Morgunblaðið - 03.04.1976, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3, APRlL 1976
7
Óafsakanlegt
framferði
Dagblaðið Timinn segir
i leiðara l gær:
„Undir því er þungt að
búa, að íslenzkir skipstjór-
ar fiskibáta skulu tugum
saman leika þann gráa
leik að stunda ólöglegar
togveiðar, eins og nú hef
ur gerzt við suðurströnd
landssins.
Engir ættu að hafa á því
gleggri skilning en fiski-
mennirnir sjálfir, að
ákvæðum um veiðitak-
markanir beri að hlýða; og
miklu alvarlegri eru þessi
brot en ella vegna þess,
að þau eru framin f miðju
landhelgisstríði, þar sem
hin brýna nauðsyn á fiski-
vernd er meðal helztu
raka okkar. Þessir menn
eru því ekki aðeins að
brjóta lög og reglur, held
ur leggja þeir óvinum okk-
ar vopn í hendur, þegar
sfzt skyldi.
Og svívirðilegt er að
hyllast til slíkra afbrota og
rányrkju, þegar landhelg-
isgæzlan, með sinn tak-
markaða kost skipa og
flugtækja, á í vök að verj-
ast gegn yfirgangi og ófyr-
irleitni brezka flotans.
Þess konar framkoma er
„hetjum* hafsins" til
minnkunar og vansæmd-
ar."
Þá birtir Tíminn og f
gær viðtal við Ólaf Jó-
hannesson, dómsmálaráð-
herra, um þessi landhelg-
isbrot. Þar segir ráðherr-
ann: „Það er hörmulegt,
að slfkt skuli koma fyr-
ir. . . Að íslendingar skuli
haga sér á þennan veg,
getur aldrei orðið nema til
að veikja málstað okkar."
Verkfallsréttur opinberra
starfsmanna.
Verkfallsréttur
opinberra
starfsmanna
„Hvernig Itzt þér á sam-
komulag BSRB og ríkis-
ins?" Þessari spurningu
beinir dagblaðiðTíminn til
fimm aðila. sem allir eiga
nokkurn hlut að máli.
Svör þessara aðila voru á
þessa leið:
0 Þorvaldur Ágústs-
son, aðalféhirðir: „Ég hef
ekki beðið neinn að semja
fyrir mig. og ég kæri mig
ekkert um verkföll. Þeir
einir græða á verkföllum.
sem æsa til þeirra."
0 Hrönn Hafliðadóttir,
ritari: .,Ég er á móti verk-
fallsrétti opinberra starfs-
manna, sérstaklega eins
og að honum er staðið
með þvf að ætla að lög-
bjóða einhverja undan-
þáguhópá."
0 Hrefna Friðgeirs-
dóttir. ritari: „Ég er and-
vig því að opinberir starfs-
menn hafi verkfallsrétt,
einkum ef það á að kosta
það að f sumum stofnun-
um fari fáir ! verkföll fyrir
hina, sem eru ! undan-
þáguhópum og verða á
fullum launum."
0 Ásmundur Sigur-
jónsson, deildarstjóri:
„Mér finnst sjálfsagt að
hafa verkfallsrétt. Ætli
stjórnarráðið verði raunar
ekki allt á undanþágu, og
þar með Hagstofan Ifka.
svo þetta verður takmark-
aður verkfallsréttur."
O Marfa Jóhannsdótt
ir, deildarstjóri: „Mér
finnst sjálfsagt að opin-
berir starfsmenn fái verk-
fallsrétt. Það er óréttlátt
að aðrir fari ! verkfall fyrir
mann eins og ASÍ hefur
gert. . . Þar fyrir vinnst
ekkert með verkföllum
— þau hafa verið vita
gagnslaus að undanförnu.
Ég hef ekki mikla trú á
verkföllum eftir þetta sfð-
asta."
