Morgunblaðið - 28.01.1976, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1976
27
- Ekkert samningsuppkast
Framhald af bls. 1
erum ekki svo ríkir að við höfum
efni á einkavél fyrir hann — allra
sízt eftir að þið hafið veitt allan
þorskinn okkar,“ er haft eftir
Eiríki Beneidikz.
I fréttaskeytum frá Mike Smart
í Hull segir að reiði sé þegar tekið
að gæta meðal frammámanna í
fiskiðnaði þar vegna þess að
samkomulag hafi ekki náðst.
Menn hafi áhyggjur af því að
togararnir á tslandsmiðum taki á
sig mikla áhættu með því að
reyna að veiða fyrir framan nefið
á íslenzku varðskipunum og undir
lítilli vernd. Þá sé ekki talið að
togararnir geti látið vera að veiða
það sem eftir er vikunnar.
Frá þvi hefur og verið skýrt að
Harold Wilson forsætisráðherra
muni gefa yfirlýsingu i Neðri
málstofunni á morgun um kl.
15.30 og ef til vill láta uppskátt
um hvort hann hafi vonir um að
samkomulag náist.
— Sahara
Framhald af bls. 1
þykktu í Marokkó að Marokkó-
menn og Máritaniumenn tækju
við stjórn Vestur-Sahara i samein-
ingu í lok næsta mánaðar.
Gamalreyndum liðsmönnum úr
baráttunni gegn Frökkum hefur
verið skipað að vera við öllu búnir
og Alsírsstjórn hefur aukið stuðn-
ing sinn við frelsishreyfinguna
Polisario sem berst gegn liðssveit-
um Marokkó og Máritaníu i Vest-
ur-Sahara.
Polisario segir að Marokkó-
menn hafi beitt flugher sínum í
vaxandi mæli að undanförnu og
að breytingar hafi verið gerðar á
flugvellinum i E1 Aaiun, höfuð-
borg Vestur-Sahara, þannig að
herflugvélar geti notað hana.
Gefst Aldo
Moro upp?
Rómaborg, 27. jan. Reuter.
ALDO Moro, sem falið var að gera
tilraun til að mynda ríkisstjórn á
Itaifu, var f kvöld sagður f þann
veginn að gefast upp við það verk.
Sagði Reuter-fréttastofan, að
hann myndi sennilega ganga á
fund Italfuforseta á morgun og
tjá honum að viðleitni hans hefði
engan árangur borið. Kemur
þetta nokkuð á óvart að sögn
Reuters, þar sem ýmis sólarmerki
bentu til þess að Moro myndi tak-
ast að mynda minnihlutastjórn
kristilegra demókrata.
Sterkur
kippur við
Leirhnúk
ENN eru jarðskjálftakippir við
Kröflu og f gær voru þar stanz-
lausir smákippir að þvf er Egill
Hauksson jarðeðlisfræðingur
tjáði Morgunblaðinu f gær.
Hann sagði að kl. 21.08 í fyrra-
kvöld hefði komið kippur sem
mældist 4.3 stig á Richter-kvarða.
Upptök hans reyndust vera 2 km
vestan við virkjunarsvæðið í
Kröflu eða rétt sunnan við Leir-
hnúk.
Enska
' knatt-
spyrnan
1 gærkvöldi fóru fram tveir
leikir f ensku bikarkeppninni f
knattspyrnu og urðu úrslit þeirra
þessi:
Charlton Athletic — Portsmouth
3—0
Wolves — Ipswich Town 1—0
2. deild:
Bolton Wanderes — Luton Town
3—0.
Þá er sagt í fréttum Reuters að
talið sé nær því öruggt að Wilson
hafi gert miklar tilslakanir varð-
andi árlegt aflamagn Breta á ts-
landsmiðum, ef samningur yrði
gerður milli ríkjanna. Þá segir í
niðurlagi Reuterfréttar i kvöld að
á meðan Geir Hallgrímsson og
meðráðherrar hans séu að ræða
árangur fundanna voni Bretar að
ekki verði klippt á togvira hjá
brezkum togurum. önnur ríki
innan Atlandshafsbandalagsins
séu og áfjáð i að samkomulag ná-
ist þar sem það myndi binda enda
á ósamkomulag innan bandalags-
ins.
