Morgunblaðið - 28.01.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1976
7
Stríð undan
ströndum lands
Glsli Jónsson mennta-
skólakennari ð Akureyri
ritar svohljóðandi leiðara I
vikublaðið Islending:
„Ekki verður sagt að
friðvænlegt sé á fslandi
eða við fsland I upphafi
ðrsins 1976. Verkföll eru
boðuð, kröfur eru gerðar,
það er hótað og hrópað.
Mest er þó auðvitað það
strlð, sem háð er undan
ströndum landsins og allir
þekkja. Þvl strlði verður
að linna.
Yfirlýstur, óumdeildur
tilgangur okkar með út-
færslu fiskveiðilögsög-
unnar er sá að vernda
fiskimiðin gegn hóflausri
rányrkju, sem margbúið
er að minna á. þó að talað
hafi verið fyrir daufum
eyrum, allt þangað til hin
slðbúna, svarta skýrsla
sérf ræðinganna vakti
menn til vitundar um
geigvænlegan háska.
Fiskinn ætlum við raunar
ekki að friða af mannúð-
arsökum eða að gamni
okkar. Við ætlum að friða
hann fyrir öðrum, svo að
við getum sjálfir veitt
hann okkur til kviðfylli og
kaupeyris. Það heitir á nú-
tlmamáli að vernda llfs-
hagsmuni okkar. Og
nauðsyn þess verður I al-
vöru með engu móti neit-
að. Fiskveiðideiluna verð-
ur þvl að leysa, og enginn
efast um úrslitin. Islend-
ingar eru I þessu þorska-
strlði menn framtlðarinn-
ar, brezka sóslalistastjóm-
in þar á móti Ihaldið upp-
málað. Enginn spyr,
HVORT fslendingar muni
sigra, heldur HVENÆR.
Þetta er aðeins spurning
um mánuði, I hæsta lagi
ár. Ef ekki væri annað að
verja en llfshagsmunina
margumtöluðu, mætti ef
til vill segja að nokkrir
mánuðir til eða frá skiptu
skki sköpum I þvl varnar-
strlði. En það eru ekki að-
eins llfsHAGSMUNIR sem
I veði eru. það er annað
og meira, MANNSLÍF
ERU f HÆTTU. dag eftir
dag, viku eftir viku. mán-
uð eftir mánuð. Einkum
þess vegna þolir lausn
landhelgisdeilunnar
ENGA bið. Það er hrein og
bein guðsmildi, ef ekki
verður manntjón I þessu
hörmulega strlði áður en
friður fæst.
Framferði breta er svo
furðulegt. að helst er llkj-
andi við það, sem haft var
eftir erlendum stjórnmála-
manni um annað efni:
þetta er verra en glæpur,
það er glópskuverk! Þetta
ER glópska. frá hvaða
sjónarmiði sem litið er,
öðru en strlðsins. og þó
einkum frá sjónarmiði
breta sjálfra.
Þakklæti. aðdáun og
samúð berast hins vegar
frá okkur og mörgum útl-
frá til Islensku varðskips-
mannanna og fjölskyldna
þeirra. Landheigisgæslan
ver ekki aðeins fiskimiðin,
hún heldur vörð um heið-
ur og hag (slendinga
allra."
Sjóndöpur
og sauðþrá
„En það eru fleiri Islend
ingar en varðskipsmenn
sem nú heyja baráttu.
langvarandi taugastrlð,
þótt sú barátta sé ekki
básúnuð út um heiminn
og kvikmynduð til að
svala fréttafýsn manna úti
um allar jarðir. f Þingeyj-
arsýslum og þá einkum
norðursýslunni vestan-
verðri heyr fólk hljóðláta.
Glsli Jónsson
menntaskólakennari
linnulausa baráttu við
sjálf náttúruöflin.
fslenzkt bændafólk
æðrast ekki út af smá-
munum og tekur löngum
með ró þvl sem mótdrægt
er. Þvl minnilegri og átak-
anlegri eru orð bóndans I
Skógum I Axarfirði, þess
er hefur stöðugt barizt við
ofurefli eyðingarkrafta
náttúrunnar til þess að
verja SÍNA llfshagsmuni,
llf sitt og sinna, bæði
manna og dýra. Örvænt-
ing hans eftir sleitulaust
svefnleysi og öryggisleysi
vikum saman brýzt út I
orðum hans, er hann I
blaðaviðtali segist ekki
lengur hirða um, þó að
fjárhúsið hrynji á hann of-
an, þar sem hann er að
vinna bústofni slnum
björg. Samúð okkar og
hlýhugur er ekki slður
með þessu fólki en hetj-
um hafsins, þó að barátta
þess sé ekki forslðuefni
heimsblaðanna.
