Morgunblaðið - 25.10.1975, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1975
9
JTI % .
maður K.R.F.Í., flutti ljóðið
„Kvennaslagur" eftir Guðmund
Guðmundsson og siðan söng
kvennakór lag eftir Sigfús Einars-
son við ljóð Guðmundar, en höf-
undar tileinkuðu Kvenréttmda-
sambandi Islands Ijóð og lag á
fyrstu starfsárum þess.
Jákvæð barátta.
Næst var ávarp Bjargar Einars-
dóttur, verzlunarmanns. Björg
spurði m.a. í ræðu sinni að því,
hvort konur hvettu dætur sfnar í
uppeldi til jafns við syni sína.
Hún kvað þá baráttu, sem dagur-
inn væri helgaður, jákvæða og
upphaf að miklu Iangtímaverk-
efni og kvað leiðina til jafnréttis-
stefnunnar vera þá að hjúskapur
veldi ekki konunni starf, heldur
utanaðkomandi aðstæður. Konan
yrði að verða raunverulegur þátt-
takandi í þjóðfélaginu. Hún tók
undir lok ávarps síns sér í munn
orð formanns kvennaársnefndar
Sameinuðu þjóðanna, Helvi
Sipila, er hún heimsótti ísland
siðastliðið sumar — að bætt
aðstaða konunnar, bætti aðstöðu
heimilanna, sem hefðu aftur í för
með sér bætt heimili.
Guðrún Á. Símonar stóð nú enn
fyrir fjöldasöng og var sungið
lagið „Ó, ó, stelpur“, en að þvi
búnu hófst þáttur Rauðsokka-
hreyfingarinnar með baráttu-
söngvum og hvatningum inni á
milli. Kom þar m.a. fram að kyn-
ferðislegt jafnrétti væri ekki nóg
og aðeins hálfur sigur, heidur
þyrfti efnahagslegt jafnrétti einn-
ig að fylgja. Sögðu rauðsokkar að
konur þyrftu að læra af mistökum
karla og stofna nýtt og réttlátara
þjóðfélag, sem tryggðu öllum
jafnan rétt — stéttlaust þjóð-
félag.
Mamman á lika að hugsa.
Siðasti ræðumaðurinn á
fundinum var Asthildur Ólafs-
dóttir, húsmóðir. Asthildur hóf
ræðu sína á dálítilli dæmisögu —
samtal músamömmu við unga
sína. Ungarnir fóru að ræða um
það, hvað væri „að hugsa“. Síðan
spurðu ungarnir, hvort mamman
hugsaði. Nei mamman hugsaði
aldrei og það gætu ungarnir held-
ur ekki. Er það þá bara pabbi,
sem hugsar — spurðu ungarnir.
Já — kvað mamman — og hann
hugsar líka mikið. Þá spurði Ást-
hildur, hvort ekki mætti snúa
þessari dæmisögu upp á konur og
kvaðst óttast að skammt væri
þarna milli músar og manns. Hún
hvatti konur til samstöðu og sagð-
ist vona að þegar komið yrði
saman á ný á Lækjartorgi yrðu
aðstæður allt aðrar en þær væru í
dag.
Að ræðu Ásthildar lokinni
stjórnaði Guðrún Á. Simonar
fjöldasöng og var nú sungið lagið
„Hraustar konur“ við gamal-
kunnugt lag, þar sem fjallað er
um hitt kynið, en að þessum sam-
söng loknum hófst kvenna-
krónika í þríliðu, sem var f senn
skemmtileg og fyndin samtýn-
ingur úr rituðu máli í fortfð og
nútið. Saman tóku: Anna Sig-
urðardóttir, Sigríður Thorlacius
og Valborg Bentsdóttir, en
flytjendur voru: Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Helga
Bachmann, Sigríður Hagalín,
Briet Héðinsdóttir, Sigurður
Karlsson og Herdis Þorvalds-
dóttir, sem stjórnaði flutningi. í
lokin og áður en Guðrún Erlends-
dóttir sleit fundi var fjöldasöngur
og var sungið lagið „öxar við
ána“. Á eftir fundinum lék lúðra-
sveit stúlkna i Kópavogi „Saman
við stöndum" og fleiri lög.
