Morgunblaðið - 22.08.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1975
13
Argentína:
Kyrrð komin
á í Cordoba
Cordoba, Buenos Aires, 21. ágúst. AP?
LÖGREGLUMENN með alvæpni
gengu um götur f Cordoba, næst-
stærstu borg Argentínu, f dag og
var að mestu kyrrt f borginni, en
þó heyrðust skothvellir við og við.
Sjö létust og tuttugu særðust f
skotárásum skæruliða á lögreglu-
stöðvar f borginni f gær. Allir
pólitfskir flokkar f Iandinu hafa
fordæmt árásirnar, þ.á.m. flokkar
kommúnista og sósfalista.
Sprengjur sprungu í borginni á
nokkrum stöðum, en alvarleg slys
urðu ekki á fólki. Lögreglan var
önnum kafin við að eyðileggja
sprengjur sem fundust frá því í
Ákveðinn hvalakvóti
á suðurhveli jarðar
Tókíó 21. ágúst AP.
JAPAN Sovétríkin, Brazilfa og
Suður-Afríka náðu samkomulagi
f dag um árlegan hvalakvóta á
suðurhveli jarðar. Hafa viðræður
þessara þjóða staðið yfir f viku-
tfma. Brazilfumenn settu fram
kröfur um stærri skerf til sfn f
Suðaustur-Atlantshafinu, en
þeim var hafnað.
Vegna þeirra umræðna sem
spruttu af kröfu Brazilíumanna
dróst fundurinn verulega, en full-
trúar höfðu talið að ljúka mætti
honum með samkomulagi átveim-
ur dögum. Japanir fá nú að veiða
samtals um 4400 hvali, Sovétríkin
i>m 3900, Suður-Afrfka rösklega
130 og Brazilíumenn 640 hvali.
gær og höfðu ekki sprungið, en
þeim hafði verið dreift víða um
Cordoba.
Maria Estella Peron forseti
Argentínu á við ný vandamál að
stríða og er hún nú sökuð um að
hafa ætlað að láta renna í eigin
vasa fjármuni sem eru i eigu
mannúðarstofnunar. Stuðnings-
menn hennar segja, að um bók-
haldsmistök hafi verið að ræða og
hafi þau verið leiðrétt. Frú Peron
sakar einn fyrrverandi ráðherra
sinn, Benitez að nafni, um að hafa
komið orðrómi af stað um fjár-
drátt, til þess að ná sér niðri á
forsetanum eftir að hún lét hann
hætta í ráðherraembætti. Þannig
vill til að Benitez þessi er einnig
lögfræðingur frúarinnar og telja
fréttaskýrendur ljóst að ekki séu
öll kurl komin tíl grafar í þessu
máli.
Ollu mistök
flugslysinu?
Damaskus, 21. ágúst. AP, Reuter.
YFIRMAÐUR flugmála I Sýr-
landi sagði í dag, að mistök íl’ty
stjórans í tékknesku flugvéhiiiti.
sem fórst þar í landi í gær, heíðu
valdið slysinu. Sagði hann, Ti
allar ytri aðstæður hefðu vtn:
eins og bezt varð á kosið og fi\
maðurinn hefði ekki minnzi a
nein tæknileg vandamál í viðra. 3
um sínum við starfsmenn I flu;
turninum á Damaskus-flugveili
en þar átti vélin að lenda. Enn c
leitað að „svarta kassanum“ u
vélinni en þar ætti að vera u >
finna upplýsingar, sem skera ú'
um orsakir slyssins. 126 mai.ni
fórust með þessari flugvél, flcst
þeirra Tékkar. Vélin var á leið fr .i
Prag þegar slysið varð.
(AP-fréttamynd)
PORTtJGAL: — Stuðningsmenn kommúnista lúberja
andkommúnista eftir útifund kommúnista í miðhluta
Portúgal 16. ágúst sl. Maðurinn hlaut alvarleg meiðsli og
svo var um marga fleiri.
Tekur
við af
Carlos Fabiao
Goncalves?
Lissabon, 21. ágúst. AP. Reuter.
