Morgunblaðið - 28.01.1976, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1976
|Wi»r0iiwl>Wííl»
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavtk.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson
Ritstjórar Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. simi 10 100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22 4 80
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 40,00 kr. eintakið.
Engin kjarnorku-
vopn á íslandi
— bara spámenn!
RARIK tekur nýja dísil-
samstæðu í notkun á Höfn
Nýja dfsilsamstæðan á Höfn f Hornafirði. Ljósm. Elías Jónsson.
Ý slenzkir fjölmiðlar hafa
Xverið nokkuð uppteknirvið
það undanfarið að vitna í get-
gátur heldur óábyrgra erlendra
einkaaðila þess efnis, að á ís-
landi séu geymd kjarnorku-
vopn á vegum varnarliðsins-
Jafnvel eftir að utanríkisráð-
herra landsins upplýsti hér í
blaðinu, að slíkar fullyrðingar
væru úr lausu lofti gripnar, er
enn reynt að gefa þetta í skyn,
og er engu líkara en til séu þeir
menn hér á landi, sem geta
ekki hugsað sér annað en taka
frekar mark á útlendingum en
t.a.m. utanríkisráðherra.
Hér í blaðinu hefur áður
verið bent á, hve hlutverk fjöl-
miðla er mikilvægt, en þess
aftur á móti einnig getið, að því
miður séu fréttamenn ekki
alltaf jafnvandir að virðingu
sinni, og fullyrðingar þeirra eru
oft og einatt í öfugu hlutfalli við
þá ábyrgð sem á þeim hvílir.
Fer það því miður í vöxt að
íslenzkir fjölmiðlar haldi frémur
f það, sem rangt er, en hafi
það, er sannara reynist. Sýnir
þetta m.a., að nauðsynlegt er
að fréttamenn krefjist þess af
sjálfum ser og samstarfsmönn-
um sínum, að þeir leggi meiri
rækt við starf sitt og umgangist
staðreyndir með öðrum hætti
en tíðkazt hefur í sorpblöðum,
bæði hér og erlendis. En til
þess að svo megi verða er
nauðsynlegt, að fréttamenn
eigi kost á beztu menntun, sem
starfi þeirra hæfir, og þá helzt
háskólamenntun, enda er stór
hluti viðmælenda þeirra með
mikla og staðgóða þekkingu,
sem krefst góðrar menntunar,
og nauðsynlegt að starfsmenn
fjölmiðla séu ekki eftirbátar
annarra í þeim efnum.
Á þetta er minnzt að marg-
gefnu tilefni, enda þótt augljóst
sé öllum, sem við blöð vinna,
að enginn umgengst sannleik-
ann betur vegna menntunar
einnar og blaðamennska verð-
ur ekki lærð í skolum frekar en
önnur huglæg störf ýmiss
konar, sem henni eru náskyld.
En vel mættu ýmsir íslenzkir
blaðamenn, ekki síður en er-
lendir, fara á námskeið i því að
umgangast sannleikann, til-
einka sér þekkingu og leggja
alúð við staðreyndir, þótt þær
séu ekki alltaf eins góður sölu-
varningur, hvorki í pólitískri
blaðamennsku né hasarblaða-
mennsku af öðru tagi, eins og
réttar upplýsingar einar saman.
Þessar hugleiðingar eru því
miður ekki ástæðulausar m.a.
vegna þess moldviðris, sem
reynt hefur verið að þyrla hér
upp í sambandi við kjarnorku-
vopn og fyrr er getið. Einar
Ágústsson utanríkisráðherra
hefur fullyrt að hér á landi séu
engin kjarnorkuvopn og að
sjálfsögðu sett heiður sinn að
veði þeirri fullyrðingu og ættu
þeir fjölmiðlar sem annað hafa
fullyrt að geta haft þessa yfir-
lýsingu ráðherrans nokkurn
veginn rétt eftir. En það er
síður en svo að allir íslenzkir
fjölmiðlar hafi áhuga á því.
