Morgunblaðið - 28.01.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1976
13
Kafbátur laum-
aðist inn í höfn-
ina í Vladivostok
Washington, 27. janúar. Reuter.
BANDARÍSKAR leyniþjónustustofnanir verja allt að
10.000 milljónum dollara á ári til aðgerða sinna eða
þrisvar til fjórum sinnum hærri upphæð en þær hafa
viðurkennt fyrir bandarfska Þjóðþinginu að því er fram
kemur í skýrslu sem ein nefnd fulltrúadeildarinnar
hefur birt.
Þar segir frá því að bandarísk-
ur kafbátur hafi laumazt inn í
höfnina í Vladivostok og leyni-
þjónustustarfsmenn hafi hlerað
símtöl milli sovézkra heryfirvalda
þar og í Moskvu, að bandariskir
kafbátar, sem hafi njósnað um
sovézka eldflaugapalla innan
rússneskrar landhelgi, hafi að
minnsta kosti níu sinnum lent í
árekstrum við rússnesk skip, að
Framhald á bls. 27
EBE telur von-
Kúbanskur hermaður sem berst með MPLA-hreyfingunni er nýtur stuönings
Sovétríkjanna sést hér á dráttarvél ásamt nokkrum MPLA-hermönnum í Fazenda.
Brottflutningur frá
Angola enn óráðinn
Höfðaborg, 27. janúar. Reuter.
PIETER Botha landvarnaráðherra hefur í fyrsta skipti tilkynnt Suður-
Afríkumönnum opinberlega að þeir hafi verið þátttakendur í stríðinu í Angola og 2»
úr liði þeirra hafi fallið, en hann gat þess ekki f langri yfirlýsingu á þingi hvort
suður-afríska herliðið yrði kvatt heim frá Angola.
laust að berjast
gegn 200 mílum
Brtissel 27. janúar NTB
STJORNARNEFND Efnahagsbandalagsins segir f skýrslu að ef út-
færsla f 200 mflur verði almenn regla muni það hafa f för með sér
verulegt efnahagslegt tjón fyrir aðildarlönd bandalagsins en þau
skakkaföll muni koma misjafnlega hart niður hjá hinum einstöku
rfkjum þess.
Skýrslan er í athugun hjá ríkis-
stjórnum aðildarlandanna og þær
virðast yfirleitt vera sammála
niðurstöðum hennar. Hún hefur
þó ekki verið rædd í ráðherra-
nefnd bandalagsins.
Skýrslan var samin að tillögu
ráðherranefndarinnar sem vildi
fá yfirlit um áhrif 200 miina auð-
lindalögsögu. Heimildir í BrUssel
herma að sjávarútvegsmál verði
eitt af höfuðviðfangsefnum ráð-
herranefndarinnar fram á sumar.
Framhald á bls. 27
Við því hafði verið búizt að
hann lýsti þessu yfir þar sem
hann tilkynnti í síðustu viku að
Suður-Afríkumenn væru ekki
reiðubúnir að berjast einir
allra vestrænna þjóða í Suður-
Afríku. Leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar, Sir de Villiers
Graaf, hefur skorað á John
Vorster forsætisráðherra að
gefa þinginu skýrslu til að
binda enda á ríkjandi óvissu.
Að sögn talsmanns þjóðernis-
sinnahreyfinganna FNLA og
Unita í Angola berjast liðs-
menn þeirra nú að baki víglínu
marxistahreyfingarinnar
MPLA sem nýtur stuðnings
Rússa og Kúbumanna. Hann
sagði að þótt MPLA hefði hafið
stórsókn á suðurvígstöðvunum
tækist hreyfingunni ekki að ná
nokkrum bæjum á sitt vald
vegna jarðsprengjubelta.
1 Washington sagði portú-
galski sósíalistaforinginn Mario
Soares að loknum viðræðum við
Henry Kissinger utanríkisráð-
herra að hann teldi ekki að
stjórn Portúgals væri komin á
fremsta hlunn með að viður-
kenna stjórn MPLA í Angola.
Hann kvaðst telja að stjórnin
gæti ekki látið af hlutleysi sínu
í Angola og sagði að Angola-
menn ættu einir að leysa vanda-
mál sín.
I Havana hefur Kúbu-
mönnum einnig verið tilkynnt í
fyrsta sinn að kúbanskir
hermenn berjist í Angola. Þetta
kom fram þegar blaðið Granma
birti orðsendingu sendiherra
Kúbu hjá SÞ til Kurt Waldheim
framkvæmdastjóra þar sem
segir að kúbanskir hermenn
hafi verið sendir til Angola til
að hjálpa MPLA að berjast
gegn árás Suður-Afríkumanna.
I Washington hafa um 200
blökkumenn sem börðust i
Vietnam skráð sig sem sjálf-
boðaliða i hreyfingu andstæð-
inga MPLA og þeir eru þess
albúnir að fara til Angola 15.
febrúar í flutningaflugvél sem
bandarisk mannréttinda-
samtök, CRE, láta í té. Flestir
þessir menn börðust í sér-
þjálfuðum sveitum og hafa átt
erfitt með að samlagast
borgaralegu lífi í Bandarikjun-
• •
Patty var dauð-
hrædd allan tímann
Washington, 27. jan. NTB. Reuter.
RÉTTARHÖLD yfir Patty
Hearst hófust I dag, en hún er
ákærð fyrir aðild að bankaráni.
Réttarhöldin fara fram í San
Fransisco. Nú eru um það bil
tvö ár síðan Patty Hearst var
rænt af Simbionesisku frelsis-
samtökunum, en siðar er talið
að hún hafi gengið til liðs við
samtökin og verið viðriðin
ýmsa glæpi og hryðjuverk sem
félagar úr samtökunum
frömdu. Hún á yfir höfði sér að
hljóta 25 ára fangelsisdóm og
auk þess sérstakan dóm allt að
tiu ár fyrir að bera vopn án
lögmæts leyfis.
