Morgunblaðið - 03.04.1976, Síða 15

Morgunblaðið - 03.04.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3, APRtL 1976 15 Umræður um orkumál í borgarstjórn: Frestun eða stöðvun málmblendi- verksmiðju hefur ekki áhrif á framkvæmdir við Sigöldu — en kann að hafa áhrif á tímasetningu næstu virkjunar Landsvirkjunar, sagði borgarstjóri Á FUNDI borgarstjórnar Reykjavíkur í fyrrakvöld urðu allmiklar umræður í tilefni af fyrirspurnum frá Davíð Oddssyni, borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins til borgarstjóra. Hér fer á eftir svar borgar- stjóra við þessum fyrir- spurnum, en eftir helgi verður skýrt nánar frá um- ræðum, sem fylgdu í kjöl- farið. Borgarfulltrúi Davíð Oddsson hefur borið fram svohljóðandi fyrirspurnir: 1. Nú virðist ljóst, að geysileg- ur halli verði á rekstri Kröflu- virkjunar og byggðalínu til við- bótar við árvissan og vaxandi hallarekstur Rarik. Því er spurt, hver geta áhrif þess orðið á raf- orkuverð til Reykvíkinga og annarra orkuneytenda Lands- virkjunar? 2. Hvaða áhrif hefur frestun og/eða stöðvun framkvæmda vegna Málmblendiverksmiðju á Sigöldu og raforkuverð væntan- legra neytenda þeirrar raforku, sem þaðan mun fást? 3. Er ekki æskilegt að efna nú þegar til sérstaks fundar með þingmönnum Reykjavíkur vegna þróunar þessara mála? Svar við fyrirspurn nr. 1: Ég vil í fyrsta lagi vekja athygli á því, að í núgildandi lögum eða reglugerðum er ekkert sem segir fyrir um það, að notendur raf- magns í Reykjavík eða Lands- virkjunarsvæðinu þurfi að taka á sig byrðar vegna aukins halla- reksturs Rafmagnsveitna ríkisins, eða annars þess aðila, sem komi til með að reka Kröfluvirkjun. Hinu er hins vegar ekki að leyna, að tilhneiging hefur verið í þá átt að jafna út raforkuverði á land- inu með svokölluðu verðjöfnunar- gjaldi, sem nú er 13% á raforku- verð í smásölu. Fyrirspyrjandi óskar væntan- lega svars við því, hver verða myndi hækkun á raforkuverði til Reykvikinga, ef hallarekstri vegna Kröfluvirkjunar og byggða- lfnu auk þess haliareksturs, sem nú er þegar hjá Rarik, verði dreift á alla raforkunotendur í landinu. Svar við þessari spurningu er ekki alveg einfalt, þar sem miða verður við ákveðnar forsendur sem ekki er víst að standist i raun. Þessar forsendur eru í meginatriðum sem hér seg- ir: Að Kröfluvirkjun og byggða- lína verði tekin í rekstur að hálfu í árslok 1976 og að fullu í árslok 1977. Að lán vegna Kröfluvirkjunar, stutt lán Rarik og lán vegna byggðalínu í árslok 1976 ■verði lengd til 15 ára með 9'A% ársvöxt- um. Að greiðslubyrðinni verði jafn- að út milli ára á timabilinu 1977—1981, og að aukinni greiðslubyrði þessara ára verði mætt með því að jafna henni nið- ur á alla raforkusölu til almenningsnota i landinu með sömu krónutölu á hverja kílóvattstund. Að ekki komi nein framlög úr ríkissjóði til þess að létta greiðslu- byrðina. Að tekið sé tillit til orkusölu til stóryðju, sem þegar hefur verið samið um. Reiknað er með greiðslubyrði raforkukerfisins eins og hún kom fram í töflu I í erindi Jóhannesar Nordals um stöðu i fjármálum raforkufyrirtækja á Islandi sem flutt var á miðsvetrarfundi SlR á dögunum. Með þessar forsendur í huga er liklegt, að áhrif á smásöluverð í Reykjavík verði sem hér segir: Meðalverð á raforku i smásölu ijReykjavík er áætlað kr. 9.90 á kwst., skv. fjárhagsátælun fyrir árið 1976. Meðalgreiðslubyrði áranna 1977—1978 er kr. 4.13 á kwst. en greiðslubyrðin 1976 var kr. 2.51 á kwst. Hækkunin nemur því kr. 1.62 á kwst. Við það bætist 13% verð- jöfnunargjald og 20% söluskatt- ur, þannig að heildarhækkunin verður kr. 2.15 á kwst, þ.e. smá- söluverð í Reykjavik myndi hækka um 21.7%. Hér hefur ekki verið tekið tillit til þess, að