Morgunblaðið - 28.01.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1976
5
Björn E. Hafberg.
Tvær bækur
ungs höfundar
BJÖRN E. Hafberg, 19 ára
nemandi í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, hefur sent frá sér
tvær bækur með ljóðum og smá-
sögum, og heitir sú fyrri Að heyra
þögnina hljóma, en sú síðari Er-
indrekar næturinnar. Báðar
bækurnar, sem Björn gefur út
sjálfur, eru myndskreyttar og eru
höfundar mynda Sara Vilbergs-
dóttir og Hallmundur Hafberg,
frændi Björns. Þetta eru fyrstu
bækur Björns, en hann hefur átt
skáldskap i bókinni Frumburður
án fæðingarstyrks, sem hann gaf
út ásamt skólabræðrum að Núpi í
Dýrafirði. I stuttu spjalli við Mbl.
sagði Björn að allt væri efnið i
bókunum tveim sem bæði væri
persónulegt og pólitiskt, fremur
nýtt af nálinni, það elzta tveggja
ára.
Ekið á bíl
FÖSTUDAGINN 23. janúar, milli
klukkan 9—19, var ekið á bifreið-
ina R-38264, sem er Fiat 128,
station, hvit að lit. Gerðist þetta
við Bergstaðastræti 3. öll vinstri
hliðin er dælduð og rispuð. Þeir
sem geta veitt upplýsingar um
þessa ákeyrslu eru beðnir að hafa
samband við rannsóknarlögregl-
una, umferðardeild, sími 21100.
5 sækja um stöðu
fræðslustjóra í
Reykjanesumdæmi
HINN 19. desember 1975 auglýsti
menntamálaráðuneytið stöðu
fræðslustjóra 1 Reykjanesum-
dæmi lausa til umsóknar með um-
sóknarfresti til 20. janúar 1976.
Umsækjendur eru:
1) dr. Bragi Jósepsson, Skipa-
sundi 72, Reykjavík 2) Helgi
Jónasson, fræðslustjóri Hafnar-
fjarðar, Klettahrauni 2, Hafnar-
firði, 3) dr. Ingimar Jónsson,
kennaraskólakennari, Víghólastíg
22, Kópavogi, 4) Kristín H.
Tryggvadóttir, kennari, öldutúni
5, Hafnarfirði, og 5) Sigurður
K.G. Sigurðsson, stjórnarráðs-
fulltrúi, Álfhólsvegi 91, Kópa-
vogi. _______ ______
Sjómannastofa
opnuð á Höfn
Höfn, Hornafirði, 27. jan.
I SINDRABÆ í Höfn hefur verið
opnuð sjómannastofa. Er hún
opin frá klukkan 20 til 23.30 á
hverju kvöldi. Þar er meðal
annars sjónvarp, lestrarefni, töfl
og spil. Hafnarhreppur sér um
rekstur stofunnar.
Gunnar
Fundu 23 kindur
1 eftirleit
Höfn, Hornafirði, 27. jan.
NÝLEGA fóru 4 menn í eftirleit í
Kollumúla í Staðafellsfjöllum.
Fundu þeir 23 kindur og voru
þær í góðum holdum. Er mjög
óvenjulegt að svo margt fé finnist
við leitir svona seint. — Gunnar.
Eiga að athuga
flugvalla- og
flugöryggismál
SAMGÖNGURAÐUNEYTIÐ hef-
ur skipað nefnd til allsherjar-
athugunar á fslenzkum flugvalla-
og flugöryggismálum. Nefndin
skal einnig gera tillögur um
nauðsynlegar úrbætur svo og
áætlun um á hve löngum tfma sé
raunhæft að stefna að þvf að
Ijúka slfkum úrbótum og 1 hvaða
röð.
I nefndinni eru: Guðmundur G.
Þórarinsson, verkfræðingur, sem
er formaður nefndarinnar, Rík-
harður Jónatansson flugstjóri,
varaformaður, Leifur Magnússon,
aðstoðarflugmálastjóri,
Guðmundur Snorrason, flugþjálf-
unarstjóri og Bárður Daníelsson
arkitekt.
