Morgunblaðið - 28.01.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1976 3
TtíETlMES&t A^V
Mai'i: Almenningsálitið réð klippingunni
Teiegraph: Klippingin kom báðum aðilum á óvart
Mr n ii
ells tra vyíers
to avoid
ínfrontation
"Cdífirg tiirejíen*"
idun ne«o!Íjiion>
XHETIMES
1—
r
:e
~1
vv itson '$m
fishlng' call
withdrawn
Jp THE GUARDIAN F
i i**K-*ry 3’ 19«
Wilson cools it
Bomb
runner
found
uuiltv
then sends
back trawlers
‘Ádmiral’ Wilson ties
yt) thö — *
little mor
Sýnishorn af forsfðum ýmissa
helztu stórblaða f Bretlandi f gær.
Frá Styrmi Gunnarssyni rit-
stjóra Morgunblaðsins.
TOGVlRAKLIPPING Týs og
viðræður Geirs Hallgrfmssonar
og Wilsons eru aðalfréttir
Guardian og Times f morgun
og forsfðufréttin f Daily
Telegrapb og Financial
Times. Tónninn f fréttum
blaðanna er yfirleitt
sá, að klipping þessi hafi stofn-
að viðræðunum f hættu, en að
Wilson hafi forðað þvf að þær
færu út um þúfur vegna þessa
atburðar með fyrirmælum tíl
brezku togaranna um að hætta
veiðum, sem eitt blaðanna seg-
ir einstætt f sögu þriggja
þorskastrfða.
I Guardian birtist forsíðu-
frétt skrifuð af Patrick Keatley
og Richard Norton-Taylor. I
fréttinni segir, að atburðirnir á
miðunum hafi valdið báðum
forsætisráðherrunum erfiðleik-
um, og að fyrir síðasta viðræðu-
fundinn, sem hófst í Downing-
stræti 10 i morgun hafi báðir
aðilar verið búnir að sætta sig
við að viðræður færu út um
þúfur og þorskastríð hæfist á
ný. Meginefni fréttarinnar er
lýsing á atburðunum á Islands-
miðum og orðsendingu Wil-
sons en síðan segir: „Yfirlýsing
frá íslenzku landhelgisgæzl-
unni í gærkvöldi sýndi, að
haukarnir í islenzku ríkis-
stjórninni og sjávarútveginum
beita aðferðum, sem miða að
því að koma í veg fyrir hvers
konar samninga, sem Geir Hall-
grímsson kynni að vilja gera.“
Þá segir ennfremur i frétt
þessari, að „við lok viðræðna í
gær, laugardag, hafi brezku
ráðherrarnir verið byrjaðir að
gera sér Ijóst, að mikill þrýst-
ingur væri á Geir Hallgrimsson
að gera ekki of hagstæða samn-
inga og að það kynni að vera
pólitfskt sterkara fyrir hann að
snúa heim og lýsa því yfir, að
samningar væru útilokaðir, að
minnsta kosti um sinn.“
Þá segir i frétt Guardian: „Ef
Wilson ætlar að bjarga ein-
hverju á þriðja fundinum í dag
verður hann að hugleiða að fall-
ast á kvóta, sem er töluvert
fyrir neðan það magn, sem ráð-
herrar hans af bjartsýni töldu
samkomulagsgrundvöll þegar
viðræðurnar fóru út um þúfur i
nóvember."
I forsíðufrétt Times segir
Roger Berthold, að íslenzka
sendiráðið i Lundúnum hafi
enga skýringu haft á reiðum
höndum á þvi, hvers vegna tog-
víraklipping átti sér stað meðan
á viðkvæmum samkomulagstil-
raunum stóð. Síðan segir: „Is-
lendingar stungu fyrst upp á
niðurskurði úr 130 þús. tonnum
í 65 þús. tonn, en nú er talið
víst, að þeir þrýsti á um mun
lægri tölu.“
I Daily Telegraph segir
Vincent Ryder að fyrirmælin
frá Downingstræti til togar-
anna hafi átt að koma í veg
fyrir fleiri atburði, sem gætu
stofnað í hættu hinum erfiðu
samningaviðræðum. Geir Hall-
grimsson hafi haft samband við
Reykjavik og gefið skipherrum
varðskipanna fyrirmæli um að
hafa hægt um sig. Þá segir
þessi fréttamaður, að ef sam-
komulag náist muni það byggja
á flóknum atriðum, svo sem
möskvastærð, fjölda togara og
veiðisvæðum. Þótt samkomulag
muni takast verði það ekki
kunnugt fyrr en Geir
Hallgrímsson hafi snúið til
Reykjavíkur og ráðfært sig við
rikisstjórnina.
