Morgunblaðið - 28.01.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1976
150 þúsund-
um stolið
í Selfossi
150 þúsund krónum var í gær
stolió um borð i Selfossi í Reykja-
víkurhöfn. Peningarnir voru í
eigu eins skipverja. Málið er í
rannsókn.
Togaralandanir
1 Siglufirði
Siglufirði 26. janúar.
STÁLVlK kom hingað með 75
tonn af fiski í morgun til lönd-
unar. Þá er Dagný væntanleg í
fyrramálið með góðan afla. — mj.
Stanzlaus loðnu-
löndun á EskifirS
Eskifirði 27. jan.
STANZLAUS loðnulöndun hefur
verió hér frá því á hádegi í gær til
hádegis í dag. Alls hefur verið
landað um 3500 lestum úr 14 bát-
um. Byrjað verður aftur að landa
núna seinnipartinn en þá fara
bátar að koma inn aftur.
Línubátar voru með sæmilegan
afla í gær og eru allir á sjó í dag.
Þá landaði Hólmatindur 60—70
lestum í gær. — Ævar.
Loðna til Fá-
skrúðsfjarðar
Fáskrúðsfirði, 27. janúar.
FYRSTA loðnan kom til
Fáskrúðsfjarðar I gær. Kristbjörg
VE og Helga Guðmundsdóttir BA
komu með rúmar 500 lestir sam-
tals. Að minnsta kosti einn bátur
er væntanlegur I kvöld með
rúmar 400 lestir.
Skuttogarinn Ljósafeil landaði
hér um 90 lestum í gær og hefur
hann aflað núna í tveimur veiði-
ferðum um 270 lestum. Megnið af
aflanum var þorskur.
Asahláka er hér á Fáskrúðsfirði
í dag. Kemur það sér mjög vel
fyrir vegagerðina, en Fáskrúðs-
fjörður hefur verið í hálfgerðu
svelti með samgöngur að undan-
förnu, því aðeins er ýtt hér á milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
tvisvar í viku. — Albert.
Fyrsta loðnan til
Reyðarfjarðar
Reyðarfirði 26. janúar
FYRSTU loðnuskipin eru komin
til Reyðarjfarðar en þau eru:
Helga 2. frá Reykjavík með 200
lestir og Börkur frá Neskaupstað
með 700 lestir. Tvö önnur skip,
Svanur RE með 140 lestir og
Helga Guðmundsdóttir BA með
400 lestir, eru á leið hingað.
Samtals koma þessi skip með 1470
lestir. — Greta.
Karlakórinn
Svanir 60 ára
KARLAKÖRINN Svanir heldur
um þessar mundir upp á 60 ára
starfsafmæli sitt. Heldur kórinn í
því tilefni afmælissamsöng í sal
Menntaskólans við Hamrahlíð
n.k. sunnudag.
Karlakórinn Svanir var stofn-
aður á Akranesi árið 1915 að til-
hlutan nokkurra söngáhuga-
manna þar. Hefur kórinn verið
starfræktur síðan nema eitt ár
sem starfsemi lá niðri.
Á afmælistónleikunum eru ein-
söngvarar með kórnum Ágúst
-Guðmundsson og Kristinn Halls-
son óperusöngvari. Undirleikari
er frú Fríða Lárusdóttir.
Stjórnandi kórsins er Haukur
Guðlaugsson.
10 ær bornar í
Volaseli í Lóni^
67,1% samdráttur
í bílainnflutningi
MJÖG mikill samdráttur gefur út og unnið er upp úr
hefur orðið í bifreiðainn-
flutningi til landsins miili
áranna 1974 til 1975. Á
árinu 1975 voru alls fluttir
inn 3.494 bflar, en á árinu
1974 voru fluttir inn 10.633
bílar. Bílainnflutningur-
inn á árinu 1975 var þann-
ig aðeins 32,9% af
innflutningi bíla árið áður.
Samdrátturinn nemur því
67,1% í bflainnflutningi
til landsins.
Þessar upplýsingar komu frá
fréttabréfi, sem Hagstofa Islands
skýrslum um bifreiðar, sem toll-
afgreiddar eru i janúar til desem-
ber að báðum mánuðum meðtöld-
um. Auk tollafgreiddra bíla er
einnig tekið tillit til bíla, sem sala
varnarliðseigna afhendir til
skráningar.
