Morgunblaðið - 28.01.1976, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1976
Kolbeinn Pálsson — leik-
reyndasti maður Islenzka
landsliðsins.
Körfu-
knattleiks-
landsliðið
valið
tslenzka körfuknattleiks-
landsliðið sem keppa á við
Englendinga 7. og 8. febrúar
n.k. í Laugardalshöllinni hefur
nú verið valið. Eru þrír nýliðar
í liðinu, þeir Guðsteinn Ingi-
marsson og Björn Magnússon
úr Armanni og Jónas
Jóhannesson úr Njarðvíkurlið-
inu. Leikreyndasti maður liðs-
ins er hins vegar Kolbeinn
Pálsson úr KR, sem leikið hef-
ur 41 landsleik.
Islenzka liðið verður þannig
skipað:
Bakverðir:
Kolbeinn Pálsson, KR (41)
Kristinn Jörundsson, IR (17)
Jón Sigurðsson, A (29)
Kári Marísson, UMFN (14)
Kolbeinn Kristinsson, IR (12)
Guðsteinn Ingimarsson, Á (0)
Framherjar:
Gunnar Þorvarðarson, UMFN
(12)
Torfi Magnússon, Val (10)
Stefán Bjarkason, UMFN (5)
Bjarni Jóhannesson, KR (4)
Birgir örn Birgis, A (32)
Miðherjar:
Jón Jörundsson, ÍR (5)
Björn Magnússon, A (0)
Jónas Jóhannesson, UMFN
(0)
Duncan þjálfar
Reyni og Leiftur
Enn á ný mun Skotinn Duncan
MacDowell starfa að knatt-
spyrnuþjálfun hér á landi. Hann
þjálfðai FH og Vestmannaeyínga
á sinum tima og s.l. sumar kom
hann á miðju keppnistimabili og
tók lið Reynis frá Árskógsströnd.
sem gengið hafði fremur illa til
þess tima i 2. deildinni, og forð-
aði liðinu frá falli, sem margir
höfðu orðið til þess að spá. Svo
mikil ánægja rikti i herbúðum
Reynis með Duncan að þeir hafa
nú ráðið hann að nýju til starfa
og mun hann að likindum koma
hingað i byrjun febrúar.
MacDowell mun auk þess að
þjálfa knattspyrnumenn Reynis
þjálfa 3. deildar lið Ólafsfirðinga,
Leiftur. svo og yngri flokka
félagsins. Félögin tvö, Reynir og
Leiftur, hafa þar með brotið blað i
sögunni þvi aldrei fyrr hefir það
gerst i knattspyrnunni að sami
þjálfari hafi verið með tvö lið I
meistaraflokki. Að sjálfsögðu er
það kostnaðurinn sem þarna spil-
ar inn i, þvi hvorugt félagið
treystist til þess að hafa erlendan
þjálfara eitt út af fyrir sig. Segja
má að þetta sé eitt merkasta
skrefið sem stigið hefir verið í
samvinnu íþróttafélaga hérlendis.
og athugandi hvort ekki mundi
unnt fyrir fleiri félög að taka upp
samvinnu af sama eða svipuðu
tagi.
Lengi ttfír í
gömmng
1
tUHJJI
Jón Þ. varð Islandsmeistari
í langstökki án atrennu
FREMUR dauft var yfir Islands-
meistaramótinu í atrennulausum
stökkum sem fram fór að Laugar-
vatni um helgina. Aðeins þrfr
keppendur frá Reykjavík mættu
þar til leiks og fór svo að þeir
héldu heim með öll verðlaunin.
Meðal þessara keppenda var Jón
Þ. Ölafsson, sem er margfaldur
methafi I þessum greinum og sá
Islendingur sem haldið hefur
merki þeirra hvað hæst á loft.
Varð Jón Þ. Islandsmeistari I
langstökki án atrennu og náði
ágætum árangri, stökk 3,11
metra. Hélt Jón Þ. upp á 20 ára
keppnisferil sinn með þessu af-
reki sfnu.
Friðrik Þór Öskarsson, IR, varð
Islandsmeistari I tveimur grein-
um, hástökki án atrennu og þrí-
stökki án atrennu. Stökk hann
1,63 metra, en annar varð Islands-
methafinn í spjótkasti, Óskar
Jakobsson, sem stökk 1,60 metra
og Jón Þ. varð þriðji, stökk einnig
þá hæð. 1 þristökkinu stökk
Friðrik Þór Óskarsson 9,41 metra.