Dagsbrúnar-
menn veita
verkfallsheimild
FUNDUR í Verkamannafélaginu
Dagsbrún, sem haldinn var í
fyrradag, samþykkti að veita
trúnaðarmannaráði félagsins
heimild til að lýsa yfir vinnu-
stöðvun Dagsbrúnarmanna í sam-
ráði við önnur verkalýðsfélög til
að knýja á um nýja kjarasamn-
inga. Var þetta samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum gegn
einu.
INNLENT
Systkin luku
málaranámi hjá
föður sínum
NÝLEGA luku systkinin
Bryndfs Friðriksdóttir og
Jón Björn Friðriksson á
Isafirði sveinsprófi f
málaraiðngrein. Þau lærðu
hjá föður sfnum Friðrik
Bjarnasyni málarameist-
ara, en hjá honum hafa 10
nemendur numið málara-
iðnina.
Bryndis mun vera fyrsti kven-
maðurinn á Vestfjörðum sem lýk-
ur sveinsprófi í iðngrein innan
byggingariðnaðarins. Hún er ein
af fáum stúlkum, sem lokið hefur
sveinsprófi í málaraiðn hér á
landi. Myndin er af málarasvein-
unum ásamt föður sinum.
Ályktun Fulltrúaráðsins:
Friðsamlega lausn
fiskveiðideilunnar
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt samhljóða á aðalfundi
Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Revkjavik, sem hald-
inn var fimmtudaginn 22. janúar
að Hótel Sögu:
„Fulltrúaráð sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík fagnar
þeim árangri, sem náðist með
samningunum við ■ Vestur-
Þjóðverja og aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar, er leitt hafa til
brottkvaðningar brezkra herskipa
og njósnaflugvéla úr islenzku
fiskveiðilögsögunni.
Ljóst er, að aðgerðirnar innan
Atlantshafsbandalagsins hafa
verið árangursrikar.
Fulltrúaráðið hvetur eindregið
til þess, að sá tími, sem nú fæst til
viðræðna, verði notaður til hins
ýtrasta í því skyni að ná fram
friðsamlegri lausn á fiskveiðideil-
unni og tryggja sem bezt hags-
muni Islendinga.
Islendingar munu ekki fallast á
neina skerðingu á rétti sínum til
að halda uppi lögsögu á yfirráða-
svæði sínu. Það hefur ávallt legið
til grundvallar ákvörðun um
samninga við aðrar þjóðir, hvort
með samningum sé betur unnt að
takmarka veiðar á Islandsmiðum
en án samninga. Þessi meginskoð-
un verður að ráða ferðinni 1 við-
ræðunum við Breta og einnig hitt,
að Islendingar verða i hvivetna að
haga málflutningi sínum þannig,
að tryggt verði að hafréttarráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna
viðurkenni óskoraðan rétt strand-
ríkja til yfirráða yfir fiskimiðum
sinum innan 200 milna lögsögu."
Málsskjölin
afhent
Öryggisráði SÞ
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi frá utanríkisráðu-
neytinu:
1 framhaldi af málskoti Islands
til öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna vegna ásiglinga brezkra
dráttarbáta á varðskipið ÞÓR
hinn 11. desember s.l., en mál
þetta var tekið til meðferðar á
fundi ráðsins hinn 16. sama
mánaðar, afhenti Ingvi Ingvars-
son, fastafulltrúi Islands hjá
Sameinuðu þjóðunum, forseta
öryggisráðsins i gær bréf ásamt
öllum málskjölum sjódóms vegna
ásiglingarinnar í enskri þýðingu.
Bréfi sendiherrans ásamt mál-
skjölunum verður nú dreift sem
opinberu skjali öryggisráðsins.
Þú getur hagnast
á að rata á Smiðjuveginn
því nú bjóðum við
20% afslátt
af öllum framleiðsluvörum
fyrirtækisins í eina viku.
Að þessari kynningarviku
lokinni hefur þú vonandi
hagnast verulega
— og eftirleiðis ratar
þú til okkar á Smiðjuveginn
og hefur kynnst hinni glæsilegu
verzlun okkar í nýju 1000 m2
húsnæði
— og þá eru allir ánægðir,
ekki satt?
KYMIIVGARVIKA
-t-20%
en nú erad drífa sig afstaó.
Velkpmin á Smidjuveg 6
Opið 1 —6, 1 —7 föstudaga, 10—4 laugardaga.
Skeifu húsgögn.
Skeifu gæði.
Skeifu verð.
Skeifu skilmálar.
SMIDJJJVEGI6 SÍMI44544