Sú tegund bíla, sem mest var
flutt inn af, var Ford Cortina, 226
bifreiðar, næst kemur Mazda 929
meó 144 bifreiðar, þriðja sölu-
hæsta tegundin er Land-Rover
Diesel með 117 bifreiðar, þá Ford
Escort með 109 bifreiðar og
Austin Mini með 102 bifreiðar.
Aðrar tegundir náði ekki tölunni
100 á tollaskýrslum.
þrátt fyrir að 2-3 mánuðir séu í sauðburð
Lítið sem ekkert
veitt á miðunum
SU NVLUNDA hefur gerst, að
hjá bóndanum 1 Volaseli 1 Lóni,
Benedikt Egilssyni, hafa 10 ær
þegar borið 14 lömbum, og eru
samt 2—3 mánuðir 1 sauðburð.
Sagði Benedikt í samtali við
Morgunblaðið í gær, að hann
byggist jafnvel við þvf að fleiri
kindur myndu bera á næstu
dögum. Sagðist Benedikt enga
skýringu kunna á þessu fyrir-
bæri, en öll eru lömbin, hin
fallegustu og eðlileg að stærð
og sköpulagi.
„Ef allt væri eðlilegt ættu
ærnar ekki að byrja að bera
fyrr en í apríl," sagði Benedikt
í samtalinu við Morgunblaðið,
en hann hefur um 300 ær á
fóðrum í vetur. Kvaðst hann
Viðskiptaráðuneytið gaf
í dag út reglugerð, sem fel-
ur í sér þá breytingu, að
innflutningur á kexi og
brauðvörum verði fram-
vegis háður innflutnings-
og gjaldeyrisleyfum, en
undanfarið hefur innflutn-
ingur þessara vara verið
frjáls, og á s.l. ári fluttu
íslendingar þessar vörur
ætla að hafa samband við
búnaðarráðunaut vegna þessa
máls og Ieita hjá þeim skýringa
og ráða, en það er vitanlega
óheppilegt þegar mikil brögð
eru á því að ær beri svo
snemma. Sagði Benedikt að
hann vissi ekki til þess að um-
ræddar ær hefðu beitt óvenju-
lega snemma, en ær ganga að
jafnaði með lömb í 140 daga.
Tilfelli svipuó þessu hafa
áður, komið upp en þess munu
ekki dæmi að svo margar ær
hafi borið í janúar á sama bæ
og nú. Fyrir nokkrum árum
kom slíkt óeðli upp í ám á bæ
einum í Borgarfirði og var þá
gripið til þess ráðs að skera
stofninn og skipta um stofn.
inn fyrir um 300 milljónir
króna, að því er Björgvin
Guðmundsson, skrifstofu-
stjóri í viðskiptaráðuneyt-
inu, tjáði Morgunblaðinu f I
gærkvöldi.
I reglugerðinni segir, að
innflutningskvótar fyrir
þessar vörutegundir verði
ákveðnir síðar.
Björgvin Guðmundsson
TÆPLEGA 40 togarar voru 1 gær
á svæðinu við Rifsbanka, sem er
norðnorðvestur af Langanesi, og
héldu tvö varðskip, Týr og Óðinn,
togurunum frá veiðum allan dag-
inn og 1 gærkveldi var enn
óbreytt ástand þótt Óðinn þyrfti
að skreppa til Húsavfkur og
sækja vatn. Nokkru utan við hóp-
inn voru 4 til 5 togarar og var
ekki vitað um hvað þeir aðhöfðust
og var jafnvel talið að þeir væru
að veiðum.
Togararnir fengu fyrirmæli í
fyrrakvöld um að halda sig saman
sagði, að til kextegund-
anna, teldist ennfremur
súkkulaðikex, en það væri í
sömu tollnúmerum og
aðrar kextegundir.
Aðspurður sagði
Björgvin, að hann vissi
ekki til að fleiri aðgerða
væri að vænta á næstunni
varðandi frilistavörur.
í hóp og samkvæmt upplýsingum
Péturs Sigurðssonar var auðvelt
fyrir varðskipin að hafa stjórn á
hlutunum á miðunum. Fengu
togararnir fyrirmæli um að hífa,
ef þeir settu veiðarfæri í sjó og
hlýddu þeir. Varðskipin biðu
átekta og hið sama gerðu
togararnir. Ekki reyndist unnt að
senda varðskip til þess að aðgæta
um hegðan togaranna, sem voru
utan við hópinn, þar sem talið var
að þeir myndu hefja veiðar, hyrfi
eitt varðskip frá hópnum.