— Vöruskipta-
jöfnuðurinn
Framhald af bls. 3.
meðaltali 1974 til meðaltals 1975,
kemur í ljós að, að útflutningur
1974 hefur verið 51,5 milljarðar
króna, en innflutningur 82,3
milljarðar króna. Samkvæmt sam-
bærilegu gengi hefur því vöru-
skiptajöfnuður árið 1974 verið
neikvæður um 30,8 milljarða
króna eða 3,1 milljarði óhag-
stæðari en á árinu 1975. Hefur því
vöruskiptajöfnuðurinn sam-
kvæmt þvi verið um 3% hag-
stæðari árið 1975 en hann var árið
1974.
— Loðna
Framhald af bls. 3.
son ÞH 390 lestir, Álftafeli SU
250 lestir, Höfrungur 3. AJ 200
lestir, Keflvíkingur KE 240 lestir,
Kristbjörg VE 150 Iestir, Svanur
RE 170 lestir, Þórður Jónasson
EA 320 lestir, örn RE 260 lestir,
Huginn VE 300 lestir, Hrafn
Sveinbjarnarson GK 200 lestir,
Loftur Baldvinsson EA 350 lestir,
Bjarnarey VE 90 lestir, Bergur
VE 180 lestir Helga Guðmunds-
dóttir BA 400 lestir, Sæbjörg VE
230 Iestir, Gísli Arni RE 450 lestir
Og Ásberg RE 370 lestir.
Frá því um miðnætti í fyrradag
til kl. 18 í gær tilkynntu eftirtalin
skip um afla: Þorsteinn RE 330
lestir, Húnaröst AR 180 lestir,
Bjarni Ölafsson AK 300 lestir,
Hákon ÞH 410 lestir, Harpa RE
300 lestir, Jón Finnsson GK 460
lestir, Gunnar Jónsson VE 160
lestir, Sigurbjörg ÓF 210 lestir,
Sveinn Sveinbjörnsson NK 70
lestir, Sigurður RE 950 lestir,
Súlan EA 530 lestir, Hilmir SU
170 lestir, Faxi GK 100 lestir,
Öskar Halldórsson RE 80 lestir,
Eldborg GK 400 lestir og Fífill GK
300 lestir.
— Akureyri
Framhald af bls. 28
vextir af lánum 24, ýmis útgjöld
25. Samtals 864,368 millj. kr.
Eignabreytingar 138 milljónir
132 þús. Meðalhækkun frá árinu
1975 er 39.6%.
Seinni umræða fjárhags-
áætlunarinnar er ákveðin þriðju-
daginn 17. febrúar. Sv.P.
— Friðrik
Framhald af bls. 28
Tal fyrrverandi heimsmeistara.
Teflt verður á morgun.
Skák Friðriks var eina
vinningsskákin í gær en jafntefli
gerðu Boehm og Ree, Sosonko og
Anderson, Tal og Dvorecki,
Smejkal og Ljubojevic. Síðast-
nefnda skákin fór í bið, en
kapparnir sömdu jafntefli í gær-
kvöldi. Skák Kurajica og Browne
var frestað.
Staðan er þá þannig að ólokinni
einni umferð að Ljubojevic er
með 7 vinninga, Friðrik 6V4, Tal
og Smejkal 6, Kurajica 5!4 vinn-
ing og eina skák óteflda, Smejkal
5, Langeweg, Sosonko, Anders-
son, og Ree 4'A Browne 4, og eina
skák ótefla, Dvorecki 4 og Boehm
3 vinninga.
Friðri, Ólafsson hefur hlotið 3'A
vinning af fjórum mögulegum í
síðustu umferðunum. Hann hefur
unnið Browne, Ree og Langeweg
og gert jafntefli við Kurajicka.
