Morgunblaðið - 16.02.1977, Page 19

Morgunblaðið - 16.02.1977, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRUAR 1977 19 — Nafnleynd Framhald af bls. 15 Albert svarar Sverri Albert Guðmundsson (S) sagði Sverri, flokksbróður sinn, sjálfan í opinberu embætti. sem ekki hefði verið auglýst; framkvæmdastjóri Fram- kvæmdastofnunar ríkisins (Hér kallaði Sverrir fram í „Máske bar ég af í starfið") Þingmaðurinn ber sjálfsagt af, þegar hann er eini umsækjandinn. Hvað viðvéki dæmisögunni af sonum Al Capone, kæmi sér í hug, að þeir hefðu sjálfsagt hætt við Sölunefndina, þegar þeir hefðu frétt af Framkvæmda- stofnuninni. — EBE Framhald af bls. 1. íra, einkum Josef Ertl frá V- Þýzkalandi, sem sagði að v-þýzkir bátar ættu hefðbundinn veiðirétt á þessu svæði og að V-Þjóðverjar myndu gera ráðstafanir til að tryggja réttindi þeirra. Þá sögðu embættismenn EBE, að Erlt hefði óbeint látið að þvi liggja, að v- þýzka stjórnin, sem leggur fram mest fé til sjóða EBE, kynni að endurskoða stefnu sína um fjár- mögnun efnahagsuppbyggingar írlands gegnum EBE. Embættis- mennirnir sögðu að tíminn fram til 1. marz yrði væntanlega notað- ur til að reyna að finna aðra lausn á ofveiðivandamálunum við Ir- landsstrendur. Þessi samþykkt ráðherranna gefur EBE sterkari sameiginlega samningastöðu er viðræður bandalagsins við Alexander Iskhov sjávarútvegsráðherra Sovétrikjanna um fiskveiðirétt- indi Sovétrikjanna í EBE- fiskveiðilögsögunni hefjast í Briissel i dag miðvikudag. — Tímabært Framhald af bls. 1. en hann lýsti því þó yfir við brott- förina frá Bandarikjunum, að þátttaka Palestinumanna í við- ræðunum kæmi ekki til mála meðan þeir neituðu að viður- kenna Israel sem sjálfstætt ríki. Hann sagði að allir gerðu sér grein fyrir að friðarumleitanirnar yrðu ekki auðvelt verk og enginn skyldi gera sér vonir um skjóta lausn. Vance gagnrýndi Israela einnig áður en hann lagði af stað fyrir olíuleit þeirra í Suezflóa og sagði, að hún hjálpaði ekki til og gæti flækt samningaviðræður. ísraelar vörðu sig í dag, er háttsettur emb- ættismaður sagði: ,,Það er ágrein- ingur um þetta atriði og við mun- um ræða það ef Vance tekur mál- ið upp, en það er mjög ofmælt að segja, að þessi olíuleit standi í vegi fyrir friði.“ Vance fer frá Israel á fimmtu- dag til Kaíró til viðræðna við egypzka ráðamenn. — Vonandi Framnald af bls. 17. ráðherra, og Jón Ármann Héðinsson alþingismaður, skip- aður af fjármálaráðherra. Stofnfundurinn kaus svo í vara- stjórn þá Jón H. Júlíusson odd- vita, Sandgerði, Ellert Eiríks- son verkstjóra, Keflavík, og Oddberg Eiríksson verkstjóra, Keflavik. Þá var Alexander Magnússon bókari, Keflavík, kosinn annar endurskoðandi félagsins, en iðnaðarráðherra mun svo skipa hinn, samkvæmt stofnsamningi undirbúnings- félagsins. — Crosland Framhald af bls. 1. ton í næsta mánuði. Stjórnmála- fréttaritarar segja augljóst, að Callaghan komist ekki hjá þvi að skipa nýjan utanríkisráðherra á næstunni, þar sem verkefni þessi þoli enga bið. Almennt hafði verið talið, að Denis Healey, fjármálaráðherra, myndi næstur taka við embætti utanríkisráðherra, en hann er nú i miðju kafi við að undirbúa nýtt fjárlagafrumvarp, sem lagt verð- ur fram í apríl og það frumvarp getur haft úrslitaáhrif til að fá verkalýðsfélögin i landinu til að falla frá launakröfum og fallast á takmarkaðar hækkanir eitt ár i viðbót. Ef þetta ekki tekst óttast ríkisstjórnin að ný verðbólgualda mun: skella yfir. Því er talið ólík- legt að Healey verði valinn. Sá, sem næstur er talinn koma, er Merlyn