Ennfremur var keppt í langstökki
kvenna, án atrennu, og i því
sigraði Lára Sveinsdóttir, A,
stökk 2,53 metra. Var ekki langt
að fara fyrir Láru, þar sem hún
dvelur í vetur við íþróttakennara-
nám að Laugarvatni.
Elías Sveinsson, sem verið
hefur einna atkvæðamestur í
þessum íþróttagreinum á undan-
förnum árum, var ekki meðal
keppenda á Laugarvatni. Heyrzt
hefur að Elías sé nú að skipta um
féiag og ganga í KR,
Golf
HAFNAR eru innanhússæfingar hjá
Golfklúbbnum Keili I íþróttahúsinu
Ásgarði I Garðabæ. Þorvaldur
Ásgeirsson mun veita leiðsögn og er
þeim sem hafa I hyggju að hefja
golfiðkun sérstaklega bent á að
hagnýta sér þetta.
Aðstaða til æfinga er mjög góð og
verður æft á laugardags- og sunnu-
dagsmorgnum frá kl. 9 —12.
Verður Ingemar Stenmark fyrstur Norðurlandabúa til þess að vinna
heimsbikarinn í Alpagreinum?
Ingemar Stenmark stigáæstar
Austurríkismaðurinn Franz
Klammer sigraði f bruni á skfða-
móti sem fram fór f Kitzbuehel f
Hvað gerir Grótta ?
I KVÖLD fer fram f Hafnarfirði
einn leikur f 1. deildar keppni
Islandsmótsins f handknattleik.
Mætast þar FH og Grótta og hefst
leikurinn kl. 21.00. Bæði þessi lið
hafa leikið 10 leiki f Islandsmót-
inu til þessa og hafa FH-ingar
hlotið 12 stig og eru f öðru sæti,
en Grótta hefur hins vegar ekki
nema 6 stig og er á botninum f
deildinni.
Þrátt fyrir þennan stigamun má
búast við hörkuleik miiii félag-
anna í kvöld, og er þess skemmst
að minnast að í fyrri viku lagði
Grótta Islandsmeistara Víkings af
velli í leik i Hafnarfirði. Með sigri
í leiknum I kvöld gæti Grótta
bjargað sér úr bráðustu fallhætt-
unni, en FH-ingar þurfa hins veg-
ar á sigri að halda til þess að
verða áfram með í keppninni um
Islandsmeistaratitilinn. Það er
því óhætt að slá því föstu að ekk-
ert verður eftir gefið í leiknum í
kvöld.
Austurrfki um helgina. Keppni
þessi var liður í heimsbikar-
keppninni á skfðum. Tfmi
Klammers var 2:03,79 mfn. Annar
f bruninu varð Norðmaðurinn
Erik Haker á 2:05,85 mfn, og
þriðji varð Austurrfkismaðurinn
Josef Walcher á 2:06,47 mfn.
Fjórði varð svo Werner Griss-
mann frá Austurrfki á 2:06,59 og f
sjötta sæti hafnaði Bernhard
Russi frá Sviss, en hann fékk
tfmann 2:06.63 mfn.
I svigkeppninni sigraði Svíinn
Ingemar Stenmark á 0,36 sekúnd-
um á undan ttalanum Gustavo
Thoeni sem varð i öðru sæti.
Eftir keppnina í Kitzbuehel
hefur Ingemar Stenmark forystu
í stigakeppninni í svigi, hefur
hlotið þar 110 stig. Piere Gros frá
Italiu er í öðru sæti með 85 stig,
þriðji er Hans Hinterseer frá
Austurríki með 56 stig og fjórði
er Fausto Radici frá Italiu, en
hann hefur hlotið 44 stig.
I stigakeppninni í bruni hefur
Franz Klammer hlotið flest stig,
120. Herbert Plank frá ítalíu er í
öðru sæti með 71 stig, Bernhard
Russi frá Sviss er I þriðja sæti
með 66 stig. Philippe Reux frá
Sviss fjórði með 63 stig, fimmti er
Dave Irwin frá Kanada með 47
stig og sjötti er Klaus Eberhard
frá Austurríki með 41 stig.
I samanlögðu hefur svo Inge-
mar Stenmark frá Svíþjóð enn
forystuna, en hann hefur hlotið
samtals 166 stig í keppninni i
Alpagreinunum. Franz Klammer
er i öðru sæti með 156 stig. Piere
Gros í þriðja sæti með 155 stig.
