Morgunblaðið - 03.04.1976, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3, APRlL 1976
Sveinbjörg Hallsdóttir
leggur land undir fót
Bjarni Einarsson
bæjarstjóri á
Akureyri hættir
BJARNI Einarsson, bæjarstjóri á
Akureyri, hefur sagt starfi sínu
lausu og mun hann láta af störf-
um nú í sumar. Tekur hann við
starfi hjá Framkvæmdastofnun
rikisins og mun hafa þar með
byggðamál að gera, að því er
Bjarni skýrði Morgunblaðinu frá
í gær.
Morgunblaðið spurði Bjarna
hvort hann myndi þá ekki flytjast
suður yfir heiðar. ,,Jú, óhjá-
kvæmilega mun ég þurfa þess,"
svaraði Bjarni, „því að mið-
stjórnarvaldið er í Reykjavík og
mun víst verða enn um sinn, enda
þótt Akureyri sé mun notalegri
bústaður."
Lýst eftir
konu á blá-
um Volkswagen
SLYSARANNSÖKNARDEILD
lögreglunnar þarf nauðsynlega að
ná tali af konu, sem fimmtudags-
morguninn 1. apríl ók niður
Laugaveg á blárri Volkswagenbif-
reið.
A móts við Laugaveg 32 ók
bifreíðin utan í unga stúlku, sem
var á gangi ásamt stöllu sinni á
götunni, rétt við gangstéttina.
Ökukonan hefur væntanlega ekki
orðið vör við það þegar hún ók á
stúlkuna, því hún hélt ferð sinni
áfram og beygði niður Vatnsstíg.
Þarf slysarannsóknardeildin að
ná tali af konunni svo og vitnum,
en bifreiðin var með R-númer.
Sími deildarinnar er 11166.
GAMANLEIKURINN Sveinbjörg
Hallsdóttir hefur undanfarið ver-
ið sýndur í Borgarnesi og ná-
grenni við góða aðstoð og undir-
tektir. Sýningar á leiknum eru
orðnar 12 en næstu sýningar
verða I bíóhöllinni á Akranesi
föstudaginn 2. apríl kl 21 og í
Kópavogsblói sunnudaginn 4.
apríl ki. 21.
Leikrit þetta er eftir ungan
Borgnesing, Trausta Jónsson, og
er nú flutt í fyrsta sinn. Leikarar
eru allir úr Borgarnesi, og leik-
stjórinn er Theodór Þórðarson.
Sl. miðvikudag bauð hrepps-
nefnd Borgarneshrepps leikurun-
um og fleira áhugafólki um leik-
list í Borgarnesi til kaffisamsætis.
Þar voru sérstaklega heiðruð þáu
Freyja Bjarnadóttir, Ragney
Eggertsdóttir og Þórður Magnús-
son, en þau hafa lengi verið mikl-
ír burðarásar í leiklistarlífi í
Borgarnesi. Stjórn Menningar-
sjóðs Borgarness veitti höfundi
leikritsins, Trausta Jónssyni,
viðurkenningu með nokkru fjár-
framlagi.
Söngskemmtun
í Hveragerði
I fréttatilkynningu sem blað-
inu hefur borizt, segir að á
laugardag haldi Kirkjukór
Hveragerðis og Kotstrandar-
sóknar söngskemmtun í Hvera-
gerðiskirkju. Stjórnandi er
Anna J. Stefánsdóttir en undir-
leik annast Ólafur Sigurjóns-
son. Einnig syngur Sigrún
Gestsdóttir nokkur lög við und-
irleik Sigursveins Magnússon-
ar.
Allur ágóði rennur í orgel-
sjóð Hveragerðiskirkju og er
fólk hvatt til að mæta.
Kvöldmvnd af Hveragerði
Ijósm. Ragna Hermannsdóttir.
VORÐUR
50 ÁRA
1926- 13. FEBR,- 1976
AFMÆLISHATIÐ
FÖSTUDAGINN 9. APRÍL 1976
HÓTEL SÖGU
wm SÚLNASAL e»
Sjálfstæðis-
menn
athugið
Vegna mikillar aðsóknar að
50 ára afmæiishátíð Varðar
og tii að auð veida undir-
búning og skipulag hátíðar-
innar viijum við hvetja þá,
sem hyggjast sækja af-
mælishófið og enn hafa
ekki tryggt sér miða, að
gera það hið fyrsta og
ganga jafnframt frá borða-
pöntunum í síma 82900 og
82963 (Sjáifstæðishúsinu
Bolholti 7). Miðaverð er kr.:
3.500 —
Auk venju/egs skrifstofu-
tíma verður opið föstudag-
inn 2. apri! frá klukkan
20—22.30 og /augardag-
inn 3. klukkan 2— 7 e.h.
Sunnudaginn 4. apríl verður
opið frá klukkan 3— 7 e.h.