Rees, írlandsmálaráð- herra, en hann er náinn vinur og samstarfsmaður Callaghans og hefur tekizt á við mikil og erfið vandamál sem írlandsmálaráð- herra. Þá er Peter Shore, um- hverfismálaráðherra, einnig tal- inn koma til greina svo og Roy Hattersley. Annað vandamál, sem veikindi Crosland skapa, er að með fjar- veru hans missir ríkisstjórnin 1 atkvæðis starfsmeirihluta sinn í neðri málstofunni og getur það haft alvarlegar afleiðingar fyrir stjórnina, er frumvarpið um tak- markað sjálfstæði til handa Skot- landi og Wales verður lagt fram á næstunni, ef stjórnarandstöðu- flokkarnir ná samstöðu sín á milli. - Börkur NK . . . Framhald af bls. 2 Klængur Ár 70 tonn, Huginn VE 300, Ársæll KE 180, Albert GK 570, Faxi GK 230, Bjarni Ólafsson AK 430, Hrafn GK 380, Ólafur Magnússon EA 160, Bjarnarey VE 30 (bilun), Óskar Halldórsson RE 110, Svanur RE 270, Helga RE 270, Hilmir SU 540, Rauðsey AK 500. Bára GK 120. Árni Magnús- son Ár 190, Hilmir KE 220, Börk- ur NK 970 og Þórður Jónasson EA 380. — Islandi út- hlutað 8 rásum . . . Framhald af bls. 17. ari staðsetningu, sem mundi vera heppilegri með tilliti til þarfa Is- lands eins. I þvi tilfellinu er um að ræða geisla sem nær yfir ísland og Færeyjar og hluta af Grænlandi en i sama geisla hafi Danir einnig til umráða tvær rásir. Segir i fréttatilkynningunni, að þar eð almennt hafi hverju riki aðeins verið úthlutað 4—5 rásum megi telja niðurstöðurnar hagstæðar fyrir ísland. Ákvarðanir ráðstefn- unnar taka gildi 1. janúar 1979 og gilda í 15 ár. Gert er ráð fyrir því að gerfi- hnöttunum verði raðað á baug í um 36000 km hæð yfir miðbaug og virðast þeir kyrrstæðir séð frá jörðu. — Hort æfir . . . Framhald af bls. 2 taugastrið gegn Spasský eins og Fischer forðum, heldur mun ástæðan vera sú, að Hort dvelur nú við æfingar í fjallakofa sínum i Tékkóslóvakíu. Vill hann vera þar alveg ótruflaður. Er fastlega búizt við því að Hort skriði úr hiði sínu á allra næstu dögum og láti i sér heyra. Borizt hafa til landsins spiunku- nýjar myndir af skákköppunum Hort og Spasský og birtast þær hér á siðunni. JcpíHSjti Viðhöfum fleira □□□ □ ljlj en gódcm ntat D BERGSTAÐASTR/tTI 37 S i MI 21011 Notfærið ykkur okkar hagstæðu vetrarverð og gistið í hjarta borgarinnar. Sérstakt afsláttarverð fyrir hópa. Hvers vegna eru PHILIPS litsjónvarpstækin mest seldu litsjónvarpstæki Bvrópu? H r-iH tsia u Svar: u PHILIPS Tæknileg fullkomnun ÞEIR SEM RANNSAKAÐ HAFA TÆKIN SEGJA M.A.: 1) ,,PHILIPS litsjónvarpstækin falla í hæsta gæðaflokk." (Könnun dönsku neytendasam- takanna á 20 tegundum litsjónvarpstækja í mars 1976) 2) „Litgæðin eru best og í heildarniðurstöðu er PHILIPS einnig hæst" (Úr prófun norrænna neytendasamtaka á 1 2 gerðum litsjónvarps- tækja). AUK ÞESS FULLYRÐUM VIÐ: 1) Algjörlega ónæm fyrir spennubreytingum (þolir 165 — 260 volt án þess að myndin breytist). 2) Fullkomin varahlutaþjónusta og sérþjálfaðir viðgerðarmenn í þjónustu okkar. 3) Bilanatíðni minni en ein á 3ja ára fresti. 4) Hentugasta uppbygging tækis (modules)- auðveldar viðhald. PHILIPS litsjónvarpstækin eru byggð fyrir fram- tiðina, því að við þau má tengja myndsegul- bandstæki, VCR (Fáanleg í dag) og myndplötu- spilara, VLP (kemur á markað 1977). Hvor- tveggja auðvitað PHILIPS uppfinningar SKOÐIÐ PHILIPS LITSJÓNVARPSTÆKIN í VERSLUNUM OKKAR ( í Hafnarstræti 3 höfum við tæki tengt myndsegulbandstæki). PHILIPS MYNDGÆÐI EÐLILEGUSTU LITIRNIR PHILIPS KANN TÖKIN Á TÆKNINNI heimilistæki sf Haf narstræti 3 — Sætúni 8

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.