Verjandi Patty Hearst, hinn
frægi lögfræðingur F. Lee
Baily, mun Ieggja á það áherzlu
Framhald á bls. 27
Er hvorki bjart-
sýnn né svartsýnn'
— segir Austin Laing
ÞEGAR Morgunblaðið hafði sam-
band við Tom Nielson, Iramkvæmda-
stjóra samtaka togarasjómanna i
Hull, I gærkvöldi hafði hann enn
engar fregnir haft af samninga-
viðræðum Geirs Hallgrimssonar og
Harolds Wilson i Lundúnum, en átti
von á að fá vitneskju um viðræðurn-
ar i dag.
Þá sneri blaðið sér til Austin
Laing. framkvæmdastjóra Samtaka
togaraeigenda i Bretlandi. Var á hon-
um að heyra. að hann vissi um gang
viðræðnanna, en kvaðst ekki geta
látið neitt uppi um þá vitneskju að
sinni. Hann var að þvi spurður, hvort
hann teldi sig hafa ástæðu til bjart-
sýni eða svartsýni. Hann sagði: „Ég
er hvorki bjartsýnn né svartsýnn."
Oldungadeildin greiðir
atkvæði um 200 mílur
ENDANLEG atkvæðagreiðsla fer fram í öldungadeild bandarfska þingsins í dag,
miðvikudag, um útfærslu bandarísku fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur og líklegt er
talið að það verði samþykkt.
Haraldur Kröyer sendiherra sagði í samtali við Mbl. að breytingatillögur hefðu
verið ræddar í gær og atkvæði greidd um þær. Akveðið var að þriggja tíma umræða
færi fram um frumvarpið í dag og til atkvæða á að ganga ekki síðar en kl. 12.15.
„Andstæðingar frumvarpsins
hafa eitthvað aukið fylgi sitt, en
menn sem ég hef talað við nýlega
álíta að ekki meira en 40 af 100
þingmönnum séu á móti því, “
sagði Haraldur Kröyer.
Hann sagði að trúlega yrði góð
þátttaka í atkvæðagreiðslunni.
„Strax eftir þessa atkvæða-
Mikið skrifað um deilu íslendinga og Breta í norsk blöð
Auðvelt að egna ís-
lendinga til reiði”
FráGuðmundi Stefánssyni,
Asi í Noregi 27.1.
NORSKU blöðin hafa að
undanförnu léð landhelgis-
deilu tslcndinga og Breta tals-
vert rúm f dálkum sfnum.
Þannig hafa þessi mál vcrið
rædd f leiðurum nokkurra blað-
anna og f fréttum hefur verið
greint frá framvindu mála á
miðunum við Island og f dag
frá fundum forsætisráðhcrra
tslands og Bretlands.
Aftenposten, stærsta blað
Noregs, fjallaði um landhelgis-
málið fyrir síðustu helgi og var
þar m.a. sagt að það hlé sem nú
hefði verið gert á þriðja þorska-
stríðinu gæti orðið að raunveru-
legum friði ef báðir aðilar
legðu sig virkilega fram við að
ná samkomulagi. Það ætti að
vera hægt þvi ekki muni svo
miklu á þvi sem Bretar krefjist
að fá að veiða og því sem Is-
lendingar séu fúsir til að
«amþykkja nú þegar. Siðan seg-
ir í leiðara Aftenposten: „Is-
lendingar þurfa að sýna sam-
komulagsvilja og mega ekki
gleyma því að margir brezkir
sjómenn verða atvinnulausir
verði þeir útilokaðir frá hefð-
bundnum fiskimiðum sínum.
Framhald á bls. 27
greiðslu mun forsætisráðherra
Israels, Yitzhak Rabin, ávarpa
báðar þingdeildir. Hann er hér i
opinberri heimsókn þannig að
búast má við að flestallir þing-
menn verði viðstaddir. Ég held að
það sé nokkuð öruggt að frum-
varpið fái nokkuð góðan meiri-
hluta,“ sagði hann.
Fulltrúadeildin hefur þegar
samþykkt svipað frumvarp, en
þau eru ekki alveg samhljóða, og
sérstök samræmingarnefnd skip-
uð fulltrúum úr báðum þingdeild
um fær það hlutverk að bræða
saman textana eins og hún hefur
umboð til þegar efnislegur munur
i frumvörpum er ekki mikill.
Endanlegur texti fer siðan til
Fords forseta.
Haraldur Kröyer sagði að þetta
gæti annað hvort tekið nokkra
daga eða nokkrar vikur. Hann
sagði að erfitt væri að spá um
hvort frumvarpið fengi tvo þriðju
atkvæða, sem væri ekki nauðsyn-
legur meirihluti, en á hinn bóginn
vísbending til forsetans um að
það sé vafasamt fyrir hann að
beita neitunarvaldi.
Forsetinn sagði i svari við fyrir-
spurn frá Mbl. í siðustu viku að
hann teldi ekki líklegt að hann
mundi beita neitunarvaldi. „Það
er trúlegt að sú breytingartillaga,
sem var samþykkt um að útfærsl-
an taki ekki gildi fyrr en i árslok
1976, muni kannski hafa haft ein-
Framhald á bls. 27
Verð-
stöðvun
í Finn-
landi
Hrlsinf>fors. 27. janúar NTB.
FINNSKA stjórnin og aðilar
vinnumarkaðarins hafa komizt
að samkomulagi um að eftir
væntanlegum launasamning-
um f vor fylgi fimm mánaða
verðstöðvun. Jafnframt verður
verðlagseftirlit hert þegar
verðstöðvun lýkur.