Morgunblaðið - 03.04.1976, Blaðsíða 1
32 SIÐUR OG LESBOK
74. tbl. 63. árg.
LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
EBE:
Toppfundurmn
árangurslaus
Luxemburg 2. apríl. Reuter.
FUNDI æðstu manna Efnahags-
bandalagsins, sem haldinn var í
Luxemburg, lauk í dag án þess
nokkur árangur hefði náðzt um
þau meginmái sem til umfjoll-
unar voru. Vegna ágreinings m.a.
Breta og Vestur-Þjóðverja varð að
varpa fyrir róða tilraunum til að
móta sameiginlega stefnu f efna-
hagsmálum, baráttu gegn at-
vinnuleysinu og sömuleiðis var
hætt við að samþvkkja tillögur
um beinar kosningar til EBE-
þingsins. Sú eina samstaða virðist
hafa orðið á fundinum að skora á
minnihlutastjórn hvftra manna f
Ródesíu að veita svertingjum
meirihlutaforráð sem allra fvrst.
Af fréttum má marka að leið-
togum hafi fundizt fundurinn
misheppnaður með öllu og Anker
Jörgensen forsætisráðherra Dan-
merkur lét í ljósi óánægju með að
ekki hefði tekizt að samræma
efnahagsstefnu landanna né
hefði yfirleitt neitt miðað að
marki á þessum fundi. Helmut
Kyrrt í
Líbanon í
gærkvöldi
Beirut 2. apr. NTB. Reuter.
I KVÖLD hafði ekki dregið til
umtalsverðra tiðinda i
Líbanon eftir að vopnahlé í tíu
daga var ákveðið þar í gær. Þó
heyrðust skothvellir viða í Bei-
rut og fréttaskýrendur segja
að mjög lítið megi út af bera til
að allt fari á ný í bál og brand.
Pierre Geymal og Kamal
Junblatt, leiðtogar kristinna
og múhameðstrúarmanna,
sögðu báðir að þeir vildu
leggja sitt til að vopnahléið
yrði virt, en báðir virtust
sömuleiðis kvíðafullir um að
ekki tækist að nýta það hlé
sem verður nú til þess að finna
einhverja raunhæfa lausn á
vandamálunum sem við er að
glíma.
Schmidt, kanslari, gagnrýndi
mjög Harold Wilson, forsætisráð-
herra Breta, fyrir hvernig haldið
hefði verið á málum hvað snertir
atvinnuleysi i Bretlandi og sagð-
ist ekki fallast á þá kenningu að
atvinnuleysi þyrfti að vera varan-
legt böl, sem ekki væri gerlegt að
sigrast á.
Framhald á bls. 31
Róttækt
olíumála-
frumvarp
í USA
Washington 2. april
— Reuter.
UNDIRNEFND dómsmálanefnd-
ar bandarfsku öldungadeildar-
innar, sem fjallar um auðhringi,
hefur samþvkkt að stefna beri að
því að 18 stærstu olfufélög Banda-
rfkjanna verði leyst upp. Nefndin
samþvkkti naumlega f gær, eða
með 4 atkvæðum gegn 3, frum-
varp sem gerir ráð fyrir þvf að
fyrirtækin séu skyldug til að losa
sig við olfuhreinsunarstöðvar og
bensínstöðvar sfnar innan fimm
ára. Fer frumvarpið nú til dóms-
málanefndarinnar sjálfrar og eru
stuðningsmenn þess bjartsýnir
um að það hljóti þar einnig sam-
Framhald á bls. 31
Ný stjórnarskrá í Portúgal
Líklegt að deilur verði um „sósíalískt inntak” hennar
Lissabon 2. apríl Reuter NTB
PORTUGALAR fengu f dag nvja
stjórnarskrá, sem stjórnlagaþing-
ið hefur unnið að þvf að semja
sfðan kosningar til þess fóru fram
í fvrra. Costa Gomes forseti stað-
festi stjórnarskrána í kvöld en
þegar hafa heyrzt miklar
óánægjuraddir með það hversu
langt sé hneigzt til vinstri f
skránni og hafa talsmenn
nokkurra svokallaðra mið- og
hægriflokka lýst gremju sinni.
Kommúnistar hafa aftur á móti
látið f Ijós fögnuð og sagt þessa
stjórnarskrá merkasta áfanga
sem náðst hafi f kapitalfsku rfki.
Samkvæmt stjórnarskránni fær
Byltingarráðið ákveðinn rétt til
að gefa gaum að framkvæmd
mála en þingbundin lýðræðis-
stjórn skal vera i landinu. I texta
segir að portúgal skuldbindi sig
til að fylgja eftir sósíalisma,
meðal annars með því að skapa
skilyrði til að verklýðsstéttinn fái
veruleg völd i sinar hendur eftir
lýðræðislegum leiðum. Menntun
skal stuðla að þróun hins
sósialíska samfélags og stjórn-
málaflokkum er uppálagt að taka
þátt í „þróun byltingarinnar."