rekstrar-kostnaður raf- orkukerfis landsins lækkar á þessum árum með tilkomu Kröfluvirkjunar og byggðalinu vegna minni olíunotkunar til orkuvinnslu á Norður- og Vestur- landi, en þann sparnað má áætla um kr. 310 millj., miðað við að 22.500 mwst séu unnar með olíu á ári á Norðurlandi og 7.600 mwst á ári á Vesturlandi. Ekki þykir rétt að taka tillit til olíusparnaðar á Austurlandi, þar sem á móti honum kæmi fjármagnskostnaður vegna tengilínu milli Norður- og Austurlands, sem byggja yrði til þess að geta dregið úr oliunotkun austanlands. Ef tekið er tillit til olíusparnaðar að fjárhæð kr. 310 millj. á ári, lækka útgjöldin sem svarar til 0.32 kr. á hverja selda kwst, og nemur þá hækkun smá- söluverðs i Reykjavík 17,5% í stað 21.7 % sem áður getur. Ef eingöngu er litið á hækkun- ina milli áranna 1976—1977, án þess að jafna greiðslubyrðinni milli ára á 5 ára tímabili, 1977—1981, verða hækkanirnar meiri. Greiðslubyrðin hækkar þá úr kr. 2.51 á kwst, 1976 i kr. 5.13 á kwst 1977, sem samsvarar 35.2% hækkun smásöluverðsins i Reykjavík, ef ekki er tekið tillit til olíusparnaðar, og 30.1%, ef olíusparnaður er dreginn frá. Hækkun á raforkuverði i smá- sölu hjá rafveitum sveitarfélaga utan Reykjavikur yrði því sem næst hin sama og i Reykjavík, þar sem meðalverð hjá þeim er svipað og i Reykjavík, eða 17.5—21.7% á tímabilinu 1977—1981, eftir þvi hvort tekið er tillit til olíusparn- aðarins eða ekki. Ef eingöngu er litið á hækkunina milli áranna 1976—1977 eru tilsvarandi tölur 30.1—35.2%. Hjá Rafmagnsveitum ríkisins eru hækkanirnar nokkru minni í prósentum reiknað, þar sem meðalverð þeirra er 15—20% hærra en meðalverð hjá rafveit- um sveitarfélaga. Miðað við 5 ára timabilið 1977—1981 verður smá- söluverðhækkun þeirra ca. 14.9—18.5%, eftir því hvort olíu- sparnaður er dréginn frá eða ekki. Tilsvarandi tölur, ef ein- göngu er litið á hækkunina miili áranna 1976—1977, verða 26.3—29.9%. Eins og fram kom hér á undan er hér byggt á ákveðnum forsendum, sem ekki er víst að standist. Svar við fyrirspurn Davfðs Oddssonar nr. 2: Frestun eða stöðvun fram- kvæmda við Málmblendiverk- smiðju á Grundartanga getur haft tvenns konar áhrif. Annars vegar á virkjunarframkvæmdir Lands- virkjunar og hins vegar á raforku- verð frá fyrirtækinu. Frestun eða stöðvun Málmblendiverksmiðju mun ekki hafa nein áhrif á fram- kvæmdir við Sigöldu. Það verk er það langt á veg komið og allir samningar fullgerðir og því verki verður lokið eins og fyrirhugað hafði verið og er reiknað með, að fyrsta vélasamstæðan þar verði tekin i notkun á þessu hausti, enda benda orkuspár til þess, að það sé nauðsynlegt til að tryggja fullt öryggi á markaðnum hér næsta vetur. Hins vegar kann stöðvun framkvæmda við Málm- blendiverksmiðju að hafa áhrif á timasetningu næstu virkjunar Landsvirkjunar, en þar koma einnig fleiri atriði til eins og nú skal rakið. Landsvirkjun hefur á undan- förnum árum unnið að athugun- um á því, hvar ætti að virkja næst og hvaða tímasetning á þeirri virkjun yrði rétt. Á siðasta ári var reiknað með, að Málmblendiverk- smiðjan á Grundartanga tæki til starfa á árinu 1978 og jafnframt að virkjunin við Kröflu yrði full- búin í árslok 1976. Að þessum forsendum gefnum og fleirum var komizt að þeirri niðurstöðu, að Hrauneyjafossvirkjun væri álit- legasti kostur fyrirtækisins um orkuöflun í framhaldi af Sigöldu- virkjun og jafnframt að 1. áfangi þeirrar virkjunar þyrfti að vera tekinn til starfa á árinu 1981. Nú hefur hins vegar svo skipazt í orkumálum, að meiri óvissa ríkir um veigamikil atriði, sem þau varða. T.d. er ekki hægt að slá föstu, hversu lengi framkvæmd- um Málmblendiverksmiðju veröi frestað. Það mál mun nánar skýr- ast, að sögn forráðamanna