Þar sem gy/ltu afmæ/is-
peningarnir eru nú a/veg
uppseldir og þeir silfruðu
mjög gengnir ti/þurrðar, er
þeim sem hug hafa á að
eignast þennan minjagrip
bent á að tryggja sér eintak
hið fyrsta.
Þeir Sjálfstæðismenn sem
ekki hafa fengið senda
prentaða hátíðardagskrá,
eru vinsamlegast beðnir að
snúa sér til skrifstofu Varð-
ar í Sjá/fstóéðishúsinu Bol-
holti 7.
Hátíðarne fndin
B.Ú.R
kaupir
Freyju RE
A FUNDI borgarstjórnar í gær-
kvöldi staðfesti hún samþykkt
borgarráðs frá í gær um kaup á
skuttogaranum Freyju RE 38.
Helzti rökstuðningur kaupanna
er, að Ijóst er, að stórbæta þarf
skipastólinn og aðstöðu til fisk-
móttöku hjá B.U.R.
Freyja RE 38 er í eigu Gunnars
I. Hafsteinssonar. Hún er smíðuð
i Frakklandi 1972. Freyja RE 38
er 46.55 m á lengd og 9.3 m á
breidd. Fiskilest er 350 rúmm.
Áhöfn er 19 manns. Fullkomin
fiskvinnslutæki eru í skipinu, þar
er einnig ísvél sem framleiðir 10
tonn á sólarhring. Aðalvél
skipsins er af gerðinni British
Húsavík:
Bærinn afhendir
tíu leiguíbúðir
Húsavík 1. april
BÆJARSTJÓRINN í Húsavik,
Haukur Harðarson, afhenti i dag
tíu leiguíbúðir, sem byggðar hafa
verið á vegum bæjarins, sam-
kvæmt lögum frá 1973 um bygg-
ingu 1000 leiguíbúð á landinu.
Byggingarframkvæmdir hófust í
október 1974 og var verktaki
Barði hf. á Húsavík, sem skilað
hefir íbúðunum vel frágengnum
og hinum vistlegustu. Formaður
byggingarnefndar er Guðmundur
Níelsson, bæjarritari.
— Fréttaritari.
Polar og er 1800 hestöfl. Gang-
hraði Freyju RE 38 er 13.5 hnútar
miðað við 1550 hestöfl. Fiski-
leitartæki eru af Simrad-gerð.
Aætlað kaupverð mun vera i
kringum 350 milljónir króna.
Skipið afhendist fullbúið með
veiðarfærum.
— Fermingar
Framhald af bls. 13
Br>nja Björk Halldórsdóttir, Jaðarsbraut 5
Kdda Gerður Guðmundsdóttir,
Heiðarbraut 37
Elfa Þorsteinsdóttir, Stekkjarholti 18
Elísabet Jóna Jónsdóttir, Garðabraut 45
Guðbjörg Þórisdóttir, Esjuhraut 37
Guðrún Þórey Vestmann, Presthúsabraut 26
Hafdís Aðalsteinsdóttir, Bjarkargrund 43
Ingibjörg Kristfn Valsdóttir Vallholti 9
Kristín Asgeirsdóttir, Furugrund 37
Soffía Guðrún Omarsdóttir. Háholti 29
Ferming kl. 2 síðd.
DRENGIR:
Birgir Arnar Birgisson. Brekkubraut 31
Ingólfur Geir Gíssurarson, Heiðarbraut 47
Ingvar Matthíasson. Jaðarsbraut 37
Jóhann Sigurður Gestsson, Akurgerði 22
Jón Páll Björnsson, Merkigerði 7
Jón Pétursson. Esjuhraut 41
Jón Ágúst Þorsteinsson, Grundartúni 5
Kristján Guðmundsson, Vogabraut 32
Kristján Helgason, Brekkubraut 7
Magnús Bragi Gunnlaugsson, Vesturgötu 140
Sigurbjörn Guðmundsson, Suðurgötu 64
Þorleifur Geir Sigurðsson, Furugrund 2
Ægir Guðmundsson, Furugrund 42
Ægir Pálsson, Furugrund 5
STÚLKUR:
Kristín Guðmundsdóttir, Brekkubraut 25
Laufey Sigurðardóttir, Garðabraut 18
LiljaBjörk Högnadóttir. Hjarðarholti 13
Ragnheiður Jónasdóttir, Vesturgötu 155
Rannveig Sigurjónsdóttir, Vogabraut 44
Rósa Jónsdóttir, Krókatúni 15
Sara Björnsdóttir, Garðabraut 15
Sigríður Guðlaug Olafsdóttir,
Brekkubraut 21
Sigrún Ríkharðsdóttir, Ileiðarbraut 53
Sigþóra Ársælsdóttir, Brekkubraut 10
Stefanfa Dagbjört Guðmundsdóttir,
Skagabraut 17
Þórey Helgadóttir, Jaðarsbraut 19
Þurfður Björnsdóttir, Stekkjarholti 3
Treval hf.
Súóarvogi 28 86894