Morgunblaðið - 28.01.1976, Blaðsíða 28
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JtUrgunblobib
Skoðunin á Boeing-þotunum:
Litlar líkur á
að gjaldeyris-
yfirfærsla fáist
LITLAR líkur eru á að Flugleiðir h.f. fái leyfi fslenzkra gjaldeyrisyfir-
/alda til að láta framkvæma skoðun á Boeing 727 þotum félagsins á
verkstæðum Sabena-flugfélagsins í Belgfu, að þvf er Björgvin Guð-
mundsson, skrifstofustjóri f viðskiptaráðuneytinu, tjáði Morgunblað-
inu f gærkvöldi. Kostnaður við þessar skoðanir eru talinn nema um 34
milljónum króna.
Flugvirkjar hafa sent gjald-
eyrisdeild bankanna greinargerð,
þar sem þeir rökstyðja sjónarmið
sin, en þar kemur fram að
skoðanir sem þessar eru vel fram-
kvæmanlegar hér á landi. Þá hafa
forráðamenn Flugleiða rætt þessi
mál við gjaldeyrisyfirvöld. Hefur
komið fram hjá Flugleiðamönn-
um, að hægt sé að framkvæma
skoðunina í Belgíu á fjórum vik-
um, en verkið taki sex vikur hér
heima. Því sé teflt á tæpasta vaðið
með Evrópuflug vegna þessara
skoðana, þar sem aðeins önnur
Boeing-þotan eigi að annast flug-
áætlun á meðan.
Björgvin Guðmundsson sagði,
að ef umrædd gjaldeyrisyfir-
færsla vegna skoðananna ætti að
fást yrðu rök Flugleiða að vera
miklu veigameiri en kæmi fram
hjá forráðamönnum félagsins.
Málið hefði verið rætt í viðskipta-
ráðuneytinu í gær og í dag myndi
gjaldeyrisdeild bankanna að
lfkindum fjalla um það.
Flugleiðir:
Semja um flutning
á 12 hópum svissn-
esks ferðafólks
FLUGLEIÐIR hafa nú samið um
flutning á 12 hópum ferðamanna
frá Sviss til tslands á tímabilinu
frá 29. maf til loka september, en
í hverjum hóp eru á annað
hundrað manns. Er ætlunin að
hver hópur verði hérlendis f 8
daga, en einn dagurinn verður
notaður í flugferð til Grænlands.
Þá eru Ifkur á að samið verði um
flutninga á mörgum hópum frá
Hollandi síðla sumars.
Að sögn Sveins Sæmundssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, hefur
verið unnið að þessum málum í
langan tíma. Svissnesku hóparnir
eru allir með sameiginleg áhuga-
mál. T.d. eru í einum hópnum
meistarar í iðngreinum, í öðrum
iæknar, í hinum þriðja
húseigendafélag og þar fram eftir
götunum.
Sveinn sagði, að ferðaskrif-
stofumenn um víða veröld teldu
almennt að ferðamennska myndi
ekki aukast á þessu ári miðað við
það síðasta, en ekki heldur
minnka og hvað ísland snerti þá
væri útlitið ekki verra en á s.l. ári.
Veðurstofan spáir því að
hiti verði um frostmark f
höfuðborginni f dag og er
þvf vissara að taka þessa
ungu stúlku til fyrir-
m.vndar <>g fara varlega á
hálum gangbrautunum.
Ljósmynd Friðþjófur
febrúar ?
BAKNEFND Alþýðusambands Is-
lands kemur saman til fundar í
Reykjavík á mánudaginn og
verður þar að sögn Björns Jóns-
sonar, forseta ASl, tekin afstaða
til hugsanlegrar verkfallsboðan-
ar og dagsetning verkfalls
ákveðin ef verkfallsboðun verður
niðurstaða fundarins. Morgun-
blaðið fregnaði í gær að innan
verkalýðshreyfingarinnar hefði
verið rætt um boðun allsherjar
verkfalls frá og með 17. febrúar
n.k. en Björn Jónsson vildi hvorki
játa þessu né neita f samtali við
blaðið. „Baknefndin mun taka
ákvörðun um dagsetningu
hugsanlegrar verkfallsboðunar
en hitt er rétt að komið hefur til
tals að boða verkfall um miðjan
febrúar hafi samningar þá ekki
Vinnuveitendiir samþykktu
heimild til verkbanns í gær
hefðu verið kallaðar til fundar í
dag klukkan 14. Þá er þess vænzt
að samningafundur í sjómanna-
deilunni verði haldinn á morgun.
