Morgunblaðið - 19.12.1976, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976
57
í afahúsi
Ný bók eftir Guðrúnu Helgadótt-
ur, höfund bókanna um Jón
Odd og Jón Bjarna. Þetta er sag-
an um Tótu litlu, átta ára óvenju-
lega bráðþroska telpu, og fólkið
í afahúsi, mömmu hennar og
pabba, systkini, afa og ömmu.
Og á hinu leitinu er skólinn, þar
sem margt ber til tíðinda, og
fólkið í götunni. Sagan lýsir fjöl-
þættu, iðandi mannlífi þar sem
ekki skortir skemmtileg atvik né
hnyttin tilsvör fremur en í fyrri
bókum Guðrúnar.
Vísnabókin
Þessi sígilda bók hefur öðlast
slíkar vinsældir að fátítt er. Hún
ætti að komast í hendur allra
barna og foreldra þeirra. Ný
sending af hljómplötunni góðu,
þar sem sungnar eru vísur úr
bókinni, er væntanleg næstu
daga.
Kalli og Kata
í fyrra komu út tvær bækur um
Kalla og Kötu og urðu mjög vin-
sælar. Nú eru komnar út tvær
nýjar bækur, Kalli og Kata eiga
afmæli og Kalli og Kata eignast
gæludýr. Þær standa hinum fyrri
síst að baki og eiga áreiðanlega
eftir að gleðja mörg lítil börn.
Jón Oddur og Jón Bjarni
Báðar bækur Guðrúnar Helga-
dóttur um þessa óviðjafnanlegu
bræður hafa verið endurprentað-
ar, en sú fyrri er þegar á þrot-
um öðru sinni. Það er því ekki
seinna vænna að komast yfir
eintak.
Barbapapa
hefur unnið hug og hjörtu allra
barna, enda er það auðskilið,
þegar bækurnar eru skoðaðar,
því að þær eru gæddar óvenju-
legu hugmyndaflugi og lífsgleði.
Nú er komin ný bók með 17
Tumabækur
Tvær nýjar Tumabækur eru
komnar út: Tumi leikur við kisu
og Tumi og Magga. Bækur þess-
ar eru eftir mjög kunnan barna-
bókahöfund, Gunilla Wolde, og
gefnar út samtímis í mörgum
löndum. Skemmtilegar myndir.
Sigrún fer á sjúkrahús
Þessi bók Njarðar P. Njarðvík
er einskonar heimildarsaga fyrir
börn. Sagt er frá fjögurra ára
stúlku sem þarf að fara á sjúkra-
hús til að láta taka úr sér háls-
kirtla. Bókin er samin í samráði
við barnadeild Landakotsspítala
og er ætlað kynningarhlutverk,
aUk þess sem hún geymir
skemmtilega og að ýmsu leiti
spennandi sögu.
bráðskemmtilegum myndasög-
um af ævintýrum Barbafjölskyld-
unnar. Einnig eru fáanlegar fjór-
ar aðrar bækur um þessa ein-
stæðu fjölskyldu.
Tvær fyrstu bækurnar í nýjum
bókaflokki eftir höfund Tuma-
bókanna, Emma öfugsnúna og
Emma og litli bróðir. Þessar bæk-
ur eru algerlega hliðstæðar
Tumabókunum og bera öll sömu
góðu höfundareinkennin.
Helgi skoðar heiminn
Hinar gullfallegu myndir Hall-
dórs Péturssonar, sem sýndar
voru á Kjarvalsstöðum í haust,
hugljúf og skemmtileg saga eftir
Njörð P. Njarðvík. Ótvírætt feg-
ursta og vandaðasta íslenzk
barnabók, sem gerð hefur verið.
Gleðjið unga vini yðar með þess-
ari frábæru bók.
Jólavísur
Ragnars Jóhannessonar með
myndum Halldórs Péturssonar
eru komnar í nýrri útgáfu. Þess-
ar skemmtilegu vísur hafa um
langt skeið verið ríkur þáttur í
jólagleði og jólahaldi íslenzkra
barna, enda óspart um hönd
hafðar í heimahúsum, á jóla-
skemmtunum og í barnatímum
í útvarpi.
IÐUNN
Breytmgar
í Crtsabæ
þroskandi leikbók eftir
Annette Tison og Talus Taylor
Breytingar í Grísabæ
Þroskandi leikbók eftir Tison og
Tailor, höfunda bókanna um
Barbapapa. Falleg bók og
skemmtileg, sem kennir börn-
unum ýmislegt.
Bákaútgáfaii löm Skeggjagötu 1 simí 19156 ag 12923