Gustavo Thoeni er i fjórða sæti
með 140 stig, Walter Tresch frá
Sviss í fimmta sæti með 90 stig og
í sjötta sæti er Hans Hinterseer,
Austurríki með 80 stig.
I kvennakeppninni hefur Rosi
Mittermaier frá Vestur-
Þýzkalandi flest stig eftir keppni
helgarinnar, samtals 204. 1 öðru
sæti er Bernadette Zubriggen,
Sviss með 153 stig. Þriðja er Lise-
Marie Morerod frá Sviss með 145
stig, fjórða er Danielle Debernard
frá Frakklandi með 124 stig,
fimmta Brigitte Totschnig frá
Austurríki með 119 stig og í sjötta
sæti er Monika Kaserer frá
Austurríki með 103 stig.
Austurríki hefur svo forystu í
þjóðakeppninni (karlar og kon-
ur) er með 806 stig eftir keppni
helgarinnar. Sviss er I öðru sæti
með 664 stig. Italia i þriðja sæti
með 576 stig, en síðan koma: Vest-
ur-Þýzkaland 455 stig. Frakkland
279 stig, Bandarikin 171 stig, Svi-
þjóð 168 stig, Kanada 160 stig og
Liechtenstein 67 stig.
Hlutavelta
Margir júdómannanna sýndu það á mótinu að þeir eru f góðri þjálfun, enda veitir ekki af
við Norðmenn á næstunni. Ljósm. Ólafur ólafsson.
— landskeppm
VGL HEFPIVAD AFMÆLISMÓT JSÍ
FYRSTI hluti afmælismóts Júdó-
sambands Islands fór fram f
íþróttahúsi Hagaskólans s.l.
sunnudag. Keppendur í mótinu
voru 44 frá 6 félögum. Keppt var f
öllum þyngdarflokkum karla og f
tveimur þyngdarflokkum
unglinga 15—17 ára. Meðal
keppenda voru nú I fyrsta sinn 8
tsfirðingar, sem stofnað hafa
júdódeild f Iþróttafélaginu Reyni
á Hnífsdal.
Helztu úrslit á mótinu urðu
þessi:
Léttvigt:
Jóhannes Haraldsson, UMFG
Sigurður Pálsson, JFR
Eysteinn Sigurðsson, Á
Styrmir Sigurðsson, Á
Léttmillivigt:
Ómar Sigurðsson, UMFK
Gunnar Guðmundsson, UMFK
Níels Hermannsson, Á
Magnús Helgason, Isaf.
Millivigt:
Viðar Guðjohnsen, A
Jónas Jónasson, Á
Birgir Bachmann, JFR
Hilmar Jónsson, Á
Léttþungavigt:
Gísli Þorsteinsson, Á
Benedikt Pálsson, JFR
Sigurjón Ingvarsson, A
Finnur Finnsson, Isaf.
Þungavigt:
Svavar Carlsen, JFR
Kristmundur Baldursson, UMFK
Unglingar — léttari flokkur:
Björn Leifsson, Isaf.
Sveinbjörn Högnason, A
Ivar Gunnarsson, Gerplu
Unglingar — þyngri flokkur:
Daði Daðason, UMFK
Halldór Guðmundsson, Isaf.
Gunnar Rúnarsson, UMFG.
Svo sem sjá má keppti nú Viðar
Guðjohnsen með að nýju, en hann
hefur verið nokkuð frá vegna
meiðsla að undanförnu. Hins veg-
ar keppti Halldór Guðbjörnsson
ekki í léttmillivigtarflokknum
vegna smámeiðsla og í millivigar-
flokkinn vantaði sterka júdó-
menn, svo sem Halldór Guðnason,
Garðar Skaptason og Kára
Jakobsson.
hjá KSÍ
Knattspyrnusamband tslands
efnir til hlutaveltu 8. febrúar n.k.
Æði langt er siðan hlutavelta hef-
ur verið haldin í Reykjavík, og má
búast við mörgum eigulegum
munum á hlutaveltu KSl.
Þeir, sem vilja styrkja knatt-
spyrnuhreyfinguna i landinu með
því að gefa muni á hlutaveltuna,
eru vinsamlegast beðnir að
hringja í sima KSI kl. 13—15 og
tilkynna það. Simanúmerið er
84444. Þá verða munirnir sóttir.
Sú er von KSl að sem flestir slái
á þráðinn.
(Frétt frá KSl)