Fréttamaður Daily Telegraph
í Reykjavik segir: „I London
hafði verið búizt við þvi, að
ekkert slíkt mundi gerast (þ.e.
víraklipping) meðan á viðræð-
um stæði og á laugardag var
íslenzkum varðskipum skipað
að klippa ekki, en þessum fyrir-
mælum var breytt eftir laugar-
daginn. Mér skilst að aðgerðirn-
ar í gær hafi verið samkvæmt
sérstökum fyrirmælum Ólafs
Jóhannessonar dómsmálaráð-
herra, sem hefur með höndum
yfirstjórn landhelgisgæzlunn-
ar. Ef andrúmsloftið á Islandi
er haft í huga þegar um fisk er
að ræða og pólitiskt jafnvægis-
leysi hlýtur þessari klippingu
að hafa verið ætlað sérstakt
hlutverk gagnvart almennings-
álitinu."
I Financial Times segir, að
samkvæmt islenzkum heimild-
um hafi Geir Hallgrímsson sent
persónuleg fyrirmæli til skip-
herrans á Tý um að ekki skyldi
klippa, en að orðsending hans
hafi komið fimm minútum of
seint. Svo virðist sem Geir
Haltgrímsson hafi sannfært
brezka ráðherra um, að hann
hafi verið í góðri trú og að
héðan í frá verði fyrirmælum
hans fylgt meðan viðræðurnar
standa yfir, segir blaðið. Frétta-
maður Financial Times í Hull
segir: „Ljóst er að sumir
togaraeigendur eru þeirrar
skoðunar, að fiskimiðin við
Island séu töpuð. Þeir benda á
að hugsanlegt samkomulag
milli Geirs Hallgrímssonar og
Wilsons geti ekki staðið lengur
en til næstu kosninga á Islandi.
Jafnvel annar tveggja ára
samningur við íslendinga sé af
sumum talinn skipta litlu máli
samanborið við þá langtíma
stefnu togaraeigenda að fisk-
veiðimörk Breta verði færð út i
200 milur og að Bretar einir
ráði yfir 200 milunum. Einn
togaraeigandi sagði við mig í
gær: „Island er of mikið i sviðs-
ljósinu. Hættan er sú að brezka
stjórnin teldi sig hafa gert nóg
fyrir togaraútgerðina ef hún
næði of góðum samningum við
Islendinga."
Daily Mail birtir frétt undir
fyrirsögninni: Wilson aðmíráll
bindur togaraflotann. I frétt-
inni segir, að togviraklippingin
hafi valdið því að báðir aðilar á
samningafundinum í Downing-
stræti hafi orðið agndofa. Wil-
son hafi snúið sér til Geirs
Hallgrímssonar og spurt hvað
hann ætlaði að gera. Geir
Hallgrimsson hafi þegar hringt
til Reykjavíkur frá skrifstofu
Wilsons og skipað landhelgis-
gæzlunni að hafa hægt um sig.
Þá segir ennfremur, að hvorug-
ur forsætisráðherranna hafi
látið i ljós von um samkomu-
Iag.“
„V-þýzkir togarar róta upp þorski
í NA-kanti Berufjarðaráls”
# /■'1 » i ' V ctunHir ni
— segir Gudmundur I. Gíslason á Ljósafelli
„Vestur-þýzkir togarar hafa
legið í þorskinum u.þ.b. 8 mílur
NA af Berufjarðarál og hafa
aflað álíka mikið af honum og
við á fslenzku togurunum,
a.m.k. held ég varla að þorskur-
inn flýi þegar þýzkur togari er
á yfirborðinu,“ sagði
Guðmundur tsleifur Gfslason
skipstjóri á Ljósafellinu frá
Fáskrúðsfirði þegar hann hafði
samband við Morgunblaðið f
g*r.