Dylgjur og alls kyns vafasamar
upplýsingar — eða jafnvel ein-
hvers konar óskhyggja —
kemur í veg fyrir það. Menn
rembast eins og rjúpa við staur
við að koma þvi inn hjá sem
flestum að kjarnorkuvopn séu
hér á landi — með þeim
hörmulegu afleiðingum, sem
slikt gæti haft í för með sér, ef
Rússar t.a.m. tryðu þessu. Það
væri þá helzt að við gætum
bundið vonir okkar við að
njósnanet þeirra hér á landi sé
svo þétt, að þeir viti betur og
hafi af eigin rammleik komizt
að réttri niðurstöðu. Auk þess
ættu KGB-mennirnir hér á landi
að vera farnir að átta sig á því
eins og margir aðrir, að
íslenzkir fjölmiðlar eru misjafn-
lega áreiðanlegir — og satt
bezt að segja eru þeir farnir að
þvaðra af slíku ábyrgðarleysi
um alvarlegustu mál að leita
verður langt aftur í tímann til
að finna dæmi þessarar svo-
nefndu „frjálsu, óháðu" blaða-
mennsku. Nýleg dæmi þess
eru t.a.m. fullyrðingar þess
efnis, að ríkisstjórnin hafi í raun
og veru aldrei ætlað að slíta
stjórnmálasambandi við Breta
— það hafi einungis verið
blekking (!) — og íslendingar
hafi leikið hvern afleikinn á
fætur öðrum í viðræðunum í
Lundúnum, enda þótt um þær
liggi enn ekkert fyrir.
Þannig tala þeir menn sem
helzt vilja láta líta á sig sem
einhverja nýja spámenn !
íslenzkri blaðamennsku. Nei,
íslenzka þjóðin þarf á annars
konar spámönnum að halda.
Höfn 25. janúar.
I GÆR kl. 17 var tekin í notkun
hjá Rafmagnsveitum ríkisins á
Höfn ný dísilvélasamstæða sem
framleiðir tvær gigawattstund-
ir á ári. Vélin er af gerðinni
MWM 16 cyl. 2.800 hestöfl. Raf-
afl er af gerðinni A.E.G. en
stjórnboð frá E.G.A. í Noregi.
Þessi nýja samstæða eykur
framleiðslu rafmagns með dísil-
afli um meira en helming en
fyrir voru fjórar minni dísil-
samstæður sem framleiddu
samtals 1350 kw auk þess sem
Smyrlabjargarárvirkjun er
1360 kw.
Um aldamót voru á Höfn 11
íbúar, 1930 voru þeir 170, 1950
voru þeir 430, 1967 voru þeir
orðnir 960 og 1974 bjuggu 1170
manns á Höfn í Hornafirði.
Rafmagnsnotkun hefur verið
sem hér segir: 1968 voru fram-
leiddar 2.7 millj. kwst. með dís-
ilafli eingöngu. Á næsta ári
voru framleiddar 2.4 Gwst. með
dísilafli, en þá kom Smyrla inn
ÞANN 13. janúar s.I. tók Mynd-
iðjan Astþór á móti hundrað
þúsundasta viðskiptavini sfn-
um. Af þessu tilefni var þess-
um viðskiptavini færð Exakta
Ijósmyndavél að gjöf, en sá
heppni heitir Þorsteinn Frið-
þjófsson frá Dalvík, nemandi f
Tækniskólanum. „Þessar
myndir sem ég tók og fór með í
framköllun voru af hestinum
mfnum og svo f jölskvldumynd-
ir.“ sagði Þorsteinn.
Myndiðjan Ástþór h.f. hóf
starfsemi sína í júlí 1974 og var
stofnkostnaður þess um 20
milljónir króna. 1 sumar var
siðan opnuð ljósmyndavöru-
verzlun í Hafnarstræti 17 og
samhliða þessu hefur þróazt
vaxandi heildsala. Fjöldi starfs-
manna er nú 15 manns.