Margir deilu meina sér
/ mikil lukkugæði /
Frægum sigri framar er
/FRIÐUR og þolinmæði
/, orti sr. Benedikt I
Bjarnanesi fyrir margt
löngu. Kannski er sú bar-
átta sem við heyjum innra
með okkur um þessar
mundir, mikilvægust af
öllu baráttan við eigin til-
finningar. Við vitum að of-
beldi leiðir jafnan af sér
ofbeldi, og gjarnt er okkur
að gjalda llku llkt, eins og
höfundar Hávamála og
Gamla testamentisins
kenndu. En væri nú ekki
athugandi. að svara EKKI
glópskuverkum breta með
öðrum glópskuverkum?
Viðurkennt er að þorska
strlðið sé fyrst og fremst
taugastrlð. Festa. gát.
þolinmæði, þrautseigja,
æsingalaus skynsemi, að-
eins þetta vlsar okkur
veginn til sómasamlegs
sigurs I þvl strlði. Eða vilj-
um við kannski vera eggj-
unarflfl þeirra manna,
sem á þurru landi I góðu
skjóli fiska I gruggugu
vatni. meðan þorskastrlð-
ið stendur? Við þekkjum
öfl, sem ALLTAF hafa
reynt að nota landhelgis-
málið til þess að reyna að
sprengja okkur út úr varn-
arsamvinnu vestrænna
þjóða. Jafnvel I fréttum
sjónvarpsins heyrðist einu
sinni talað um natóskip I
Islenskri fiskveiðilögsögu,
rétt eins og bresku her-
skipin séu hingað komin I
umboði eða að ábyrgð At-
lantshafsbandalagsins. Á
þvi athæfi ber breska
stjórnin EIN ábyrgð, og
hún er I þessari deilu sjón-
döpur og sauðþrá, og
bretar verða ekki sigraðir
nema með ennþá meira
þolii meira úthaldi. Halda
menn I raun og veru, að
við kæmumst hænufet
nær lausn deilunnar, og
gætum svo forðað manns-
llfum frá háska, með
mannalátum eins og slit-
um stjórnmálasambands?
Sannleikurinn er sá, að
fyrsta skilyrði til friðar er
þó. að menn talist við
EINS OG MENN. Já. sleit
ekki Amin Ugandaforseti
stjórnmálasambandi við
Rússa af minna tilefni?
Kaldur karl og fyrirmynd-
ar stjórnandi Idi Amin!
Hvernig væri annars að
norður-þingeyingar slitu
stjórnmálasambandi við
náttúruna og guð almátt-
ugan? Skyldi það ekki
geta bjargað bústofnú
Jóns I Skógum og flýtt
fyrir endurreisninni á
Kópaskeri?
Petrosjan
skákmeistari
Sovétríkjanna 1976
Skákþingi Sovétríkjanna
1976 lauk í Erevan í Armeníu á
milli jóla og nýárs og urðu úr-
slitin þau, að Tigran Petrosjan
fyrrverandi heimsmeistari
vann nauman sigur, hlaut 10 v.
Sigur Petrosjans hefur vafa-
laust glatt marga aðdáendur
hans, en hann sýndi með þessu,
að hann er ekki dauður úr
öllum æðum enn. Að vanda
sýndi Petrosjan mikið öryggi,
hann tapaði aðeins einni skák,
gegn Romanischin. Úrslit móts-
ins urðu annars em hér segir: 2.•
— 5. B. Gulko R. Vaganjan, O.
Romanischin og M. Tal 9,5 v.,
6.—8. Ju. Balashov, E. Geller og
L. Polugajevsky 8,5 v., 9.—10.
A. Beljavsky og D. Bronstein
7,5 v., 11. M. Dvorosevitsj 6,5 v.,
12. L. Alburt 6 v., 13. I. Dorf-
man 5,5 v., 14. S. Fu-man 5 v.,
15. V. Dorosevitsj 4,5 v., og 16.
A. Klovan 4 v.
Þetta var mjög vel setið mót
og úrslitin sýna glöggt, hve
gífurleg breidd er i skáklifinu í
Sovétrikjunum: Petrosjan og
Tal er hinir einu af „gömlu"
meisturunum, sem tekst að
halda til fulls í við ungu
mennina. Við ljúkum þættinum
með því að líta á eina skák frá
hendi Petrosjans í þessu móti.