MIKIL óvissa ríkti f Portúgal í
dag um framtfð stjórnar Vasco
Goncalves forsætisráðherra og
var orðrómur á kreiki um að hann
kynni að segja af sér innan tíðar.
Hófsamari herforingjar innan
Selja Bandaríkjamenn
vopn til Júgóslavíu?
Belgrad 20. ág. Reuter.
JUGÓSLAVIA endurnýjaði f dag
beiðni um bandarísk vopn, að þvf
er áreiðanlegar heimildir úr röð-
um fulltrúadeildarþingmanna
hermdu. Málið var rætt á fundi
bandarfskra þingmanna, sem eru
í heimsókn í Júgóslavfu, og Milos
Minic, utanríkisráðherra Júgó-
slavíu, og fleiri ráðamanna.
Bandaríkjamenn hafa ekki selt
Júgóslövum vopn af neinu tagi
árum saman, en nú er talið að
Júgóslavar leiti eftir ýmiss konar
rafeindabúnaði og ákveðnum eld-
Framhald á bls. 27
samtaka hersins eru sagðir undir-
búa brottför Goncalves úr emb-
ætti. Talsmaður forsetans, Costa
Gomes, en hann hefur vald til að
skipa nýjan forsætisráðherra,
sagði f dag, að tilkynningar væri
brátt að vænta frá skrifstofu for-
setans. Talsmaðurinn vildi hvorki
staðfesta né neita fregnum um að
hófsamir herforingjar undir for-
ystu Melo Antunes, fyrrum utan-
ríkisráðherra, hefðu hótað þvf að
gera nýja byltingu í landinu ef
Goncalves yrði ekki vikið frá.
Á skrifstofu Goncalves var látið
í það skína að hann mundi ekki
segja af sér fyrr en í fulla hnef-
ana. í Lissabon veltu menn vöng-
um yfir hver yrði eftirmaður Gon-
calves, fari svo að hann segi af
sér. Var af flestum talið líklegast
að Carlos Fabiao, 45 ára gamall
yfirhershöfðingi, yrði fyrir valinu
og er talið að hófsamir herfor-
ingjar geti fallizt á hann. Sömu-
leiðis er talið að þeir Costa Gomes
og Carvalho, yfirmaður öryggis-
sveitanna Copcon, geti sætt sig
við Fabiao.
Cunhal, leiðtogi portúgalska
Kommúnistaflokksins, fýsti því
yfir í gærkvöldi, að flokkur hans
gæti sætt sig við að skipt yrði um
stjórnarforystu, en Cunhal hefur
fram til þessa verið ákafur stuðn-
ingsmaður stjórnar Goncalves.
Enn skotið á saklau^
fólk á Norður-írlanci
Belfast, 21. ágúst. AP.
MORÐSVEITIR gerðu f -s;
tvær árásir á vegfareii! ar
f Belfast og létust tveir irie .n
aft völdum þeirra en einn sir.. ð-
ist. Ungur kaþólskur mað sr
var skotinn til bana á leið ,d
vinnu sinnar f morgun og þreí.-ar
stundum sfðar var mótmælei’ :a-
trúarmaður skotinn á benzfn;' >ð
stutt frá Belfast. Alls hafa 1379
beðið bana á Norður-trlandi I.
sex ár vegna deilna káþólikka g
mótmælendatrúarmanna «m
framtið landshlutans.
Sprengjum var varpað á nokAr-
um stöðum á miðvikudagsk\Tid
og hlutu nokkrir meiðsli.
Þessar siðustu ofbeldisaðgc, j«r
koma í kjölfar þess að viðr;?f ar
milli fulltrúa trúflokksnna
tveggja fóru út um þúfur sl. mið-
vikudag.
■
M
1
Verður „þorskastríð”
á Suður-Atlantshafi
SUÐUR-AFRlKU er
mikill vandi á höndum
í fiskveiðimálum að
sögn brezka blaðsins
Financial Times. Ot
veiði er mikil á auðug-
um fiskimiðum við
strendur landsins.