Fjöldi skeyta barst
Fundinum barst fjöldi heilla-
skeyta, sem talin skulu nú upp I
þeirri sömu röð sem þau voru
lesin upp á fundinum: Beztu
kveðjur frá Birgi Isleifi Gunnars-
syni borgarstjóra, ástarkveðjur
frá Farmanna- og fiskimannasam-
bandi Islands með von um að kon-
ur hasli sér völl á skipum lands-
manna á jafnréttisgrundvelli,
kveðja frá Kristínu, Gyðu og
Regínu á m.s. Fjallfossi, baráttu-
kveðja frá Uppsaladeild SÍNE,
kveðja frá Kvinnefronten í Nor-
egi, árnaðaróskir og baráttukveðj-
ur frá Sambandi ungra
jafnaðarmanna, baráttukveðjur
frá Saumastofunni Violu á Skaga-
strönd, kveðja frá Norsk Kvinne-
forening, stuðningsyfirlýsing frá
Kommúnistasamtökunum Marx
Leninistum í Reykjavik og á
Akureyri, kveðja frá karl-
mönnum í Sigöldu, þar sem þeir
sögðu: allir stöndum við með
ykkur og föllum, baráttukveðjur
frá konum i Starfsmannafélagi
Útvegsbankans, hamingjuóskir
frá stjórn FUJ, baráttukveðjur
frá Alþýðubandalaginu f Grunda-
firði, kveðja frá kvenfrelsisstarfs-
hóp á Neskaupstað, stuðningsyfir-
lýsing frá konum i Reiknistofnun
bankanna, kveðja frá konum á
Veðurstofunni á Keflavíkurflug-
velli, kveðja frá starfshóp í laga-
deild, kveðja frá starfsmönnum
renniverkstæðis Vélsmiðjunnar
Héðins, kveðja frá Listafélagi
Menntaskólans í Reykjavík,
Skólablaði MR og Herranótt,
kveðja frá tslendingum í Þránd-
heimi, kveðja frá Kommúnista-
samtökunum, kveða frá Sam-
bandi íslenzkra bankamanna,
kveðja frá nemendum i 4.—S í
Menntaskólanum við Tjörnina,
kveða frá Alþýðusambandi
íslands, kveðja frá Norska hús-
mæðrasambandinu, kveðja frá
kvennasamtökum Social-
istisk folkeparti í Dan-
mörku, kveðja frá Rauðsokkum í
Kaupmannahöfn, kveðja frá
Rauðu sveitinni i Þrándheimi,
kveðja frá 4. T í Menntaskólanum
við Tjörnina, kveðja frá
nemendasambandi Menntaskól-
ans við Hamrahlíð, kveðja frá
Alþýðubandalaginu i Kópavogi,
kveðja frá konum, sem eru á
Bifröst í Borgarfirði, kveðja frá
konum f Sindrabæ i Höfn i Horna-
firði, kveðja frá flokksstjórn og
þingflokki Samtaka frjálsíynd'ra'-
og vinstri manna, kveðja frá
Menningar- og fræðslusambandi
alþýðu, kveðja frá dönskum
blaðamanni, kveðja frá stjórn
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna með stuðningsyfirlýsingu,
kveðja frá Félagi íslenzkra mynd-
listarmanna og kveðja frá Sjálf-
stæðiskvennafélaginu Hvöt.
A fundinum voru ekki aðeins
konur í Reykjavik eins og gefur
að skilja, heldur fjölmenntu kon-
ur alls staðar að úr nágranna-
byggðum höfuðborgarinnar á
fundinn. Þar var einnig allmargt
karla. Dagskrárstjóri fundarins
var Guðrún Asmundsdóttir,
leikari.
Afmœli
SJÖTUGSAFMÆLI á I dag Sig-
þrúður Sigrún Eyjólfsdóttir
Skólavörðustíg 33 R.