Morgunblaðið - 28.01.1976, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.01.1976, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1976 11 Dr. Oddur Guðjónsson sendiherra—sjötugur Þegar ég í huganum blaða í myndabók minninganna, verður mér oft staðnæmzt við mynd dr. Odds Guðjónssonar, svo skörpum dráttum er hún dregin og eftir- minnileg. Því er það, að ég leyfi mér að stinga niður penna nú, er hann verður sjötugur, og rekja í stuttu máli brot af lifshlaupi hans, enda þótt mér sé manna ljósast af fjögurra áratuga kynn- um og vináttu, að hann muni kunna mér litlar þakkir fyrir, svo hlédrægur sem hann er að lundar- fari. Ætt og uppruna dr. Odds yrði of langt mál að rekja. Sjálfur held ég að hann telji sig fyrst og fremst Reykvíking, enda þótt hann sé að nokkru ættaður úr nærsveitum og að öðrum þræði víðförull heimsborgari. — En sinni ættmeitlaða svip ber hann hvert sem hann fer og hvar sem hann er. Dr. Oddur Guðnónsson er fædd- ur 28. janúar árið 1906 að Berg- stöðum, sem upphaflega var einn af gömlu torfbæjunum, en síðar byggður upp úr steini. Bærinn stóð á horni Skólavörðustigs og Bergstaðastrætis. Þar bjó í eina tíð Páll Eyjólfsson, gullsmiður, sem jafnframt gaf sig að blaða- mennsku og gaf út nokkur ár blað sem „Tíminn“ hét. — Bergstaða- strætið var um þessar mundir ein fjölmennasta gata bæjarins, en við hana bjuggu fimm hundruð manns. Veturinn 1906 var æði snjó- þungur, en margt bar þó til tið- inda. Daginn eftir fæðingu Odds lézt Kristján konungur IX. Á ár- inu var fyrsta íslenzka togarafé- lagið, „Aliance“, stofnað. Skútu- öldin var að kveðja og togaraöldin að ganga í garð, daglaunamenn- irnir stofnuðu „Dagsbrún", horn- steinn var lagður að húsi Lands- bókasafnsins, Reykjavíkurbær keypti Elliðaárnar á 144 þúsund krónur og Reykjavík var i þann veginn að fá sinn fyrsta borgar- stjóra. Timi mikilla framfara fór i hönd og gott var að vera vaxtar- broddur í gróandanum. Þessa naut dr. Oddur og var settur til mennta. Lauk hann stúdentsprófi frá Menntaskólanum i Reykjavík 1927 og hélt um haustið til hag- fræðináms við háskólann i Kiel. Stundaði hann þar nám árin 1927—1930 og lauk því með samningu doktorsritgerðar um greiðslujöfnuð Islands árið 1930. Ritgerð þessi þótti svo merkileg á sínu sviði, að hún var gefin út á vegum Þjóðabanda- lagsins árið 1933. Að námi loknu hélt Oddur heim til Islands, því þar biðu hans ærin störf. Var hann fljótlega ráðinn skrifstofu- stjóri Verzlunarráðs Islands. Það hafði verið stofnað 1917 og var ætlað að vera heildarsamtök verzlunarstéttarinnar. Fram til þessa hafði það ekki eflzt að sama skapi og i stéttinni hafði fjölgað. Réð þar vafalaust mestu um þröngur fjárhagur og takmarkað- ur skilningur stéttarinnar á gildi samtakanna. Hér var mikið verk að vinna og gekk Oddur strax að því með kappi og forsjá. Atti hann þar hauk í horni sem Hallgrímur Benediktsson, þáverandi for- maður Verzlunarráðsins, var. Tengdust þeir fljótlega vináttuböndum sem aldrei slaknaði á. Trausts og vinsælda meðal allra ráðsmanna aflaði hann sér og skjótlega, því að hann átti hægt með að blanda geði við flesta menn. Þeir