Friðrik er taplaus í mótinu.
r
— Urskurðaðir
í gæzluvarðhald
Framhald af bls. 28
hafa lent í átökum við Guðmund
sem leiddu til dauða hans og
fjórði maðurinn viðurkennt að
hafa aðstoðað þá við að flytja Iík-
ið. Vildu lögreglumennirnir ekki
birta nöfn mannanna á þessu
stigi.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við Hauk Guðmundsson,
rannsóknarlögreglumann í Kefla-
vík, sem stjórnaði upphaflegri
rannsókn Geirfinnsmálsins. Hann
sagðist ekkert vinna við hina nýju
rannsókn og kvaðst ekkert vita
meira úm málið en hann hefði
lesið í Morgunblaðinu um
morguninn. Sér væri hins vegar
kunnugt, að í sambandi við nýju
rannsóknina hefði verið óskað
eftir öllum þeim gögnum sem
fyrir lágu frá fyrri rannsókn.
— Geirfinns-
rannsóknin
Framhald af bls. 2
með lausu belti og var i ljósum
tveedbuxum. Talið var, að hann
væri um þrítugt. Strax og leir-
myndin hafði verið birt í fjöl-
miðlum, fóru upplýsingar að
berast lögreglustöðvum víða
um land, flestar til lögreglu-
stöðva á höfuðborgarsvæðinu.
Upphringingarnar urðu hátt á
annað hundrað og um 70 nöfn
voru nefnd.
LÝST EFTIR
MÖNNUM
Víða var leitað upplýsinga
m.a. upp við Sigöldu, þar sem
Geirfinnur vann og austur á
Héraði, þar sem hann dvaldi
nokkur sumur.
Miðvikudaginn 4. desember
lét lögreglan auglýsa eftir
tveimur mönnum vegna hvarfs
Geirfinns. Annar þeirra hafði
sézt á tali við Geirfinn í veit-
ingahúsinu Klúbbnum sunnu-
daginn áður en hann hvarf, en
hinn hafði komið á smurstöð á
Akureyri undir kvöld þann
dag, sem myndin af leir-
styttunni var birt, þ.e. 26. nóv.
Var sá maður á Fiatbíl með G
númeri og svaraði lýsing hans
til leirmyndarinnar og klæðn-
aðurinn var sá sami og manns-
ins, sem kom í Hafnarbúðina.
Laugardaginn 7. desember var
enn auglýst eftir tveimur
mönnum vegna málsins. !
fyrsta lagi var um að ræða
mann, sem kom í Hafnarbúðina
kl. 18.30 daginn, sem Geir-
finnur hvarf, og fékk að
hringja. Var hann á Ijósum
Mercedes Benz sendibíl. 1 öðru
lagi var auglýst eftir manni um
tvítugt sem hafði farið úr landi
daginn eftir að Geirfinnur
hvarf, undir fölsku nafni.
Kvaðst hann heita Jón
Guðmundsson, Ketilsbraut 20,
Húsavík, þegar hann keypti far-
miða til Kaupmannahafnar hjá
Utsýn í Reykjavík. Reyndist
nafn og heimilisfang falsað, og
aðrar upplýsingar sem hann
gaf, reyndust rangar.
Enginn þeirra manna sem
auglýst var eftir í sambandi við
Geirfinnsmálið gáfu sig fram.
Hins vegar bárust viðbótar-
upplýsingar m.a. um mennina á
Mercedes Benz bílnum og Fiat-
bílnum. Samkvæmt þeim benti
margt til þess að sá sem kom i
Hafnarbúðina kl. 18.30 og sá
sem kom í þessa sömu búð kl.
22.30 hafi verið einn og sami
maðurinn. Hati hann í fyrra
skiptið hringt heim til Geir-
finns, sem þá var einn heima,
og boðað hann á stefnumótið og
siðan hringt I Geirfinn eftir að
hann var búinn að koma og
boðað hann aftur. Kemur þá
tvennt til greina, að maðurinn
hafi orðið seinn fyrir á stefnu-
mótið kl. 22, eða þá að hann
hafi viljað kanna hvort Geir-
finnur færi nákvæmlega eftir
þeim fyrirmælum, sem honum
voru gefin og hann var búinn
að segja vinnufélaga sínum frá,
þ.e. að koma einn og fót-
gangandi til stefnumótsins.