Á þeim 18 mánuðum, sem
Myndiðjan hefur starfað, hafa
verið framkallaðar 1.652.000 lit-
myndir. Til gamans má geta
þessa að ef myndirnar væru
lagðar hlið við hlið, væri sú
vegalengd 180 kílómetrar, eða
samsvarandi vegalengdinni
milli Reykjavíkur og Vík í Mýr-
Félög sjálfstæðismanna 1
Bakka- og Stekkjahverfi og
Fella- og Hólahverfi hafa
fengið góða húsnæðisaðstöðu
fyrir starfsemi sína að Selja-
braut 54 í Breiðholti verzlunar-
húsi Kjöts og Fisks. Þar mun
þriðja félagið, sem væntanlega
verður stofnað innan skamms f
Breiðholti II, einnig fá inni.
Var þetta glæsilega húsnæði
tekið f notkun laugardaginn 17.
janúar og boðið þangað for-
manni flokksins, formönnum
annarra sjálfstæðisfélaga 1
borginni, borgarfulltrúum og
alþingismönnum, stjórnum
beggja Breiðholtsfélaganna og
umdæmisformönnum f því
hverfi. En um kvöldið var opið
hús fyrir alla sjálfstæðismenn f
hverfinu og dansað til kl. 2.
Formaður húsnefndar,
Magnús Jensson, bauð gesti vel-
komna og sýndi húsnæðið.
Þarna fá félögin þrjú skrif-
stofur, og þau saman lítinn sal,
en hafa auk þess forgangsrétt
að stórum sal, þar sem rúm
er fyrir 150 manns við borð.
í myndina seint á árinu og skil-
aði 700 þús. kwst. A árinu 1970
framleiddi Smyrla 3.8 GWst. en
dísilvélarnar 100 þús. kwst.
1971 voru framleiddar 4.5 GWst
dal. Ef einhver ætlaði að skoða
þessar myndir í reglulegum
vinnutíma tæki það tvö ár.
Þá hefur fyrirtækið boðið
nýja þjónustu. Er það svokall-
aður „filmupoki" sem hægt er
að kaupa í allflestum verzlun-
Einar Bergmann kaupmaður f
verzluninni Kjöt og fiskur
hefur innréttað þetta húsnæði
og veitt félögunum þar að-
stöðu og var honum í ræðum
þakkað mjög fyrir. I húsnefnd
af hálfu sjálfstæðisfélaganna
eru Magnús Jensson, Jón
í virkjuninni en dísilstöðvarnar
framleiddu o.5 GWst. Á síðasta
ári framleiddi virkjunin 10
GWst, en dísilvélarnar 2.5
GWst. Elfas.
um. Er filman sett í pokann og
síðan getur hlutaðeigandi sett
pokann ófrímerktan í póst. Síð-
an er filman framkölluð hjá
fyrirtækinu og að þvi loknu eru
myndirnar sendar í pósti heim
ásamt nýrri filmu.
Grétar Guðmundsson, Ösk-
ar Friðriksson, Edgar Guð-
mundsson, Gunnar Bergmann
og Grétar Hannesson. Heldur
nefndin áfram að starfa og.mun
skipuleggja starfið í húsinu. Er
m.a. verið að undirbúa árshátíð
Framhald á bls. 27
Tekur tvö ár að skoða mynd-
imar í venjulegtmi vinnutíma
Þorsteinn Friðþjófsson tekur við verðlaunaskjali úr hendi Hjartar
Blöndalsrverzlunarstjóra Myndiðjunnar.
Sjálfstæðisfélögin 1 Breið-
holti f á glæsilegt húsnæði
Frá opnun félagsheimilis sjálfstæðismanna 1 Breiðhoiti. Geir Hall-
grfmsson, formaður flokksins, var meðal gesta.