Samkomulag hefur
tekizt um takmarkanir
á möskvastærð og
eftirlit með því að það
sé virt. Næsta skrefið
verður líklega kvóta-
kerfi en þá óttast
Suður-Afríkumenn að
fá of lítið í sinn hlut.
Þvi hefur komið til
tals að færa landhelgi
Suður-Afrfku út f 200
mílur þótt líklega
verði bið á því.
Fjórtán þjóðir veiða
til samans rúm'.ega
þrjár milljónir lesta á
miðum Suður-
Afríkumanna á Suð-
austur-Atl antshaf i
sem eru talin sjöttu í
röð 19 mikilvægustu
fiskimiða heimsins.
Þar af veiða þeir sjálf-
ir 1.3 milljónir lesta
en megnið af því
innan tólfmílna marka
og aðeins 10% kol-
munnaaflans, sem er 1
milljón lesta á ári og
þeir sátu einir að fyrir
fimmtán árum. Afli
Rússa hefur hins
vegar áukizt úr 82.000
lestum 1965 í rúmlega
700.000 lestir en afli
Spánverja er 200.000
lestir og hefur lftið
breytzt.
Nú hafa Suður-
Afrikumenn komið
sér upp einhverjum
nýtízkufegasta togara-
flota heims búnum
fullkomnustu tækjum
en geta ekki aukið afla
sinn vegna aukinna
veiða útlendinga. Þó
hefur dregið úr hættu
á ofveiði vegna samn-
ingsins um takmark-
anir á möskvastærð
sem var gerður fyrir
tilstilli Suðaustur-
Atlantshafs fiskveiði-
nefndarinnar
(ICSEAF) en að
henni standa auk
Suður-Afríku: Rúss-
land, Spánn, Japan,
Belgía, Frakkland,
Austur-Þýzkaland,
Kúba, Portúgal, Búlg-
aría og Pólland.
Ef kvótakerfi verð-
ur komið á verður það
líklega byggt á afla-
skiptingunni hingað
til og Rússar munu
áreiðanlega beita sér
fyrir því að slíkt kerfi
verði tekið upp með
stuðningi annarra
kommúnistaríkja.
Vandi Suður-Afríku
er í því fólginn að
stuðningur ICSAEF
er nauðsynlegur til að
afstýra rányrkju en ef
svo fer að kvótakerfi
verður samþykkt
munu aðrar þjóðir
gera kröfu til „hefð-
bundinna veiðirétt-
inda“ ef landhelgin
verður færð út í 200
milur.
Suður-Afríkumenn
hafa tekið aðild sina
að Sameinuðu þjóðun-
um til endurskoðunar
og hættu því við þátt-
töku sína á hafréttar-
ráðstefnunni, en
senda ugglaust full-
trúa til hennar þegar
hún hefst að nýju í
New York i apríl ef
þeir verða áfram f SÞ.
Von þeirra er sú að
sem flest ríki færi út
landhelgina i 200
mílur svo þeir geti
farið að dæmi þeirra
en afstaða þeirra er sú
að bíða átekta þar til
málin skýrast.
Ef landhelgin verð-
ur færð út áður en
kvótakerfi kemst á
sitja Suður-Afríku-
menn einir að
355.000 lestum af kol-
munna sem veiðist á
Öraníufljótsmiðum og
Agulhasbanka á Suð-
austur-Atlantshafi.
Erlendar þjóðir verða
að fá undanþágur ef
þær vilja halda áfram
veiðum á þessum
miðum, samkvæmt
sérstökum leyfum eða
samningum. En ólfk-
legt er talið að Suður-
Afrika færi út land-
helgina í 200 mílur
meðan framtíð Nami-
biu (Suðvestur-
Afríku) er óútkljáð
þvi ókleift væri að
halda uppi eftirliti á
umræddum miðum án
þess að Namibia færði
lika landhelgi sína út í
200 mílur.
• • •** •:
litmyndir
yöar á 3 dögum
Umboösmenn um land allt
|a|
m
1
ÍT1!1 FH m
Wm
íf jPaj
- ávallt feti framar.
Hans Petersen
Bankastræti — Glæsibæ
S 20313 S 82590
m
4