Niðurstöður
Að sjálfsögðu er hér
ekki um að ræða heildar-
mynd af skoðunum ríkis-
starfsmanna. Úrtakið er
ekki nægilega mikið til að
vera marktækt sem sýnis-(
horn af heildinni. Engu að
síður eru þessi svör lær-
dómsrlk. Þrfr af fimm að-
spurðum eru mótfallnir
verkfallsrétti opinberra
starfsmanna. Tveir telja
hins vegar að þessi réttur
skuli ná til opinberra
starfsmanna, en annar
þeirra telur jafnframt að
„ekkert vinnist með verk-
föllum — þau hafi verið
gagnslaus. ."
Það er vaxandi skoðun
meðal launþega, að verk-
föll þjóni vafasömum til-
gangi og finna þurfi aðrar
leiðir til að tryggja kaup-
mátt launa. í því efni séu
fyrst og fremst tvær leiðir
raunhæfar: 1) að stöðva
verðbólguskriðið, tryggja
jafnvægi I efnahagslífi
þjóðarinnar og nægilegt
atvinnuframboð til að fyr-
irbyggja atvinnuleysi, 2)
að stuðla að framleiðslu-
og verðmætaaukningu i
þjóðarbúinu, þann veg, að
meira verði til skiptanna
milli starfsstétta og þjóð-
félagsþegna. Og verkföll
þjóna vafasömum til
gangi í slíkri viðleitni. Það
er bitur reynsla, sem
draga verður rétta lær-
dóma af.
ftlcöSur
á rnorgun
Guðspjall 5. sunnudags I
föstu er I Luk. 1, 26—38:
Boðunardagur Marfu.
Fjólublár, sem er litur iðrunar
og yfirbótar, er einkennislitur
föstunnar.
DÖMKIRKJAN Fermingar-
messa kl. 11 árd. Séra Öskar J.
Þorláksson dómprófastur.
Fermingarmessa kl. 2 síðd. Sé-
ra Þórir Stephensen. Barna-
samkoma í Vesturbæjarskólan-
um við Öldugötu. Séra Þórir
Stephensen.
LAUGARNESKIRKJA Messa
Kl. 10.30 árd. Ferming.
Altarisganga. Séra Garóar
Svavarsson.
NESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10.30. Séra Guðmundur Ösk-
ar Ölafsson. Fermingarguó-
þjónustur kl. 11 árd og kl. 2
síöd. Sóknarprestarnir.
FELLA- OG HOLASOKN
Barnasamkoma kl. 11 árd. í
Fellaskóla. Guóþjónusta í
skólanum kl. 2 síðd. Séra
Hreinn Hjartarson.
BÚSTAÐAKIRKJA Ferm-
ingarguðþjónustur kl. 10.30
árd. og kl. 1.30 síðdegis. Altaris-
ganga þriðjudaginn 5. apríl kl.
8.30 síðd. Séra Ölafur Skúlason.
IIALLGRlMSKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Altarisganga. Séra
Karl Sigurbjörnsson. Fjöl-
skyldumessa kl. 2 síðd. Pétur
Þórarinsson stud. theol. prédik-
ar. Kvöldbænir alla virka daga
nema miðvikudaga klukkan 6.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Fermingarguðþjónusta í
Bústaðakirkju kl. 4 síðd.
Altarisganga. Sunnudagaskóli i
Breiðholtsskóla kl. 10.30 árd.
Séra Lárus Halldórsson.
FlLADELFlUKIRKJAN Ut-
varpsguðþjónusta kl. 11 árd.
Safnaðarguðþjónusta kl. 2 síðd.
Almenn guðþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
KIRKJA OHAÐASAFNAÐAR-
INS. Fermingarmessa kl. 10.30
árd Séra Emil Björnsson.
HJALPRÆÐISHERINN
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 siðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
siðd. Kapt. Ennstad og frú tala.
Kapt. Daníel Öskarsson.
DÖMKIRKJA KRISTS
Konungs Landakoti. Lágmessa
kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30
árd. og lágmessa kl. 2 síód.
HATEIGSKIRKJA Fermingar-
guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra Jón
Þorvarðsson. Siðdegismessa kl.
5. Séra Arngrímur Jónsson.
FRlKIRKJAN Reykjavik
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. F’ermingar-
guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Þorsteinn Björnsson.