Þegar hann hafði verið búinn
að ganga úr skugga um að Geir-
finnur fór i einu og öllu eftir
fyrirmælunum, hafi hann boð-
að hann að nýju til stefnumóts
í Hafnarbúðinni kl. 22.30. Þá
gæti einkennileg framkoma
mannsins á G bílnum bent til
þess, að þar væri sami maður á
ferð.
Verður rannsókn málsins
ekki rakin lengra, en hún varð
árangurslaus þrátt fyrir að um
væri að ræða umfangsmestu
eftirgrennslan eftir nokkrum
manni hérlendis. Rannsókninni
var siðan hætt sumarið 1975.
— EBE
Framhald af bls. 13
1 skýrslunni segir að aðildar-
löndin verði að ganga út frá þeirri
grundvallarforsendu að þau verði
að viðurkenna 200 mílna auð-
lindalögsögu. Á það er bent að
mörg lönd — þar á meðal Island
— hafi þegar fært fiskveiðilög-
sögu sína út í 200 mílur og haf-
réttarráðstefnan muni taka fyrir
almenna útfærslu i 200 milur
þegar hún komi aftur saman 15.
marz.
ítrekaður er stuðningur við þá
grundvallarreglu í skýrslunni að
öll aðildarlöndin eigi að hafa jafn-
an aðgang að fiskimiðum hvers
annars. I skýrslunni segir að auð-
lindalögsaga muni hafa veruleg
áhrif á skipulag fiskveiða innan
EBE þvi að verði fiskimönnum
aðildarlandanna bægt frá öðrum
miðum muni það hafa í för með
sér aukna veiði á miðum EBE-
landanna.
Þannig segir í skýrslunni að
verði haldið fast við megin-
regluna um frjálsa og ótakmark-
aða veiði geti það hæglega leitt til
þess að fiskurinn hverfi af miðum
bandalagsríkjanna.
— Patty
Framhald af bls. 13
i vörn sinni, að stúlkan hafi
verið þvinguð til að taka þátt L
ráninu. Bailey sagði i dag að
Patty hefði allan timann verið
dauðskelfd og ekki dirfst að
andmæla leiðtogum samtak-
anna, þar eð hún óttaðist að
þeir myndu þá drepa hana.
Mikill fjöldi blaðamanna úr
öllum heimshornum fylgist
með réttarhöldunum en álitið
er að þau kunni að standa
næstu tvo mánuði að minnsta
kosti.
Stjórn sjálfstæðisfélagsins í
Bakka- og Stekkjahverfi skipa:
Jón Grétar Guðmundsson, for-
maður, Vilhjálmur Ingólfsson,
Steindór Ulfarsson, Inga
Magnúsdóttir, Grétar Hannes-
son, Öskar Friðriksson og
Stefán Aðalsteinsson.
I stjórn Fella- og Hólahverfis
eru: Berta Biering formaður,
Björn Bjarnason, Edgar Guð-
mundsson, Gunnar Hauksson,
Helgi Árnason, Hilda Björk
Jónsdóttir og Jónína Hansen.
- Aðild íslands
Framhald af bls. 16
vegna erlendra sérfræðinga og
styrkþega. Jafnframt yrði athug-
að um þátttöku í hugsanlegum
stofnkostnaði, sem stæði i beinu
sambandi við hinn alþjóðlega þátt
starfseminnar."
FastafuIItrúa Sameinuðu þjóð-
anna hefur verið falið að koma
erindi þessu á framfæri við Há-
skólaS.Þ. . ...........
— Auðvelt
Framhald af bls. 13
Bretar hafa með því að senda
herskip sín inn fyrir 200 mil-
urnar egnt Islendinga til reiði,
en það sé mjög auðvelt. Bretar
ættu að sjá að innan skamms
verður 200 mílna auðlindalög-
saga viðurkennd á alþjóðavett-
vangi. En skynsemisskortur
Breta skyggir þó ekki á það að
Islendingar sýndu óafsakan-
lega óþolinmæði og brutu gild-
andi þjóðarrétt er þeir færðu
landhelgina einhliða út, en
biðu ekki eftir úrskurði
Hafréttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna.