sáu og von bráðar, að Oddur var raunsær og ráðhollur maður og lét ekki stundarbrigðlýsi villa sér sýn. Auk þess var hann verklundaður og sjaldan iðjulaus. — Skrifstofu- stjóri Verzlunarráðsins var hann árin 1934—1943. Þess var skammt að bíða að dr. Oddur væri skipaður í margar nefndir og ráð, ýmist af hálfu Verzlunarráðsins eða að óskum ríkisstjórna. Hann átti á árunum 1943—1960 sæti í öllum ráðum og nefndum, sem fjölluðu um inn- flutnings- og gjaldeyrismál, verð- lagsmál og fjárfestingarmál. Á þessum árum átti ég oft nána sam- vinnu við dr. Odd, því að vegna tilmæla hans var ég oft skipaður varamaður fyrir hann í nefndum og ráðum. Þessi störf voru að visu ekki alltaf sérlega skemmtileg, en þau gáfu tekjur í aðra hönd, sem ekki var vanþörf á og víst mátti margt af þeim læra. Ég vissi og, að dr. Oddi voru þessi störf ekki geðfelld, því hann var frjáls- hyggjumaður, andstæður hafta- búskap og hafði vantrú á rikisfor- sjá fyrir sæmilega heilvita fólki. Þetta var líka vanþakklátt verk, eins og verða vill, þegar á að deila takmörkuðum gæðum milli tak- markalítilla þarfa eða óska. Hann fór því heldur ekki varhluta af hnútukasti og illum viðskotum, en Oddur kippti sér lítið upp við goluþytinn og nennti sjaldan að eiga í orðaskaki við þá, sem voru að myndast við að glefsa til hans. Sú héld ég líka að raunin hafi orðið á, að flestir sanngjarnir menn hafi, er hann lét af þessum störfum, unnað honum sannmæl- is, metið að verðleikum vanda- samt verk, sem hann leysti af hendi af kostgæfni og alúð. Þegar innflutningsskrifstofan var lögð niður 1960 gegndi Oddur í eitt ár störfum ráðuneytisstjóra í við- skiptamálaráðuneytinu, i fjar- veru Þórhalls Asgeirssonar, en eftir það varð hann ráðunautur ríkisstjórnarinnar og hafði fyrst í stað sem aðalverkefni gerð við- skiptasamninga Islendinga við löndin í Austur-Evrópu en síðar bættust við samningar við fjölda ríkja i Vestur-Evrópu. Mun það þvi vart orka tvímælis, að dr. Odd- ur mun vera einna reyndasti við- skiptasamningamaður Islendinga fyrr eða síðar. Honum kom þar að góðu haldi hversu skjótt hann skynjar kjarna hvers máls, er rök- fastur í ályktunum og skýr í fram- setningu og heldur jafnaðargeði þótt á gefi. Ég held að segja megi um hann svipað og sagt var um Arnljót Ólafsson, fyrsta islenzka þjóðhagfræðinginn, að honum hafi verið gefin „varfærni og málamiðlunarhneigð“, og komu þeir eiginleikar sér vafalaust vel f utanríkisþjónustunni. Dr. Oddi er það jafnt gefið að standa af sér kaldan hafvind sem austannæð- inginn. Hann hefur sannreynt það, að þær öldurnar, sem kemba hæst, brotna stundum fyrst. Enginn skyldi halda, að þar sem dr. Oddur hefur valið sér að lifi- brauði dálítið strembin viðfangs- efni, þá sé hann öðrum fremur „alvörugefinn". Því fer viðsfjarri, því hann hefur sem betur fer góða kímnigáfu og er gleðimaður í góðra vina hóp. Og trú mín er, að hann hafi verið nokkuð sammála bekkjarbróður sj'num, Bjarna Guðmundssyni, er hann sagði eitt sinn í ágætu skólaspjalli: „Alvara lífsins er ekki einhlít." Og bætti við: „Það veit hver löggiltur skjalaþýðandi." 