Guðmundur sagði, að tveir v-
þýzkir togarar hefðu stillt sér
upp við hliðina á Ljósafellinu
NA af Berufjarðarál og togað á
sömu slóðum og L'ósafellið.
Sfðan hefði þriðji togarinn
bætzt við um tfma. Ljósafellið
hefði verið á þessum slóðum f
tvo sólarhringa og 8 klukku-
stundir og Þjóðverjarnir verið
allan tfmann. „Mér finnst allt í
lagi að láta forstjóra Hafrann-
sóknastofnunarinnar og alþing-
ismenn víta af þessu. Cg og
fleiri íslenzkir skipstjórar höf-
um lengi haldið þvf fram, að
þorskur héldi sig mikið á þessu
svæði við Berufjarðarálinn á
þessum árstfma.**
Guðmundur sagði, að þeir á
Ljósafellinu hefðu svo til ein-
göngu fengið fallegan þorsk við
Beruf jarðarálinn að þessu
sinni.
Vöruskiptajöfnuðurinn 1975
óhagstæður um 27,6 milljarða
HAFSTOFA Islands hefur sent
frá sér tölur yfir vöruskipta-
jöfnuð á árinu 1975 og reyndist
hann óhagstæður um 27,6 millj-
arða króna, eða 40% óhagstæðari,
en árið 1974, er hann var óhag-
stæður um 19,7 milljarða króna.
Alls var flutt út *á árinu 1975
fyrir 47,4 milljarða króna, þar af
var ál og álmelmi af andvirði um
5 milljarðar króna. Inn var flutt
fyrir 75,1 milljarð, þar af skip og
prammar fyrir 2,1 milljarð króna
og flugvélar fyrir tæplega einn
milljarð króna, en þar vega mest
tvær þotur Flugleiða, sem teknar
voru á innflutningsskýrslur árið
1971.
Eins og í upphafi þessarar
fréttar er getið er vöruskipta-
jöfnuðurinn allmiklu óhagstæðar‘
árið 1975, en hann var árið 1974.
Sé hins vegar verðlag ársins 1974
fært upp um 56,5% eða svarandi
til þess, sem erlent gjaldeyris-
gengi er talið hafa hækkað að
Framhald á bls. 27
Góð loðnuveiði úti af Vopnafirði:
15 þús. lestir á
2 sólarhringum
GÓÐ loðnuveiði hefur verið s.l.
tvær nætur 60—70 mílur úti af
Vopnafirði. 1 fyrradag fengu 29
skip afla á þessu svæði alls 10.140
lestir og frá þvf um miðnætti í
fyrrinótt þar til kl. 15 f gær höfðu
17 skip tilkynnt um afla alls 5280
lestir Er þvf afli tveggja daga
15.320 iestir. Flest hafa skipin
farið til Seyðisfjarðar, en þar eru
nú allar þrær orðnar fullar og
þróarrými losnar þar ekki fyrr en
eftir þrjá sólarhringa. Þá eru
þrær á Eskifirði og Reyðarfirði
að fyllast. Gert er ráð fyrir að á
næstu dögum haldi skipin mest
fjarðar.
Mestan afla þeirra skipa, sem
tilkynnt hafa um afla, fengu Sig-
urður RE 950 lestir, Guðmundur
RE 750 lestir og Börkur NK 700
lestir.
Eftirtalin skip tilkynntu um
afla frá því um miðnætti á sunnu-
dagskvöld til miðnættis í fyrra-
kvöld:
Asgeir RE 380 lestir. Hrafn GK
250 lestir, Grindvíkingur GK 600
lestir Guðmundur RE 750 lestir
MagnúsNK2701estir. HelgaRE
270 lestir, Náttfari ÞH 270 lestir.
Isleifur VE 260 lestir, Vörður Þlí
220 lestir, Reykjaborg RE 35(* l
lestir, Börkur NK 700 lestir
Helga 2. RE 230 lestir.Pétur Jóns
Framhald á bls. 27