Morgunblaðið - 24.11.1976, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1976
19
FAGURRAUÐ DELICIOUS
fast i næstu matvöruverzlun
Einkaumboð: Heildverzlun Björgvins Schram, Reykjavík- Simi 24340
Söluumboð.:
AKUREYRI: Valgarður Stefánsson h.f.# heildverzlun
VESTMANNAEYJAR: Heiðmundur Sigurmundsson — heildverzlun
ÍSAFJÖRÐUR: Sandfell h.f., heildverzlun.
Þorlákur Sigurjóns-
— Minningarorð
son
Fæddur 3. mars 1907.
Dáinn 17. nóvember 1976.
Þorlákur Sigjónsson fæddist að
Hofi i öræfasveit og ólst þar upp i
hópi fjögurra systkina. Faðir
hans, Sigjón Jónsson, var upp-
runninn i öræfasveit, en móðir
Þorláks var Arndls Halldórsdóttir
frá Lágu-Kotey i Meðallandi. Föð
ur sinn missti Þorlákur, þegai
hann var 7 ára gamall og ólst
síðan upp hjá móður sinni, sem
bjó áfram ekkja með barnahóp-
inn, elsta barnið þá 9 ára og það
yngsta árs gamalt.
Þegar Þorlákur var 16 ára fór
hann í útver til Vestmannaeyja og
var þar til sjós hjá sama for-
manni, Kristni Magnússyni, sam-
fleytt 20 vertiðir.
Arið 1942 kvæntist Þorlákur
Ingibjörgu Stefánsdóttur bóndá I
Arnardrangi I Landbroti. Búskap
hófu þau hjón I húsmennsku I
Arnardrangi 1944 og voru þar til
ársins 1953. Frá Arnardrangi
Fóstrufélag
íslands:
Starfsem-
in hefur
fluttust þau að Eystri-Tungu og
bjuggu þar til ársins 1960 er þau
fóru til Keflavíkur, en til Reykja-
vikur fluttu þau sig 1967. Þar
stundaði Þorlákur byggingar-
vinnu og síðar vann hann hjá
borginni meðan honum entist
heilsa.
Börn Þorláks og Ingibjargar
eru þessi:
Snorri, f. 1943. Kona hans er
Kristlaug Þórarinsdóttir. Þau
eiga 3 börn.
Margrét Sigrlður, f. 1945. Mað-
ur hennar var Hilmar Haraldsson
er nú er látinn. Börn þeirra eru 4.
Sigurdís f. 1950. Maður hennar
Helgi Vilberg Jóhannsson. Þau
eiga 2 börn.
Það segir sig sjálft, að Þorlákur
Sigjónsson hlaut að vinna hörðum
höndum strax I uppvexti. Hann
var góður verkamaður og vinsæll
af vinnufélögum sínum, enda
prúðmenni og laus við áreitni í
annarra garð. Heimilisfaðir var
hann ágætur og sá vel um hag
konu sinnar og barna. Það hefur
löngum verið talið hámark
skyldurækni að vinna öðrum af
jafnmiklum trúnaði og sjálfum
sér. Samt finnast þess ófá dæmi.
að menn ynnu húsbændum slnum
betur en sjálfum sér. Þannig var
Þorlákur Sigjónsson. Má segja, að
slíkt sé hámark kristilegs hugar-
fars. Er sá hugsunarháttur geng-
inna kynslóða þvl miður sjald-
fundinn nú á timum. Þorlákur
Sigjónsson var örugglega einn
þeirra dánu manna, sem ekki
brást húsbóndahollusta, hvar sem
hann var að verki.
Verða honum laun hins trúa
þjóns drjúg I nýrri tilveru. Kærar
þakkir fylgja honum þangað frá
vinum og vandamönnum fyrir
góða samveru hér megin grafar.
Utför Þorláks fer fram frá Foss-
vogskapellu kl. 13.30 miðvikudag-
inn 24. þ.m.
Þórarinn Helgason.
F
á árinu
t FRÉTT, sem blaðinu hefur bor-
ist frá Fóstrufélagi tslands segir
m.a. að ný stjórn hafi verið kosin
á aðaifundi. þann 28. okt. slðastl.
Núverandi formaður Fóstru-
félags tslands er Margrét Pals-
dóttir.
I skýrslu fráfarandi formanns,
Hólmfríðar Jónsdóttur, kemur
fram að starfsemi félagsins hefur
stóraukist á árinu. Auk almennra
félagsfunda sem voru fimm, störf-
uðu sjö umræðuhópar. Þar var
meðal annars fjallað um: Að-
stöðujafnrétti, atferlisathuganir á
börnum á forskólaaldri, barna-
bækur, foreldrafundi, starfs-
áætlanir, starfsmannafundi. Og
gerðu umræðuhóparnir grein fyr-
ir niður-stöðum sinum, á fundi s.l.
vor.
Dagana 28. og 29. ágúst var
haldinn fundur á Akureyri með
fóstrum frá Norður- og Austur-
landi, um þrjátíu fóstrur sóttu
þann fund.
t fréttinni segir ennfremur að
svipaðir umræðuhópar komi til
með að starfa I vetur. Eru þær
fóstrur, sem áhuga hafa, hvattar
til að hafa samband við skrifstofu
Fóstrufélgsins, Hverfisgötu 26,
sem er opin þriðjudaga og mið-
vikudaga eftir hádegi.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐENU
stóraukizt