Þeir Norðmenn sem af hvað
mestum ákafa fylgja einhliða
útfærslu fiskveiðilögsögunnar
ættu að geta dregið lærdóm af
framvindu mála á tslands-
miðum og séð að það borgar sig
ekki að rasa um ráð fram. Við
munum mæta minni skilningi á
alþjóðavettvangi en tslend-
ingar og ekki getum við hótað
að segja okkur úr NATO.“
I Dagblaðinu norska er í dag
fjallað um deilu Islendinga og
Breta i leiðara undir fyrirsögn-
inni „Þriðja þorskastríðið". Þar
segir rn.a.: „Islendingar og
Bretar hafa háð þrjú þorska-
stríð og hafa Bretar tapað þeim
öllum. Bretar hafa í öll skiptin
gripið til hefðbundinna vopna
nýlendutímans og sent vopnuð
skip sín gegn varðskipunum
íslenzku. Þorskastríðið nú mun
leysast með samningum, en það
er ekki brezku herskipunum að
þakka."
• •
— Oldunga-
deildin
Framhald af bls. 13
hver áhrif á forsetann í þá átt,“
sagði Haraldur Kröyer sendi-
herra.
Hann sagði að þær breytingar-
tillögur aðrar, sem hefðu verið
ræddar, hefðu ekki verið mikil-
vægar. „Þetta er ýmislegt sem
varðar stjórn fiskveiðanna í
hverju einstöku fylki fyrir sig og
lögsögu þeirra en ekki aðalatriði
málsins — lögsögu Banda-
ríkjanna yfir 200 mílunum. “
— Kafbátur
Framhald af bls. 13
sovézk skip hafi rúmlega 100
sinnum orðið vör við ferðir
bandarískra kafbáta og því getað
ráðizt á þá.
William Colby, yfirmaður CIA,
hefur farið hörðum orðum um
þennan „leka“ sem hann segir
grafa undan þeirri vernd, sem
leyniaðgerðir eigi að njóta, Hvíta
húsið segir að með lekanum hafi
verið brotið samkomulag leyni-
þjónustunefndar fulltrúadeildar-
innar og Fords forseta um með-
ferð leynilegra upplýsinga þannig
að vafasamt sé hvort hægt sé að
láta láta þínginu i té slíka vitn-
eskju.
Einnig kemur fram:
0 að CIA hafi veitt ýmsum
ónafngreindum, erlendum leið-
togum fjárhagsaðstoð.
0 að CIA hafi borgað fyrir vin-
konur ýmissa ónafngreindra þjóð-
höfðingja.
0 að CIA hafi framleitt klám-
myndir i fjárkúgunarskyni.
Á næstu vikum mun Ford for-
seti skýra frá tillögum um endur-
skipulagningu leyniþjónustunnar
og talið er víst að hann reyni að
tryggja að þingið þegi framvegis
um gögn sem varða þjóðarhags-
muni.
— Sjálfstæðis-
félögin
Framhald af bls. 14
beggja félaganna fyrri hluta
febrúar og er mikill hugur í
félagsmönnum að nýta þessa
góðu aðstöðu.
Geir Hallgrímsson. forsætis-
ráðherra, flutti við þetta tæki-
færi ávarp og óskaði Breið-
hyltingum til hamingju með
þetta húsnæði, kvaðst ekki hafa
verið trúaður á að tækist að
koma upp svo giæsilegri að-
stöðu er það var fyrst fært í tal
og lýsti ánægju sinni með fram-
takið. Þá talaði Magnús L.
Sveinsson borgarfulltrúi. En
einn stjórnarmanna, Stefán
Aðalsteinsson, kastaði fram
stöku:
Félög réttum fljótt úr kút,
fyrri dugnað sönnum.
Hér við skulum unga út
ótal góðum mönnum.