Friðrik
á mögu-
leika á
að sigra
FRIÐRIK Ólafsson stórmeistari
sigraði Hollendinginn Langeweg
f 10. og næstsfðustu umferð
Hoogovenskákmótsins f Wijk aan
Zee f Hollandi f eær. Er Friðrik
nú I öðru sæti f
mótinu með 6'A
vinning en
Júgóslavinn
Ljubojevic er
efstur með 7
vinninga. I
sfðustu um-
ferðinni teflir
Friðrik við
Hollendinginn
Sosonko og
hefur Friðrik hvftt. Ljubojevic
hefur einnig hvftt f skák sinni f
sfðustu umferðinni sem er gegn
Framhald á bls. 27
Útför Hermanns
Jónassonar gerð
á vegum ríkisins
tJTFÖR Hermanns
Jónassonar, fyrrverandi for-
sætisráðherra, fer fram á
vegum rfkisins næstkomandi
fimmtudag, 29. janúar kl.
13.30, frá Dómkirkjunni f
Reykjavfk.
(Itvarpað verður frá
athöfninni.
Forsætisráðuneytið,
27. janúar 1976.
Skellur allsherjarverkfall
á um
Akureyri:
Fjárhagsáætl-
un í fyrsta sinn
yfir milljarð
Akureyri 27. janúar.
FRUMVARP að fjárhagsáætlun
bæjarsjóðs Akureyrar fyrir árið
1976 var til fyrri umræðu á bæjar-
stjónarfundi í dag. Helztu tekjur
bæjarsjóðs eru áætlaðar þessar (í
millj. króna): útsvör 500, aðstöðu-
gjöld 120, framlag úr jöfnunar-
sjóði 135, fasteignaskattar 163,
tekjur af fasteignum 25, gatna-
gerðargjöld 30. hagnaður af
rekstri bifreiða og vinnuvéla 10,
hluti bæjarsjóðs af vegafé 12.5
ýmsar tekjur 7. Samtals 1.002.500.
Gjaldamegin eru þessir liðir
helztir. Stjórn bæjarins 39.8, eld-
varnir 30.9, félagsmál 171.4,
menntamál 130. íþróttamál 22.5
fegrun og skrúðgarðar 18, heil-
brigðismál 30,7 hreinlætismál 62,
gatnagerð, skipulag og byggingar-
eftirlit 238, framlag til fram-
kvæmdasjóðs 39, fasteignir 22,
Framhald á bls. 27
tekizt,“ sagði Björn Jónsson. 1
gær var haldin almennur fundur
í Vinnuveitendasambandi tslands
og var þar samþykkt samhljóða
að heimila 40 manna stjórn sam-
bandsins að boða til verkbanns ef
og þegar ástæða þætti til.
Barði Friðríksson, skrifstofu-
stjóri Vinnuveitendasambands-
ins, tjáði Morgunblaðinu i gær að
á fundinum i gær hefðu verið
mættir fulltrúar sem höfðu að
baki sér 89% atkvæða i félaginu.
Samþykktu þeir samhljóða að
veita stjórninni heimild til
boðunar verkbanna. Á fundinum
var almennt rætt um horfur í
efnahags- og atvinnumálum.
Björn Jónsson, forseti ASl,
sagði í samtalinu við Morgunblað-
ið í gær að samningaviðræður
hefðu nú staðið yfir í langan tima
og árangur enginn orðið. „Miðað
við grng mála getur maður ekki
verið bjartsýnn um að lausn
náist,“ sagði Björn Jónsson.
Torfi Hjartarson ríkissátta-
semjari sagði við Morgunblaðið i
gær að samninganefndir ASl og
Vinnuveitendasambandsins
Úrskurðaðir í 45
daga gæzluvarðhald
RANNSÓKNARLÖGREGLU-
MENN þeir, sem hafa með hönd-
um hina nýju rannsókn Geir-
finnsmálsins tjáðu Morgunblað-
inu I gær, að ekkert nýtt væri að
frétta umfram það sem fram kom
f frétt Morgunblaðsins í gær.
Mennirnir þrfr, sem sitja I gæzlu-
varðhaldi, voru úrskurðaðir I allt
að 45 daga gæzlu.
Þá vildu lögreglumennirnir
heldur ekkert tjá sig um rann-
sókn á morði Guðmundar Einars-
sonar en það kom fram í blaðinu í
gær að þrír menn hefðu játað að
Framhald á bls. 27