Morgunblaðið - 28.01.1976, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1976
[ atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
atvinna — atvinna ~|
Háseta vantar
á góðan 150 lesta bát frá Grundarfirði.
uppl. í síma 93-8663.
HÓTEL —
ATVINNA
Við óskum eftir starfsfólki á tímabilinu um
10/5 — 24/9.
Matreiðslumönnum
Aðstoð í eldhús
Smurbrauðsdömu (kokk)
Framreiðslufólki +
Herbergisþernum ^
Stúlkum í buffet
Strákum til ræstinga
Sendlum utanhúss ^
Aðstoð í þvottahúsi.
Umsækjendur verða að tala dönsku
norsku.
tala ensku.
Fastur vinnutími. Góður aðbúnaður.
Ókeypis ferð frá aðkomustað í Noregi til
Balestrand.
Umsóknir ásamt Ijósritum af meðmælum
sendist:
KVIKNE's HOTEL,
N-5850 Balestrand i Sogn, Norge.
Skrifstofustúlka
Skrifstofustúlka óskast hálfan daginn.
Starfsreynsla eða verzlunarmenntun
nauðsynleg. Umsóknir sendist Mbl.
merktar: HTV — 8647.
Framtíðarstarf
Vélainnflytjandi óskar að ráða vélvirkja
eða bifvélavirkja til starfa við standsetn-
ingu og viðgerðir nýrra og notaðra véla
— viðkomandi þarf að geta unnið sjálf-
stætt. Um er að ræða framtíðarstarf fyrir
réttan mann. Tilboð með uppl. um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Mbl. sem
fyrst merkt D — 3709.
Stúlka óskast
til starfa í mötuneyti og bítibúr Leikhúss-
kjallarans frá og með n.k. mánaðamót-
um. Uppl. á staðnum milli kl. 14 og 16,
28. og 29. janúar. Gengið inn frá Lindar-
götu.
L eikhúskjallarinn.
Afgreiðslumaður
Byggingavöruverzlun í Reykjavík óskar að
ráða afgreiðslumann sem fyrst. Æskilegt
er að viðkomandi hafi nokkra þekkingu á
byggingarvörum, þó er það ekki skilyrði.
Umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf sendist í pósthólf 529, R. fyrir
vikulok.
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
ÞÚ ACGLÝSIR L'M ALI.T
LAND ÞF.GAR ÞU AUG-
LÝSIR I MORGUNBLAÐINU
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
kennsla
Þjóðbúningur
„Upphlutur/#
Konur athugið saumið upphlutinn ykkar
sjálfar. Námskeið að hefjast, innritun í
síma 42436. Tek einnig að mér að
sauma upphluti.
fundir — mannfagnaöir
Eskfirðingar — Reyðfirðingar
Árshátíð
Félags Eskfirðinga og Reyðfirðinga verður
haldin að Hótel Sögu, Átthagasal, laugar-
daginn 31. janúar kl. 1 9. Miðaafhending
í Átthagasal, föstudaginn 30. kl. 16—19
og laugardag kl. 1 0—1 2. Stjórnin.
____________til sölu_________|
Einbýlishúsalóð
Til sölu er byggingarlóð undir einbýlishús
í Reykjavík. Uppl. í síma 85932.
tilkynningar
Tilkynning um gjalddaga
sérstaks tímabundins
vörugjalds
Athygli skal vakin á því, að gjalddagi
sérstaks tímabundins vörugjalds af inn-
lendri framleiðslu skv. lögum nr. 65/-
1975 fyrir tímabilið október, nóvember
og desember 1 975 er 1. febrúar n.k. Ber
þá að skila gjaldinu til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt vörugjaldsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið 20. janúar 1976.
óskast keypt
Prjónakonur
Kaupum handprjónaðar lopapeysur.
Nýlega stórhækkað verð
Móttaka í Reykjavík mánudaga, þriðju-
daga, fimmtudaga og föstudaga í verzlun-
inni Þingholtsstræti 2 kl. 9 —12 og 1-
4. og á miðvikudögum að Nýbýlavegi 6
(Dalbrekkumegin), Kópavogi á sama tíma.
Móttökuaðilar úti á landi:
Erna Svavarsdóttir, Blönduósi.
Jórunn Bachmann, Borgarnesi, Pála Páls-
dóttir, Hofsósi, Verzl. Ara Jónssonar,
Patreksfirði, Verzl. Einars Stefánssonar
Búðardal. Álafoss h.f.
Aðild íslands að Háskóla S.Þ.
