Morgunblaðið - 16.02.1977, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRUAR 1977
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna |
Skrifstofustúlka
Innflutningsfyrirtæki í miðbænum óskar
eftir skrifstofustúlku. Þarf að hafa ensku-
kunnáttu og vera vel vön vélritun. Fjöl-
breytt vinna. Sími 13863.
Flugleiðir
óskar eftir að ráða starfsmann við birgða-
bókhald í innkaupadeild félagsins sem
allra fyrst. Nauðsynlegt að viðkomandi
hafi verzlunarskólapróf, eða sambærilega
menntun.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu
félagsins, að Lækjargötu 2, og skulu
umsóknir hafa borist starfsmannahaldi,
Flugleiða h.f., fyrir 21 febrúar n k.
Flugleiðir h. f.
K E F LAVIK U R BÆ R
Verktakar
Keflavíkurbær óskar eftir.
A. Verktökum í stórverk.
B. Verktökum í smáverk
Verkefnin eru:
Gatnagerð og holræsagerð í nýju íbúða-
hverfi ásamt framkvæmdum við götur í
eldri bæjarhlutum.
Verkþættir eru:
1. Skurðgröftur og sprengingar vegna
stofnæða holræsa, ásamt niðurföllum í
göturog lagningu heimæða.
2. Uppúrtekt úr götustæðum og endur-
fylling burðarlags í akbraut.
Aðrar upplýsingar:
Um er að ræða 10—20 verkeiningar,
sem hver um sig getur verið sjálfstætt
verk, eða eitt stórverk.
Heildarlengd akbrauta er um 1 000 m í
nýju óbyggðu hverfi.
Heildarlengd stofnlagna er um 1400 m í
nýju óbyggðu hverfi.
Heildarlengd gatna í eldri bæjarhlutum er
41 00 m.
Framkvæmdatími er áætlaður frá apríl til
október 1977.
Þeir sem hafa áhuga og vilja frá frekari
upplýsingar hafi samband sem fyrst við:
Ellert Eiríksson. bæjarverkstjóra
Sími 92-1552
eða
Vilhjálm Grímsson, bæjartæknifræðing
Sími 92-1295
Hafnarfjörður
Óskum að ráða verkstæðismenn við raf-
suðu og viðgerðir á vinnuvélum, einnig
verkamenn og bormenn. Símar 50997
og 501 13.
Söluskattsdeild
skattstofu
Reykjavíkur
óskar eftir tveimur mönnum til rannsókn-
arstarfa.
Sendill
Sendill óskast eftir hádegi.
Ólafur Gíslason & Co. h.f.
Sundaborg 22, sími 84800.
Apótek —
Snyrtivörur
Stúlka óskast í apótek hálfan daginn. Góð
þekking á snyrtivörum er æskileg. Tilboð
merkt: Apótek — 1521 óskast sent Mbl.
fyrir 22. febrúar.
Aðstoð íslands við þróunarlöndin.
Stöður í Kenya
Danska Utanríkisráðuneytið hefur óskað*
eftir því að auglýstar yrðu á Norður-
löndum öllum eftirfarandi 9 stöður við
norræna samvinnuverkefnið í Kenya:
Tvær stöður ráðunauta um stofnun og
rekstur kaupfélaga.
Tvær stöður ráðunauta um stofnun og
rekstur byggingarsamvinnufélaga.
Tvær stöður ráðunauta um stofnun og
rekstur iðnfyrirtækja með samvinnusniði.
Ein staða ráðunautar um samvinnurekstur
á sviði fiskveiða.
Tvær stöður ráðunauta um stofnun og
rekstur sparisjóða með samvinnusniði.
Góð enskukunnátta er öllum umsækj-
endum nauðsynleg. Umsóknarfrestur er
til 5. mars n.k. Nánari upplýsingar um
störfin, launakjör o.fl. verða veittar á
skrifstofu Aðstoðar íslands við þróunar-
löndin, Lindargötu 46, (herbergi nr. 8) en
hún er opin mánudaga kl. 3—4 e.h. og
miðvikudaga 4 — 5 e.h.
Telex
Útflutningsmiðstöð Iðnaðarins óskar að
ráða stúlku á telex. Nauðsynlegt er að
viðkomandi hafi gott vald á ensku og einu
norðurlandamáli ásamt góðri vélritunar-
kunnáttu. Umsóknir sendist til augld.
Mbl. merkt: „Telex — 1 704".
Verksmiðjuvinna
Hampiðjan óskar eftir starfsfólki til verk-
smiðjustarfa, ekki undir 1 8 ára aldri.
Unnið er á tví- og þrískiptum vöktum 8
tíma í senn. Mötuneyti á staðnum. Vin-
samlegast hafið samband við verksmiðju-
stjórann, Hektor Sigurðsson.
Hampiðjan h. f.
Fóstrur
Starf forstöðukonu leikskóla Sauðárkróks-
bæjar er laust til umsóknar. Starfið veitist
frá 1 . maí 1 977.
Upplýsingar um starfið veitir formaður
dagheimilisnefndar, Stefán Pedersen, í
síma 51 47.
Umsóknir berist bæjarstjóra fyrir 10. apríl
n.k.
Dagheimilisnefnd
Rafsuðumenn —
Plötusmiðir
óskast strax.
Daníel Þorsteinsson og c / o h.f.
Bakkastíg 9, sími 12879.
Skriftvélavirkjar
Óskum að ráða skriftvélavirkja til starfa.
Reynsla í viðgerðum elektroniskra tækja
mjög æskileg. Nokkur enskukunnátta
nauðsynleg. Upplýsingar gefur Pétur E.
Aðalsteinsson í síma 20563.
-----^----U------------------
Hverfisgötu 33
| raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar \
Ijl ÚTBOÐ
Tilboð óskast í slökkvibifreið fyrir Slökkvi-
stöð Reykjavíkur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, R.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðju-
daginn 29. mars 1 977, kl. 1 1.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800 ,'
$ ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að leggja Vesturbæjaræð 1. áfanga fyrir
Hitaveitu Reykjavíkur, ásamt tilboðum i að hækka kantstein og
endurleggja gangstétt á kafla Hringbrautar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, gegn
1 0.000 -kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 1 5. mars n.k.
kl. 1 1.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Krikirkjuvegi 3 — Simi 25800 ' '
HEMUÐ77&
Veitingarekstur
Óskað er eftir tilboðum í yeitingarekstur á
sýningunni Heimilið ' 77. 26. ágúst —
1 1 september 1 977 í Laugardalshöll.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
okkar, Hafnarstræti 5, sími 11517.
Kaupstefnan — Reykjavík h. f.