Reuterfréttastofan segir að efa-
semdir séu á kreiki um hvort inni-
hald stjórnarskrárinnar og það
sem hún boðar sé i reynd i takt
við þá umtalsverðu „hægri-
sveiflu" sem hafi orðið í landinu á
Framhald á bls. 31
Líklegt að Kanada og Nor-
egur færi út í 200 mílur í ár
Landlukt, afskipt ríki reyna að
skerða réttindi strandríkja
• MORGUNBLAÐIÐ hafði I
gær samhand við Eyjólf
Konráð Jónsson fulltrúa Sjálf-
sta’ðisflokksins f fslenzku
sendinefndinni á hafréttarráð-
stefnunni f New York, og
spurði hann frétta af gangi
mála á ráðstefnunni. Kom fram
hjá Evjólfi, að umræður um
auðlindalögsöguna hefðu hafizt
að ráði í annarri nefnd
hafréttarráðstefnunnar f gær.
Þar höfðu fulltrúar landluktu
rfkjanna svonefndu sig talsvert
f frammi, og gagnrýndu ákvæð-
in um einkarétt strandrfkjanna
um hagnýtingu auðlinda innan
200 mflnanna. Hans G.
Andersen flutti örstutta ræðu,
hvatti menn til að forðast allar
málalengingar og lýsti fullum
stuðningi íslenzku sendi-
nefndarinnar við 45. grein upp-
kastsins, sem er upphafsgrein
kaflans um efnahagslögsöguna.
% Störfin ganga samkvæmt
áætlun að mati þeirra sem bezt
þekkja. Sagði Evjólfur, að
meðal fulltrúa á hafréttarráð-
stefnunni væri nú talið líklegt,
að Kanadamenn muni færa ein-
hliða út i 200 mílur strax á
þessu ári, ef ekki næst sam-
komulag á fundum hafréttar-
ráðstefnunnar. Stjórn Kanada
hefur þegar samið löggjöf þar
að lútaudi og þarf aðeins
Framhald á bls. 31
Sjóðir
Breta
minnka
London, 2. apríl. Reuter
Gjaldeyrisvarabirgðir Breta
rýrnuðu meira f sfðasta mán-
uði en nokkru sinni fyrr vegna
ráðstafana sem hefur þurft að
gera til að treysta gengi
pundsins. Jafnframt varð enn
ein metlækkun á gengi punds-
ins gagnvart helztu gjaldmiðl-
um.
Varabirgðirnar í gulli og er-
lendum gjaldevri minnkuðu
um 1.119 milljónir dollara eða
einn sjötta f 5.905 milljónir
dollara. Ef lán f erlendum
gjaldevri eru reiknuð með
nemur raunveruleg rýrnun
gjaldevrisvarasjóðsins 1.277
milljónum dollara.
Pundið lækkaði um eitt og
Framhald á bls. 31
Flugslys
Bogota2. apríl. Reuter.
KÓLÖMBISK vél í innanlands-
flugi með 29 farþega fórst í
frumskógi í grennd við landa-
mæri Perú og Kolobíu í kvöld
að þvi er talsmaður flugfélags-
ins skýrði frá. Hann sagði að
óvist væri um afdrif fólksins
um borð, en björgunarleið-
angur væri lagður af stað.
Fulltrúadeild-
in samþykkir
beiðni Fords
Washington 2. apríl AP
FULLTRÚADEILD banda-
ríska þingsins samþykkti ein-
róma tillögu Fords forseta í
dag um 135 milljón króna fjár-
veitingu til framleiðslu á bólu-
efni við svínavírusinum. Segir
i fréttum að búizt sé við að
málinu verði hraðað eftir
föngum og þingið geti búið það
i hendur forsetanum innan
tveggja vikna.
Tveir Sovétar
reknir frá
Hollandi
Haag2. april. Reuter
TVEIMUR starfsmönnum
verzlunarnefndar Sovétrikj-
anna í Hollandi hefur verið
skipað að fara úr landi.
Heimildir Reuterfréttastof-
unnar höfðu fyrir satt að
mennirnir tveir hefðu reynt að
afla sér upplýsinga um banda-
risku orrustuvélina F-16 og
auk þess um rafeindatækni-
búnað sem framleiddur er hjá
hollenzkum fyrirtækjum til
hernaðarnota.
í yfirlýsingu Hollands-
stjórnar var ekki tekið fram
um hvaða flugvélategund væri
að ræða. NATO-ríkin Holland,
Danmörk, Belgia og Noregur
ákváðu í fyrra að kaupa þessar
vélar, sem fara með tvöföldum
hraða -hljóðsins og eru búnar
eldflaugum.