verk- smiðjunnar, að loknum stjórnar- fundi, sem haldinn verður í mai- mánuði. Þá er óvissa um Kröflu- virkjun. Enn virðist ýmislegt geta skeð á Kröflusvæðinu. Þó að jarð- skjálftavirkni hafi minnkað að undanförnu, halda jarðvisinda- menn því fram, að gos geti hafizt að nýju, og taka þar Mývatnselda á 18. öld til samanburðar. Lands- virkjun hefur því gert athugun á þeim afleiðingum, sem óvissan um þessar framkvæmdir getur haft i för með sér fyrir tima- setningu Hrauneyjafossvirkjun- ar. Niðurstöður þessara athugana eru að sjálfsögðu mismunandi eftir mismunandi forsendum varðandi framvindu Málmblendi- verksmiðjunnar og Kröflu. Ef lúkningu Kröfluvirkjunar frestaðist verulega, svo dæmi sé tekið, myndi orkuþörf á Norður- landi ekki verða fullnægt á næstu árum með vatnsafli, nema með orkusölu að sunnan. Ef Málm- blendiverksmiðjan hæfi rekstur innan næstu þriggja ára þyrfti að flýta Hrauneyjafossvirkjun þannig, að hún yrði komin i rekst- ur sem fyrst, svo að ekki komi til orkuskorts eda óhóflegrar notkunar dieselstöðva á hinu sam- tengda orkuveitusvæði. Yrði þróunin aftur á móti sú, að Kröfluvirkjun kæmist i rekstur samkv. áætlun, en Málmblendi- verksmiðjan frestaðist verulega, mætti fresta Hrauneyjafoss- virkjun til 1983 eða 1984 ef ekki yrði komið á fót nýjum orkufrek- um iðnaði fyrir þann tima. Auðvelt á að vera að hraða eða hægja á framkvæmdum við Hrauneyjafossvirkjun i samræmi við slikar breytingar á orkueftir- spurn en með því er tryggður sveigjanleiki samfara öryggi í orkuöflun á hinu samtengda orkusvæði. Rétt er að geta þess, að Lands- virkjun hefur haft i huga að byggja Hrauneyjafossvirkjun hægar, en bæði Búrfellsvirkjun og Sigölduvirkjun, og miða að þvi að nýta innlenda' verktaka sem allra mest til þess verks. Enginn vafi er á því að bæði frá sjónar- miði Landsvirkjunar og þjóð- félagsins í heild væri það hag- stæðara að byggja virkjunina hægar. Þá mætti komast hjá þeim toppum við notkun á vinnuafli, sem gert hafa mikla erfiðleika, bæði við byggingu Sigöldu- virkjunar og Búrfellsvirkjunar. Með hliðsjón af þvi, sem hér hefur stuttlega verið rakið, hefur stjórn Landsvirkjunar sent iðn- aðarráðherra og borgarstjóra ýtarlega greinargerð um orku- öflunaráform fyrirtækisins, og var sú greinargerð lögð fram í borgarráði fyrir allnokkru síðan. Jafnframt hefur verið beðið um formlegt virkjunarleyfi fyrir fyrstu tveimur áföngum Hraun- eyjafossvirkjunar, þ.e.a.s. 140 mw virkjun. Helztu ástæður fyrir virkjunarleyfisumsókninni voru taldar þessar: 1. Hrauneyjafoss er ódýrasti virkjunarvalkostur sunnanlands. 2. Mjög vafasamt er talið, að orkuöflunarfyrirtæki utan Lands- virkjunarsvæóisins geti nógu tímanlega séð fyrir viðbótarorku- þörf á Landsvirkjunarsvæðinu eftir að núverandi orkuöflunar- kerfi svæðisins að Sigöldu meðtal- inni er-fullnýtt. 3. Talið er að stefnt sé í nokkra tvisýnu um orkuöflun á stærsta orkuveitusvæði landsins, ef ekki verður unnt að hefja virkjunar- framkvæmdir við Hrauneyjafoss í svo til beinu framhaldi af fram- kvæmdum við Sigöldu. 4. Til að tryggja að áfram verði stefnt með öryggi að virkjun Tungnaár við Hrauneyjafoss telur stjórn Landsvirkjunar nauð- synlegt að fá nú þegar virkjunar- leyfi iðnaðarráðherra lögum sam- kvæmt, enda þótt ekki sé að svo stöddu unnt að ákveða, hvenær tímabært sé að hefja framkvæmd- ir við virkjunina sjálfa. Stjórn Landsvirkjunar hefur tekið skýrt fram, að ekki muni i fram- kvæmdir við virkjunina ráðizt, nema að höfðu samráði við eignaraðila, þ.e.a.s. ríkið og Reykjavíkurborg. Hér hefur verið rakið hvaða af- leiðingar frestun Málmblendi- verksmiðju gætu haft á fram- kvæmdahraða Hrauneyjafoss- virkjunar. Nú verður reynt að gera grein fyrir