1. janúar 1968 urðu tímamót í lífi dr. Odds því þá gekk hann alfarið í íslenzku utanríkisþjón- ustuna og var skipaður sendi- herra í Rússlandi. Gegndi hann því starfi til 1. október 1974. Þessu viðamikla embætti sinnti hann af sömu elju og vandvirkni sem hinum fyrri. Og þótt kalsamt hafi trúlega stundum verið i Rúss- íá, þá hygg ég að hann hafi ekki unað hag sínum þar illa, þvi nóg var víst oftast að gera. Allir sem þekkja dr. Odd Guð- jónsson vita að hann er enginn málrófsmaður, en fastlyndur er hann og hefur hiklausa sannfær- ingu og einurð til þess að halda henni til streitu. Dr. Oddur hefur líka hlotið mikla og verðskuldaða mannheill, enda margur notið hjálpsemi hans og ógleyminn hef- ur hann verið á gamla vini og skólabræður, þegar á hefur reynt. Ég held, að þrátt fyrir að stund- um hafi andað köldu í kringum dr. Odd, hafi hann verið gæfu- maður. Stærstan þátt í lífsham- ingju hans eiga kona hans Liese- lotte, sem hann kynntist á náms- árunum í Kiel, börnin þrjú, og tengdabörn og barnabörn. Heima- kær hefur dr. Oddur jafnan verið og heimilið honum athvarf frá önn og erli dagsins. Nú hefur dr. Oddur dregið sig úr öldusúgnum og nýtur nú sins haustfriðar. En samt er það von min og vissa, að íslenzkir ráða- menn muni engu að síður eiga enn eftir að leita hans hollráða. Kæri góði vinur, við hjónin sendur þér og fjölskyldu þinni beztu heillaóskir í tilefni afmælis- ins. Birgir Kjaraa Fjölsótt ráðstefna um verk- menntun hjá SFI STJÓRNUNARFÉLAG Islands gekkst fyrir ráðstefnu um efnið: „Hvers vegna er verk- menntun vanmetin?“ dagana 16. og 17. jan. s.l. Tilefni ráð- stefnunnar voru vaxandi um- ræðu um ný viðhorf f verk- menntunarlögum um nýskipan verkmenntunar. Ráðstefnuna sóttu u.þ.b. 150 manns og var hún ein fjölmennasta ráð- stefna, sem SFÍ hefur gengizt fyrir. Haldin voru fjölmörg er- indi og ræður, er varða efnið. Stefán Ölafur Jónsson deildarstjóri í menntamála- ráðuneytinu gerði grein fyrir því, hvað gert hefur verið i verkmenntunarmálum og Þór Sandholt skólastjóri fjallaði um það, hvers vegna verkmenntun er vanmetin. Steinar Steinsson tæknifræðingur ræddi um þróun verkmenntunar i grann- löndunum. Óskar Guðmunds- son frkvstj. skýrði frá aðbúnaði hins opinbera og Hákon Torfa- son verkfræðingur fjallaði um stöðu þessara mála í dag. Guð- mundur Einarsson verk- fræðingur gerði grein fyrir til- lögum iðnfræðslulaganefndar, sem nýlega skilaði tillögum sínum til menntamálaráðu- neytisins og Baldur Guðlaugs- son lögfræðingur og Óskar Hallgrímsson bankastjóri fjölluðu um viðhorf aðila vinnumarkaðarins. Þá fluttu eftirtaldir menn örstuttar ræður um æskilegar breytingar á sviði verkmenntunarmála: Dr. Björn Dagbjartsson, Gunnar Guttormsson, Haukur Eggertsson, Kristinn Hrólfsson, Tryggvi Þór Aðalsteinsson, Þórður Gröndal og Þorsteinn Gíslason. Ennfremur fjallaði Kjartan Borg um viðhorf kennarans. Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra var gestur ráðstefnunnar og ávarpaði hann ráðstefnuþátt- takendur. A ráðstefnunni störfuðu sjö umræðuhópar og á grundvelli niðurstaðna þeirra urðu heil- miklar umræður. Sú var tiðin að lesendur Morg- unblaðsins þekktu mætavel dr. Odd Guðjónsson. Hann stjórnaði skrifstofu Verslunarráðs Islands á árunum fyrir aðra heimsstyrj- öldina og hélt einatt uppi vörnum fyrir heilbrigðum verslunarhátt- um i harðskeyttum greinum hér I Morgunblaðinu. Síðar var hann um langtskeiðnæstum sjálfkjör- inn í hinar ýmsu valdamiku nefndir, sem settar voru af stjórn- völdum til að stýra vöruinnflutn- ingi landsmanna á meðan hafta- stefna í þeim málum var ráðandi. Kom þar einkum til óvenjuleg þekking hans á viðskiptamálum þjóðarinnar, en undirstöðuna i því efni lagði hann með doktors- ritgerð sinni um greiðslujöfnuð Islendinga, en dr. Oddur mun fyrstur íslenskra hagfræðinga hafa kynnt sér rækilega þann mikilvæga þátt i hagkerfi lands- manna. Þegar haftastefnan var búin að ganga sér til húðar lá leið Odds rakleiðis inn í viðskipta- ráðuneytið og þaðan í utanrikis- þjónustuna. Hann hafði reyndar um áratuga skeið tekið þátt í við- skiptasamningum stjórnvalda við ýmis erlend riki, en varð sendi- herra okkar i Moskvu árið 1968 og gegndi því starfi fram undir árs- lok 1974. Og nú er hann orðinn sjötugur, (f. í Reykjavík 28/1. 1906), hress í anda, en heilsan hefði kannski mátt vera öllu betri stundum siðustu misserin. Dr. Oddur hefir jafnan verið gerhugull og kannski þess vegna, eða þrátt fyrir það, óvenju hlýr i viðmóti, sannorður og traustur. Hann var meðal hinna fyrstu is- lensku stúdenta, sem hófu nám í hagfræði við háskólann i Kiel og hefir jafnan siðan haft á hendi forustu þeirra mörgu hagfræð- inga, og raunar annarra náms- manna, sem komu heim frá Kiel á fjórða áratugnum. Eitt árið voru þessir námsmenn tuttugu og fjór- ir, sem þótti mikið á þeim árum. Einhvern veginn er það svo að böndin frástúdentsárunum verða einna ljúfust, þótt viðkynningin við Odd hafi á öllum timum verið góð og hafi jafnan vakið gleði. Til Kielar sótti Oddur Lottí, eigin- konu sína, sem um meir en fjörtíu ára skeið hefir gert heimili hans, nú síðast að Flókagötu 55, bjart og fagurt, og ágætu barnaláni hafa þau hjón átt að fagna. Framlag dr. Odds Guðjónssonar til verslunar og viðskiptamála þjóðar vorrar jafnast á við það besta sem gert hefir verið i þeim efnum, vægast sagt. I dag er til- efni til að árna honum, og þeim hjónum, heilla og hamingju á komandi árum. .... Al , Pétur Olafsson. Góð gjöf til Siglufjarð- arkirkju Siglufjarðarkirkju hefur enn borizt vegleg gjöf. Við áramóta- messu i Siglufjarðarkirkju á gamlaárskvöld voru henni afhent- ir forkunnarfagrir viðhafnarstól- ar. Gefendur voru hjónin Jón Kjartansson forstjóri fyrrv. bæj- arstjóri í Siglufirði, og kona hans, frú Þórný Tómasdóttir. Gjöfin er til minningar um foreldra Jóns, Jónínu Tómasdóttur og Kjartan Jónsson, er bjuggu í Siglufirði allan sinn búskap. Þann dag, er gjöfin var afhent, var 100 ára fæðingarafmæli frú Jóninu, en hún var fædd í Siglufirði, dóttir þáverandi prestshjóna þar. Stólarnir eru skornir út af kunnum hagleiksmanni í Siglu- firði, Hirti Armannssyni. Sóknar- nefnd Siglufjarðarkirkju þakkar gefendum höfðingsskap þeirra og ræktarsemi. (Fréttatilk. frá Sóknarnefnd Sigluf jarðarkirkju)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.