AÐVENTKIRKJAN Reykjavik
guðþjónusta kl. 5 síðd. Sigurður
Bjarnason prédikar.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Fermingarguðþjónusta kl.
10.30. Séra Sigurður Haukur
Guójónsson. Guðþjónusta kl. 2
síðd. Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson. Sóknarnefndin.
GRENSASKIRKJA Fermingar-
guðþjónustur kl. 10.30 árd. og
kl. 2 síðd. Séra Halldór S.
Gröndal.
ASPRESTAKALL Ferming í
Laugarneskirkju kl. 2 síðd.
Séra Grimur Grimsson.
FÆREYSKA Sjómannaheimil-
ið. Samkoma verður kl. 5 siðd.
Jóhann Ölsen.
arbæjarprestakall
Barnasamkoma í Arbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðþjónusta í
skólanum kl. 2 síðd. Séra Guð-
mundur Þorsteinsson.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma í Víghólaskóla
kl. 11 árd. Fermingarmessa i
Kópavogskirkju kl. 2 siðd. Séra
Þorbergur Kristjánsson.
KARSNESPRESTAKALL
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Fermingar-
guðþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 10.30 árd. Séra Árni Páls-
son.
MOSFELLSKIRKJA Guð-
þjónusta kl. 2 síðd. Afhjúpaður
minnisvarði um Stefán Þorláks-
son að guðþjónustu lokinni.
Séra Bjarni Sigurðsson.
GARÐAKIRKJA Barnasam-
koma í skólasalnum kl. 11 árd.
Guðþjónusta kl. 10.30 árd og kl.
2 síód. — Ferming. Séra Bragi
Friðriksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Fermingarmessur kl. 10.30
árdegis kl. 2 síðdegis. Séra
Garóar Þorsteinsson.
FRlKIRKJAN í Hafnarfirði
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Aóal-
safnaðarfundur að lokinni
messu. Safnaðarprestur.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL
Guðþjónusta í Stapa kl. 11 árd.
og í Innri-Njarðvíkurkirkju kl.
2 síðd. Séra Páll Þórðarson.
KEFLAVIKURKIRKJA
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Fermingarguðþjónusta kl. 2
síðd. Altarisganga verður
mánudaginn 5. apríl kl. 8.30
siðd. Séra Ólafur Oddur Jóns-
son.
BERGÞÓRSHVOLSPRESTA-
KALL Messa í Krosskirkju kl. 2
síðd. Barnaspurningar eftir
messu. Séra Páll Pálsson.
ARKANESKIRKJA Ferm-
ingarguðþjónustur kl. 10.30 árd
og kl. 2 siðd. Séra Björn Jóns-
son.
HVALSNESKIRKJA Barna-
guðþjónusta kl. 11 árd. Séra
Guðmundur Guðmundsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA Barnaguð-
þjónusta kl. 1.30. Séra
Guðmundur Guðmundsson.
EYR ARBAKKAKIRKJA
Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd.
Sóknarprestur.
GAÚLVERJABÆJARKIRKJA
Almenn guðþjónusta kl. 2 siðd.
Sóknarprestur.
Stúlknakór
Danska útvarpsins
Hljómleikar í sal Menntaskólans við Hamrahlíð
laugardaginn 3. apríl kl 4 e.h.
Flutt verður fjölbreytt tónlist eftir dönsk og ensk
tónskáld m.a. Lennon & McCartney.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Kórinn syngur einnig í Selfosskirkju sunnudag-
inn 4. apríl kl. 5 e.h. Flutt verða verk eftir
Schubert, Brahms, Britten og Bach m.a.
Aðgöngumiðar við innganginn.
•'V%*
Glæsileg
köld borö
og heitur
veizlumatur
- Sendum heim —
:kra:n
Veitingahús
Við Hlemmtorg Simi 24631
£
NOVIK
VASATÖLVUR við allra hæfi
NOVUS
SKRIFSTOFUTÆKNI hf.
Tryggvagötu - Box 454 - Sími 28511