því, hvaða þýðingu frestun Málmblendiverk- smiðju getur haft á afkomu Landsvirkjunar og þar með al- mennings á orkuveitusvæði fyrir- tækisins. Þetta var athugað á sín- um tima, þegar orkusölusamning- ur við Málmblendifélagið var gerður. Þeir reikningar eru nú í endurskoðun, en þar sem forsend- ur hafa lítið breytzt frá þeim tíma, þegar þær athuganir fóru fram, skal hér rakið hvað þá var reiknaðút: 1. Ef Málmblendiverksmiðjan hefði hafið rekstur í árslok 1977 eins og til stóð og unnið með áætl- uðum afköstum yfir samnings- . timabilið, 20 ár, hefði Lands- virkjun fengið orkusölutekjur sem hér segir: Núvirði orkusölutekna 1976 svarar til u.þ.b. 22 millj. $. Þessar tekjur eru þvi ekki hreinar um- framtekjur, því með tilkomu Málmblendiverksmiðjunnar þarf að flýta framkvæmdum við næstu virkjanir, sem kostar peninga, og einnig þarf að reisa háspennulinu í Grundartanga, sem annars hefði ekki þurft að gera. Núvirði fjárfestingarflýtingar- innar og kostnaður við háspennu- línu í Grundartanga áætlast að kosta sem svarar 14 millj. $, að núvirði 1976, þannig að Málm- blendiverksmiðjan hefur áætlast skila u.þ.b. 8 millj. $ í betri af- komu Landsvirkjunar i pening- um, að núvirði 1976, auk þess sem fyrirtækið ætti háspennulínu i Grundartanga umfram það, sem Landsvirkjun fær í sinn hlut, ef af þessari sölu verður ekki. Hér skal bætast við, að ekki hefur verið tekið tillit til verð- hækkunarákvæða í orkusölu- samningum um málmblendi, sem hugsanlega gætu haft veruleg áhrif til aukins ábata Lands- virkjunar. Ef áðurnefndur ábati á orku- sölu til Málmblendiverksmiðj- unnar væri látinn skila sér í lækk- uðu orkuverði til almennings- veitna, yrði lækkunin að meðal- tali um 7%. Þetta þýðir aftur á móti, að til þess að fá sömu rekstrarútkomu. án orkusölu til Málmblendiverksmiðju, þarf Landsvirkjun að hækka verð til almenningsveitna u.þ.b. 7%. 2) Ef Málmblendiverksmiðjan greiðir tryggó orkukaup 396 gwst á ári, þ.e. 80% af meðalorkukaup- um frá og með 1978, hefur frestun verksmiðjunnar lítil áhrif á af- komu Landsvirkjunar, ef um eitt eða tvö ár er að ræða, en auðvitað eftir því meiri áhrif sem tíminn verður lengri. 3) Verðiagning á orku Lands- virkjunar ræðst nú af arðgjafar- kröfum í lánssamningi Alþjóða- bankans og Landsvirkjunar, sem segja má að hafi haft það mark- mið, að fé úr rekstri Lands- virkjunar næði að greiða 15—20% af stofnkostnaði Sigölduvirkjunar. Þar sem fjármögnun Sigöldu- virkjunar er afstaðin er orkusala til Málmblendiverksmiðjunnar hefst er ekki gefið að hækka þurfi orkuverð til almennings vegna arðgjafakröfu Alþjóðabankans, þó að ekki verði úr orkusölu til Málmblendiverksmiðju. Hins vegar er ljóst að greiðslu- byrði Landsvirkjunar vegna lána, sem tekin hafa verið vegna fram- kvæmda fyrirtækisins, myndi léttast verulega og eftir því meir, sem orkusalan til Málmblendi- verksmiðju hefst fyrr. Þetta atriði er i nánari athugun einmitt nú, en niðurstöður liggja ekki fyr- ir. Hægt er að láta þess getið, að breyttur orkusölusamningur við tsal og núverandi orkusölu- samningur við Málmblendið geta greitt u.þ.b. 34 af vöxtum og af- borgunum af eftirstöðyum allra útistandandi skulda Lands- virkjunar vegna fjárféstingar fyrirtækisins, að Sigöldufram- kvæmdum meðtöldum. Spurning nr. 3. Æskilegt væri að ræða þessi mál á fundi með þingmönnum Reykjavíkur á næsta sameiginleg- um fundi þeirra og borgarfull- trúa. Slíkan fund á að halda í apríl skv. samstarfsreglum, sem útbúnar voru i vetur. Að vísu átti að halda fund í febrúar, en vænt- anlega er það mitt að hafa frum- kvæði að þvi að boða til næsta fundar og væri þá æskilegt að taka þessi mál tíl umræðu þar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.