Hvitt: T. Petrosjan
Svart: A. Beljavsky
Sikileyjarvörn.
1. c4 — c5, 2. Rf3 — g6, 3. e4 —
Rc6, 4. d4 — cxd4, 5. Rxd4 —
Rxd4,
(Nýjasta nýtt? Algengast er
hér 5. — Bg7).
6. Dxd4 — Rf6, 7. Rc3
(Hvitur hagnast lítið á 7. e5
— Rg8,8. Rc3 — Bg7).
7. — d6, 8. Bg5 — Bg7, 9. Dd2
(Hér er drottningin öruggari
en á d4, auk þess sem hvítur
vill tryggja yfirráð sín á
skálinunni cl — h6).
9. 0-0,
(1 skák sinni gegn
Polugajevsky í 9. umferð lék
Beljavsky hér 9. — Be6 ásamt
Hc8 og Da5. Nú velur hann aðra
uppbyggingu.)
10. Bd3 — a6, 11. 0-0 — Bd7, 12.
Hfel — Bc6,
(Til greina kom einnig 12. —
Db8 ásamt Hc8 og b5).
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
13. Hacl — e6,
(13. — b5 hefði hvitur svarað
með 14. Rd5).
14. b4 — b6,15. Hedl!
(Eykur þrýstinginn á d6.
Þessi leikur er mun sterkari en
15. Df4, sem svartur hefði
svarað með Rh5).
15. — De7?,
(Nú nær hvítur öruggu frum-
kvæði. Bezt var 15. — Ha7,
ásamt Hd7)
16. Df4!
(Drottningin flytur sig yfir á
kóngsvænginn og veldur þar
miklum usla).
16. — Hfd8, 17. a3 — Hac8, 18.
Dh4 — a5, 19. h3 — Hc7, 20. f4
— h6,
(Vegna hótunarinnar e4 —
e5 neyðist svartur til þess að
gefa peð)
21. Bxh6 — Bxh6, 22. Dxh6 —
axb4, 23. axb4 — Rh5, 24. Be2
— Rf6, 25. Bd3 — Rh5, 26. f5 —
Df6, 27. Re2 — De5, 28. fxg6 —
fxg6, 29. De3!
(Svörtum hefur tekizt að
tryggja varnir sínar á kóngs-
væng og nú vendir Petrosjan
sínu kvæði í kross. Hótunin er
Db6).
29. — Hb8, 30. c5!
(Afgerandi gegnumbrot).
30. — bxc5, 31. bxc5 — Hd8,
(Eða 31. — d5 og hvitur
vinnur).
32. cxd6 — Hxd6, 33. Hc5 —
Hd5, 34. Hc3 — Hdd7, 35. Hdcl
— Bb7, 36. Hxc7 — Hxc7 37.
Hxc7 — Hxc7, 38. e5 — Kg7.
(Ekki 38. — Dc6 vegna 39.
Dg5)
39. Dg5 — Df7, 40. g4 — Df3,
41. Dxg6 — Kf8, 42. gxh5 og
svartur gafst upp.
GOLFKLUBBUR REYKJAVÍKUR
þorrablót) klúbbsins verður haldin
n.k. laugardag 3 1 . jan. og hefst kl. 1 9.00.
Félagar, mætið vel og takið með ykkur gesti.
Miðapantanir og sala hjá Kára Elíassyni í síma
10375 og Ólafi Þorsteinssyni í síma 85044.
Skemmtinefndin.
Einstaklingsíbuð
Til sölu er einstaklingsíbúð á 12. hæð í háhýsi
við Austurbrún 4, Reykjavík. Uppl. í síma
75534 daglega næstu daga.
— 28440 ..............
Til sölu
einbýlishúsagrunnur
við Sefgarð á Seltjarnarnesi, teikningar liggja
frammi á skrifstofunni. Til greina koma skipti á
3ja herb. íbúð.
Fasteignasalan Bankastræti 6.
HÚS OG EIGNIR
Sími 28440 kvöld og helgarsimi 72525.
FLUGFREYJUR
HJÚKRUNARKONUR
Hvílió
þreytta fætur
í Hvíldar- .
sokkabuxum
fnáHudson