Landhelgisgæzluflugvélin SÝR
fór ekki i könnunarflug í gær þar
sem flugvélin er í skoðun. 1 dag
mun Landhelgisgæzlan þó fara í
gæzluflug og hefur leigt til þess
Blikfaxa, eina af Fokker Friend-
ship-flugvélum Flugfélags
Islands h.f. Er sú flugvél útbúin
ratsjá og sett verður í hana loran-
tæki. Er þetta í fyrsta skipti í
fiskveiðideilunni, sem Land-
helgisgæzlan leigir flugvél hjá
Flugfélaginu, en áður hefur hún
oft tekið Flugfélagsvélar á leigu.
Yfirnefndin
fjallar um loðnu-
og fiskverð
YFIRNEFND Verðlagsráðs
sjávarútvegsins kom saman til
fundar í gær til að fjalla um fisk-
verð það, sem á að taka gildi eftir
1. febrúar n.k., en sem kunnugt er
gengur fiskverð úr gildi þá og
ennfremur loðnuverð. Enginn
árangur mun hafa náðst á
fundinum í gær.
Kex og brauð:
Innflutningur fram-
vegis háður leyfum
Flutt inn fyrir 300 millj. kr. sl. ár
Geirfinnsrannsóknin ein sú
umfangsmesta hér á landi
VEGNA hinna nýju viðhorfa I Geirfinnsmálinu svonefnda þykir
Morgunblaðinu rétt að rifja hér aðeins upp hvernig hvarf hans
bar að 19. nóvember 1974 og rannsókn þess, ei óhætt er að
fullyrða að fá mál hafi vakið jafn mikla athygli almennings sem
þetta mál:
Rannsóknin beindist fyrst að
því að kanna ævi Geirfinns og
allt það, sem honum við kom,
svo og kanna hvað gerðist dag-
inn, sem hann hvarf. I því sam-
bandi voru mjög margir yfir-
heyrðir, fjölskyldumeðlimir,
vinir, vinnufélagar, afgreiðslu-
stúlkurnar 1 Hafnarbúðinni og
fl. og fl. Samkvæmt framburði
vinnufélaga Geirfinns ætluðu
þeir saman í bíó þetta umrædda
kvöld. Geirfinnur var einn
heima hjá sér milli kl. 18 og 20,
og á þessu tímabili er talið, að
hann hafi fengið símhringingu,
sem breytti þessum áformum,
því þegar vinnufélaginn kemur
kl. 21, segist Geirfinnur ekki
hafa tök á því að fara 1 bíóið því
hann eigi stefnumót við
óþekktan aðila í Hafnarbúðinni
kl. 22. Kvaðst hann ekki vita
hver það væri, aðeins það, að
hann ætti að koma einn og fót-
gangandi. Ök vinnufélagi Geir-
finns honum á stefnumótið.
Hann hitti engan í þeirri ferð
og sneri heim kl. 22,15 og er
nýkominn heim þegar hann fær
hringingu og segir. ,,Ég er
búinn að koma“ og stuttu síðar
„ég kem“ og heldur til stefnu-
mótssins á ný, nú á sínum eigin
bíl. Síðan hefur ekkert til hans
spurzt.
LEIRMYNDIN
Um sama leyti og Geirfinnur
fær hringinguna kemur karl-
Leirmyndin, sem mótuð var
samkvæmt lýsingu á manni
þeim, sem kom I Hafnarbúðina
og talið var að ætti stefnumót
við Geirfinn.
maður inn i Hafnarbúðina,
gengur stutta stund um gólf en
fær svo að hringja. Ef þessi
maður hefur hringt í Geirfinn
eins og talið er, hefur hann
þekkt símanúmerið, því nafn
Geirfinns var ekki að finna 1
símaskrá. Lögreglan fékk strax
augastað á þessum manni og
auglýstu eftir honum f fjölmiðl-
um. Ekki bar það árangur og
var þá gerð af honum mynd að
fyrirsögn sjónarvotta og síðan
leirmynd, sem birt var f fjöl-
miðlum þriðjudaginn 26.
nóvember, viku eftir hvarf
Geirfinns, Jafnframt var gefin
út lýsing á manni þessum.
Hann var sagður rúmlega
meðalmaður á hæð, ljós yfirlit-
um með skollitað hár, sem náði
niður fyrir eyru. Hann var
klæddur ljósbrúnum leður- eða
leðurlfkisjakka, nokkuð sfðum,
Framhald á bls. 27