinna, þvi hann vildi standa við gefin loforð á hverju sem gekk. Bjarni bar þess lika merki, til dæmis voru hnúar hans krepptir og ann- ar handleggur máttlitill. En áfram reyndi Bjarni að vinna þótt hann þyrfti að lyfta handleggnum með hinni og láta hana styðjast, t.d. við vegg, þegar hann þurfti að negla nagla. Það er ótrúlegt hverju sterkur vilji fær áorkað. Við gömlu svifflugfélagarnir kveðjum Bjarna og þökkum hon- um samfylgdina og aðstandend- um hans vottum við samúð okkar. S.H.O. varninginn á sjálfum sér. Voru byrðarnar þá oft æði þungar, þeg- ar allir pinklarnir voru saman komnir og vegalengdin, sem fara þurfti 20 til 30 km. Og oft-valdist Sigurbjörn til annarra ferða, sem ekki reyndu síður á karlmennsku og dug, en það voru ferðir I lækniserindum og að ná í meðul fyrir fólk. Var þá haldið sleitu- laust áfram og ekki spurt um, hvort var dagur eða nótt, góð færð eða öfærð og var þá oft tekizt á við norðlenzk hriðarveður, óbrú- aðar ár og langar vegalengdir. Og ekki veit ég til þess að hann hafi tekið laun fyrir slik störf. Þar lét hann þakklætið nægja. Framhald á bls. 17. — Landhelgis- brot Framhald af bls. 24 ir,“ sagði dómsmálaráðherra, „en það getur alltaf og alls staðar komið fyrir að menn brjóti lög.“ Er hann var spurður hvort vænta mætti einhverra sérstakra að- gerða af hálfu hins opinbera með tilliti til þess hve mörg slík mál hafa komið upp að undanförnu, svaraði hann: „Mál þessara báta verða auðvitað rannsökuð og þeir dæmdir, ef sekir reynast. En ég tel það þá frekar vera sjávarút- vegsráðuneytisins að gera sér- stakar ráðstafanir, ef ástæða þyk- ir til.“ Landhelgisgæzlan stóð á fimmtudagskvöldið tvo báta frá Grundarfirði, Kóp SH og Harald SH, að ólöglegum togveiðum um 1,5 sjómílur innan leyfilegra marka á Breiðafirði. Voru starfs- menn gæzlunnar á leið til Reykja- vikur í lítilli leiguflugvél, er þeir sáu bátana. Höfu starfsmennirnir verið að koma frá réttarhöldum i máli tveggja togbáta frá Grundar- firði, sem staðnir höfðu verið að ólöglegum togveiðum langt innan leyfilegra marka á Breióafirði fyrir fáum dögum. I það skiptið hafði þriðji báturinn einnig verið kallaður til hafnar, grunaður um ólöglegar veiðar, en við rannsókn kom í ljós, að hann hafði verið á dragnótarveiðum i fullum rétti. Um þetta atriði sagði Pétur Sig- urðsson forstjóri Landhelgisgæzl- unnar í samtalinu við Mbl. i gær: „Það er orðinn svo litill munur á veiðarfærum I sumum tilvikum, vart nema nafnið, að það er ó- gerningur að sjá það úr lofti, hvaða veiðarfæri er um að ræða, nema þegar þau hafa verið dregin inn. Og það getur engin flugvél beðið eftir þvi að veiðarfærin séu dregin inn, nema þá helzt þyrla.“ - Réttarhöld i máli bátanna tveggja, sem teknir voru á Grundarfirði i fyrrakvöld, gátu ekki hafizt á Grundarfirði i gær, þar sem þoka hamlaði flugi land- helgisgæzlumanna frá Reykjavík. Mál hinna tveggja bátanna voru komin til saksóknara og var beðið ákvörðunar hans i þeim. SÍÐUSTU FRÉTTIR Klukkan tíu I gærkvöldi lauk réttarhölduin i máli skipstjórans á Surtsey V'E vegna meintra ölög- legra veiða innan markanna við D.vrhólaey. Skipstjórinn var sýkn- aður af öllum kæruatriðuni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.