— fjárhagshliðin könnuð nánar
Á FUNDI stjórnar Ifáskóla S.Þ.,
sem haldinn er nú í lok mánaðar-
ins, býður Island ekki ákveðið
fram samstarf um jarðhitadeild
við háskólann, heldur verður mál-
ið lagt fyrir i könnunarskyni, skv.
tillögu samstarfshóps þess, er
fjallað hefur um málið á vegum
menntamálaráðuneytisins. Hefur
sá hópur skilað skýrslu, sem rfkis-
stjórnin féllst á á fundi sínum 20.
jan. Þar segir m.a.:
„Aður en lengra er haldið um
áætlanagerð er talið nauðsynlegt
að kanna viðhorf forráðamanna
Háskóla S.Þ. til þesshvortláhugisé
af háskólans hálfu á samstarfi við
tslendinga á þessu sviði og þá
hvers konar samstarfi stofnunin
hefði mestan hug á. Jafnframt
þyrfti að liggja fyrir hvers konar
fjárhagsþátttaka kynni að vera til
reiðu af hálfu háskólans og hvaða
tilhögun hugsanlegs samstarfs
mundi samræmast meginreglum
stofnunarinnar. Leggja ber
áherzlu á, að málið er nú lagt
fyrir í könnunarskyni. Það mun
m.a. verða komið undir nánari
athugun á fjárhagshlið málsíns,
hvort unnt reynist að leggja fram
formlegar tillögur.
Fulltrúar frá utanríkis-, iðnað-
ar-, sjávarútvegs- og menntamála-
ráðuneytinu hafa tekið þátt i
starfi hópsins, svo og fulltrúar
Háskóla Islands, Rannsóknaráðs
ríkisins, Hafrannsóknastofnunar-
innar, Orkustofnunar og Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins. I
skýrslu hópsins segir m.a.:
„í umræðum þeim, sem fram
hafa farið um hugsanlega starf-
semi á sviði jarðhitafræða í
tengslum við Háskóla S.Þ., hafa
einkum tvær leiðir verið reifaðar.
Annars vegar eru hugmyndir um
framhaldsnám í jarðvarmaverk-
fræði til MSc-prófs. Er þá haft í
huga tveggja missera nám auk
rannsóknaverkefnis er taki um
15—20 vikur. Hins vegar eru hug-
myndir um þjáifun í rannsóknum
varðandi vinnslu og nýtingu jaró-
hita með þátttöku í hagnýtum
jarðhitafræðilegum verkefnum
og kennslu í tengslum við þau.
Yrði þá lögð áherzla á rannsóknir
er varða lausn ýmissa hagnýtra
vandamála, svo sem frumkönnun
Hjálparsveit skáta í
Kópavogi gefur út almanak
HJALPARSVEIT skáta f Kópa-
vogi hefur gefið út almanak
með eftirprentun af málverki
eftir Sigfús Halldórsson. Sigfús
er raunar kunnari fyrir laga-
smíðar en listmálun en hefur
þó getið sér gott orð sem mál-
ari.
Málverkið er frá árinu 1965
og er af bryggjunni á Kársnesi.
1 baksýn sést hús það sem
Hjálparsveitin hefur aðsetur í.
Almanakið er gefið út í fjáröfl-
unarskyni fyrir Hjálparsveitina
og eru á þvi nöfn og símanúmer
ýmissa fyrirtækja og stofnana í
Kópavogi en einnig er hægt að
hafa samband við Hjálparsveit-
ina til að fá eintak.
Félagar úr Hjálparsveitinni
hafa aðstoðað fólk undanfarna
daga í ófærðinni og m.a. séð um
akstur skólabarna sem búa á
Vatnsenda.
jarðhitasvæða, staðarval og
tæknilegan frágang borhola,
vinnslueiginleika jarðhitakerfa
og tæringu og skeljun af völdum
efna f vatninu og gufunni.
Umræður um þessi mál hafa
miðaztviðþáforsendu, að sú starf-
semi sem stofnað kynni að verða
til yrði á vegum íslenzkra stofn-
ana og undir íslenzkri stjórn. Er
þá og gert ráð fyrir að Islendingar
stæðu straum af meginhluta þess
kostnaðar sem beint er tengdur
innlendri aðstöðu og mannafla,
en hugsanlegt fjárframlag frá Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna yrði
einkum varið til að greiða kostnað
Framhald á bls. 27
Félagar úr Hjálparsveit skáta f Kópavogi afhenda Sigfúsi Halldórssyni
eintak af almanakinu sem mynd hans prýðir. F.v.: Bjarni Þormóðsson,
Gunnsteinn Sigurðsson formaður sveitarinnar, Bjarni Axelsson, sem
hannaði almanakið, og Sigfús Halldórsson.